Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 45
✝ Elín H. Davíðs-dóttir fæddist á
Litlu-Þúfu í Mikla-
holtshreppi 16. nóv.
1922. Hún lést á
Landakotsspítala 28.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Davíð Júlíus
Björnsson, f. á Þver-
felli í Lundarreykja-
dal í Borgarfjarðar-
sýslu 16.2. 1886, d.
27.9. 1971, og Sig-
rún Guðmundsdótt-
ir, f. á Bæ í Viðvík-
ursveit í
Strandasýslu, f. 28.8. 1890, d. 30.3.
1971. Foreldrar Elínar bjuggu á
Litlu-Þúfu á árunum 1912–1918
og 1921–1923. Í millitíðinni
bjuggu þau í Ytra-Skógarnesi í
sömu sveit en frá 1923–1946
bjuggu þau á Þverfelli þar sem El-
ín elst upp. Frá 1946–1971 bjuggu
foreldrar Elínar á Nýbýlavegi 16 í
Kópavogi. Systkini Elínar eru:
Ásta Kristín, f. 1.9. 1912, d. 11.8.
1994, Björn, f. 20.12. 1917, d. 30.7.
1998, Sveinbjörg, f. 20.12. 1917,
og Kristján, f. 24.7. 1920. Foreldr-
ar Elínar eignuðust fjögur önnur
börn sem öll létust í frumbernsku.
Börn þeirra eru Erla. f. 4.3. 1987,
Guðjón, f. 28.9. 1989, og Ingvar, f.
22.12. 1994. c) Gerður, f. 6.11.
1970, húsmóðir. Hún giftist Edw-
ard Roger Kolbeini Andréssyni.
Þau skildu, dætur þeirra eru: Am-
anda Ösp, f. 6.1. 1992, og Kolbrún
Ósk, f. 11.1. 1995. Sambýlismaður
Gerðar er Ásgrímur Gísli Ás-
grímsson vélvirki. Börn þeirra
eru: Ásgerður, f. 26.5. 1997, og
óskírð stúlka, f. 20.2. 2004. Seinni
kona Guðjóns Hafsteins er Maj-
Britt Kolbrún Hafsteinsdóttir, f.
5.5. 1944. 2) Hilmar, f. 15.11. 1950
í Reykjavík, blikksmiður og kaup-
maður. Kona hans er Sveinbjörg
Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur,
f. 14.10. 1949. Dætur þeirra eru:
a) Unnur, f. 14.10. 1971, d. 22.2.
1998. Sambýlismaður hennar var
Stefán Ingi Guðmundsson. Sonur
þeirra er Hilmar Jökull, f. 24.7.
1995. b) Sigrún Heiða, sjúkraliði
og kennari, f. 8.11. 1973. Sam-
býlismaður hennar var Stefán Þór
Felixson. Sonur þeirra er Heiðar
Þór, f. 10.1. 1997. Maður Sigrúnar
er Kristján Viðar Bergmannsson
kaupmaður, f. 19.6. 1972. Sonur
þeirra er Bergmann Davíð, f.
11.12. 2000. c) Elín, f. 28.8. 1976,
sjúkraliði og ferðamálafræðingur.
Sambýlismaður hennar er Rúnar
Örn Felixson bakari. Dóttir þeirra
er Unnur Ósk, f. 30.11. 2002.
Útför Elínar verður gerð frá
Laugarneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Fósturdóttir þeirra
var Eygló Magnús-
dóttir, f. 26.9. 1925, d.
í mars 1977. Hún var
búsett í Bandaríkjun-
um.
Elín giftist Guð-
birni Eggerti Guð-
jónssyni kaupmanni,
f. 1.12. 1921. Foreldr-
ar hans voru: Guðjón
Þorbergsson, f. 13.6.
1884, d. 9.12. 1962, og
Eggertsína Þorbjörg
Eggertsdóttir, f. 3.9.
1890, d. 5.5. 1976. El-
ín og Guðbjörn skildu.
Þau eignuðust tvo syni. Þeir eru:
1) Guðjón Hafsteinn, f. 8.12. 1944 í
Reykjavík, blikksmíðameistari og
kaupmaður. Fyrri kona hans er
Guðbjörg Kolbrún Hlöðversdóttir
kennari, f. 12.6. 1946. Dætur
þeirra eru: a) Elín, f. 20.3. 1965,
bóndi og kennari. Sambýlismaður
hennar er Guðmundur Kristinn
Guðnason, bóndi á Þverlæk í Holt-
um. Börn þeirra eru Berglind, f.
27.6. 1985, og Hafsteinn, f. 29.12.
1987. b) Esther, f. 1.3. 1966, bóndi.
Maður hennar er Jóhann Brynj-
ólfur Kormáksson, bóndi á Sól-
heimum í Hrunamannahreppi.
Það var fyrir meira en hálfri öld
að ég sá hana Elínu fyrst. Þá var ég
lítil stelpa í Sogamýrinni og Elín var
konan í næsta húsi, sem átti stærsta
manninn sem átti stærsta bílinn.
Þvotturinn á snúrunum hjá henni
var sá hvítasti, drengirnir hennar
þeir prúðustu, alltaf eins og ný-
komnir úr freyðibaði, nýpóleraðir og
fínir. Hún lá ekki á skoðunum sínum
en þeir sem minna máttu sín áttu
stuðning hennar vísan.
Seinna – löngu seinna – lágu leiðir
okkar saman á ný, þá báðar fráskild-
ar, það var þegar við Hafsteinn eldri
sonur hennar rugluðum saman reyt-
um okkar.
Þá fann ég að hún hafði ekkert
breyst, ennþá sama snyrtimennskan
í fyrirrúmi, ennþá lá hún ekki á
skoðunum sínum og ennþá áttu þeir
sem minna máttu sín stuðning henn-
ar vísan. Fór sonur minn ekki var-
hluta af því, það var sama hversu
lasin og gleymin hún var orðin, hún
spurði alltaf um hann og er ég henni
ævinlega þakklát fyrir það.
Það var oft gaman að hlusta á El-
ínu og móður mína (sem lést fyrir
þremur mánuðum) tala um liðna tíð,
sveitina, gömlu Reykjavík, stríðsár-
in, lífið í Sogamýrinni, tilveruna yf-
irleitt.
Gaman væri ef þær gætu nú
gengið saman um græna grundu eða
jafnvel Laugaveginn og rifjað upp
gamla tíma.
Guð blessi minningu þeirra
beggja.
Kolbrún.
Þá er amma í Hlunnó látin en hún
átti lengst af heima í Hlunnavogi 10.
Okkur fannst mikið ævintýri að
heimsækja hana þegar við vorum
yngri því það var svo gaman að fá að
leika sér inni í búri undir súðinni hjá
henni og gramsa í dótinu sem þar
var geymt. Seinna á unglingsárun-
um þegar við vorum orðnar of stórar
til að geta leikið okkur þar var setið
og spjallað í staðinn. Amma náði
góðu sambandi við okkur ung-
lingana og gat flissað og hlegið með
okkur að öllum sköpuðum hlutum
því henni fannst hún ekki vera orðin
eins gömul og árin sögðu til um.
Hún bakaði bestu skonsur og
pönnukökur í heimi. Hún hafði oft
orð á því hvað hún væri stolt og rík
að eiga svona mörg barnabörn og
barnabarnabörn en síðasta lang-
ömmubarnið fæddist viku áður en
hún lést.
Amma hafði mjög gaman af að
rifja upp gamla tíma þegar hún var
að alast upp á Þverfelli í Lundar-
reykjadal og þar unir hún núna. Guð
geymi þig.
Elín, Esther og Gerður.
Elsku amma, það var sárt að
heyra að þú værir dáin en þó hugg-
un að vita að nú hafi þjáningum þín-
um linnt.
Upp í hugann koma margar minn-
ingar um þær gleðistundir sem við
systurnar áttum með þér. Ósjaldan
fengum við að gista hjá þér um helg-
ar og var þá margt brallað. Ávallt
var glatt á hjalla, íbúðin var oft sett
á hvolf, heilu hljómsveitirnar stofn-
aðar með heimatilbúnum hljóðfær-
um og tískusýningar haldnar með
fötunum þínum og skarti og þú tókst
þátt í leiknum af lífi og sál.
Það var alltaf vinsælt að fara í
heimsókn til ömmu þegar farið var í
sunnudagsbíltúrinn. Ýmist heim til
hennar og bakaði hún þá pönnukök-
ur eða í ísbúðina þegar hún vann
þar.
Okkur langar að kveðja þig með
bæn sem þú fórst gjarnan með
ásamt okkur á kvöldin þegar við
gistum hjá þér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Prestshólum.)
Sigrún Heiða og Elín.
ELÍN HALLFRÍÐUR
DAVÍÐSDÓTTIR
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
SVANHVÍT ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Lundi,
Hellu,
verður jarðsungin frá Oddakirkju, Rangár-
völlum, laugardaginn 6. mars kl. 13.00.
Gunnar Kr. Guðmundsson, Kristín Lúðvíksdóttir,
Guðmundur I. Guðmundsson, Elísabet Jónsdóttir,
Páll A. Guðmundsson, Lynn Guðmundsson
og fjölskyldur.
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
JÓNASÍNU BJARNADÓTTUR,
Þyrli,
fer fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ laugar-
daginn 6. mark kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti dvalar-
heimilið Höfða, Akranesi, njóta þess.
Kristján Þorsteinsson, Guðríður Sveinsdóttir,
Böðvar Þorsteinsson, Ásrún Jóhannesdóttir,
Bjarni Þorsteinsson,
Sigríður Þorsteinsdóttir, Örn Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs föður míns, stjúpföður, tengda-
föður, bróður og afa,
EÐVARÐS P. ÓLAFSSONAR
blikksmiðs,
Túnbraut 5,
Skagaströnd.
Anna Eðvarðsdóttir, Höskuldur Stefánsson,
Ólöf Sæmundsdóttir, Sigurður Jón Björnsson,
Jóhanna L. Árnadóttir,
Magnea Á. Árnadóttir,
Ólafur Árnason,
Sigurlaug Árnadóttir,
Jón Ingi Árnason,
Hermann V. Árnason,
Þórunn Árnadóttir,
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
INGVELDAR SIGURÐARDÓTTUR,
Sogavegi 182,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítala Landakots fyrir góða umönnun.
Áslaug Jóhannesdóttir, Þorfinnur Þórarinsson,
Thelma Jóhannesdóttir, Ólafur Guðnason,
Ásrún Jóhannesdóttir, Böðvar Þorsteinsson,
Ingveldur Björk Jóhannesdóttir, Ingi Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför elsku litlu dóttur okkar, systur og barna-
barns,
SUNNU ÞÓRSDÓTTUR,
verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 8. mars klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins.
Fyrir hönd allra aðstandenda,
Þór Sigurjónsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Hrund Þórsdóttir,
Freyr Þórsson,
Gunnar H. Pálsson, Sesselja G. Kristinsdóttir,
Sif Aðils,
Sigurjón Jónsson, Þórunn Jónsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sambýlis-
maður, afi og langafi,
SIGURPÁLL AÐALGEIRSSON,
Baðsvöllum 19,
Grindavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mið-
vikudaginn 3. mars sl.
Ólafur Sigurpálsson,
Rúnar Geir Sigurpálsson,
Ingunn Sigurpálsdóttir, Fernando Sabido,
Erla Sigurpálsdóttir,
Vigdís Ámundadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulegi,
JÓN STEFNIR HILMARSSON
hárskeri,
andaðist á heimili dóttur sinnar þriðjudaginn
2. mars.
Jarðarför auglýst síðar.
Aðstandendur.