Morgunblaðið - 05.02.2004, Side 54

Morgunblaðið - 05.02.2004, Side 54
ÍÞRÓTTIR 54 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HANDKNATTLEIKSDEILD Hauka og Viggó Sigurðsson sendu frá sér eftirfarandi tilkynningu í gærkvöld: „Í framhaldi af atburðum síðustu daga hafa formaður HKD Hauka Eiður Arnarson og Viggó Sigurðsson komist að sameiginlegri nið- urstöðu varðandi starfslok Viggós hjá Haukum. Samkomulag er um að Viggó láti nú þegar af störfum sem þjálfari meistaraflokks Hauka. Síðastliðin fjögur ár hefur verið gott samstarf milli aðila og sýnir árangur liðsins það. Sú ákvörðun að fá annan þjálfara til liðsins fyrir næsta keppnistímabil er eitthvað sem aðilar eru ekki sammála um og verður svo að vera, því fór sem fór. Hvorugur aðili telur rétt að halda áfram umræðu um þetta mál á opinberum vettvangi og telst málinu lokið af beggja hálfu. Haukaliðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og hefur Viggó með sínum störfum átt stóran þátt í þeirri velgengni, ekki síður en leikmenn og aðrir þeir sem starfað hafa í kringum liðið, að ógleymdum stuðningsmönnum. Aðilar vilja að lokum þakka samstarfið á liðnum árum og óska þeir hvor öðrum alls hins besta í framtíðinni. Eiður Arnarson formaður Handknattleiksdeildar Hauka og Viggó Sigurðsson.“ Yfirlýsing frá Haukum og Viggó HAUKAR hafa leitað til Páls Ólafssonar um að hann taki við þjálfun liðsins í stað Viggós Sigurðssonar og stjórni því út keppnistímabilið. Páll hefur verið að- stoðarmaður Viggós undanfarin þrjú ár og var áður leikmaður Hafnarfjarð- arliðsins. „Ég ætla að sofa á þessu og gefa þeim svar á morgun (í dag). Það var kannski eðlilegast að þeir leituðu til mín enda erfitt að fá þjálfara á þessum tímapunkti. Ég er það mikill Haukamaður að ég á erfitt með að labba í burtu og sjá þá lenda í vandræðum en ég verð að vega þessa hluti og meta áður en ég tek ákvörðun um hvort ég taki við eða hætti,“ sagði Páll við Morgunblaðið í gærkvöld. Eiður Arnarson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, og Þorgeir Haralds- son, fyrrum formaður deildarinnar og núverandi formaður Knattspyrnufélags- ins Hauka, komu að máli við Viggó í gær og báðu hann að endurskoða afstöðu sína, það er að halda áfram í starfi út tímabilið. Viggó varð hins vegar ekki haggað og í framhaldinu var leitað til Páls. Nokkrir leikmenn komu einnig til Viggós í gær og báðu hann að halda áfram en þeim varð ekki að ósk sinni. „Ég sagði við þá að því miður kæmiég ekki aftur enda get ég ekki unnið hjá stjórn sem hefur lýst vantrausti á mig. Ég hef hvatt Pál til að taka við og von- andi verður það niðurstaðan,“ sagði Viggó við Morgunblaðið. Haukar mæta HK í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á Ásvöllum annað kvöld og ef að líkum lætur mun Páll stjórna liðinu í þeim leik. Íslandsmeistararnir hafa leitað til Páls Ólafssonar EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, er vongóður um að honum takist að semja við Ítali um að þeir komi til Íslands í sumar og mæti ís- lenska landsliðinu á Laugardals- vellinum miðvikudaginn 18. ágúst. Eggert átti fund með Franco Carraro, forseta ítalska knattspyrnusambandsins, í höf- uðstöðvum evrópska knattspyrnu- sambandsins í Nyon í Sviss gær en Eggert hefur lagt hart að hon- um að mæta með lið sitt og spila við Ísland. „Við áttum góðan fund í dag og málið þokaðist áfram. Ég ræði við hann aftur á morgun (í dag) og ég er bara bjartsýnn á að þetta takist og að Ítalirnir sæki okkur heim í ágúst. Ég finn fyrir miklum vilja hjá honum en maður veit samt aldrei hvað verður fyrr en endanleg niðurstaða liggur fyrir. Það er ákveðin óvissa hvað varðar þjálfaramálin hjá Ítölum en ég sagði Carraro að það yrði að taka ákvörðun fljótlega af eða á,“ sagði Eggert við Morg- unblaðið í gær. Eggert bjartsýnn á að Ítalir komi sigur á 90. mínútu. Árni Gautur lét mikið að sér kveða í síðari hálfleik og varði í þrígang með glæsilegum hætti í stöðunni 3:1. Fyrst sló hann skot úr aukspyrnu Ziege í slá, Gustavo Poyet náði frákastinu og skallaði að tómu markinu frá markteig en Íslending- urinn kastaði sér á knöttinn á mark- línunni. Skömmu síðar varði Árni Gautur eftir hörkuskalla frá Poyet sem stefndi í markhornið. Sannar- lega eftirminnilegur leikur hjá lands- liðsmarkverðinum. Árni Gautur sagði í viðtali við Sky Sport 2 eftir leikinn að kvöldið hefði verið ógleymanleg lífsreynsla. Fyrsta snerting Árna Gauts viðknöttinn var þegar hann náði í knöttinn sem lá þá í netmöskvunum eftir góða spyrnu Ledley King á 2. mínútu, Robbie Keane bætti við öðru marki á 19. mínútu og Christian Ziege skoraði það þriðja beint úr aukaspyrnu á 43. mínútu. Og gat Árni Gautur lítið gert í þeim tilvikum. Joey Barton lét reka sig út af á leið sinni í búningsherbergi City en lærisveinar Kevin Keegan voru langt í frá búnir að gefast upp í síðari hálfleik þar sem Sylvain Distin, Paul Bosvelt og Shaun Wright-Phillips skoruðu áður en Jonathan Macken tryggði liðinu „Fyrri hálfleikurinn var martröð. Ég vildi halda markinu hreinu en síð- ari hálfleikur var stórkostlegur. End- urkoma okkar var í raun ótrúleg.“ Árni segir að það hafi verið mikilvægt að ná að bjarga málunum eftir fyrra marktækifæri Poyet og aukspyrnu Ziege. „Sem betur fer náði ég bolt- anum í það skiptið. Ég fór í aðgerð á öxl fyrir áramót og þetta var fyrsti leikur minn í tvo mánuði. Ég er mjög ánægður með hvernig til tókst. Það gerist ekki nema einu sinni á ferli hvers leikmanns að taka þátt í að vinna, 4:3, og vera einum færri og þremur mörkum undir í hálfleik,“ sagði Árni Gautur eftir leikinn en City hafði ekki unnið nema einn leik í síðustu 18 viðureignum liðsins fyrir leikinn í gær.  Fulham vann Everton á heima- velli, 2:1, eftir framlengingu en stað- an var jöfn, 1:1, að loknum venjuleg- um leiktíma. Fulham leikur gegn West Ham í 16-liða úrslitum. Reuters Árni Gautur Arason hafði í nógu að snúast í fyrsta leik sínum með Manchester City. „Ógleymanlegt“ ENSKA bikarkeppnin er vettvangur óvæntra atburða og íslenski landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason fékk að upplifa ótrú- lega hluti í fyrsta leik sínum með Manchester City gegn Tottenham á útivelli í gær. City var þremur mörkum undir í hálfleik og hófu þann síðari manni færri, en hið ótrúlega gerðist, City skoraði fjögur mörk í síðari hálfleik og bjargaði Árni Gautur málunum í stöðunni 3:1, og hélt City inni í leiknum á þeim kafla. Liðið mætir Manchester United í næstu umferð á Old Trafford. HANDKNATTLEIKUR Grótta/KR - Haukar 32:33 Íþróttamiðstöðin Seltjarnarnesi, bikar- keppni kvenna, SS-bikarinn, undanúrslit, miðvikudaginn 4. febrúar 2004. Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 3:4, 7:7, 9:7, 11:10, 13:11, 13:13, 14:14, 15:16, 18:18, 18:21, 21:22, 23:23, 24:24, 24:26, 26:26, 27:28, 28:28, 28:29, 29:31, 31:32, 31:33, 32:33. Mörk Gróttu/KR: Eva Bj. Hlöðversdóttir 12/5, Aiga Stephanie 7, Theodora Visikaite 4, Íris Ásta Pétursdóttir 3, Ragna Karen Sigurðardóttir 3, Eva M. Kristinsdóttir 3/1. Varin skot: Hildur Gísladóttir 23/1 (þar af fóru 12/1 aftur til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 13/5, Erna Þráinsdóttir 6, Ragnhildur Guð- mundsdóttir 6, Anna G. Halldórsdóttir 4, Sandra Anulyte 2, Tinna Halldórsdóttir 2. Varin skot: Kristina Matureviciute 25/3 (þar af fóru 12 aftur til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson. Áhorfendur: Um 290. ÍBV - FH 34:24 Vestmannaeyjar: Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 5:2, 6:4, 7:6, 9:7, 10:9, 12:9, 13:11, 16:14, 17:14, 20:15, 23:16, 26:16, 28:18, 30:22, 31:24, 33:24, 34:24. Mörk ÍBV: Anna Yakova 8, Alla Gorkorian 8, Sylvia Strass 7, Guðbjörg Guðmanns- dóttir 4, Anja Nielsen 4, Birgit Engl 2, Þór- steina Sigurbjörnsdóttir 1. Varin skot: Julia Gunimorova 24/1 þar af 2 aftur til mótherja Utan vallar: 8 mínútur. Mörk FH: Guðrún Hólmgeirsdóttir 6, Þór- dís Brynjólfsdóttir 6/4, Jóna Heimisdóttir 3, Gunnur Sveinsdóttir 3, Bjarný Þorvarð- ardóttir 2, Dröfn Sæmundsdóttir 1, Anna Pálmadóttir 1, Björk Ægisdóttir 1, Berg- lind Björgvinsdóttir 1. Varin skot: Jolanta Slapikiens 17, þar af 1 aftur til mótherja. Kristín M. Guðjónsdótt- ir 4, þar af 1 aftur til mótherja. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí- asson. Áhorfendur: 260. KNATTSPYRNA England Bikarkeppnin, 4. umferð: Fulham - Everton .................................... 2:1 Junichi Inamoto 57., Steed Malbranque 102. – Francis Jeffers 90.  Fulham mætir West Ham í 5. umferð. Telford – Millwall............................. frestað Tottenham – Manch.City........................ 3:4 Ledly King 2., Robbie Keane 19., Christian Ziege. – Sylvain Distan 48., Paul Bosvelt 61., Shaun Wright Phillips 80., Jonathan Macken 90. – Rautt spjald: Joey Barton (Man.City) 45.  Manchester City mætir Manchester United í 5. umferð á Old Trafford. Spánn Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur: Real Madrid – Sevilla............................... 2:0 Ítalía Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur: Juventus – Inter Mílanó .......................... 2:2 Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Alemannia Aachen – Bayern München...2:1 Frakkland Montpellier – Marseille ........................... 0:1 Deildabikarinn, undanúrslit: St. Etienne – Sochaux.............................. 2:3  Sochaux mætir Nantes í úrslitaleik. Holland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: PSV Eindhoven – Breda.......................... 0:1 Utrecht – Heracles................................... 3:2 Twente – Feyenoord.................................3:1 Belgía Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, síðari leikir: Cercle Brugge – Moeskroen ................... 0:0  Moeskroen áfram, 3:2 samanlagt. Anderlecht – Heusden-Zolder ................ 0:0  Anderlecht áfram, 3:2 samanlagt. Beveren – Germinal Beerschot............... 1:0  Beveren áfram, 3:1 samanlagt. HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, RE/MAX-deild: Akureyri: Þór Ak. - Afturelding ..........19.15 Selfoss: Selfoss - Breiðablik .................19.15 Víkin: Víkingur - FH.............................19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin: DHL-höllin: KR - KFÍ..........................19.15 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur - Þór A. .................20.30 BLAK 1. deild karla: Digranes: HK - ÍS ......................................20 Í KVÖLD  BAYERN München var í gær sleg- ið út í þýsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu í gærkvöld þegar liðið tapaði fyrir 2. deildarliðinu Alemannia Aachen. Blank kom Alemannina yf- ir á 34. mínútu, Michael Ballack jafnaði á 45. mínútu en Erik Meijer, fyrrum leikmaður Liverpool, tryggði smáliðinu sigurinn með marki sjö mínútum fyrir leikslok.  HERTHA Berlín, sem nú situr á botni þýsku 1. deildarinnar í knatt- spyrnu, varð fyrir áfalli í gær þegar belgíski landsliðsmaðurinn Bart Go- or braut bein í fæti á æfingu. Hann lenti í árekstri við Pál Dárdai, ung- verskan landsliðsmann hjá félaginu, og verður frá keppni í sex vikur.  REAL Madrid sigraði Sevilla, 2:0, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í spænsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu í gær. Bæði mörkin komu í síðari hálfleik. Santiago Solari skor- aði það fyrra og gulldrengurinn Raúl það síðara.  JUVENTUS og Inter gerðu 2:2 jafntefli í fyrri undanúrslitaleik lið- anna í ítölsku bikarkeppninni í gær- kvöld. Brasilíumaðurinn Adriano skoraði bæði mörk Juventus og Marco Di Vaio bæði mörk Inter sem missti markvörð sinn Toldo út af með rautt spjald á 62. mínútu.  BELGÍSKA liðið Antwerpen hef- ur fengið kínverska leikmanninn Dong Fangzhou til liðsins en hann er samningsbundinn enska úrvalsdeild- arliðinu Manchester City. Liðin eru með venslasamning sín á milli en Fangzhou var keyptur frá kínverska liðinu Dalian fyrir nokkrum vikum en hann er 19 ára framherji og þykir vera eitt mesta efni sem komið hefur fram í Kína á undanförnum árum. Manchester United getur fengið leikmanninn til baka með stuttum fyrirvara ef svo ber undir.  MARION Jones hin frábæra frjálsíþróttakona sem vann til fimm verðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney fyrir fjórum árum tekur fram hlaupaskóna að nýju annað kvöld þegar hún keppir í 60 metra hlaupi á innanhússmóti í Bandaríkj- unum. Jones hefur ekkert keppt síð- an í september 2002 en hún eignaðist barn í júní á síðasta ári.  JONES hefur tekið stefnuna á að keppa á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar. „Ég get lítið talað um Aþenu núna. Ég þarf fyrst að tryggja mér sæti í landsliðinu og síðan get ég vonandi stefnt á að gera góða hluti í Aþenu,“ sagði Jones sem ætlar að taka þátt í 100 og 200 metra hlaupi og langstökki á úrtökumóti banda- ríska frjálsíþróttasambandsins í júlí.  NICK Van Exel bakvörður Golden State í NBA-deildinni vill fara til liðs í Texas til þess að vera nær syni sín- um sem er búsettur í Dallas. Líklegt er að hann verði að ósk sinni FÓLK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.