Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hættið þið þessu rifrildi, ormarnir ykkar, ég gæti ruglast í niðurtalningunni. Rannsóknagagnasafn opnað Nýtt safn á gömlum grunni RannsóknagagnasafnÍslands (RIS) varenduropnað form- lega 10. febrúar sl. af Þor- gerði Katrínu Gunnars- dóttur menntamálaráðherra eftir miklar endurbætur og breytingar. Morgunblaðið ræddi við Baldvin Zarioh verkefnisstjóra í tilefni þessa. – Segðu okkur frá að- dragandanum… „Upphaflega var Rann- sóknagagnasafn Íslands opnað 5. febrúar 1998 af Birni Bjarnasyni, þáver- andi menntamálaráðherra, en gagnasafnið hefur legið niðri í nokkurn tíma með- an á endurbótum hefur staðið. Í raun má segja að nú sé verið að opna nýtt gagnasafn á gömlum grunni og er hann nær óþekkjanlegur frá því formi sem hann var á áður. End- urbæturnar voru unnar af Reikni- stofnun Háskóla Íslands og kunn- um við þeim bestu þakkir fyrir.“ – Hver er tilgangurinn með smíði þessa gagnabanka? „Hlutverk gagnasafnsins er að safna grunnupplýsingum um rannsóknarverkefni sem unnin eru á Íslandi og/eða unnin eru af Íslendingum og gera þær að- gengilegar á Netinu, en áherslan er lögð á að skrá verkefni sem styrkt eru af íslenskum rann- sóknasjóðum eða eru unnin á rannsóknastofnunum hérlendis. Þannig er það hlutverk gagna- safnsins að gera aðgengilegar á einum stað upplýsingar um öll ís- lensk rannsóknaverkefni, í víðum skilningi,. Eins og sjá má er hlut- verk þess mjög metnaðarfullt og vonast er til þess að með tíð og tíma verði gagnasafnið eins konar þverskurður af þeirri fjölbreyttu rannsóknastarfsemi sem fram fer í landinu. Í hinu alþjóðlega vís- indasamfélagi hefur sífellt meiri áhersla verið lögð á að safna sam- an upplýsingum um rannsókna- verkefni og flestöll þau ríki sem við viljum bera okkur saman við reka viðlíka gagnasafn. Þá má einnig nefna að Evrópusamband- ið hefur víðtækt samstarf um skráningu upplýsinga um rann- sóknaverkefni sem RIS hefur átt þátt í. RIS er að stofni til byggt á stöðlum frá Evrópuverkefninu.“ – Hver var tilurð þessa gagna- safns … og segðu okkur hvernig safnað hefur verið efni í það, hvað verður þar í framtíðinni og hversu umfangsmikill er það svona í byrjun? „Gagnasafnið er afrakstur sam- starfs Rannsóknaráðs Íslands, nú Rannsóknamiðstöð Íslands, Há- skóla Íslands og Iðntæknistofn- unar og má rekja upphaf þess samstarfs allt til ársins 1996 þeg- ar ákveðið var að hefja undirbún- ingsvinnu við gagnasafnið. Allt frá árinu 1998 hefur efni verið safnað í grunninn og nú er upp- lýsingar um rúmlega 2.000 verk- efni að finna í gagna- safninu. Gert var í átak í skráningu þegar RIS var opnað árið 1998 en frá þeim tíma hafa um það bil 200 verkefni verið skráð árlega. Í raun getur hver sem er skráð verkefni í safn- ið í gegnum viðmót á vef gagna- safnins, en öll skráning er háð því að umsjónaraðilar RIS telji verk- efnið eiga heima í gagnasafninu og samþykki það inn í grunninn. Þó gert sé ráð fyrir því að vís- indamennirnir sjálfir skrái upp- lýsingar um verkefni sín í grunn- inn er það svo að flest verkefnin eru skráð miðlægt hjá þeim þremur stofnunum sem standa að RIS. Rannís, Háskóli Íslands og Iðntæknistofnun eru leiðandi í starfsemi og þróun gagnasafnsins en unnið er að því að mynda tengsl við allar stærri stofnanir á Íslandi og freista þess að gera gagnasafnið þannig að enn betri heimild um rannsóknastarfsemi á Íslandi.“ – Hvernig verður með aðgang … og hverjum mun hann nýtast best? „Aðgangur að RIS er ókeypis og getur í raun hver sem er skráð verkefni og leitað í grunninum. Notagildið getur verið margvís- legt. Gagnasafnið nýtist vel til að kanna stöðu þekkingar á ákveðnum sviðum hér á landi og til þess að leita sér heimilda um ákveðin viðfangsefni. Gagnasafn- ið nýtist sérstaklega vel til þess að finna heimildir um séríslensk fyrirbæri eins og um íslenska menningu og íslenska jarðfræði. Einnig er hægt að ímynda sér að vísindamenn noti grunninn til þess að leita að samstarfsaðila, en eins og gefur að skilja, þá er RIS mikilvæg heimild um þá sérfræði- þekkingu sem finna má hér á landi. Þá geta stofnanir notað RIS sem nokkurs konar verk- efnabókhald og haldið þannig ut- an um þau verkefni sem unnið er að á stofnunum og hefur verið unnið að í gegnum tíðina.“ – Hvaða upplýsingar eru skráð- ar og verður safnið bara á ís- lensku? „Ýmsar upplýsingar um verk- efnin eru skráð, t.d. nafn verk- efna, útdrættir, lykilorð, upplýs- ingar um verkefnastjóra og upplýsingar um stofn- anir sem standa að verkefnum. Auðvelt er að leita að verkefnum í gegnum nýja og endur- bætta leitarsíðu. Hægt er að gera einfalda leit í öllum sviðum, eða takmarka leit við út- drætti, lykilorð eða önnur svið. Hægt er að skrá verkefni bæði á íslensku og ensku, þó megin- áherslan hafi í gegnum tíðina ver- ið að skrá upplýsingar á íslensku. Veffang gagnasafnins er http:// www.ris.is og hvetjum við alla til þess að fara inn á vefinn og skoða hvað þar er að finna.“ Baldvin Zarioh  Baldvin Zarioh fæddist á Ak- ureyri 14. febrúar 1976. Stúdent frá MA 1996. Lauk BA-prófi í bókasafns- og upplýsingafræð- um frá Háskóla Íslands árið 2001 og vinnur nú sem verkefnisstjóri á rannsóknasviði Háskóla Ís- lands. Maki er Saliha Lirache. Á einn son frá fyrra sambandi, Jak- ob Z.S. Baldvinsson. Auðvelt er að leita að verkefnum ÓLAFUR Bjarnason, forstöðumaður verkfræðistofu borgarverkfræðings, útilokaði það ekki í ræðu sinni á borg- arafundi í Ráðhúsinu um helgina, þar sem færsla Hringbrautar var til um- ræðu, að setja hluta Hringbrautar- innar í stokk eða byggja yfir hana, ef menn töldu það hagkvæman kost. Landspítalinn eða verktakar sem fengju lóðir ofan á slíkri yfirbyggingu myndu þá kosta framkvæmdina. Aðrir valkostir Ólafur sagðist í samtali við Morg- unblaðið efast um að t.d. Landspít- alinn myndi ráðast í slíka fram- kvæmd. Þetta væri meiri möguleiki en raunhæfur kostur. Hefðu einhverj- ir aðilar áhuga á þessu gæti yfirbygg- ing eða stokkur komið til skoðunar en breytinga yrði þörf á gildandi skipu- lagi. Slíkar framkvæmdir gætu átt sér stað í framtíðinni, þegar búið væri að færa Hringbrautina. Landspítal- inn væri t.d. ekki búinn að ganga frá sínum skipulagsmálum og Reykjavík- urflugvöllur væri enn til staðar í Vatnsmýrinni. Á borgarafundinum var Ólafur spurður út í aðra valkosti en þá fram- kvæmd sem búið væri að kynna og bjóða út, og af hverju þeir hefðu ekki farið í umhverfismat til hliðar öðrum kostum. Ólafur sagðist hafa bent á að til væru gögn um aðra valkosti og í samtali við Morgunblaðið benti hann á matsskýrslu Línuhönnunar. Þar hefði verið greint frá samanburði við aðra valkosti, bæði stokk og aðra möguleika og útfærslur á hringtorg- um og vegastæði. Þessir kostir hefðu hins vegar ekki verið taldir hag- kvæmir, bæði fjárhagslega og tækni- lega séð. Fundað með þingmönnum Í umræddri matsskýrslu segir m.a. að hugmynd um neðanjarðarstokk hafi verið skoðuð lauslega í tengslum við áform um frekari uppbyggingu flugvallarsvæðisins og tengingar við miðbæinn. Síðan segir í skýrslunni: „Framkvæmdin yrði hins vegar geysilega dýr og erfið. Stokkurinn færi um 5 m niður fyrir sjávarmál þar sem hann færi undir Tjarnarlækinn og mjög erfiðar tengingar yrðu við Njarðargötu og Barónsstíg/Hlíðarfót með landfrekum mislægum gatna- mótum. Stokkurinn yrði að ná vestur fyrir gatnamót við Suðurgötu með mislægum gatnamótum við kirkju- garðshornið. Heildarkostnaður við framkvæmdina yrði ekki undir 5 milljörðum króna.“ Örn Sigurðsson, formaður Höfuð- borgarsamtakanna, segir að á fund- inum hafi embættismenn borgarinnar opnað á ýmsa aðra möguleika en þá sem kynntir hafa verið. Þeir verði skoðaðir nánar og kallað eftir gögn- um frá skrifstofu borgarverkfræð- ings. Einnig verði efnt til fundar á næstunni með þingmönnum Reykja- víkur og borgarfulltrúum. Yfirmaður hjá borgarverkfræðingi um Hringbraut Ekki útilokað að byggja yfir hluta Hringbrautar Tölvumynd/AVH-Fjölhönnun Gatnamót Hringbrautar og Bústaðavegar eins og þau koma til með að líta út að lokinni færslu Hringbrautar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.