Morgunblaðið - 05.03.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 9
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending af
sportlegum fatnaði frá
Í sólina
Stutterma og ermalausir bolir
Stuttbuxur - kvartbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Úrval af buxum
Síðar og kvart, str. 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
FRÁBÆRIR
TILBOÐSDAGAR
VERSLUNIN PAUL & SHARK
Bankastræti 9, sími 511 1135
BUXUR - TOPPAR - BOLIR
Try Me buxur í 5 sniðum
Hallveigarstíg 1, s. 588 4848
Nýjar vörur
Útsala
Góðar yfirhafnir
enn meiri lækkun - síðustu dagar
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Veltu þér ekki upp úr vandamálunum.
Finndu lausnir. Taktu þér tíma.
Námskeið byrjar 8. mars og stendur í fjögur
mánudagskvöld milli kl. 17.30 og 19.
Kvennakirkjan, Laugavegi 59, sími 551 3934.
VERTU ÞÚ SJÁLF!
HELGI Ágústsson, sendiherra Ís-
lands í Bandaríkjunum, opnaði sl.
mánudag kynningu á íslenskum
mat í höfuðstöðvum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Washington. Kynn-
ingin, sem stendur í einn mánuð,
er samstarfsverkefni Iceland Sea-
food, Iceland Naturally og Ara-
mark, sem rekur alla veitingastaði
í byggingu Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Auk sjávarafurða verður boðið
upp á íslenskt vatn frá Iceland
Spring Water. Í veitingastöðum
Aramark í byggingunni eru af-
greiddir um fjögur þúsund máls-
verðir á dag.
Þetta er þriðja kynningin á ís-
lenskum mat sem Iceland Seafood,
Iceland Naturally og Aramark
standa að í sameiningu á und-
anförnum mánuðum.
Undirbúningur og framkvæmd
er í höndum Iceland Seafood og
aðalræðisskrifstofu Íslands í New
York fyrir hönd Iceland Naturally.
Kynning á íslenskum mat hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Ljósmynd/Pétur Óskarsson
Á myndinni eru frá vinstri: Christopher Burr, framkvæmdastjóri veit-
ingastaða Aramark í höfuðstöðvum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Helgi
Ágústsson, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Johnnie Khaoung, yf-
irkokkur Aramark, og Chuck Spencer, sölustjóri Iceland Seafood.
BREYTT fyrirkomulag í raforku-
málum hefur almennt ekki leitt til
umtalsverðra hækkana á raforku-
verði hjá öðrum Norðurlandaþjóð-
um. Þetta kom m.a. fram á málstofu
sem Orkustofnun stóð fyrir í vikunni í
tengslum við fund norrænna eftirlits-
aðila með raforkumálum.
Þorkell Helgason orkumálastjóri
stýrði umræðum á málstofunni og að
hans sögn kom skýrt fram hjá frum-
mælendum að raforkuverð til fyrir-
tækja hefði lækkað og verðið lækkað
minna, staðið í stað eða hækkað lítils-
háttar í einhverjum tilvikum til al-
mennra notenda. Síðan hefðu ýmsar
ytri aðstæður haft áhrif á verðið, s.s.
eldsneytisverð, skattlagning og
vatnsbúskapur, sem yllu sveiflum á
markaði.
Norrænir eftirlitsaðilar með raf-
orkugeiranum hafa nýlega stofnað
með sér samtök (FNER), en fyrir
eru evrópsk samtök af sama tagi.
Þorkell segir að norrænu samtökin
hafi hist hér á landi til að bera saman
gjaldskrár og annað fyrirkomulag á
flutningi og dreifingu raforku á
Norðurlöndum. Mikilvægt hafi verið
að fá þetta inn í umræðuna hér á
landi vegna nýrra raforkulaga og
kynnast reynslu nágrannaþjóðanna.
„Það sem fram kom á málþinginu
styrkir okkur í þeirri trú að við séum
í takt við aðrar Norðurlandaþjóðir,
bæði hvað varðar þá löggjöf sem við
erum að innleiða og hvernig við ætl-
um sem eftirlitsstofnun að framfylgja
lögunum,“ segir Þorkell og bendir á
að fyrirkomulagið hér á landi sé að
miklu leyti að norskri fyrirmynd.
Þorkell segir að í Svíþjóð og Finn-
landi hafi eftirlitið falist í því að taka á
kærum frá neytendum en í Noregi og
Danmörku, auk Íslands með gildis-
töku breyttra raforkulaga, sé eftirlit-
ið meira fyrirbyggjandi með fyrir-
fram settum starfsreglum og
skömmtuðum tekjum. Þetta fyrir-
komulag sé meira að ryðja sér til
rúms, m.a. vegna þrýstings frá Evr-
ópusambandinu. Svíar og Finnar
muni færa sig að því fyrirkomulagi
sem tíðkist á hinum vestari Norður-
löndum.
Lítill hluti háður samkeppni
Að sögn Þorkels kom einnig fram
að samkeppnin, sem hefur verið inn-
leidd á Norðurlöndunum, nái aðeins
til hluta af endanlegu verði raforku til
notenda hennar, þ.e. til framleiðslu-
og söluþáttarins. Afgangurinn eru
sérleyfisþættir, þar sem samkeppni
verður ekki við komið. Til viðbótar
séu lagðir á sérstakir orkuskattar,
sem ekki er gert hér á landi.
„Menn spyrja sig þeirrar spurn-
ingar af hverju Evrópusambandið er
að reyna að koma á samkeppni í raf-
orkusölu þegar að í ljós kemur að
samkeppnin snúist um lítinn hluta af
orkureikningunum. Því er annars
vegar til að svara að þessi litli hluti er
miklu stærri hjá fyrirtækjum en fyrir
almenning og í sölu til fyrirtækjanna
er samkeppnin virk. Þá fannst mér
skýrt koma fram hjá hinum, sem hafa
meiri reynslu en við, að þetta þýðir að
hið opinbera eftirlit verður að vera
vandað og markvisst og þrýsta á fyr-
irtækin í flutningi og dreifingu um
hagræðingu,“ segir Þorkell og bendir
á að Svíar hafi búið til tölvulíkan af
rekstri dreifingarfyrirtækis á raf-
orku. Hægt sé að setja staðhætti inn í
líkanið sem reikni síðan út hver eigi
að vera eðlilegur kostnaður við dreif-
ingu á viðkomandi veitusvæði. Þann-
ig fáist samanburður. Um nokkurs
konar sýndarsamkeppni sé að ræða
sem raunveruleg fyrirtæki geti
„keppt við“.
Norrænir eftirlitsaðilar í raforkumálum á fundi hér á landi
Verð ekki hækkað með
breyttu fyrirkomulagi
LÆGSTA verð í sjálfsafgreiðslu
eða sjálfsölum á 95 oktana bensíni
og díselolíu sem neytendum stend-
ur til boða á höfuðborgarsvæðinu er
hvergi það sama hjá olíufélögunum
skv. verðskrám á vefsíðum félag-
anna í gær.
Sjálfsafgreiðsluverð á sölustöðv-
um Orkunnar á 95 oktana bensíni er
92,40 kr. lítrinn. Lítrinn af díselolíu
kostar 34,80 kr. hjá Orkunni.
Verðið er örlitlu hærra hjá Atl-
antsolíu en á sölustöðum félagsins
við Óseyrarbraut í Hafnarfirði og
við Kópavogsbraut kostar lítrinn af
95 oktana bensíni 92,50 kr. og 35 kr.
lítrinn af díselolíu.
Lægsta verð á 95 oktana bensíni
sem boðið er á einni af sjálfsaf-
greiðslustöðvum ÓB við Háaleiti er
93,30 kr. lítrinn en á öðrum stöðvum
á höfuðborgarsvæðinu er verðið
93,50 kr. Lítrinn af díselolíu kostar
35,90 kr. á flestum sölustöðum.
Algengasta sjálfsafgreiðsluverð á
95 oktana bensíni á útsölustöðvum
Esso er 94,70 lítrinn en boðið er
lægra verð á Esso express-stöðvum
á Salavegi, Hæðarsmára, Smára-
lind og í Vatnagörðum eða 93,50 kr.
lítrinn og þar kostar díselolían 35,90
kr.
Hækkuðu eldsneytisverð
eftir mánaðamótin
Hjá Olís er bensínverð, bæði í
sjálfsafgreiðslu og með fullri þjón-
ustu, breytilegt eftir stöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu og á er bilinu
93,70–95 kr. lítrinn af 95 oktana
bensíni í sjálfsafgreiðslu, lægst er í
Mjódd, 93,70 lítrinn. Lægsta verð á
díselolíu sem í boði er á stöðvum fé-
lagsins er 36,40 kr. lítrinn.
Hjá Skeljungi er sjálfsafgreiðslu-
verðið það sama á öllum útsölustöð-
um á höfuðborgarsvæðinu eða 94,70
lítrinn af 95 oktana bensíni og 37,10
kr. á díselolíunni skv. verðlista.
Olíufélagið hækkaði verð á elds-
neyti um eina krónu á öllum ESSO-
og ESSO Express-stöðvum á land-
inu sl. mánudag og á þriðjudag
breyttist einnig verð á bensíni og dí-
sel hjá Skeljungi. Verð á 95 oktana
bensíni í fullri þjónustu eftir hækk-
unina hjá báðum félögunum er
100,70 og verð á díselolíu með fullri
þjónustu er 43,10 kr. Eldsneytis-
verð breyttist einnig hjá Olís eftir
mánaðamótin en er breytilegt eftir
stöðvum eins og áður segir og er
verð á 95 oktana bensíni með fullri
þjónustu yfirleitt um 4 kr. hærra á
lítrann en verð sem boðið er í sjálfs-
afgreiðslu á hverri stöð skv. upplýs-
ingum félagsins. Engar breytingar
urðu á eldsneytisverði um mánaða-
mótin hjá Atlantsolíu.
Sjálfsafgreiðslur olíufélaganna á höfuðborgarsvæði
Félögin eru hvergi með
sama lágmarksverðið
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111