Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 52

Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 52
ÍÞRÓTTIR 52 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÓVÍSSA ríkir um hvort Rúnari Sig- tryggssyni, landsliðamanni í handknatt- leik og leikmanni þýska 1. deildarliðsins Wallau Massenheim, verði boðinn nýr samningur við félagið þegar núverandi samningur rennur út í sumar. Rúnar gerði eins árs samning við félagið síðasta sumar eftir að hafa verið í eitt ár í her- búðum Ciudad Real á Spáni. „Tilboðunum frá félögum rignir nú ekki beinlínis til mín eftir EM,“ sagði Rúnar í gaman- sömum tón þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær. „Ég hef ekkert rætt við forráðamenn Wallau Massen- heim um nýjan samning eða um fram- lengingu á núverandi samningi. Fyrir EM í Slóveníu sá ég í dagblaði frétt um að fé- lagið hefði áhuga á að gera nýjan samn- ing við mig, en eftir EM hefur ekkert gerst. Ef ég heyri ekkert frá forráða- mönnum Wallau á næstunni þá fer ég að spyrjast fyrir um málið,“ sagði Rúnar sem hefur ríkan áhuga á að leika áfram í Þýskalandi í eitt til tvö ár til viðbótar gef- ist kostur á því en hann er 32. aldursári. Er ekki að taka við Haukum Eftir að Viggó Sigurðsson hætti skyndilega þjálfun Hauka í fyrradag hef- ur Rúnar verið nefndur sem hugsanlegur eftirmaður Viggós. Spurður sagði Rúnar í gær að hann hefði ekkert leitt hugann að því. „Ég var nú bara að sjá þetta fyrr í dag á vef ykkar á Morgunblaðinu að Viggó væri hættur. Fregnin kom mér mjög á óvart. Á þessari stundu er ég ekki á leið í þjálfun. Ég hef ekkert heyrt frá Haukum, hvorki fyrir né eftir að Viggó var sagt upp. Ég er ekki á heimleið til að taka við þjálfun Hauka,“ sagði Rúnar. Óvissa hjá Rúnari Sigtryggssyni í Þýskalandi ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu hefst sunnudaginn 16. maí, samkvæmt drögum að niðurröðun sem mótanefnd KSÍ hefur gefið út. Þann dag verður flautað til leiks í þremur leikjum í efstu deild karla klukkan 14, Grindavík tekur á móti ÍBV, KA leikur við Keflavík á Akureyri og ÍA og Fylkir mætast á Akra- nesi. Um kvöldið eigast síðan við Fram og Víkingur á Laug- ardalsvellinum. Fyrstu umferðinni lýkur síðan mánudagskvöldið 17. maí þegar tvö efstu lið deildarinnar frá því í fyrra, KR og FH, mæt- ast á KR-vellinum. Tveir leikir verða í 1. deild karla þann 16. maí, Valur-Þór og Völsungur-Þróttur R. Mánudaginn 17. maí leika síðan HK- Fjölnir, Haukar-Stjarnan og Njarðvík-Breiðablik. Þá hefst keppni í 2. deild karla 16. maí með heilli umferð. Íslandsmót kvenna hefst 19. maí en þá leika ÍBV og Breiða- blik í Vestmannaeyjum. Kvöldið eftir mætast FH-Valur, KR- Fjölnir og Stjarnan-Þór/KA/KS. Íslandsmótið hefst í Grindavík, á Akureyri og Akranesi STJÓRN körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur er ekki sátt við þá nið- urstöðu aganefndar Körfuknatt- leikssambandsins að dæma Pál Kristinsson, leikmann félagsins, í eins leiks bann sem tekur gildi á há- degi á morgun og þar með mun kappinn missa af bikarúrslita- leiknum. Njarðvíkingar benda á að aga- nefndin fari ekki eftir þeim reglum sem henni beri að fara eftir. Í þeim segir meðal annars að tilkynna skuli hinum kærða aðila um efni kærunnar og gefa honum sólar- hringsfrest til að skila gögnum varðandi kæruna fyrir fund aga- nefndar og/eða óska eftir málflutn- ingi um málið. Páll gerði athugasemd við dóm- inn þar sem honum var ekki birt kæran með viðeigandi fyrirvara samkvæmt reglugerðinni. Sú venja hefur skapast að körfu- knattleiksdeild viðkomandi félags hefur verið tilkynnt um kæruna, ekki viðkomandi leikmanni þrátt fyrir að það sé sérstaklega tekið fram í reglugerð um nefndina. Njarðvíkingar benda ennfremur á að formaður nefndarinnar sé einn helsti stuðningsmaður Keflvíkinga og óeðlilegt megi teljast að hann víki ekki sæti þegar nefndin dæmir Pál í leikbann í úrslitaleik bikars- ins, gegn Keflvíkingum. Banni Páls mótmælt PÁLL Kristinsson, leikmaður Njarðvíkur, var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar KKÍ í gær. Páll var sem kunnugt er rek- inn af leikvelli í leik Njarðvíkur og Hamars sl. sunnudag fyrir ógnun eða árás á dómara leiksins. Páll mun taka bannið út í bikarúrslita- leik Njarðvíkur og Keflavíkur á laugardaginn kemur. Á fundi aganefndar var einnig tekin fyrir kæra á hendur Julian Martinez, þjálfara Þórs á Akureyri, en hann fékk dæmda á sig brott- rekstrarvillu fyrir óhæfileg mót- mæli eða mótþróa við dómara í leik Fjölnis og Þórs sl. laugardag. Mart- inez var úrskurðaður í tveggja leikja bann, en hann hafði fyrr í vetur verið úrskurðaður í eins leiks bann af nefndinni. Þá var Bjarni K. Árnason, leik- maður Þórs Ak., úrskurðaður í eins leiks bann. Hann var rekinn af leik- velli í leik ÍG og Þórs sl. föstudag fyrir sérlega grófan leik eða of- beldi. Þessi bönn taka öll gildi frá og með hádegi föstudaginn 6. febrúar. Páll verður í banni  ERIC Black, knattspyrnustjóri Coventry, er afar ánægður með að hafa fengið Bjarna Guðjónsson að láni frá Bochum í Þýskalandi. Bjarni hefur nú leikið þrjá leiki með Cov- entry, kom fyrst inn á sem varamað- ur og hefur verið í byrjunarliðinu í tveimur leikjum. Í fyrrakvöld var lið- ið óvænt slegið út úr bikarnum af 2. deildarliði Colchester en Bjarni lagði upp mark liðsins og Black er sannfærður um að koma hans verði félaginu til framdráttar.  „BJARNI hefur þegar sýnt margt gott og er með frábærar sendingar. Hann er nýkominn og þarf tíma til að aðlagast liðinu en hann hefur byrjað vel. Hann hefur sýnt að hann er mjög öflugur knattspyrnumaður og ég er sannfærður um að við eigum eftir að sjá enn betri hluti frá hon- um,“ segir Black.  ROWAN Vine, 21 árs lánsmaður frá Portsmouth, afgreiddi Coventry í fyrrakvöld þegar hann skoraði öll þrjú mörk Colchester í 3:1 sigri í bik- arleik liðanna. Þetta er besti árangur Colchester frá árinu 1971 þegar lið- ið, sem þá var meðal neðstu liða gömlu 4. deildarinnar, sigraði topplið efstu deildar, Leeds, 3:2, og komst í 8-liða úrslit.  GEOFF Thomas, fyrrum lands- liðsmaður Englands í knattspyrnu sem lék m.a. með Crystal Palace, Wolves og Nottingham Forest, gekkst í vikunni undir beinmergs- skipti en hann er með hvítblæði og var kominn í mikla lífshættu. Thom- as, sem fékk beinmerg úr systur sinni, lék 9 landsleiki undir stjórn Grahams Taylors árin 1991 og 1992. Hann lék síðast með Barnsley fyrir þremur árum.  BOVAR Karim, 19 ára sænskur unglingalandsliðsmaður í knatt- spyrnu, varð fyrir árás þriggja stuðningsmanna félags síns, Malmö FF, fyrir utan heimili sitt í fyrra- kvöld. Karim sagði við Aftonbladet að þremenningarnir hefðu reynt að fótbrjóta sig. Hann sagði fyrir hálf- um mánuði að hann væri óánægður hjá Malmö og gæti vel hugsað sér að spila annars staðar, og í kjölfarið á því fékk hann grófar hótanir á spjall- síðum á netinu.  NICLAS Alexandersson, lands- liðsmaður Svía í knattspyrnu um árabil, gekk í gær til liðs við IFK Gautaborg, sem íslenski landsliðs- maðurinn Hjálmar Jónsson leikur með. Alexandersson kemur frá Everton en hann hefur leikið þar í fjögur ár og var lánaður til West Ham um tíma í haust. Alexand- ersson, sem er 32 ára, hefur leikið 68 landsleiki fyrir Svíþjóð og hann spil- aði áður með Gautaborgarliðinu árin 1996-1997 en fór þaðan til Englands þar sem hann lék með Sheffield Wednesday fyrstu þrjú árin. FÓLK Aðeins átta menn taka þátt í sjö-þrautinni á HM eins og á und- anförnum mótum, þar sem tveir hafa þegar áunnið sér þátttökurétt, Tom Pappas frá Bandaríkjunum og Tékk- inn Roman Sebrle, tveir bestu tug- þrautarmenn síðasta árs. Það er stór hópur manna sem berst um hin sæt- in sex á HM og því ljóst að Jón Arnar verður að ná góðum árangri í Tallinn til þess að tryggja sér farseðillinn til Búdapest. „Lít bjartsýnn fram á árið“ „Ég held að formið sé gott og hlakka til þess að takast á við gamla og nýja kunningja í Tallinn,“ sagði Jón Arnar þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. „Ég hef æft sleitulaust frá því í október, sloppið við öll meiðsli og lít því bjartsýnn fram á árið, ég er viss um að það verður gott,“ sagði Jón sem flutti heim til Íslands á ný í desember eftir að hafa búið í Svíþjóð í hálft annað ár. „Ég missti ekkert dampinn við æfingar þegar ég flutti, hélt bara mínu striki.“ Guðmundur er þjálfari Jóns Eftir að Jón Arnar flutti heim gekk hann til samstarfs við Guð- mund Karlsson, landsliðsþjálfara í frjálsíþróttum. Hefur Guðmundur þjálfað Jón frá því í desember og segir Jón að samstarf þeirra hafi gengið vel, en til stendur að það vari fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu í sumar. Þá hefur Jón Arnar gefið það í skyn að hann hyggist rifa seglin. Átján skráðir til keppni Margir þekktir andstæðingar Jóns á síðustu árum etja kappi við hann í Tallinn um helgina. Má þar nefna Tékkana Tomas Dvorák og Roman Sebrle, heimamanninn Erki Nool, Frakkanna Laurent Henru og Úkraínumaðurinn Volodimir Mikai- lenko svo einherjir séu nefndir en alls eru átján menn skráðir til keppni í sjöþrautinni. Rússarnir Lev Lobod- in og Aleksandr Pogorelov verða ekki með þar sem þeir taka þátt í rússneska meistaramótinu sem hald- ið verður um helgina. Jón Arnar fer til Tallinn til að tryggja sér HM-farseðil Morgunblaðið /RAX Jón Arnar Magnússon verður á ferðinni í Tallinn. JÓN Arnar Magnússon, Íslands- meistari í tugþraut og sjöþraut, hélt til Eistlands í morgun þar sem hann tekur þátt í alþjóð- legu móti í sjöþraut innanhúss í Tallinn um helgina. Hyggst Jón Arnar freista þess að tryggja sér keppnisrétt í sjöþraut á heims- meistaramótinu innanhúss í frjálsíþróttum sem fram fer í Búdapest 5.–7. mars nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.