Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 56
ÍÞRÓTTIR 56 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÍU leikmenn enska knattspyrnu- félagsins Leicester City urðu eftir á La Manga á Spáni í fyrrakvöld þeg- ar félagar þeirra flugu heim til Englands eftir nokkurra daga dvöl þar í æfingabúðum. Átta þeirra sitja í gæsluvarðhaldi í bænum Cartagena og þar af hafa fjórir ver- ið kærðir fyrir kynferðislega árás á þrjár þýskar konur. Fjórir til við- bótar eiga yfir höfði sér ákærur fyrir að brjótast inn í herbergi kvennanna ásamt hinum og sá ní- undi var sakaður um að hafa ekki komið konunum til aðstoðar en honum var strax sleppt gegn trygg- ingu. Matt Elliott er ásakaður um að hafa ekki boðið fram aðstoð á vett- vangi glæpsins, og Danny Coyne, varamarkvörður liðsins, og Þjóð- verjinn Steffen Freund eru einnig sakaður um það sama og Elliott. Frank Sinclair er ásakaður um kynferðisbrot gagnvart konunum. Micky Adams knattspyrnustjóri varð eftir á Spáni, leikmönnunum til halds og trausts, og fram- kvæmdastjóri Leicester, Tim Dav- ies, flaug til Spánar í gær – til að aðstoða Adams. Konurnar þrjár tilkynntu lög- reglu að þær hefðu orðið fyrir kyn- ferðislegi árás. Þær skýrðu lög- regluyfirvöldum á flugvellinum í Alicante frá málinu áður en þær hugðust fljúga þaðan til Þýska- lands. Lögreglan fékk þær til að halda kyrru fyrir á Spáni vegna málsins. Níu leikmenn Leicester handteknir á Spáni  WALLAU Massenheim, með þá Einar Örn Jónsson og Rúnar Sig- tryggsson innanborðs, vann Nord- horn, 36:31, í 1. deild þýska hand- knattleiksins í fyrrakvöld. Þar vann félagið sín fyrstu stig á þessu ári í deildinni, en það hefur byrjað illa eft- ir hlé sem gert var á keppni vegna Evrópumóts landsliða í Slóveníu. Wallau er í 8. sæti af 18 liðum í deild- inni með 23 stig.  ATLI Þór Samúelsson, leikmaður HK, var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í fyrr- dag. Atli var útilokaður í leik KA og HK fyrir skömmu og var þar með kominn með sex refsistig sem þýðir eins leiks bann. Atli verður því ekki með samherjum sínum í HK gegn Gróttu/KR í úrvalsdeildinni í kvöld.  SARA Jónsdóttir og Ragna Ing- ólfsdóttir, landsliðskonur í badmin- ton, sem stefna á ÓL í Aþenu, eru í 30. sæti á heimslista Alþjóða bad- mintonsambandsins, sem var gefinn út í gær – í sama sæti síðast er listinn var gefinn út. Í einliðaleik er Sara í 49. sæti og Ragna í 58. sæti.  LJUBOMIR Vranjes leikur ekki með sænska landsliðinu í handknatt- leik vor þegar það mætir Pólverjum í tveimur leikjum í undankeppni HM.Vranjes meiddist á öxl í leik með þýska liðinu Nordhorn í byrjun desember og hefur ekki leikið hand- knattleik síðan og missti m.a. af EM í Slóveníu. Vonir stóðu til þess að Vranjes gæti farið fljótlega að leika á ný með Nordhorn, en ekkert hefur orðið af því. Í fyrradag var Vranjes í skoðun hjá lækni sænska landsliðs- ins í Malmö og að henni lokinni sagði læknirinn að allt benti til þess að Vranjes leiki ekki handknattleik fyrr en í sumar eða haust á nýjan leik.  FREDERIC Kanoute, sóknarmað- ur Tottenham, meiddist í leik með varaliði félagsins gegn Nottingham Forest í fyrrakvöld og óvíst er að hann leiki með aðalliðinu á næstunni. FÓLK Það trosnaði upp úr krossbandi ívinstra hné hjá mér og því var ekkert annað að gera en fara í að- gerð. Hún gekk mjög vel og ég reyndi að styrkja mig eins og ég gat áður en ég komst í fyrsta sinn á skíði í október í fyrra,“ segir Elín, sem verður 19 ára á árinu. Elín er fædd og uppalin í Hafn- arfirði og æfði skíði með Ármanni allt þar til í fyrra að hún skipti yfir í Skíðafélag Akureyrar og stundar nám á félagsfræðibraut í Mennta- skólanum á Akureyri þar sem hún er á þriðja ári. „Það er talsverður mun- ur á að stunda íþróttina hér eða í Reykjavík. Fyrir það fyrsta þá er veðrið jafnara og betra til að stunda skíði hér á Akureyri. Tveir þjálfarar betri en einn Svo finnst mér afreksstefna Skíða- félagsins góð og hérna eru tveir þjálfarar sem gerir það að verkum að hver og einn fær meiri athygli en ef þjálfarinn væri bara einn.“ – En hefur ekki verið lítill snjór til að æfa í vetur? „Veturinn byrjaði mjög vel, fullt af snjó og svoleiðins, en svo hafa bara verið hlýindi þannig að þetta er ekki alveg nógu gott. Annars hef ég verið mjög mikið í útlöndum í vetur, fór í þrjár vikur á eigin vegum til Austur- ríkis í október og þá steig ég fyrst á skíði eftir aðgerðina. Svo fór Skíða- félagið í mánaðarreisu til Noregs og komum við heim úr þeirri ferð rétt fyrir jólin og í janúar var farið í keppnisferð til Noregs. Ég er eig- inlega búin að fá nóg af Noregi í bili,“ segir Elín og hlær. Æfum allt árið Hún segir að skíðamenn æfi ekki bara þegar það sé snjór. „Við æfum allt árið, hlaupum, hjólum og lyftum mikið enda er mikilvægt að vera sterkur og í góðu formi þegar keppn- istímabilið hefst. Svo ef það viðrar vel yfir veturinn þá æfum við í rúma tvo tíma á hverjum degi, tökum kannski einn dag í frí í viku. Við liggjum auðvitað á bæn um að það verði snjór þannig að við komumst í fjallið því það er svo miklu skemmti- legra en að hlaupa eða gera eitthvað annað en skíða,“ segir Elín. Í vetur ætlar hún að einbeita sér að því að lækka punktastöðu sína. „Fyrst og fremst ætla ég að nota vet- urinn til að ná mér að fullu eftir meiðslin, en ég finn enn aðeins til þegar ég skíða. Sigurinn um helgina kom því skemmtilega á óvart. Auð- vitað stefnir maður alltaf að því að vinna, en ég átti síður von á því. Laga punktastöðuna Ég vonast til að geta lækkað mig eitthvað í punktum í vetur og svo er markmiðið að taka þetta af fullum krafti næsta vetur. Eitthvað verður maður sjálfsagt í útlöndum þá, en það ræðst dálítið af skólanum líka.“ – Hvort ertu betri í svigi eða stór- svigi? „Já, góð spurning,“ segir Elín hugsi en bætir svo við. „Ég var alltaf betri í svigi en svo hefur stórsvigið verið að lagast hjá mér upp á síð- kastið. Ég kann jafn vel við báðar greinarnar, snerpuna í sviginu og hraðann í stórsviginu. Ég hef aldrei keppt í bruni og aldrei í risasvigi á móti en ég gæti vel hugsað mér risa- svigið og léti mig örugglega hafa það.“ Morgunblaðið/KristjánElín Arnarsdóttir, skíðakona frá Akureyri, er komin á fulla ferð eftir aðgerð sem gerð var á hné hennar fyrir ári. Skíðakonan Elín Arnarsdóttir er að ná fyrri styrk eftir uppskurð á hné ELÍN Arnarsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar, sigraði á tveimur bik- armótum í stórsvigi á Dalvík um liðna helgi og er efst að stigum í kvennaflokki eftir fyrstu mótin. Árangur Elínar er athyglisverður þar sem hún gekkst undir aðgerð á hné í janúar í fyrra og gat ekkert byrjað að æfa á ný fyrr en í október sl. Eftir Skúla Unnar Sveinsson ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangar- stökkvari úr FH, þarf að sýna allar sínar bestu hliðar til þess að tryggja sér sæti í úrslitum í stang- arstökki á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum sem hefst í Búdapest í Ungverjalandi í dag. Til þess að komast í úrslitin verður hún að stökkva yfir 4,45 metra í undan- keppninni síðdegis í dag og tryggja sér sæti í úrslitum sem fram fara á morgun. Alls eru 20 konur skráðar til leiks í greininni og aðeins átta þeirra vinna sér sæti í úrslitum. Þórey hafnaði í 9. sæti í fyrra og rétt missti þá af sæti í úrslitum. Þórey hefur aðeins einu sinni stokkið yfir 4,45 í vetur, í Aþenu fyrir um hálfum mánuði en þá lyfti hún sér yfir 4,50 metra. Hinn Íslendingurinn sem tekur þátt í mótinu að þessu sinni, Jón Arnar Magnússon, Breiðabliki, verður í eldlínunni á morgun og hinn. Þá stendur yfir keppnin í sjö- þraut karla. Andstæðingar Jóns verða þeir Aleksandr Pogorelov og Lev Lobodin, frá Rússlandi, Slóven- inn Ranko Leskovar, Bryan Clay frá Bandaríkjunum, Erki Nool, Eistlandi, Dmitry Karpov, Kasakst- an og heimsmethafinn í tugþraut, Tékkinn, Roman Sebrle. Á heimasíðu Alþjóðafrjáls- íþróttasambandsins er reiknað með að keppnin um gullverðlaunin standi á milli, Nools, Sebrle, Kar- povs og Lobodins. Ekki var þar tal- ið að Jón Arnar blandaði sér í bar- áttuna, en hann vann bronsverð- laun í sjöþaut á HM 1997 og silfur- verðlaun fjórum árum síðar í Lissabon. Íslands- og Norður- landamet Jóns Arnars er 6.293 stig. Þórey verður að stökkva yfir 4,45 m Kom, sá og sigraði á Dalvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.