Morgunblaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 29
Leikhúskórinn á Akureyrifrumsýnir í kvöld, föstu-dagskvöld, óperettunaKátu ekkjuna eftir ung-
verska tónskáldið Franz Lehár, en
texti verksins er eftir einn frægasta
textahöfund vínaróperettunnar,
Victor Léon. Sýnt verður í Ket-
ilhúsinu við Kaupvangsstræti.
Fjöldi leikara og söngvara tekur
þátt í sýningunni, bæði atvinnu- og
áhugamenn.
„Þetta er langstærsta verkefni
okkar til þessa,“ sagði Ingimar
Guðmundsson, formaður Leik-
húskórsins. Kórinn hefur starfað í
níu ár, var stofnaður árið 1995 af
nokkrum félögum í Leikfélagi Ak-
ureyrar, sem höfðu áhuga á að efla
leikhústónlist á Akureyri, en Ingi-
mar sagði að upphafið mætti rekja
til sýninga á söngleiknum My fair
Lady hjá Leikfélagi Akureyrar fyr-
ir nokkrum árum. Káta ekkjan er
umfangsmesta verkefni Leik-
húskórsins, en Ingimar sagði að
kórinn hefði tvívegis áður ráðist í
að setja upp óperettur og þá í Sam-
komuhúsinu, Sígaunabaróninn árið
2001 og Helenu fögru árið 2002, en
á síðastliðnu ári hélt kórinn í tón-
leikaferðalag og kom víða við. „Það
hefur margt breyst hjá okkur frá
því sem áður var, en við höfðum
sýnt í Samkomuhúsinu og fengið
þar aðgang að starfsfólki þess,
höfðum aðgang að ljósameistara,
aðstoð við sviðsvinnu og það sem
sinna þurfti fyrir sýningar. Nú ger-
um við allt sjálf frá grunni og vissu-
lega var það mun meiri vinna en
okkur óraði fyrir,“ sagði Ingimar.
Nú væri háannatími hjá leik-
félögum og erfitt reyndist að út-
vega t.d. ljós og annað sem til þarf.
Íslenska óperan og Leikfélag Ak-
ureyrar lánuðu búninga, en að sögn
formannsins tóku kórfélagar sig
einnig til og saumuðu sjálfir drjúg-
an hluta búninganna. „Við erum
með mikið dugnaðarfólk innan okk-
ar vébanda, m.a. laghenta iðn-
aðarmenn þannig að þetta er allt að
smella saman,“ sagði Ingimar. Káta
ekkjan hefur verið kölluð „Drottn-
ing óperettanna“ en hún var frum-
sýnd í Vínarborg 30. desember árið
1905. Aðstandendur fyrstu upp-
færslunnar, aðrir en tónskáldið og
textahöfundurinn, höfðu svo litla
trú á verkinu að því var valinn einn
lélegasti frumsýningardagur ársins
og fáir áttu von á að sýningar yrðu
margar. Þeir spádómar brugðust
hins vegar illilega og Káta ekkjan
sló í gegn og hefur upp frá þessum
degi farið sigurför um heiminn.
„Manni skilst að það sé verið að
sýna þessa óperettu í það minnsta í
100 húsum í heiminum á ári, hún er
alltaf einhvers staðar í gangi,“
sagði Ingimar. Káta ekkjan hefur
þrívegis verið sýnd á Íslandi, 1956
og 1978 í Þjóðleikhúsinu og svo í
Íslensku óperunni árið 1997. „Nú er
röðin komin að Akureyri og við
vonum auðvitað að bæjarbúar og
nærsveitarmenn hafi gaman af,“
sagði Ingimar. Hann sagði að stefnt
væri að því að sýna verkið tíu sinn-
um, en óvíst er hvort hægt verður
að setja upp fleiri sýningar þar sem
Ketilhúsið er bókað vegna annarra
verkefna og sýninga, m.a. um
páskana. Húsið tekur um 100
manns á sýningu.
Ingimar sagði að kostnaður væri
mikill við uppsetninguna, „þetta
verður nokkuð drjúgur kostnaður“,
sagði hann og að ekki bætti úr skák
að húsið væri lítið, þ.e. fáir áhorf-
endur kæmust á hverja sýningu.
Kórinn reiddi sig því á styrki og
hefði gengið ágætlega að afla
þeirra, m.a. hefði fengist ágætur
styrkur frá menntamálaráðuneyt-
inu sem fleytt hefði mönnum yfir
erfiðasta hjallann. „Þetta er metn-
aðarfull sýning og mikið af góðu
fólki sem tekur þátt í henni, þannig
að ég geri ráð fyrir að fólk ætti að
hafa gaman af,“ sagði Ingimar, en
félagar í kórnum hefðu lagt gíf-
urlega vinnu í að koma sýningunni
upp. „Það fara allir dagar í þetta og
fólk fær lítið í sinn hlut, en við höf-
um öðlast mikla reynslu og hún
mun skila sér.“
Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir
og tónlistarstjóri Roar Kvam, en
hann útsetur einnig tónlistina í
verkinu. Í aðalhlutverkum eru Alda
Ingibergsdóttir, Steinþór Þráins-
son, Aðalsteinn Bergdal, Ari Jó-
hann Sigurðsson og Bjarkey Sig-
urðardóttir. Fjöldi leikara og
söngvara kemur einnig við sögu í
verkinu.
Metnaðar-
full og viða-
mikil sýning
Ljósmynd/Myndrún ehf ./Rúnar Þór
Alda Ingibergsdóttir í sýningu Leikhúskórsins á Akureyri á Kátu ekkjunni.
Drottning óperettanna, Káta ekkjan, verður
frumsýnd í Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld.
Margrét Þóra Þórsdóttir ræddi við formann
Leikhúskórsins, sem setur verkið upp.
maggath@mbl.is