Vísir - 02.04.1981, Page 28
síminn er 86611
veöurspá!
dagsíns j
Skammtfyrir austan land er |
10095 mb lægö á hreyfingu _
norðaustur, önnur kyrrstæð er y
990 mb djúp á sunnanverðu _
Grænlandshafi, sú þriöja 980 |>.
mb djúp er 900 km suðvestur i _
hafi á fremur hraöri heyfingu
noröaustur.
Suðurland:
Sunnan gola eða kaldi og smá- ■
skúrir fyrst, en allhvöss sunn- ■
an átt og rigning er liður á B
daginn.
Faxaflói til Vestfjaröa:
Suövestan gola eöa kaldi.
Strandir og Norðurland vestra ^
og eystra:
Hægviðri og viðast skýjað ■
fyrst, gengur i sunnan kalda B
og léttir til siödegis.
Austurland að Glettingi og : |
Austfirðir:
Hægviðri og sumstaðar létt- f|
skýjað, gengur i suðvestan
og vestan kalda og léttir til pj
siðdegis. „
Suðausturland:
Norðaustan gola eða kaldi og _
viða léttskýjað fyrst, gengur i |
vestan og suðvestan kalda og _
þykknar upp, er liður á morg- g
uninn, en suðvestan og sunnan rjs
stinningskaidi og skúrir sið- La
degis. ■
veðrið hér
og par
Veðrir klukkan sex i morgun:
Akureyri skýjað 4-1, Bergen
rigning og súld 5, Helsinki
léttskýjað 1, Kaupmannahöfn
skýjað 6, Reykjavík skýjað 1,
Stokkhólmur skýjaö 2, Þórs-
höfn þokumóöa 7.
Veðrið klukkan átján i gær:
Aþena alskýjað 12, Berlfn
mistur 14, Feneyjar þoku-
móða 15, Frankfurtþokumóða
14, Nuuk snjókoma -11,
London mistur 10, Mallorka
skýjaö 15, Paris þokumóöa 10,
Róm þokumóða 14, Malaga
LOHI
SEGIR
Vegna hertrar verðstöðvunar
hefur brennivin verið hækkað,
sömuleiðis tóbak, svo og slm-i
töl til útlanda sem og...
I
Tlllögur nefndar um að létta byrðl íbúðakaupenda:
Skuldum ydr 20 bús.
breyll í to ára lán
- Bankar neita milligöngu Húsnæðismálastofnunar
Enn ikannrað verða nokkur bið
á þvi, að létt verði á klyfjum
húsbyggjenda og húsnæðis-
kaupenda með breytingum
skammtimalána i lengri lán,
sem rikisstjórnin boðaði um
áramótin.
Stjórnskipuð nefnd undir for-
ystu Jóns G. Sólnes fv. alþingis-
manns skilaði fyrir þó nokkru
tillögum um tilhögun lána-
breytinganna. Þar var gert ráð
fyrir þvi að bankar og spari-
sjóðir legðu til fjármagnið, sem
hefði þó aðallega þýtt
lengri bindingu lánsfjár til þess
ara mála. Hins vegar var lagt til
i nefndarálitinu, að Húsnæðis-
málastofnun annaöist milli-
göngu um lánabreytingarnar,
en þvi munu bæði bankar og
sparisjóðir hafna alfariö, og þar
stendur hnifurinn i kúnni, skv.
heimildum Visis.
Alit stjórnskipuðu nefndar-
innar og tillögur liggja ekki á
lausu, en Visir hefur áreiöan-
legar heimildir um það að aðal-
atriðin i tillögunum séu: Þeim
sem byggt hafa eða keypt i-
búðarhúsnæði á s.l. 4 árum og
skulda meira en 20 þúsund krón-
ur i skammtimalánum (vixlum,
vaxtaaukalánum o.fl.), sem
rekja má til framkvæmda eða
kaupa, verði boðin 10 ára lán
með 2.0% vöxtum og lánskjara-
visitölu (þ.e. fullri verðtrygg-
ingu). Hámark var ekki nefnt,
en talað hefur verið um 80-90
þúsund krónur. Gert var ráð
fyrir milligöngu Húsnæöismála-
stofnunar þar sem hún hefur
einu samanteknu gögnin um þa,
sem hér eiga hlut að máli.
Talið er að 2.000 — 4.000
byggjendur og kaupendur eigi i
þeim vanda meira eða minna,
sem ætlað er að leysa úr.
Það mun að vonum vefjast
fyrir, hvernig eigi að meta út af
fyrir sig þann fjárhagsvanda
hvers og eins sem málið snýst
um, m.a. vegna þess að margs
konar óbeinar skuldir kunna aö
hafa hlaðist upp hjá viðkom-
andi.
—HERB
Margir
girntust
undratækið
Vísismenn brugðu á leik i gær,
eins og vera ber fyrsta aprií.
Blaðið sagði frá nýju undratæki,
sem breytti venjulegu kasettu-
tæki i myndsegúlband, og var
þetta tæki i ofanálag frekar ódýrt.
Það áttuðu sig fæstir á þvi, að
hér væri um aprílgabb að ræða,
þvi að tækniþróunin er svo ör. All-
margir lögðu þvi leið sina inn að
Siðumúla 17, þar sem sagt var að
tækið fengist, og enn fleiri
hringdu i Radióþjónustu Bjarna,
sem er þar til húsa.
Þvi miður er þetta tæki ekki
komiö á markaðinn, en hver veit
nema svo verði innan tiöar?
ATA
Deiian l Hl:
„Reyna
að spilla
samstöðunni”
Allt stendur kolfast i kjaradeilu
stundakennara við Háskóla
fslands og ráðuneytanna. Engar
viðræður hafa verið boðaðar,
enda lita stundakennarar svo á,
að frumkvæði eigi að koma frá
ráöuneytunum.
„Þeir hafa ekki beðið um nein-
ar viöræður viö ráðuneytin og
ekkert hefur verið ákveöið þar
um”, sagöi Þorsteinn Geirsson,
deildarstjóri i Fjármálaráðu-
neytinu, þegar Visir ræddi viö
hann.
A siöasta viðræðufundi stunda-
kennara og ráöuneytanna kom
fram sú hugmynd hjá stunda-
kennurum, aö gæfu ráðuneytin út
skriflega yfirlýsii/gu um, að regl-
ur um stundakennslu yröu endur-
skoðaðar i samráði viö stunda-
kennara, og að þeim yrði breytt
fyrir haustið, þá skyldi lagt til aö
verkfallinu yrði aflýst. Við þessu
uröu ráðuneytin ekki.
„Við litum svo á, aö þetta sé aö-
eins staðfesting á þvi, að þeir vilji
ekki tala við okkur, og aö mark-
mið þeirra sé að spilla þeirri
samstööu, sem náðst hefur i
félaginu og reyna aö ráða þaö af
dögum”, sagði Ölafur Jónsson,
bókmenntafræöingur i morgun.
—JSS
1 tilefni 10 ára afmælis Bilaleigu Loftleiða var efnt til „Borgarralls” á 22 bflum frá leigunni I gær. Það
var tryggingafyrirtæki bflaleigunnar, Abbey Life, sem stóð fyrir rallinu, og ökumennirnir allir sölu-
menn hjá tryggingarfyrirtækinu. Ekki var lagt upp úr hraðaakstri, en þátttakendur óku eftir korti og
þurftu að koma við á 27 stöðum. Sigurvegarar urðu Ralph Peters og David Knox og á myndinni eru þeir
kampakátir með sigurlaunin og eiginkonurnar.
Visismynd :GVA
Steinullarslagur
í aðsigi á AlDingi
„Það er rétt að koma fram I
þinginu tillaga frá iðnaðar-
ráðherra um heimild til að reisa
steinullarverksmiðju, en það er
ekki miðað við ákveðinn stað,
fyrr en búið er að ganga frá hon-
um.” Þetta sagði Garðar Sigurðs-
son, þegar hann var spurður,
hvort þeir þingmenn Sunnlend-
inga muni á næstunni flytja til-
lögu um byggingu slikrar verk-
smiðju á Þorlákshöfn. Slðan bætti
hann við:
„Svökölluð niðurstaða staðar-
valsnefndar tekur ekki afstöðu til
þess. Sá stóri og merki starfshóp-
ur mikilhæfra vlsindamanna gat
nú ekki fundiö það, sem hann átti
að finna, þótt hann starfaöi i heilt
ár.
—Verða þá stjórnmálamenn-
irnir ekki að taka ákvörðun?
„Jú, ef þeir þora aö taka
ákvörðun. Auðvitað munum við
reka á eftir þvi, að hún verði reist
á Suöurlandi. Og vitanlega fara
menn ekki að búa til verksmiðju,
sem framleiðir 5 þús. tonn, eftir
frönsku patenti, sem er bundið
þvi skilyröi, að ekki megi flytja
korn af framleiðslunni til landa
Efnahagsbandalagsins. Þa
kemur fram i áliti staðarvals-
nefndar að það sé ekki hægt að
mæla með þeirri aðferð, sem
Fransmenn nota, þótt hún sé hlut-
dræg á margan hátt.”
„Við munum allavega beita
okkur fyrir, að hún verði reist,”
sagði Magnús Magnússon, þegar
hann var spurður um tillöguflutn-
ing, „og mér þykir liklegt, að við
flytjum tillögu.”
Páll Pétursson var spuröur,
hvort þingmenn Norðurlands
vestra muni flytja tillögu um
byggingu verksmiðju fyrir norð-
an: „Ég geri ráð fyrir, aö þegar
okkur þykir ástæða til, muni ekki
standa á okkur að undirbúa og
flytja.” SV