Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 53
Brúðkaupssýningin Já
Ljósmyndaverið Skugginn
Tékk kristall
Svefn og heilsa
Egils
Austurbakki
Unika
Gunni Magg - Úr og skartgripir
Stúdíó Sissu
Völusteinn
Nordica spa
Sigga og Timo
Baðhúsið
Pell & purpuri
Secret
Skútan
Kristall og postulín
Sandholtsbakarí
Brilliant
Langferðir
Village candle
Duka
Tivoli Audio
Brúðkaupsvefur.is
Skraddarahúsið
Konditori Kobenhagen
Myndaalbúm
Líf og list
Radisson SAS Hótel Saga
Áfram veginn Grafíklistamenn
Hreyfing
Brúðarkjólaleiga Katrínar
Carat - Haukur gullsmiður
Didrix spa
Mosfellsbakarí
Seating concept
Brúðkaupsvefurinn.is
Tvö Hjörtu
VolksWagen
Habitat
Brúðurin.is
Veislan
Salka
Anna S. Björnsdóttir
Morgunblaðið
Akkúrat
Icelandair
Gréta Ljósmyndari
Skjár 1
Mæja
Ég og þú
Isis
Biskupsstofa
Já.is
Minningar & meira
Kokkar án bumbu
Rs vín
Draumasiglingar
Minningar & meira
Hótel Skógar
Blómaval
Kvartko gjafavörur
Komdu og upplifðu
brúðkaupsævintýrið
í Vetrargarði
Smáralindar
helgina
5.-7. mars.
Allt sem þarf til að fullkomna brúðkaupið þitt
Fatnaður • blóm • gjafavörur • matur
vín • kökur • ferðir • dekur
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 53
Á LÖNGUM laugardegi
á morgun, 6. mars,
munu þrjár verslanir
við Laugaveginn
bregða á leik með við-
skiptavinum. Í útstill-
ingargluggum þessara
þriggja verslana er fal-
inn einn Sparibangsi
frá Landsbankanum.
Þetta er lítill, hvítur
bangsi með rauðan
trefil sem leitar að
sparsömum eiganda.
Þeir sem finna bangsa
fara inn í viðkomandi
verslun, fylla út miða
og í lok dagsins verður
dregið út eitt nafn
hjá hverri verslun.
Hinn heppni fær þá
gjöf frá versluninni
að ákveðinni upphæð
sem hann má leysa út
þegar honum hentar
næstu fjórar vik-
urnar.
Listamenn frá
Götuleikhúsinu munu
ganga um og gefa
blöðrur og sælgæti
frá kl. 14–16 en kaup-
menn á Laugavegi
hafa opið til kl. 17 og
í mörgum verslunum
eru tilboð á vörum.
Þrír sparibangsar frá
Landsbankanum verða
faldir í útstillingar-
gluggum þriggja versl-
ana á Laugaveginum á
laugardaginn.
Langur laugardagur
á Laugavegi
FAGDEILD hjartahjúkrunar-
fræðinga var stofnuð á vordög-
um 1994 og er því 10 ára um
þessar mundir. Þetta er fag-
félag hjúkrunarfræðinga sem
vinna með hjartasjúklinga eða
hafa brennandi áhuga á málum
hjartasjúklinga. Í tilefni afmæl-
isins stendur fagdeildin fyrir
mælingum á áhættuþáttum
kransæðasjúkdóma og munu
hjúkrunarfræðingar veita ráð-
gjöf í Smáralind laugardaginn
6. mars nk. frá kl. 11 til 15.
Hjarta- og æðasjúkdómar
eru vaxandi vandamál hjá ís-
lensku þjóðinni en með breytt-
um lífsstíl og forvarnaraðgerð-
um er hægt að draga verulega
úr alvarleika sjúkdómsins og
jafnvel koma í veg fyrir hann í
einhverjum tilfellum, segir í
fréttatilkynningu fagdeildar-
innar. Hjúkrunarfræðingar
munu bjóða upp á mælingar á
nokkrum áhættuþáttum, svo
sem blóðþrýstings- og blóðfitu-
mælingar, auk ráðleggingar um
reykleysi og fleira.
Gestum í Smáralind gefst
einnig tækifæri til að meta sína
áhættu á að fá kransæðasjúk-
dóma á næstu tíu árum í
áhættureiknivél Hjartavernd-
ar, sem hægt er að nálgast á
vefnum www.hjarta.is. Fólki
verður leiðbeint í gegnum þessa
reiknivél þar sem mælingarnið-
urstöður verða slegnar inn að
loknum mælingum hjúkrunar-
fræðinganna.
Mælingar á
áhættuþáttum
kransæða-
sjúkdóma
Málþing um Rómönsku Ameríku
AFS á Íslandi verður með opið mál-
þing um Rómönsku Ameríku á
morgun, laugardaginn 6. mars kl.
15–17.15 að Hverfisgötu 21, í sal Fé-
lags bókagerðarmanna (við hliðina á
Þjóðleikhúsinu). Á málþinginu verð-
ur skyggnst inn í mannlíf og menn-
ingu í þessum heimshluta.
Frummælendur verða Hólmfríður
Garðarsdóttir lektor og Stefán Guð-
mundsson, stundakennari í heim-
spekideild Háskóla Íslands, og Juan
Luis Barrios frá Gvatemala, sem er
sérlegur gestur AFS af þessu tilefni,
en hann er í alþjóðastjórn samtak-
anna. Þau munu fjalla um stjórn-
málaþróun í Rómönsku Ameríku sl.
áratug, daglegt líf í Gvatemala í ljósi
efnahagsmála og pólitískra að-
stæðna og bókmenntir Rómönsku
Ameríku frá sjónarhóli kvenna.
Að málþingi loknu verða í boði fyrir
gesti léttar veitingar með rómansk–
amerísku ívafi og suðrænni tónlist.
VG fundar um málefni framhalds-
skólans Vinstrihreyfingin – grænt
framboð í Reykjavík heldur fund á
morgun, laugardaginn 6. mars, um
málefni framhaldsskólans og fyr-
irhugaða styttingu náms til stúd-
entsprófs.
Fundurinn verður á 3. hæð í Hafn-
arstræti 20, gengið inn frá Lækj-
artorgi, og hefst kl. 14. Frummæl-
endur verða Elna Katrín Jónsdóttir
og Katrín Jakobsdóttir. Boðið verð-
ur upp á kaffi.
Í DAG
Alþjóðlegt þýskupróf í Tungu-
málamiðstöð HÍ Alþjóðlega þýsku-
prófið TestDaF verður haldið í
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands
20. apríl nk. Prófið er ætlað þeim,
sem ætla að fara í nám í Þýskalandi.
Prófgjaldið er 9.000 kr. Umsjón með
prófum hefur Carsten Thomas, lekt-
or í þýsku við HÍ, og skráning fer-
fram í Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja
Garði, ems@hi.is. Umsóknir eiga að
berast ekki síðar enn 15. mars nk. kl.
12 á hádegi. Nánari upplýsingar eru
að finna á eftirfarandi heimasíðu:
www.testdaf.de
Fyrirlestur hjá Líffræðistofnun
verður í dag, föstudaginn 5. mars kl.
12.20, í stofu 132, Náttúrufræðihúsi
Háskólans. Herborg Hauksdóttir
flytur erindi er nefnist, Retinsýru-
viðtakar: áhrif bindingar við DNA
og meðbæli (Corepressor) á umrit-
un.
Retinsýruviðtakar eru umrit-
unarþættir sem hafa víðtæk áhrif á
fósturþroskun, frumuþroskun og
frumusérhæfingu í hryggdýrum.
Stökkbreyttir viðtakar geta stuðlað
að hvítblæði og kynntar verða rann-
sóknir sem sýna að stökkbreyttu við-
takarnir hafa aðra DNA-bindieig-
inleika en eðlilegir viðtakar o.fl.
Sama gjald á sama veitusvæði
Ranghermt var í blaðinu í gær í
umfjöllun um breytt raforkulög að
sama raforkuverð verði á öllu land-
inu, eins og t.d. á Gjögri og í Garða-
bæ sem dæmi var tekið um, heldur
verður sama gjaldskrá innan sama
veitusvæðis, líkt og fram kom í
blaðinu. Þannig munu íbúar á
Hvammstanga og Hvolsvelli greiða
sama verð, þar sem báðir staðir eru
innan veitusvæðis Rarik. Gjögur og
Garðabær eru á sitt hvoru svæðinu
og er beðist velvirðingar á þessu
ranghermi.
LEIÐRÉTT
UNGIR jafnaðarmenn vilja að fjár-
málaráðherra fresti að veita Decode
Genetics ríkisábyrgð þangað til ítar-
legri upplýsingar um hlutabréfavið-
skipti koma fram.
„Ungir jafnaðarmenn, ungliða-
hreyfing Samfylkingarinnar, vilja
staðfestingu fjármálaráðherra á því
að 200 milljóna dollara ríkisábyrgð
til handa Decode Genetics verði ekki
veitt meðan óvissa ríkir um hver
fékk 400 milljónir, sem greiddar
voru sem þóknun vegna sölu á hluta-
bréfum í félaginu til íslenskra banka.
Ungir jafnaðarmenn efast ekki um
að eðlileg skýring sé á málinu en því
að sækjast eftir ábyrgð skattgreið-
enda á feiknafjárhæðum fylgja mikl-
ar skyldur. Þar sem Decode Genet-
ics hefur leitað eftir ríkisábyrgð
hefur fyrirtækið jafnframt tekist á
hendur auknar skyldur um gegnsæi
og ábyrga rekstrarhætti.
Ungir jafnaðarmenn voru og eru
reyndar enn mótfallnir því að ríkið
gangist í ábyrgð fyrir Decode en
fyrst lög um heimild fjármálaráð-
herra til að gefa fyrirtækinu ríkis-
ábyrgð hafa verið samþykkt á Al-
þingi er það lágmarkskrafa að það
leiki enginn vafi á því að staðið sé
rétt að öllum málum innan fyrirtæk-
isins.
Ungir jafnaðarmenn skora því
sem fyrr segir á fjármálaráðherra að
veita ekki ríkisábyrgðina nema fyrir
liggi frekari upplýsingar um þetta
efni.“
Ungir jafnaðarmenn
Vilja að ráðherra fresti
að veita ríkisábyrgð
♦♦♦