Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 49 „HVAR liggur valdið?“ er yfirskrift málþings sem forsætisráðuneytið efnir til föstudaginn 6. febrúar í sam- starfi við Háskóla Íslands; Laga- stofnun og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Á málþinginu, sem haldið verður í hátíðarsal Háskóla Íslands, verður fjallað um samskipti þings og framkvæmdavalds og ýmis álitamál í því sambandi. Þrír fræði- menn munu flytja erindi á mál- þinginu, sem er liður í dagskrá í til- efni af því að 100 ár eru liðin frá því að Íslendingar fengu heimastjórn og þingræði. Í upphafi málþingsins mun Davíð Oddsson forsætisráðherra flytja ávarp og að loknum erindum verða pallborðsumræður. Málþingið hefst kl. 13.30 og er aðgangur ókeyp- is og öllum heimill. Meðal fyrirlesara á málþinginu er danski stjórnlagafræðingurinn Jens Peter Christiansen, prófessor við Háskólann í Árósum, Páll Hreins- son, prófessor við lagadeild H.Í. og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við H.Í. Inngang að pallborðsumræðum flytur Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri Morg- unblaðsins, en í pallborði munu auk hans sitja Birgir Ármansson, alþing- ismaður, Jónína Bjarmarz, alþingis- maður, Margrét Sverrisdóttir, vara- þingmaður, Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþingismaður. Umræðustjóri verður Björg Thor- arensen, prófessor við lagadeild H.Í. en ráðstefnustjóri er Ólafur Þ. Harð- arson, prófessor og deildarforseti Félagsvísindadeildar H.Í. Um er að ræða eitt þriggja mál- þinga sem haldin verða í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnar og þing- ræðis á Íslandi. Hin tvö málþingin verða haldin í mars og apríl og munu fjalla annars vegar um jafnréttisbar- áttu kvenna og hins vegar um at- vinnuþróun landsins frá upphafi heimastjórnar. Málþing í tilefni aldarafmælis þing- ræðis á Íslandi Ráðstefna Öryrkjabandalagsins um aðgengi að upplýsinga- samfélaginu Öryrkjabandalag Ís- lands boðar til ráðstefnu 12. febrúar að Grand hóteli í Reykjavík. Yf- irskrift ráðstefnunnar er „Aðgengi að upplýsingasamfélaginu“. Ráð- stefnugjald er kr. 5.000. Innifaldar eru veitingar í kaffihléum og hádeg- isverður. Ráðstefnustjóri verður Kristján Kristjánsson, sjónvarps- maður. Fluttur verða fyrirlestrar um hin ýmsu svið upplýsingasamfélagsins. Í allri umfjöllun verður gengið út frá hugtakinu „Hönnun handa öllum“ (Design for all). Skráning á net- fangið bsj@obi.is Á NÆSTUNNI Tourette-samtökin verða með op- ið hús í kvöld, fimmtudagskvöldið 5. janúar kl. 20.30 að Hátúni 10b, (aust- asta ÖBÍ blokkin), í Þjónustusetri líknarfélaga á 9. hæð. Opið hús er mánaðarlega að vetr- inum, yfirleitt fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, og gefst fólki þá tækifæri til að hlusta á fyrirlestra eða kynningar, horfa saman á mynd- band, fjalla um bækur varðandi TS- heilkennið, og spjalla saman yfir kaffibolla um Tourette-málefni, seg- ir í fréttatilkynningu. Í DAG LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða græna Opel Astra-fólksbifreið 31. janúar á milli kl. 11 og 12 við Lág- múla 2. Tjónvaldur fór af vettvangi án þessa að tilkynna lögreglu eða hlutaðeiganda tjónið. Því er hann eða aðrir, sem geta gefið frekari upplýsingar, beðnir að snúa sér til umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum Sigurður orti líka Í Heimastjórnarblaði Morgun- blaðsins, 1. febrúar sl., var því haldið fram, að Davíð Oddsson væri eini stjórnaroddvitinn, sem auk Hannes- ar Hafstein fæst við fagurbókmennt- ir. Hið rétta er að Sigurður Eggerz, sem var ráðherra Íslands 1914–15 og forsætisráðherra 1922–24, samdi leikrit, sögur og ljóð. LEIÐRÉTT HRAÐSKÁKMÓT Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 8. febrúar kl. 14 í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Tefldar verða 2x7 umferðir eftir Monrad-kerfi með 5 mín. umhugsunartíma. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, auk þess sem sigurvegarinn verður krýndur „Hraðskákmeistari Reykja- víkur 2004“. Þátttökugjald er 500 kr. fyrir 16 ára og eldri og 300 kr. fyrir 15 ára og yngri. Öllum er heimil þátttaka. Að hraðskákmótinu loknu verða veitt verðlaun fyrir Skákþing Reykjavíkur sem hefur verið í gangi undanfarinn mánuð. Hraðskákmót Reykjavíkur LIONSKLÚBBURINN Fjörgyn í Grafarvogi afhenti í gær 1,5 millj- ónir króna í uppbyggingarsjóð barna- og unglingageðdeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss. Fjárhæðin er afrakstur styrkt- artónleika Fjörgyns í Grafarvogs- kirkju í nóvember sl. þar sem marg- ir helstu tónlistarmenn þjóðarinnar komu fram án endurgjalds. Morgunblaðið/Þorkell Gáfu BUGL 1,5 milljónir króna ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ Útsölunni lýkur laugardaginn 7. febrúar Enn meiri afsláttur síðustu dagana Klapparstíg 44 - sími 562 3614 Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP. Upplýsingar í síma 588 1594. • Netfang: koe@islandia.is Nánari upplýsingar um NLP má finna á www.ckari.com NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar. NLP er notað af fólki um allan heim, sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. Kennt er m.a.: • Að vera móttækilegur og læra á auðveldan hátt. • Að skapa nýtt samskiptamál. • Að skapa þína eigin framtíð. • Að stjórna samtölum. • Að vekja snillinginn í sjálfum sér. • Að leysa upp neikvæðar venjur. • Að lesa persónuleika fólks. • Venjur til varanlegs árangurs. Námskeiðið fer fram dagana 16. til 27. febrúar frá kl. 18-22 Ekki er kennt helgina 21. og 22. febrúar. Kári Eyþórsson NLP námskeið Neuro - Lingustic - Programming Um er að ræða mjög glæsilegt fullinnréttað ca 340 fm skrifstofuhús- næði á 2. hæð í þessu vel staðsetta húsi. Mikið af bílastæðum. FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250 • Borgartúni 31 • www.fjarfest.is Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. Til leigu í Mörkinni 4 í Reykjavík á 2. hæð Upplýsingar gefur Gunnar í síma 693 7310 og sölu- menn Fjárfestingar fasteignasölu í síma 562 4250.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.