Morgunblaðið - 05.02.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 05.02.2004, Qupperneq 50
DAGBÓK 50 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 10 boccia, kl. 13 myndlist. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9.30 boccia, kl. 10.30–10.55 helgi- stund, kl. 11 leikfimi, kl. 13–16.30 smíðar og handavinna, kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 bókband. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 bað, postu- lín, kl. 13 handav. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Aðstoð við böðun og glerskurðu kl. 9–16.30, leikfimi kl. 10– 11, sönghópurinn kl. 13.30, dans kl. 15.15. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 13 föndur og handavinna, bingó kl. 15. Bandalag kvenna verður með kvöldvöku í kvöld kl. 20. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Hlað- hömrum, kl. 13–16 föndur og spil, kl. 12.30– 15.30 tréskurð- arnámskeið, kl. 13.30– 14.30 lesklúbbur, kór eldri borgara Vorboðar, æfingar kl. 17–19. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Glerbræðsla kl. 10, kínversk leikfimi kl. 12, málun kl. 13, karlaleikfimi kl. 13.10, bútasaumur kl. 13.15. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9. Vídeókrók- urinn opinn, pútt í Hraunseli kl. 10–11.30, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, opið hús kl. 14, dagskrá og kaffi í boði Lyf og heilsa. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi spilasalur og vinnustofur opnar. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–15 handavinna, kl. 9.05 og 9.55 leikfimi, kl. 9.30 glerlist og keramik, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 13 gler- og postulín, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 9 myndlistarhópur, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, perlu- saumur, kortagerð og hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–13 bútasaumur, kl. 10–11 boccia, kl. 13–16 hannyrðir, kl.13.30–16 félagsvist. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 samverustund og leir. Vesturgata. Kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 13–14 leik- fimi, kl.13–16 kóræfing. Kl.10.30 helgistund, kór félagsstarfs aldraðra syngur. Mánud. 9. feb. kl.13 verður farið á stefnumót við safnara í Gerðubergi. Einnig far- ið á handverksýningu Ingveldar Einarsdóttur handavinnuleiðbein- anda á Hrafnistu í Hafnarfirði. Skráning í s. 562 7077. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 glerskurður, perlusaumur og morg- unstund, kl. 10 boccia, kl. 13 handmennt og bridge. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Opið kl. 9–14. Kl. 9.15 leikfimi, kl. 10–12 verslunin. Þórðarsveigur 1–5 Grafarholti. Kl. 13.30 opið hús, kl. 14 bingo, kaffiveitingar, allir vel- komnir. Gullsmárabrids. Brids- deild FEBK. Spilað í dag í að Gullsmára 13 Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Kiwaniskl. Geysir, Mosfellsbæ. Spilakvöld í Kiwanishúsinu kvöld kl. 20.30 Sjálfsbjörg, Hátúni 12. Kl. 19.30 skák. Kvenfélagið Hrönn, að- alfundurinn verður í kvöld kl. 20 í Borg- artúni 22, 3. hæð. Þorramatur. Í dag er fimmtudagur 5. febrúar, 36. dagur ársins 2004, Agötu- messa. Orð dagsins: Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögn- uður í heilögum anda. (Rm. 15, 14, 17.)     Sextíu prósent; tólf aftuttugu þingmönnum Samfylkingarinnar, halda úti heimasíðu, flestir með pistlum þótt allur gangur sé á tíðni uppfærslna. Samfylkingin stendur sig þannig vel í samanburði við hina flokkana á Al- þingi, hvað varðar fjölda þingmanna með heima- síður.     Ágúst Ólafur Ágústssonheldur til að mynda úti heimasíðunni ag- ustolafur.is. Nýjasti pist- illinn er síðan í gær og fjallar um nýtt laga- frumvarp Samfylking- arfólks.     Ágúst Ólafur segir: „Éghef nú lagt fram á Al- þingi lagafrumvarp um afnám fyrningarfresta vegna kynferðisafbrota gegn börnum undir 14 ára aldri. Meðflutnings- menn eru níu aðrir þing- menn Samfylkingarinnar.     Með frumvarpinu ertekið tillit til sér- stöðu kynferðisafbrota gegn börnum.     Börn eru sérlega við-kvæmur hópur. Barn sem verður fyrir kyn- ferðisofbeldi áttar sig oft ekki á að brotið hafi verið gegn því fyrr en mörgum árum síðar eða bælir minninguna um ofbeldið og telur sig jafnvel sjálft bera sök.     Kynferðisbrot gegnbörnum koma því oft ekki fram í dagsljósið fyrr en mörgum árum eða áratugum eftir að þau voru framin, þegar þau eru fyrnd að lögum.     Flutningsmenn telja aðgerandi eigi ekki að hagnast á þeim mikla að- stöðumun sem er á hon- um og brotaþola. Fyrn- ingarfrestir vegna kynferðisafbrota gegn börnum eru núna allt frá 5 árum upp í 15 ár og byrja þeir að telja frá 14 ára aldri brotaþola.     Núgildandi fyrning-arfrestir eru í mörg- um tilfellum of skammir fyrir stóran hóp brota- þola.     Dómar þar sem mennhafa verið sýknaðir fyrir kynferðisbrot gegn börnum, jafnvel þótt sekt hafi verið sönnuð, stað- festa þetta.     Flutningsmenn álíta aðrangt sé að kynferð- isbrot gegn börnum geti fyrnst. Vegna eðlis og sérstöðu þessara brota er börnum ekki tryggð nægjanleg réttarvernd og réttlæti samkvæmt nú- gildandi lögum.     Frumvarpið í heild sinnimá finna á vef Alþing- is,“ segir Ágúst Ólafur á heimasíðu sinni. STAKSTEINAR Frumvarp um afnám fyrningarfresta Víkverji skrifar... Stofuofninn heima hjá Víkverja erbilaður og því hefur ríkt ísöld í kotinu undanfarnar vikur. Ekki sér fyrir endann á henni, nema veðrið fari að hlýna á sunnudag, eða Vík- verji gefist upp og hringi í pípara. Ástandið á sér nokkurn aðdraganda en upphaflega taldi Víkverji sér ekk- ert að vanbúnaði að koma skikki á ofninn, þegar hann bilaði fyrst. Vopnaður skiptilykli og fötu hóf hann viðgerðir og allt gekk vel í fyrstu. Auðfundinn var lítill ventill á ofn- inum sem kunningi Víkverja hafði sagt að þyrfti aðeins að losa um til „blása lofti út af ofninum.“ Þetta stóð eins og stafur á bók, þegar losað var um blessaðan ventilinn, kom smáloft út um hann og síðan frussaðist vatnið í fötuna uns það fór að renna við- stöðulaust eins og úr krana. Og með- an á þessu stóð hitnaði ofninn og Vík- verji var heldur enn ekki ánægður með sig. En um leið og „viðgerðinni“ lauk kólnaði ofninn í rólegheitunum og aftur varð kalt í stofunni. Þetta var ekki gott veganesti inn í einn kaldasta janúar síðari ára. Víkverji taldi sér trú um að hann gæti nú vel ráðið við ofninn og endurtók leikinn nokkrum sinnum með sama árangri. Þrjóskan næstum varð honum næst- um að aldurtila í þeirri merkingu að hann nánast fraus fastur við ofninn í eitt skiptið og þá var nóg komið. Vík- verji hefur orðið sér úti um síma- númer hjá pípara, nei, pípulagn- ingameistara og sér fram á hlýtt vor í stofunni. Ísöldin í stofunni hefur reyndar áttsér jákvæðar hliðar sem vert er að geta. Í fyrsta lagi hefur Víkverji með góðri samvisku getað staðið upp frá ostum og afgangsmjólk á stofuborð- inu án þess að þurfa að hafa miklar áhyggjur af frágangi. Hver þarf svo sem á ísskáp að halda við svona að- stæður? Í öðru lagi hefur sjónvarps- dagskráin undanfarna daga einhvern veginn verið mun áhrifaríkari en venjulega. Jafnvel Survivor, sem Víkverji er löngu hættur að hafa gaman af, hefur nú öðlast nýjar vídd- ir. Þarna hlaupa léttklæddir Banda- ríkjamenn um á ylvolgri strönd í Suðurhöfum og leysa þrautir í steikj- andi hita og sól. Í stofunni situr Vík- verji í 6 stiga hita og nánast finnur hinn fjarlæga sólaryl leika við hör- undið alsett gæsabólum. Þetta er raunveruleikasjónvarp í lagi. Brúnk- an lætur þó á sér standa. Í þriðja lagi er Víkverji ekki frá því að kuldinn hafi bara hert hann svolít- ið. „Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði,“ kvað Bjarni Thorarensen. Víkverji getur með góðri samvisku staðfest þetta fyrir sitt leyti. Bjarni vissi alveg hvað hann söng. Látum fagmennina um pípulagn- irnar og hættum öllu fúski og fikti strax. Ósmekkleg auglýsing UNDANFARNA daga hafa okkur borist sorglegar fréttir frá Vestfjörðum. Kona á besta aldri féll skyndilega frá og lét eftir sig fjögur börn. Samhugur Íslendinga var mikill og það var strax stofnaður bankareikningur til að safna fé fyrir börnin, þar sem móðirin hafði ekki líf- tryggingu. Sunnudaginn 1. febrúar sl. birtist svo heldur ósmekkleg auglýsing á bak- síðu Fréttablaðsins, þar sem Landsbankinn auglýsir Líf- vernd, lífeyrissparnað með launavernd, undir fyrirsögn- inni: ,,Hver verður staðan ef þú fellur skyndilega frá?“ Yfir orðinu ,,þú“ er svart strik en samt er mjög greini- legt hvað stendur þar. Þetta finnst mér heldur kuldalegt og skil ekki hvernig þeim þettur í hug að láta svona lagað frá sér núna. Lesandi. Tapað/fundið Svört skjalataska tapaðist SVÖRT skjalataska merkt eiganda tapaðist síðastlið- inn sunnudag. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hafa samband við Lögregluna í Reykja- vík. Hefur einhver séð buxurnar mínar? DÖKKGRÆNAR síðbuxur (hluti af dragt) töpuðust sl. mánudag á ferð um Klapp- arstíg, Skipholt, Austurver, Grímsbæ eða Bónus í Faxa- feni. Finnandi vinsamlega hringi í síma 553 6007 eða 848 9919. Dýrahald Lítil læða fór ð heiman KOLSVÖRT lítil læða tap- aðist af Óðinsgötu 13 í Reykjavík, sennilega föstu- daginn 30.1. sl. Læðan er með græna tauól um hálsinn. Málmsívalningur er á ól- inni með merkingu og símanúmeri. Læðan gegnir nafninu Kolla. Vinsamlega hafið sam- band í síma 864-5628, 698-1918 eða við Katt- holt. Fress vantar heimili YNDISLEGAN tíu vikna fress- kött vantar gott heimili. Hann er svartur og kassavanur. Upplýsingar í síma 557- 6120 eða 845-5715. Fjóra sæta kettlinga vantar heimili FJÓRA átta vikna kett- linga, þrjár læður og eitt fress, vantar gott heimili. Þeir eru kassavanir. Upp- lýsingar í síma 587-3356. Kettling vantar heimili GULLFALLEGUR og skemmtilegur 6 mánaða kettlingur fæst gefins. Upplýsingar í síma 861- 7224. Kisur fást gefins SVÖRT læða 2ja mánaða og kassavön leitar eftir heimili vegna flutninga, sömuleiðis móðir hennar sem er 8 ára og er hálfur sí- amsköttur (bröndóttur.) Uppl. í síma 661-1920. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 hvítmaurana, 8 styggir, 9 holduga, 10 reið, 11 þreyttur, 13 fífl, 15 mæltu, 18 gerjunin, 21 höfuðborg, 22 lifum, 23 atvinnugrein, 24 harð- fiskur. LÓÐRÉTT : 2 ávöxturinn, 3 lofar, 4 spjald, 5 skyldur, 6 klaufaleg, 7 skordýr, 12 grjótskriða, 14 andi, 15 pest, 16 skoffín, 17 mergð, 18 bergmálið, 19 örkuðu, 20 ró. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 rindi, 4 gylta, 7 mótar, 8 særum, 9 alt, 11 agns, 13 óðar, 14 örlög, 15 fisk, 17 naut, 20 ugg, 22 tófan, 23 áflog, 24 klaga, 25 afræð. Lóðrétt: 1 rimma, 2 nótan, 3 iðra, 4 gust, 5 lærið, 6 aum- ur, 10 léleg, 12 sök, 13 ógn, 15 fátæk, 16 syfja, 18 aflar, 19 togað, 20 unna, 21 gáta. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.