Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Útibússtjóri Íslandsbanka | Ingi Sig- urðsson, fyrrverandi bæjarstjóri Vest- mannaeyjakaupstaðar, hefur verið ráðinn í starf útibússtjóra Íslandsbanka í Vest- mannaeyjum. Tekur hann við starfinu af Magnúsi Arnari Arngrímssyni sem hætti snögglega sl. mánudag. Kemur þetta fram á vef Frétta í Eyjum. Ingi tók við starfi framkvæmdastjóra Vél- smiðju Suðurlands fyrir mánuði. Haft er eft- ir Jóni Þórissyni hjá Íslandsbanka að vonast sé til að hann geti hafið störf sem fyrst. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Kosið um nafn | Fræðsluráð Hafn- arfjarðar hefur lagt til við bæjarstjórn að leikskóli sem nú er í byggingu í Áslandinu hljóti nafnið Stekkjarás. Efnt var til skoð- anakönnunar á heimasíðu Hafnarfjarð- arbæjar þar sem kosið var milli nafnanna Ás, Stekkur, Stekkjarás og Stóri Stekkur. Alls tóku 437 manns þátt í könnuninni og fékk Stekkjarás 144 atkvæði, Stóri Stekkur 110 atkvæði, Ás 96 atkvæði og Stekkur 87 atkvæði. Áætluð verklok fyrri áfanga nýja leik- skólans eru í ágústlok í ár, en seinni áfanga í maí 2005. Metaðsókn | Alls komu 4.335 gestir á tón- leika og sýningar í Duushúsum í Keflavík í febrúarmánuði. Eru það fleiri gestir en áður hafa sótt menn- ingar- og lista- miðstöð Reykja- nesbæjar. Sýning Árna Johnsen, Grjótið í Grundarfirði, sem er í Gryfjunni hefur dregið flesta að sér. Þangað komu rétt tæplega 3.000 gestir í mán- uðinum. Í sýningarsal Listasafns Reykja- nesbæjar og Bátasafn Gríms Karlssonar hafa komið liðlega 1.350 gestir til viðbótar. Kom þetta fram á fundi menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar í vikunni. Þess var getið að í febrúar á síð- asta ári komu 35 gestir í Duushús en þá var lítil starfsemi komin í gang. ZontaklúbburinnFjörgyn á Ísafirðistendur fyrir mál- þingi sunnudaginn 7. mars kl. 13 til 15.30 í Hömrum, sal Tónlistar- skólans á Ísafirði. Mál- þingið er tileinkað al- þjóðlegum baráttudegi kvenna og ber yfirskrift- ina; Menntun kvenna í al- þjóðlegu umhverfi. Frummælendur eru: Ólína Þorvarðardóttir skólameistari, Jóhanna Kristjánsdóttir mennt- unarfræðingur, Guðrún Stella Gissurardóttir, forstöðumaður Svæð- isvinnumiðlunar Vest- fjarða, Hólmfríður Sveinsdóttir verkefn- isstjóri, og Jarþrúður Ás- mundsdóttir, stúdent í HÍ. Málþingsstýra er Inga S. Ólafsdóttir ferða- fræðingur. Konur úr Zontaklúbbn- um Fjörgyn taka þátt í guðþjónustu í Ísafjarð- arkirkju sama dag kl. 11. Málþing Veðurguðirnir hafaverið landsmönn-um hliðhollir að undanförnu, svo mjög að hægt er að tala um að vorveður ríki. Þegar litið er á almanakið sést þó að enn er hálfur annar mán- uður eftir af vetrinum en honum lýkur ekki form- lega fyrr en 21. apríl. Veðrið er vinsælt um- ræðuefni og ekki ólíklegt að veðurblíðan hafi bor- ist í tal hjá þessum heiðursmönnum sem hittust á förnum vegi í Bankastræti. Ekki er útlit fyrir ann- að en áfram verði þokka- lega hlýtt í veðri. Spáð er fremur hægri vestlægri átt en skúrir eða jafnvel él geta fallið hér og þar. Morgunblaðið/Jim Smart Er vorið komið? Friðrik Stein-grímsson las vísuÓskar Þorkels- dóttur um að húsvískir karlmenn þyrftu ekkert að óttast samanburðinn á Reðursafninu, því konur hefðu löngum látið sér nægja lítinn fingur. Hann orti: Ósk um stærðir ýmsar syngur þó eflaust hemji’ hún kenndina, en látirðu hana fá litla fingur er líklegt hún hrifsi alla hendina. Í framhaldi af hugg- unarorðum Óskar til hús- vískra karlmanna er rétt að birta málsvörn manns, sem konan sagði ekki nógu vel vaxinn niður: Mér finnst ég verða að fræða yður frú um náttúrunnar lög með litlum hamri laginn smiður lemur bara fleiri slög. Á árlegu hagyrð- ingamóti Lionsklúbbsins í Kópavogi var botna- keppni og átti Kristján Hreinsson fyrripartinn en Baldur Garðarsson verð- launabotninn: Það er illt að þjóna tveim þegar illa stendur, Óli Ragnar út í heim á afmæli var sendur. Litlir fingur pebl@mbl.is STÚLKURNAR voru liðugri en strákarnir í limbókeppninni sem fram fór í félagsmiðstöðinni Fjörheimum í Reykjanesbæ í fyrrakvöld. Jóhann Sædal komst þó nokkuð langt enda tilþrifin mikil. Stór hópur byrjaði en flokkurinn grisjaðist fljótt, krakkarnir duttu á bakið eða ráku sig í stöngina. Fækkaði svo smám saman í hópnum þangað til stöngin var komin svo neðarlega að Kristín Lea Henrýsdóttir gat ein hlykkjast undir og rétt aftur úr bakinu, sem sigurvegari. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stúlkurnar liðugri í limbói Táningar MARGT er gagnrýnisvert við undirbúning að ráðningu í stöðu gjaldkera hjá Ísafjarð- arbæ, að mati Halldórs Halldórssonar bæj- arstjóra. Leggur hann til að settar verði reglur um ráðningu starfsmanna. Gagnrýni kom fram á ráðningu í starf gjaldkera hjá Ísafjarðarbæ fyrr á árinu. Fyrri gjaldkera var sagt upp, starfinu breytt og það auglýst. Ákveðið var að ráða mann sem fjármálastjóri bæjarins taldi hæfastan til að gegna starfinu. Var sú ákvörðun gagnrýnd af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna þess að hann var eini umsækjandinn sem ekki var búsettur í Ísa- fjarðarbæ. Síðar kom í ljós að viðkomandi hafði sáralitla eða enga reynslu af skrif- stofustörfum. Dró hann umsókn sína til baka eftir fund með bæjarstjóra. Halldór Halldórsson fór yfir ráðningar- ferlið í heild í grreinargerð sem hann lagði fyrir fund bæjarráðs í vikunni. Sagt er frá bréfinu á fréttavef Bæjarins besta. Leggur Halldór til að settar verði reglur um ráðningu starfsmanna og launakjör hjá Ísafjarðarbæ. Starfsviðtöl verði ávallt í samráði við starfsmannastjóra og bæjar- stjóri eða formaður viðkomandi fagnefnd- ar taki þátt í viðtölunum. Nýjar starfslýs- ingar eða breytingar verði alltaf lagðar fyrir viðkomandi nefndir. Að síðustu legg- ur hann til að drög að starfslýsingu fyrir það starf sem til umræðu er verði lögð fyrir bæjarráð. Margt gagn- rýnisvert við ráðningu ÍSLANDSFLUG hefur ákveðið að hætta áætlunarflugi til Sauðárkróks í maí. Flug- ið stendur ekki undir sér. Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Íslandsflugs, segir að farþegum á þessari leið hafi fækkað stöðugt á undanförnum árum. Reynt hafi verið að bregðast við því með breytingum á fargjöldum og fækkun ferða og ekki verði lengra gengið í því. Flugvöllurinn á Sauðárkróki þjónar Siglufirði auk Skagafjarðar. Flugið hefur ekki verið styrkt af ríkinu. Ómar segist ekki hafa farið fram á ríkisstyrk en ef það kæmi til tals yrði ákvörðun um að hætta fluginu tekin til endurskoðunar, þannig að ráðrúm gæfist til að bjóða flugleiðina út. Hætta flugi til Sauðárkróks ♦♦♦       mbl.isFRÉTTIR N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 5 5 0 • sia .is Flug og m ynd á næ stu le igu Skafmiði fylgir hverri mynd 100 stórborgarferðir! 100.000 vinningar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.