Tíminn - 03.12.1969, Side 3
MTÐVIKTDAGUR 3. desember 1969.
TIMINN
Morðið á Sharon Tate:
Grátbændi morðingjana
um að fá að fæða barnið
NTB—Los Angeles, þriðjudag.
Tíu meðlimir hippahreyfingar,
sem kallar sig því óhugnanlega
nafni „Þrælar Satans“ eru nú í
fangelsi vegna morðanna í Los
Angeles í sumar, en leíkkonan
Sharon Tate var ein af þeim átta
manneskjum, sem myrtar voru á
Jay Sebring viS vinnu sína.
hinn hroðalegasta hátt. Ein stúlk-
an, sem hefur verið handtekin,
hefur játað morðin og lýst atburð-
arásinni nákvæmlega fyrir lögregl-
unn,i. Hún sagði m. a., að Sharon
Tate hafi grátbænt morðingjana
um að fá að fæða barn sitt, ,en liún
var komin átta mánuði á leið.
Af þeim tiu hippum, sem hand-
tekin voru, eru aðeins þrjú nafn-
greind: Oharles D. Watson, 24 ára,
með hár langt niður á bak, Patric-
ia Kernwinkel, 21 árs og Linda
Kasabian 19 ára. Watson var hand-
tekin á sunnudaginn, en stúlkurnar
í gær. Fimm stúlbur til viðbótar
eru í varðhaldi í bvennafangelsi
í Los Angeles, en með því er reynt
að boma í veg fyrir, a® mikilvæg
sönnunargögn glatist. Ein þeirra
sagði vini sínum nákvæmlega frá
morðumum, en vinurinn tilkynnti
síðan lögreglunni vitneskju 6Ína.
Þá enu karlmaður og stúlka einnig
ákærð fyrir morð, sem tengt virð-
ist Tate-málinu. Þau eru bæði
meiðlimir „Þræla Satans“.
Auk þess var svo forimgi hippa-
hreyfingarinnar, Charles Manson,
handtekinn ásamt tveim öðrum,
nélæigt „Dal dauðans", en þar
hafa „Þrælar Satans" bækistöð
sína. Manson þessi gebk meðal
áhamgemda sinna ýmist undir nafn-
inu „Jesús“ eða „Satan“.
Hippahreyfingin, sem var á
fiæbingi um Kaliforníu í gömlum
strætisvagni hafi aðsetur sitt í
helli í „Dal dauðans“. 10. obtóber
s. 1. svældi lögreglan svo lýðinn út
úr greninu, þegar hún genði á-
Roman Polanski við i»r®arförina
Suðureyri, Súgandafirði:
Frystihúsið
gætir barnanna
GB—föstudag.
Allir eru hér á sjó, og ég held
að segja megi, að gangi betur
en illa. Atvinna er næg og heldur
meira en það. Meira að segja er
svo mikið að gera, að frystihúsið
hefur tekið að sér að gæta barn-
anna, svo að húsmæðurnar geti
unnið.
Barnagæzlan er staðsett í kaffi-
stofu félagsiheimilisins og þar gæta
tvær konur barnanna frá hádegi
og fram að kvöldmat. Þetta eru
börn upp að 7 ára aldri.
Veðrið er gott núna, en óvenju
mikill snjór. Skemmtanalífið er
frekar dauft, aðeins kvikmynda
sýningar tvisvar, þrisvar í viku.
Vopnafjörður:
Einn bátur
r m r
a sjo
SS—föstudag.
Héðan rær bara einn bátur,
Brettingur. Hann hefur farið tvo
túra núna eftir sláturtíðina, en
aflinn er ebki nema reytingur. Með
an slátrað var, sigldi Brettingur,
því frystihúsið og sláturhúsið er
eitt og hið sama hér. Þá fór hann
tvær ferðir til Þýzkalands.
Lítið er að gera hér eins og
er, því trillurnar geta ekki róið.
Kristján Valgeir fór í Norðursjó-
inn, en er nú fcominn aftur heim.
Snjór er mikill, en ekki hafa
þó verið neinir erfiðleikar af
þeim sökum.
Verið er að vinna að viðgerðum
á hafnargarðinum, en hann
skemmdist f brimi um daginn.
Bíldudalur:
Heimatilbúnar
draugasögur
SM-28. nóvember.
Atvinnan hérna hefur verið lítil,
því ekkert hefur verið unnið í
frystihúsinu. Smábátarnir byrjuðu
allir á rækju í september og
leggja að mestu upp hjá Mat-
vælaiðjunni. Svo er bað togarinn,
Pétur Thorsteinsson, hann hefur
landað á Súgandafirði í sumar og
haust, en síðustu tvö skiptin hef
ur hann siglt með aflann til Eng
lands. Það má segja, að þetta sé
allt frekar dauft — nema sam-
kvæmislífið, það er fjörugt. Fram-
sóknarvist og diskótek eru ráð-
gerð til skiptis í vetur og svo eru
böll á milli.
Hér er ráðgerður heilmikiU 1.
desember-dansleikur. Mikið verður
af skeir.mtiatriðum og þau eru
flest heimatilbúin. Þarna verður
þátturinn „Á öndverðum meiði“ í
sjónvaiTisformi og aðalmönnunum
lögð orð í munn. Þá eru frumsamd
ar vísur fluttar og draugasögur
og svo dunar dansinn.
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiférðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9 manna - Landrover 7manna
hlaup með bifreiðum og þyrlum.
Hippin voru flest eftirlýst fyrir
bílþjófnaði og aðra smáglæpi.
Meðlimir hreyfingarinnar hafa
sagt meðföngum sínum, að þau
teldu sig þræla leiðtoga síns,
„Satans“ og væru viljug til að
gera hvaið sem væri fyrir hann.
Sharon Tate, leibkonan fræga,
var 26 ára gömul og gift kvik-
myndaleiikstjóranum Roman Pol-
ansiki. Húm var komin átta mánuði
á leið, þegar hún var myrt með
hnífsstungu í bakið. Síðan var
nælonsokkur bundinn um háis
liksins og brugðið yfir bita í
stofuloftinu, en í hinn enda sokks-
ins var svo hengt lík fyrrverandi
unnusta hennar, Jay Sebring, hár-
greiðslumeistara í Hollywood, en
hann var náinn vinur fjölskyldunn-
ar. Auk þeirra voru fjórar aðrar
manneskjur myrtar á heimili Pol-
anskis í þetta sama sinn.
Lögreglan í Los Angeies upp-
lýsti, a@ ein stúlknanna, sem hand-
tekin hefur verið hafi gefið ná-
kvæma lýsingu á morðunum, m.a.
sagði hún, að Sharon Tata hafði
grátbeðið morðingjana um að fá
að fæða bam sitt.
LEITA AÐ
KOPAR í
BÁTUM Á
HAFI (JTI
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Varðskip elti uppi vélbátinn
Stíganda frá Ólafsfirði s. I. laug-
ardag og var gerð leit um borð í
bátnum að koparskrúfum og fleiri
munum úr kopar, sem saknað er
frá Ólafsfirði. Var Stígandi á
leið til útlanda með fiskfarm.
Skrúfurnar fundust ekki um borð
í bátnum, en hins vegar gerðu
varðskipsmenn upptæk nokkra
koparhluti, sem fundust. Er varð-
skipið ekki enn komið til Ólafs-
fjarðar með koparinn og er að svo
stöddu ekki vitað með hvaða hætti
skipverjar komust yfir þessa hluti.
En bannað er að flytja kopar úr
landi.
Stígandi hélt áfram siglingunni
þegar er búið var að leita í bátn-
um. Þegar tilteknir koparmunir
koma til Ólafsfjarðar verður at-
hugað nánar hvernig þeir voru
fengnir. Á Ólafsfirði er saknað
þriggja bátaskrúfa, og eru þær
verðmætar, en eins og fyrr er
sagt fumdust þær ekki um borð í
Stíganda, en nokbrir smáhlutir
voru teknir.,
Kopar er í háu verði erlendis
og auðseldur. Leikur grunur á að
það sé nobkuð algengt að um borð
í bátum sem sigla með afla til út-
landa sé meira og minna af bopar-
varningi og drýgja menn gjald-
eyristekjur sínar oft með þessu
móti. Er ekki þar með sagt að
þessi varningur sé ávallt illa feng-
inn þótt einnig séu brögð að því.
Það er langt frá að meira sé
um koparþjófnaði í útgerðarstöð-
um en annars staðar, og er
skemmst að minnast stórfelldra
koparþjófnaða í Straumsvík, ofan
við Geitháls í Borgarfirði og víðar
og víðar.
Sharon Tate, mánuði áður en hún
var myrt
Fyrst um sinn eru hippin að-
eins ákærð fyrir morðin á heim-
ili Polanskis, en búizt er við, að
þau verði einnig ákærð fyrir
morðin á miljónamæringnum
Labianca og konu hans, sem bjuggu
um 19 km. frá húsi Polanskis og
voru myrt sömu nóttina.
Hippin þekktu ekki Sharon Tate
áður, en lögreglam telur að þau
hafi lesið um hana í biöðum og
ákveðið að „frelsa“ hana frá þessu
lúxusMfi, sem hún lifði. Þá hefur
lögreglan upplýst, að orðið „svín“
skrifað með blóði fórnarlambanna
á morðsta'ðnum, sem hafi einnig
fundizt á heimili Labianca, en
þar stóð á kæliskápshurðinni
„drepum svínin“, hafi þar að auki
verið málað með blóði á stofu-
vegg hljómlistarmanns nokkurs,
sem var misþyrmt til dauða, hálf-
um mánu@i áður, en Polanski-morð
in áttu sér stað. Eitt hippið úr
„Þrælnm Satans" var handtekið
vegna þess morðs.
-,.r\
J __<§> ©> 7
§MJO|L
‘6:
| Q
; s
15
SPESÍUR
250 g smjör
300 g hveltl
125 g flórsykur
1 egg
sykur.
Hafið allt kalt, sem fer f deigið.
Myljlð ám.örið saman við hvúitið,
blandið flórsykrf og eggi saman við
og hnoðið delgið varlega. Búið til
úr þvf sfvalninga, uni það bil 3 cm
f þvermól, /eltið þeim upp úr sykri
og látið blða á köldum stað til
næsta dags.
Skerið deigið f þunnar sneiðar og
bakið Ijósgular, efst f ofni við 200“
C f 6—8 mfnútur.
SMJÖRIÐ
GERIR
GÆÐAMUNINN
CSlctr-ct/ á/n/clSala/i /