Tíminn - 03.12.1969, Side 2
TIMINN
MBÐVIKUDAGIJR 3. desember 1969.
Sambandsstjórnarfundur Sambands byggingarmanna:
Mótmæla fljótfærnislegri og van-
hugsaðri aðild Islands að EFTA
Sambandsstjórnarfundur Sam-1 um EFTA-aðild, þar sem mót-
bands byggingarmanna, sem hald- mælt er „mjög eindregið fljót-
inn var um helgina, gerði ályktun' færnislegri og að því er virðist
Ottazt um líf 57
í elliheimilisbruna
NTB-QUEBEC, þriðjudag.
Óttazt er, að 57 manns hafi far-
izt í miklum eldsvoða í morgun,
þegar elliheimili í bænum Notre-
Dame-du-lac, nálægt Qubec i
Kanada, brann til kaldra kola í
morgun. Á elliheimilinu voru 69
vistmenn og þar af voru 17 lam-
aðir.
Sjúlkralhúsið í Notre-Damie-du-
lac tilkynnti í daig, að það hefði
tekið á móti 18 vistoniönrmm a'E
heimilinu og 10 manns af starfs-
liðinu. Þrír af sjúfelingunum eru
alvarlega brenndir cng dveljast á-
fram á sjúkrahúsinu, en hinum
verður komið fyrir á einkaheim-
ilum eins fljótit oig kostur er.
Af þeim 69 vistmönnúm, sem á
eiliheimilinu voru, gátu 17 emga
björg sér veitt, sökum lömunar.
Taiið er, að fíestir þeirra hafi
brunnið irnni í berbergjum sín-
um.
Elliheimilið var þriiggja hæða
timb'Jiihús, 75 ára gamait, en það
hafði áður verið skóli. Eldurinn
kom upp rétt fyrir ki. 6 í morg-
un, að staSartíma. Gullsmíðaverk-
stæði sfeammt frá húsinu, brann
einnig, og að auki fcvifenaði í tveim
húsum.
Tveir af starfsmönnum heimilis
ins, söigðu, að þeir hefðu rótt náð
að stökkva út um glugga, áður en
eldurinn læsti sig um allt húsið.
Aðeins fjögur lík hafa fundizt,
en lögreglan telur litla von tii að
fleiri bafi komizt lífs af, en þegar
er vitað um.
I
o;
K
eVHNZKT
<§> <§>
SðiJOR
llmandi jólabakstur — verulega góSar smákökur,
já — þár er smjörið ómissandi.
Tii þess a’ð létta húsmæðrunum störfin og tryggja þeim
öruggar og Ijúffengar smákökuuppskriftir
höfum við fengið
Elízabetu S'. Magnúsdóttur húsmæðrakennara
okkur til aðstoðar.
Hún hefur prófað og endurbætt
nokkrar sígildar smákökuuppskriftir, þar sem
smjörkeimurinn nýtur sín sérlega vei.
Uppskriftir hennar birtast hér í blaðinu næstu daga.
smjörið gerir gœðamuninn!
OS(a~e</ Á/n/elAci/ci/i /
vanhugsaðri aðild Islands að
EFTA.“
í ályktuninni segir m. a., að aug
ljóst virðist „af því sem þegar
hefur verið upplýst um afleiðing-
ar af væntanlegri inngöngu fs-
lands í EFTA, að brýnustu neyzlu
vörur, bæði innlendar og erlend-
ar, muni hækka verulega í verði.
Þá befur það einnig komið
fram„ að nokikrar starisgreinar
muni j'afnvel alveg leggjast nið-
ur og aðrar eiga í mifclum erfið-
leikum en af þekn söfeum muni
þúisundir manna missa atvinnu
sína.
Pundurinn telur, að innganga fs
lands í EFTA sé það alvarlegt mál
fyrir launþega landisins, að ekki
komi til greinia að tekin verði á-
kvörðun um hana án fulls sam-
ráðs við verkalýðshrcyfinguna og
að henni verði áður fengnar und-
anbragðalaust allar upplýsingar
um miálið, til þess að innain hreyf
ingarinnar geti átt sér stað heil-
brigð skoðanamyndun um það.
Það er álit fundarins, að ef
upplýsingar um áhrif aðildar ís-
lands að EFTA, leiði í ljós líkur
fyrir að hún skerði frekar en orð-
ið er launakjör eða atvinnuöryggi
launþega eða verði til að torvelda
á einhvern hátt baráttu þeirra fyr-
ir nauðsynlegum kjarabótum og
atvinnuöryggi, þá beri veikialýðs-
hreyfingunni að taka upp harða
baráittu gegn aðildinni.“
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Felldu tillöguna
um árs gjaldfrest
LL-Rieykjavík, þriðjudag.
f dag fór fram atkvaeðagreiðsla
um tillögu þeirra Björns Fr.
Björnssónar og Ásgeirs Bjarna-
sonar um Húsnæðismálastofnun.
Var gert ráð fyrir því í frumvarp-
inu, að Veðdeild Landsþankans
verði gefin heimild ti'l að veita
lántakanda gjaldfrest í eibt ár, ef
hlutaðeigandi hefur orðið fyrir
fjárhagslegum áföllum vegna at-
vinnuleysis eða af öðrum óviðráð-
anlegum orsökum.
Var tillaga'n felld við atkvæða-
greiðslu í efri deitd með 10 at-
kvæðum giegn-9.
Helztu rök stjómarliða, sem
felldu tillöguna voru þau, að
Veðdeildin tæki vægitega á skuld-
urum í slíkum tilfellum og eriitt
yrði að vita hverjir það væru, sem
ættu að fá gjaldfrestinn!
Á ÞINGPALLI
Lagt hefur verið fram stjóm-
arirumvarp um breyting á lögum
um Bjargráðasj'óð. Er þar gert
ráð fyrir, að framlög sveitar-
félaga og ríkissjóðs, hvors um
sig, til Bjargráðasjóðs verði hæfck
uð úr 25 í 50 kr. fyrir hvem
íbúa. Munu þá tefcjur sjóðsins auk
ast- um 10 tniílj. kr.
★ Þrír þimgmenn Alþýðubanda-
l'agsins hafa lagt fram þinigsálylat-
unartillöigu um að nefnd verði
skipuð til endurskoðunar á lög-
um um ráðstafanir í sjávarútvegi
vegna breytingar íslen2jkrar krónu
árið 1968.
★ Maitthías Á. Mathiesen hefur
lagt fram fyrirspum til heilhrigð
ismálaráðherra. Er hún svohljóð-
andi: Hvaða ráðstafanir hafa ver-
ið gerðar til þes að hindra ólög-
legan innflutning, vörzlu, dreif-
imgu svo og neyzlu vana- og deyfi
lyfja?
★ Geir Gunnarsson, Jónas Áma-
son og Steingrímur Pálsson hafa
beint tveimur fyrirspumum til
sjávarútve'gsmálaráðhema. Er sú
fyrri svohljóðandi: Hve mifclu er
áætlað, að afborganir oig vextir af
stofnlánum fiskiskipa nemi á ár-
inu 1969: a) af togurum, b) af
fiskiskipum?
k Sú síðari er svohljóðandi:
Hversu miklu er áætlað, að
greiðslur af óskiptu aflaverðmæti
sfcv. lögum frá 31. des. 1068 nemi
á árinu 1969:
1. í stofnsjóð fiskiskipa: a) til
togara, b) til anniarra fiskiskipa?
2. Til úagerðarfyrirtæfej'a, sem
hlutdeild í almennum útgerðar-
kostnaði?
★ Ingvar Gíslason mælti fyrir
þinigsályktunartillögu um endur-
Bramhald á bls. 14
Bolungarvílc:
Skemmta sér
á fimmtu-
dögum
Krjúl — föstudag.
Þó að veðrið hafi verið ágætt
héraa undanfarið, hafa bátamir
ekki fiskað nema misjafnlega.
Fjórir bátar eru hér á línu, þrír
á rækju og einn á hörpudiski og
leggja allir 'aflann upp hér heima.
Hugrún er eini trollbáturinn, hún
sigldi með aflann í fyrri viku til
Englands og seldi þar fyrir 1,6
milljónir, en þetta voru um 40
tonn, mest koli, en eitthvað af
ýsu og þorski.
Atvinna hefur verið nokkuð góð
og stöðug og er það aðaltega að
þakka, þessu sem úr sjónum fæst.
Hafnargerðin er alltaf á dag-
skrá, en ekkert hefur þó verið
hægt að vinna við hana undan-
farið. Málinu er þó haldið vak-
andi.
Umferðapestir hafa verið að
stinga sér niður hérna, þó ekki
sé beinlínis um faraldur að ræða.
Mislingar hafa verið hér viðloð
andi í heilt ár og í haust var
nokkuð mikið um þá. Þeir leggj
ast aðallega á börn og fremur
vægt. Sum fá að visu nokkuð há-
an hita, en ekki er um alvarleg
eltirköst að ræða.
Segja má, að félagslífið sé í
blóma, en því er samt ekki að
neita, að sjónvarpið hefur dregið
þar nokkuð úr. Flestir, sem að
félagsmálum vinna, reyna að koma
sem mestu á fimmtudagana, þegar
hlé er á útsenúingum sjónvarpsins.
Mjólkurskortur var hér um tíma
einkanlega vegna þess, að veður
hamlaði ferðum á milli. í hríðar
veðrinu, sem gerði fyrir mánuði,
tepptist leiðin svo að grípa varð
til skömmtunar á mjólk. Ennþá
er haldið í mjólkina og mú búast
við, að skammtað verði að ein-
hverju leyti. í skömmtuninni
fengu smábörn innan við fjögurra
ára einn lítra og hinir hálfan lítra.
Breiðdalsvík:
Hefur hrein-
dýr í fjósinu
GA—föstudag.
Hér hefur verið hörkutið und
anfarið, snjór er yfir öllu og
haglaust orðið. Allar skepnur voru
teknar á gjöf í byrjun mánaðarins
þegar vonda kaflann gerði.
Lítillega hefur verið siltað af
síld úr Breiðamer’-' .dýpinu. Haf
dis er eini báturinn, sem gerir út-
á síld og leggur upp annan og
þriðja hvern dag, svo fólk hefur
hér talsverða vinnu við síldina.
Annars hafa allir eitthvað fyrir
stafni.
Við hérna á Breiðdalsvíkinni
ætlum að sjá sjónvarpið eins og
hinir, en .fil þess þuríum við að
kaupa okkur sjónvarpsstöð. Von
andi kemst hún í gagnið í janúar.
Hér er tamið hreindýr á gjöf
á bæ, sem heitir Fagridalur.
Bóndinn þar, Stefán Stefánsson
rakst á dýrið í fyrravetur í heima-
landinu. Þetta er kvígukálfur á öðr
um vetri. Dýrið var í túninu í
sumar, en nú er það komið í hús.
Það étur svolítið af heyi, en ann
ars er fæðan mest mjólk og svo
náttúrlega fjallagrös, sem eru það
bezta, sem það fær. Dýrið er gæft
við heimafólk, en svolítið stíft við
ókunnuga.
Patreksf jörður:
Bátarnir landa
heima á ný
SJ—föstudag.
Veðrið hefur verið gott undan
farna daga og má segja að fært
sé innan héraðsins niður á Barða
strönd og um Rauðassndshrepp-
inn, niður í Tálknafjörð og til
BHdudals.
Bátarnir okkar hafa að miklu
leyti landað afla mnum að heim
an í sumai', nema María Júlía,
sem verið hefur á trolli og feng
ið allsæmilegan afla. Jón Þórðar-
son og Þrymur hafa líka verið
með troll, en siglt með aflann.
Þorri er nýbyrjaður með troll og
Dofri byrjar á línu á næstunni.
Þegar bátarnir fara að landa
heima lifnar nú yfir atvinnunni,
en hún hefur verið mjög léleg.
Frystihúsið á Geirseyri, sem er
nú aðalatvinnufyrirtækið, hefur
ekki verið starfrækt síðan í vor.