Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 05.03.2004, Qupperneq 58
ÍÞRÓTTIR 58 FÖSTUDAGUR 5. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ÍSLANDSMEISTARAR KR og bikarmeistarar ÍA mæt- ast í Meistarakeppni KSÍ í karlaflokki í Egilshöllinni í kvöld klukkan 19. Þetta er í þriðja sinn sem þessi félög mætast í keppninni en þau áttust við tvö ár í röð um miðjan síðasta áratug, í bæði skiptin á Laugardalsvell- inum rétt áður en Íslandsmótið hófst. Ekki hefur verið keppt í Meistarakeppni KSÍ undan- farin fjögur ár, eða 1999, 2000, 2001 og 2002. Skagamenn léku KR-inga grátt árið 1995, sigruðu þá 5:0. Tveir núverandi leikmenn ÍA, Haraldur Ingólfsson og Kári Steinn Reynisson, skoruðu í þeim leik, Sigurð- ur Jónsson, núverandi þjálfari Víkings, gerði eitt og Dejan Stojic skoraði tvö. KR hefndi fyrir skellinn vorið eftir og vann 3:1. Hilmar Björnsson skoraði tvö mörk og Guðmundur Benediktsson eitt en þeir eru báðir enn í herbúðum KR þótt þeir hafi ekki spilað knattspyrnu lengi vegna meiðsla. Steinar Adolfsson skoraði mark ÍA en hann og Einar Þór Daníelsson úr KR voru síðan báðir reknir af velli og hófu því Íslandsmótið í eins leiks banni. Þriðja viðureign KR og ÍA ÞÝSKA handknattleiksfélagið Kronau/Östringen fékk í gær til liðs við hinn fræga rússneska markvörð And- rej Lavrov og samdi við hann út þetta tímabil. Hann verður í leikmannahópnum þegar liðið mætir toppliði Flensburg í 1. deildinni á morgun. Guðmundur Hrafn- kelsson var markvörður númer tvö hjá Kronau/ Östringen fram að jólum og fékk fá tækifæri. Þá sleit aðalmarkvörðurinn, Maros Kolpak, krossband og Guð- mundur hefur verið markvörður númer eitt að undan- förnu. Kronau/Östringen reyndi á dögunað fá Sören Hag- en, fyrrum landsliðsmarkvörð Dana, til að vera Guð- mundi til halds og trausts en nú er viðbúið að hinn þrautreyndi Lavrov taki við aðalhlutverkinu af ís- lenska landsliðsmarkverðinum. Lavrov verður 42 ára síðar í þessum mánuði og hefur þrívegis orðið Ólympíumeistari. Hann varði mark Rússa á EM í Slóveníu á dögunum. Lavrov hefur ekki leikið með neinu félagi í vetur en æft með rússnesku liði. Lavrov í markið hjá Kronau/Östringen Heiðar fór holu í höggi HEIÐAR Davíð Bragason, kylfingur úr Kili Mos- fellsbæ, lék vel á meistara- móti spænskra áhugamanna í golfi í gær og fór m.a. holu í höggi. Heiðar Davíð og Magnús Lárusson félagi hans úr GKj. léku báðir á 78 höggum á fyrsta degi en Heiðar Davíð bætti sig um 9 högg í gær og komst áfram í 32 manna úrslit þar sem leikin verður holukeppni. Heiðar Davíð fór holu í höggi á 2. braut vallarins þar sem að hann notaði 6 járn og náði draumahöggina öðru sinni á ferli sínum. Magnús lék á 77 höggum í gær og komst ekki áfram. Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti og má þar nefna Sergio Garcia, Darren Clarke og Jose Maria Olazabal. EIN umferð er eftir af deildarleikj- unum í 1. deild karla í körfuknatt- leik og mikil spenna er fyrir síðustu umferðina. Ljóst er hvaða fjögur lið komast í úrslit og eiga þar með möguleika á að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni að ári. Skallagrím- ur er í efsta sæti með 32 stig en síð- an koma Fjölnir og Valur bæði með 28 stig og Ármann/Þróttur er með 20 stig í fjórða sæti. Fjögur efstu liðin mætast í úr- slitakeppninni, liðið í fyrsta sæti mætir því sem er í fjórða sæti og lið númer tvö liði númer þrjú. Það er því ljóst að Skallagrímur mætir Ár- manni/Þrótti í tveimur leikjum í það minnsta og Fjölnir og Valur í hinum leikjunum. Þau lið sem sigra í þessum viðureignum leika í úr- valsdeildinni næsta vetur en leika síðan hreinan úrslitaleik um sigur í deildinni. Fjölnir tekur á móti Skallagrími í síðustu umferðinni á meðan Vals- menn fá Selfyssinga í heimsókn. Nokuð örugg stig þar hjá Val sem færi þá í annað sætið tapi Fjölnir stigi og þar með heimaleikjarétt- inn. Heimaleikjabarátta Aðalfundur Fram Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram verður haldinn mánudaginn 15. mars kl. 20 í íþróttahúsi Fram við Safamýri. FÉLAGSLÍF HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deildin: Ásgarður: Stjarnan - Fram ..................19.15 Seltjarnarnes: Grótta/KR - HK ...........19.15 Ásvellir: Haukar - ÍR .................................20 Hlíðarendi: Valur - KA ..............................20 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Grindavík: ÍG - ÍS..................................19.15 Laugardalsh.: Árm./Þróttur - Þór A. ..19.15 KNATTSPYRNA Meistarakeppni KSÍ, karlar: Egilshöll: KR - ÍA ......................................19 Deildabikarkeppni Neðri deild karla, B-riðill: Fífan: Númi - Breiðablik ...........................21 Í KVÖLD KÖRFUKNATTLEIKUR Haukar – Keflavík 90:88 Ásvellir, Hafnarfirði, úrvalsdeild karla, Intersportdeildin, fimmtudaginn 4. mars 2004. Gangur leiksins: 0:7, 3:9, 4:15, 10:16, 16:20, 20:25, 22:27, 27:29, 31:31, 36:35, 40:37, 42:41, 42:49, 44:53, 49:57, 51:65, 63:65, 65:71, 70:73, 74:78, 78:83, 82:86, 88:88, 90:88. Stig Hauka: Mike Mancier 26, Sævar Har- aldsson 14, Ottó Þórsson 13, Whitney Rob- inson 13, Predrag Bojovic 11, Þórður Gunn- þórsson 11, Sigurður Einarsson 2. Fráköst: 22 í vörn – 13 í sókn. Stig Keflavíkur: Derrick Allen 30, Nick Bradford 30, Fannar Ólafsson 14, Magnús Gunnarsson 5, Hjörtur Harðarson 3, Arnar Jónsson 2, Jón Hafsteinsson 2, Sverrir Sverrisson 2. Fráköst: 25 í vörn – 13 í sókn. Villur: Haukar 17 – Keflavík 17. Dómarar: Erlingur Erlingsson og Björg- vin Rúnarsson. Áhorfendur: Um 170. Tindastóll – Njarðvík 96:99 Íþróttahúsið Sauðárkróki: Gangur leiksins: 5:3, 9:12, 19:17, 25:25,30:29, 32:31, 38:35, 48:35, 48:42, 48:47, 52:55, 56:59, 58:61, 63:66, 67:68, 70:73, 76:76, 77:80, 82:82, 85:85, 88:89, 92:93, 96:99. Stig Tindastóls: Nick Boyd 28, Clifton Cook 24, David Sanders 20, Axel Kárason 15, Svavar Birgisson 5, Óli Barðdal 3, Helgi Rafn Viggósson 1. Fráköst: 27 í vörn – 17 í sókn. Stig Njarðvíkur: Brandon Woudstra 31, Brenton Birmingham 28, Will Chavis 27, Páll Kristinsson 6, Friðrik Stefánsson 4, Halldór Karlsson 3 Fráköst: 27 í vörn – 13 í sókn. Villur: Tindastóll 23 – Njarðvík 23. Dómarar: Georg Andersen og Kristinn Óskarsson. Áhorfendur: Um 330. Grindavík – Breiðablik 101:78 Íþróttahúsið Grindavík: Gangur leiksins: 6:6, 14:13, 23:22, 35:24, 49:33, 59:43, 67:52, 75:58, 82:62, 87:67, 95:73, 101:78. Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 25, Darrel Lewis 20, Anthony Jones 16, Jackie Rogers 14, Davíð Páll Hermannsson 10, Steinar Arason 7, Jóhann Ólafsson 5, Þorleifur Ólafsson 4. Fráköst: 25 í vörn – 17 í sókn. Stig Breiðabliks: Mirko Virijevic 28, Kyle Williams 20, Loftur Einarsson 13, Þórarinn Andrésson 6, Ólafur Guðmundsson 6, Ólaf- ur Long 3, Einar Hannesson 2. Fráköst: 22 í vörn – 22 í sókn. Villur: Grindavík 19, Breiðablik 18. Dómarar: Helgi Bragason og Einar Skarp- héðinsson. Áhorfendur: Um 100. KFÍ – Snæfell 93:90 Íþróttahúsið Ísafirði: Gangur leiksins: 7:4, 13:14, 23:20, 28:26, 38:28, 49:42, 58:50, 66:57, 71:57, 79:67, 84:80, 91:86, 93:90. Stig KFÍ: Troy Wiley 29, Bethuel Fletcher 28, Baldur Ingi Jónasson 17, JaJa Bey 11, Pétur Már Sigurðsson 8. Fráköst: 30 í vörn – 9 í sókn. Stig Snæfells: Corey L. Dickerson 44, Dondrell L. Whitmore 15, Hlynur Bær- ingsson 13, Sigurður Þorvaldsson 11, Ed- mund Dotson 3, Andrés M. Heiðarsson 2, Hafþór I. Gunnarsson 2 Fráköst: 29 í vörn – 14 í sókn. Dómarar: Leifur Garðarsson og Rögnvald- ur Hreiðarsson, stóðu sig ágætlega Áhorfendur: Um 220. KR – ÍR 114:90 DHL-höllin, Reykjavík: Gangur leiksins: 2:0, 9:6, 15:6, 22:12, 28:16, 40:24, 40:32, 45:37, 45:44, 48:44, 52:46, 52:51, 60:51, 66:60, 80:65, 86:65, 95:74, 103:83, 114:90. Stig KR: Joshua Murray 33, Elvan Mims 21, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 18, Skarphéðinn Ingason 13, Magnús Helga- son 9, Jesper Sörensen 8, Steinar Kaldal 6, Baldur Ólafsson 6. Fráköst: 24 í vörn – 19 í sókn. Stig ÍR: Maurice Ingram 27, Fannar Helgason 16, Eugene Christopher 12, Ei- ríkur Önundarson 10, Ómar Sævarsson 9, Ryan Leier 6, Kevin Grandberg 6, Ólafur Þórisson 4. Fráköst: 20 í vörn – 22 í sókn. Villur: KR 22 – ÍR 17. Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson og Guð- mundur Stefán Maríasson. Áhorfendur: Um 140. Þór Þ. – Hamar 83:75 Íþróttamiðstöðin Þorlákshöfn: Gangur leiksins: 5:5, 13:7, 19:16, 22:21. 23:25, 25:31, 32:35, 36:39. 40:44, 47:46, 54:51, 60:59. 70:63, 72:65, 78:69, 83:75. Stig Þórs: Robert Dean Hodgson 19, Leon Brisport 18, Grétar Ingi Erlendsson 15, Sigurbjörn I Þórðarson 11, Nate Brown 10, Ágúst Örn Grétarsson 6, Finnur Andrés- son 4. Fráköst: 27 í vörn – 18 í sókn. Stig Hamars: Lárus Jónsson 17, Faheem Nelson 14, Hallgrímur Brynjólfsson 12, Marvin Valdimarsson 12, Adrian Owens 8, Svavar P. Pálsson 8, Bragi Bjarnason 4. Fráköst: 28 í vörn – 17 í sókn. Villur: Þór 18 – Hamar 25. Dómarar: Sigmundur M. Herbertsson og Karl Friðriksson Áhorfendur: Um 400 Lokastaðan: Snæfell 22 18 4 1884:1765 36 Grindavík 22 18 4 2001:1859 36 Keflavík 22 15 7 2170:1942 30 Njarðvík 22 14 8 2027:1885 28 Haukar 22 13 9 1763:1746 26 Tindastóll 22 12 10 2038:1941 24 KR 22 11 11 2015:1939 22 Hamar 22 10 12 1834:1887 20 ÍR 22 6 16 1893:2014 12 KFÍ 22 6 16 1991:2265 12 Þór Þorl. 22 5 17 1844:2051 10 Breiðablik 22 4 18 1792:1958 8 KNATTSPYRNA Deildabikar karla Efri deild, A-riðill: Haukar – Njarðvík ...................................4:1 Goran Lukic 2, Sævar Eyjólfsson 2 – Guðni Erlendsson. Staðan: KA 2 2 0 0 9:2 6 KR 2 1 1 0 6:2 4 Haukar 2 1 0 1 6:5 3 Þór 1 1 0 0 2:1 3 Grindavík 3 1 0 2 6:8 3 Fylkir 2 1 0 1 5:7 3 Víkingur R. 1 0 1 0 1:1 1 Njarðvík 3 0 0 3 4:13 0 Reykjavíkurmót kvenna Neðri deild: Þróttur R. – Fylkir....................................3:1 HK/Víkingur – Fjölnir..............................3:2 BLAK 1. deild karla: Stjarnan – Þróttur R.................................3:1 BORÐTENNIS Karlalið Íslands í borðtennis tapaði fyrir landsliði Malasíu í gær á HM í Katar, 2 :3. Guðmundur E. Stephensen sigraði Choo Sim Guam 3:0 , Markús Árnason tapaði fyr- ir Shakrn, 1:3, í þriðja leik tapaði Matthías Stephensen fyrir Chan Koon Wah 0:3, Guð- mundur sigraði Chan Koon Wah 3:0, og Matthías tapaði fyrir Guam 0:3. Leikur Tindastóls og Narðvíkurhófst með sannkallaðri flug- eldasýningu, þar sem leikinn var mjög hraður og skemmtilegur bolti og liðin skiptust á að skora og hittni beggja liða var ágæt, hvort sem var inni í teig eða utan þriggja stiga línunnar. Um það bil helmingur stiga liðanna var skorað- ur úr þriggja stig skotum og voru þeir Nick Boyd og Clifton Cook iðn- astir við kolann hjá heimamönnum en Brandon Woudstra, Brenton Birmingham og Will Chavis hjá gestunum, og höfðu heimamenn eins stigs forystu eftir þennan leikhluta. Eftir hálfleikshlé léku Njarðvík- ingar mun betri vörn en áður og náðu heimamenn ekki að skora stig fyrstu fjórar mínúturnar en gestirn- ir breyttu stöðunni sér í hag 48:50 og tóku þá heimamenn leikhlé. Nú jafn- aðist leikurinn en Njarðvíkingar höfðu lengstum frumkvæðið, en náðu þó aldrei að skapa sér neitt svigrúm. Þrjú stig skildu liðin við lok þriðja hluta. Þegar í fyrstu sókn jafnaði Sand- ers með fallegri þriggja stiga körfu og þennan leikhluta skiptust liðin á að hafa frumkvæðið og munaði aldr- ei nema þrem stigum. Þegar örfáar sekúndur voru til loka og staðan var 75:76 og heimamenn með boltann var brotið á Cook, og skoraði hann úr öðru skotinu og jafnaði Nú var barist um hvern bolta en einnig ljóst að leikmenn voru orðnir þreyttir og því meira um mistök, frumkvæðið var Njarðvíkinganna en Tindastólsmenn jöfnuðu jafnharðan og enn var jafnt 85:85. Ljóst var að gestirnir ætluðu þeim Woudstra og Birmingham að klára leikinn og léku eingöngu upp á að þeir næðu að skora, enda fór svo eftir gífurlega baráttu að sigurinn var gestanna. Þórsarar falla með sæmd Þór Þorlákshöfn sigraði HamarHveragerði sannkölluðum grannaslag, 83:75. Það var mikil bar- átta í leiknum frá upphafi til enda og hvorugt liðið sætti sig við það að tapa. Þórsarar mætti mjög vel stemmdir og byrjuðu leik- inn af miklum krafti og náðu um miðjan fyrsta fjórðung sex stiga for- ustu en gestirnir voru ekki á því að gefast upp og settu miður hverja þriggja stiga körfuna af annarri og fór þá Hallgrímur Brynjólfsson, fyrrum Þórsari, mikinn bæði í vörn og sókn. Jafnræði var á með liðunum í þriðja fjórðungi en heimamenn unnu þá upp muninn og náðu eins stigs forskoti 60:59. Heimamenn hófu síðasta fjórð- unginn með gífurlegum krafti og nú skildi leikurinn kláraður með stæl og náðu þeir mest ellefu stiga for- skoti um miðjan fjórðunginn og réðu gestirnir ekki við þann mun þó að þeir reyndu hvað þeir gátu og verð- ur ekki um þá sagt annað en þeir hafi barist eins og ljón en réðu ekki við fríska Þórsarana sem unnu sann- gjarnan sigur, 83:75. „Það er vissulega ljúft að vinna Hamar en það skyggir á að hafa fall- ið um deild. Það þýðir ekki að gráta Björn bónda nú er að safna liði og taka stefnuna á að vinna sig strax upp aftur,“ sagði Kristinn Kristins- son formaður Þórs. KFÍ lagði deildarmeistarana Ísfirðingar bundu enda á sigur-göngu Snæfellinga í gær með góðum sigri, 93:90 í Jakanum á Ísa- firði. Fyrir leikinn var vitað að þessi leikur skipti hvorugt liðið máli, Ísfirðing- ar búnir að tryggja sæti sitt í úrvalsdeild og áttu ekki möguleika á að komast í úrslita- keppnina og Snæfellingar búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Í öðrum leikhluta var Corey L. Dickerson maður vallarins og stjórnaði liði sínu vel en átti erfitt með að koma boltanum ofan í körf- unna. Í þriðja leikhluta voru það Bethuel Fletcher og Corey L. Dick- erson sem að voru bestu menn vall- arins en þeir stjórnuðu liðum sínum af mikilli ákveðni og skoraði sá síðar nefndi 44 stig í leiknum. JaJa Bey tryggði heimamönnum svo sigurinn með vítaskoti og sigurinn í höfn, 93:90. ,,Mér fannst dómararnir dæma erfiðan leik og gerðu jafnmörg mis- tök á bæði lið, sagði Hrafn Krist- jánsson, þjálfari KFÍ. ,,Markmið liðsins var að halda sér uppi og það tókst sagði hann aðspurður hvort hann væri sáttur við tímabilið að hálfu KFÍ. Öruggur sigur Grindavíkur Það var aldrei spurning um þaðhvorum megin sigurinn lenti í Grindavík, þegar heimamenn í tóku á móti Blikum og unnu öruggan sigur, 101:78. Blikarnir byrjuðu ágætlega, en eftir fyrsta leik- hluta, sem var jafn, settu Grindvík- ingar í gírinn með nýjan liðsmann, Anthony Jones, innanborðs. Hann féll vel inn í leik Grindavíkurliðsins, sem sást best á því að leikur liðsins tók stakkaskiptum. Bestir í liði Grindvíkinga voru þeir Davíð Páll Hermannsson og Páll Ax- el Vilbergsson, en hjá Blikum var Mirko Virijevic allt í öllu – besti maður vallarins. „Hvorugt liðið hafði að einhverju að keppa en við vorum þó ákveðnir í að fá eitthvað út úr leiknum. Mér líst vel á Jones hjá okkur. Hann er bæði lipur og sérlega duglegur, þannig að ég er sáttur við hans framlag,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga. Tvíframlengt í „Síkinu“ NJARÐVÍK hafði betur gegn Tindastól í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik í gær, 99:96, en tvívegis þurfti að framlengja leikinn. Á Ísafirði lögðu heimamenn Snæfell, Þór kvaddi deildina með sigri á grannaliðinu Hamri og í Grindavík lét Anthony Jones að sér kveða í fyrsta leik sínum með liðinu. Björn Björnsson skrifar Jón Sigurmundsson skrifar Gunnar Atli Gunnarsson skrifar Garðar Vignisson skrifar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.