Morgunblaðið - 05.03.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LÁTIN er Franzisca
Gunnarsdóttir, sálfræð-
ingur og rithöfundur, 61
árs að aldri. Franzisca
fæddist á Skriðu-
klaustri í Fljótsdal 9.
júlí 1942, dóttir Gunn-
ars Gunnarssonar list-
málara og Signýjar
Sveinsdóttur. Franzisca
ólst upp á Skriðu-
klaustri til átta ára ald-
urs og flutti stuttu síðar
ásamt langafa sínum og
langömmu, Gunnari
Gunnarssyni skáldi og
eiginkonu hans, Franz-
iscu Antonie Josefine
von Weenk Jörgensen, á Dyngjuveg
í Reykjavík. Hún stundaði utanskóla-
nám við Menntaskólann í Reykjavík í
þrjú ár og útskrifaðist frá Háskól-
anum í Minnesota í Bandaríkjunum
með BA-próf í sálfræði 1968. Hún
giftist Gunnari Birni Jónssyni árið
1963. Þau skildu.
Franzisca starfaði
hjá Sálfræðiþjónust-
unni í Garðabæ um
árabil og síðar hjá
Blindrafélaginu og
sem blaðamaður á
Dagblaðinu. Seinustu
ár starfaði hún við
ritsmíðar, þýðingar
og prófarkalestur.
Hún skrifaði m.a.
bókina Vandratað í
veröldinni sem fjallar
um uppvaxtarár
hennar á Skriðu-
klaustri.
Franzisca átti stór-
an þátt í að Gunn-
arsstofnun var komið á fót á Skriðu-
klaustri og hús Gunnars Gunnars-
sonar skálds á Dyngjuvegi var gert
að aðsetri Rithöfundasambands Ís-
lands.
Hún lætur eftir sig einn son,
Gunnar Björn Gunnarsson við-
skiptafræðing.
Andlát
FRANZISCA
GUNNARSDÓTTIR
Franzisca Gunnarsdóttir
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Jean-Francois Risch-
ard, varaforseti Alþjóðabankans í
Evrópu, skrifuðu í gær undir
samning milli Íslands og Alþjóða-
bankans vegna endurreisnar- og
uppbyggingarstarfs í Írak. Samn-
ingurinn gerir ráð fyrir því að ís-
lensk stjórnvöld leggi til eina
milljón Bandaríkjadala, eða sem
nemur um það bil 70 milljónum ís-
lenskra króna, í fjölþjóðlegan sjóð
sem Alþjóðabankinn hefur umsjón
með og er ætlað að fjármagna upp-
byggingarverkefni í Írak.
Halldór sagði á blaðamannfundi,
sem haldinn var í tengslum við
undirritun samningsins í gær, að
samningurinn kvæði á um að fram-
lagi Íslands yrði varið til uppbygg-
ingar í heilbrigðisgeiranum. „Þar
er þörfin einkar brýn,“ sagði hann.
Halldór gerði ennfremur grein
fyrir því að sjötíu milljónirnar
væru hluti af því 300 milljóna
króna framlagi sem ríkisstjórn Ís-
lands hefði heitið til uppbygging-
arstarfs og mannúðarmála í Írak
eftir að meiriháttar hernaðarátök-
um lauk í landinu í fyrra.
Halldór var spurður að því á
fundinum hvort íslensk stjórnvöld
væru að fullu búin að ákveða
hvernig þessum 300 milljónum
yrði ráðstafað. Svaraði hann því til
að auk framlagsins til sjóðsins,
sem Alþjóðabankinn hefði með
höndum, væri búið að eyrna-
merkja um 70 milljónir íslenskra
króna til verkefnis er unnið væri í
samvinnu við stoðtækjafyrirtækið
Össur. Væri markmið verkefnisins
að hjálpa Írökum sem misst hefðu
útlimi í átökum þar í landi.
Ræddu þróunarmál
Jean-Francois Rischard sér um
samskipti Alþjóðabankans við
Evrópuþjóðirnar og hefur hann af
þeim sökum bækistöðvar í París,
en höfuðstöðvar Alþjóðabankans
eru í Washington í Bandaríkjun-
um.
Rischard vakti athygli á því í
gær að Ísland hefði á árum áður
fengið lánað úr sjóðum Alþjóða-
bankans. Í dag væru Íslendingar
hins vegar í hópi þeirra ríkja sem
legðu fé af mörkum í sjóði Al-
þjóðabankans.
„Mér hefur þótt sérstaklega
áhugavert að gefast tækifæri til að
skiptast á skoðunum við íslenska
embættismenn um það hvernig Ís-
land geti helst varið framlagi sínu
til þróunarmála á næstu árum, fari
svo að þið aukið það úr þeim 0,19%
af landsframleiðslu sem það er
nú,“ sagði Rischard á fundinum í
gær.
„Aukning myndi þýða að þið
gætuð varið meira fé til tvíhliða
þróunarsamstarfs en einnig að þið
gætuð eytt meira fé í fjölþjóðlega
samvinnu. Þar eru ýmis verkefni
sem mætti hugsa sér að Ísland
kæmi að, s.s. í sjávarútvegsmálum.
Þið búið yfir sérþekkingu á því
hvernig nýta má auðlindina á sjálf-
bæran hátt og veröldin þarfnast
aðgangs að slíkri sérþekkingu,
ekki síst ríki í Afríku.“
Sjóðurinn tekur
senn til starfa
Sá sjóður Alþjóðabankans, sem
Ísland hefur nú samið um að
leggja 70 milljónir íslenskra króna
til, var settur á fót í tengslum við
ríkjaráðstefnu sem haldin var í
Madríd seint á síðasta ári um upp-
byggingarstarfið í Írak.
Kom fram í máli Rischards í
gær að heildarloforð um framlög
til uppbyggingarstarfsins hefðu
þar numið 33 milljörðum Banda-
ríkjadala, þar af kæmu 18,6 millj-
arðar frá Bandaríkjunum sjálfum.
Á framhaldsfundi sem haldinn var
í Abu Dhabi í vikunni hefði síðan
safnast 1 milljarður Bandaríkja-
dala til þessa tiltekna sjóðs, þar af
myndi Alþjóðabankinn hafa umsjón
með um 400 milljónum Bandaríkja-
dala en stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna um sex hundruð milljónum
dollara.
Erfitt öryggisástand
„Sjóðurinn tekur því senn til
starfa, fyrst þurfti þó að tryggja að
loforð um framlög skiluðu sér og
það er það sem var tryggt á fund-
inum í Abu Dhabi,“ sagði Rischard.
En öryggisástandið í Írak gerir
mönnum hins vegar erfitt fyrir.
Fram kom í máli Rischards að ekki
hefði reynst mögulegt að halda úti
skrifstofu af hálfu Alþjóðabankans
í Írak sjálfu heldur er skrifstofa
bankans vegna þessara verkefna í
Amman í Jórdaníu. Er síðan notast
við fjarfundabúnað til að vinna með
aðilum í Írak sjálfu, en þar hafa
verið ráðnir nokkrir heimamenn til
starfa.
„Eftir því sem ástandið í örygg-
ismálum fer batnandi munum við
hins vegar geta sent fleira fólk á
vettvang,“ sagði Rischard á blaða-
mannafundinum í gær.
Fer til verkefna í
heilbrigðisgeiranum
Morgunblaðið/Sverrir
Jean-Francois Rischard og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra skrif-
uðu undir samning milli Alþjóðabankans og Íslands í gær.
Skrifað undir samning milli Íslands og Alþjóðabankans vegna uppbyggingarstarfs í Írak
BENNETT Singer er annar
tveggja framleiðenda og leikstjóra
heimildamyndarinnar Brother
Outsider, The Life of Bayard Rust-
in, sem sýnd er á Hinsegin bíódög-
um í Regnboganum. Singer er
staddur hér á landi og tekur m.a.
þátt í málstofu í hátíðarsal Háskóla
Íslands á laugardag sem er hluti af
ráðstefnu Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum um karla-
rannsóknir.
Í skugga King
Í heimildamynd Bennetts sem
hlotið hefur fjölda verðlauna, m.a.
á Sundance-kvikmyndahátíðinni og
kvikmynda-
hátíðinni í Berlín,
segir frá nánasta
ráðgjafa Martins
Luthers King,
Bayard Rustin,
sem var blökku-
maður og sam-
kynhneigður.
Rustin, sem lést
árið 1987, starf-
aði alla tíð í
skugga dr. King og þótti samkyn-
hneigð hans mikil ögrun við hreyf-
ingu bandarískra svertingja. Rust-
in er án efa þekktastur fyrir að
vera einn af forvígismönnum göng-
unnar miklu til Washington sem
markar þáttaskil í sögu svartra í
Bandaríkjunum. Að sögn Bennetts
var kynhneigð Rustins notuð gegn
honum af andstæðingum hans og í
sumum tilfellum af öðrum mann-
réttindafrömuðum. Í einu tilfelli
gekk bandarískur þingmaður svo
langt að hóta að ljúga því að Rustin
ætti í ástarsambandi við Martin
Luther King, sem átti við engin rök
að styðjast. „Þetta varð til þess að
King fjarlægðist Rustin um tíma,“
segir Bennett.
Myndin Brother Outsider verður
sýnd í kvöld kl. 18 og 11. mars nk.
kl. 22.
Verðlaunuð mynd um Bayard Rustin sýnd í Regnboganum
Barðist fyrir réttindum við
hlið Martins Luthers King
Bennett Singer
DÓMSTÓLL Skáksambands Íslands
hefur fellt úr gildi úrskurð móts-
stjórnar Íslandsmóts skákfélaga þar
sem þrjár skákir skáfélagsins Hróks-
ins voru úrskurðaðar tapaðar og úr-
skurðað þær unnar. Hrókurinn er því
kominn með 2,5 vinninga forskot á
Helli. Lið félaganna mætast í upp-
gjöri efstu liða í kvöld. Mótsstjórn úr-
skurðaði í október að a-sveit Hróks-
ins hefði verið ólögleg.
Hrókurinn tefldi fram fimm er-
lendum ríkisborgurum í átta manna
sveit sinni, en mótsstjórn taldi að að-
eins hefði verið heimilt að helmingur
liðsmanna sveita væri skipaður er-
lendum ríkisborgurum.
Í úrskurðinum er hrundið frávísun-
arkröfu SÍ og felldur úr gildi úrskurð-
ur stjórnar Íslandsmóts skákfélaga
frá 30. desember 2003. Telst Faruk
Tairi hafa sigrað í skákum sínum í 1.,
3. og 4. umferð. Dómur Skáksam-
bandsins er fjölskipaður og komst
meirihluti hans að þessari niðurstöðu
en einn dómari skilaði sératkvæði.
Úrskurðað
Hróknum
í vil