Tíminn - 03.12.1969, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 3. desember 19«9.
TÍMINN
8
íarseöil til Nome. Fallega gert a£
þeim, finnst þér það ekki, sagði
Stampade gamli og nuddaði
ánægjulega saman höndunum. —
Þetta fór allt virðulega fram. Ég\
vissi, að Koph félagi minn var
heiðvirður maður, og þess vegna
tiníði ég honum fyrir páningum
mínum. Það var ekki hans sök,
að þeir glötuðust.
— Auðvitað ekki, svaraði Alan.
— Mér fellur það dálítið illa,
að ég skildi leika hann svo grátt
vegna þess. Já, mér fellur það
sannarlega illa.
— Þú drapst hann?
— Nei, ekki alveg. En ég skar
af honurn eyrað til minningar um
þetta. Það var í Ohink Holleran.
Það var fantaskapur. Ég hugsaði
ekki út í það þá, hvað það var
hugulsamt .af honum að láta mig
hafa farseðil til Nome. Ég sval-
aði mér aðeins í augnabliks
bræði. Ég skildi ekki þá, Alan,
hvað hann gerði mér mikinn
greiða mcð því að losa mig við
alla peningana. Það var mér mik-
ið lán, það veit sá, sem allt veit.
Ini skitur ekki, hvað allt í heim-
inum er frjálst, fagurt og auð-
velt, fyrr en þú ert búinn að tapa
öllum þínum peningum.
Ljiifmannleg't og drengilegt bros
lék um varir hans milli úfinna
skeggbartanna. En augu Aláns voru
hvoss og hörð, og hann tók þétt
í handlegg «amla mannsins.
— Jú, mér er þetta fullkomin
alvara. Alac, sagði gamli maður-
inn. — Og það er þess vegna,
sem ég álít að peningar séu skað-
ræðisgripir. Að eiga peninga og
eyða þeim færði mér aldrei neina
hamingju. Það er að finna gullið
og grafa eftir því 1 fjöllun-
um, sem gefur mér gleði
og fær blóðið til að renna örar
í æðum mínum. Þegar ég er bú-
inn að fá peningana í hendur,
veit ég aldrei. hvað ég á að gera
með þá. Þá er mér rauðsynlegt
að tapa þeim. Annars mundi ég
verða latur og feitur og fá alls
konar sjúkdóma, og svo mundi
einhver vitlaus og klaufskur lækn
ir skera mig upp. og ég mundi
deyja. Það kernnr ekki svo sjald-
an fyrir : Friskó, Alan. Einu sinni
fékk ég einhverja innanskömm,
og þeir sögði.. að það þyrfti að
skera eitthvað innan úr mér, en
ég þakkaði nú fyrir gott boð. Al-
an, það er svo margt illt, sem get-
ur komið fyrir mann, sem á mikla
peninga.
— Er þér alvara með þetta allt,
Stampade?
— Já, mér er bláköld alvara.
Ég vil aðeins lifa frjálsu og ó-
háðu lífi undir skýjum himinsins,
Alan. Ég vil dvelja í fjöllumim,
og gula duftið mun verða eins
konar leikfélagi minn, unz ég
dey, og þá mun einhver husla
mig í Nome.
— Nei, það verður ekki gert,
sagði Alan. — Ekki, ef ég ræð
nokkru þar um. Stampade, ég þarf
einmitt á þér að halda. Þú verð-
ur að koma með mér upp í Endi-
cott-fjöllin. Þar á ég tíu þúsund
hreindýr. Það er allt ónumið land,
og við getum gert þar alilt, sem
sem okkur þóknast. Ég er ekki
að leita effir gulli. Ég hef meiri
áhuga á öðru. En samt getur vel
verið, að Endieott-fjöllin sóu full
af þessu gula dufti þínu. Þetta er
alveg ókannað land. Þú hefur
aldrei komið þangað. Viltu koma
með mér?
Glettnin var horfin úr augum
Stainpade. Ilann starði á Alan.
— Hvort ég vii koma? Alan,
þarftu að spyrja að því? Spurðu
mig aftur. Segðu þetta allt sam-
an aftur.
Þeir tókust þótt í hendur og
kinkuðu kolli brosandi í austur-
átt. Síðustu trefjar þokunnar voru
að eyðast. Ilvassar og tindóttar
brúnir Alaskafjallanna risu mót
bláum og heiðskírum himni, og
morgunsólin gyllti snævi þakta
fjallatoppanna. Öll orð voru þarf-
laus og ónauðsynleg. Þeir skildu
hvor annan til fulls og handtak-
ið var sáttmáli þ':rra.
V. kafli.
Alan kom seint til morgunverð-
ar þennan dag, og það voru að-
eins tveir stólar auðir við borðið.
Annar þeirra var hans stóll, en
hinn stóli Mary Standish. Honum
fannst snöggvast eitthvað ögr-
andi við þennan auða stól. Hann
kinkaði kolli til þeirra, sem næst-
ir sátu, um leið og hann settist,
og það kom ofuriítill glampi í
augu hans um leið og hann mætti
tiiliti unga verkfræðingsins. Hann
rifjaði uþp í huga sínum, hvað
þessi ungi maður hét. Hann hét
Tueker. Hann var snotur í and-
liti og hraustlegur útlits. Hver aul
inn gat séð, að hann var meira
en lítið hrifinn af Mary Standish.
Og Alan ákvað með sjálfum sér
að bæta eins fljótt og hann gæti
fyrir vanrækslu sína og gera þau
kunnug hvort öðru. Það mundi
losa hann við óþægindi og ábyrgð,
sem farin var að leggjast með
nokkrum þunga á hann.
Hann reyndi að leiða hugann
að einkamálum sínum, en auði
stóllinn andspænis honum rugl-
aði hann stöðugt í ríininu. Fram
að þessum -norgni hafði þessi stóll
verið alveg eins og aðrir auðir
stólar, en nú var eitthvað sérstakt
við hann. Hann angraði hann í
sífellu og minnti hann á atburði
næturinnar.
Ilann var að lokum einn við
borðið. Tucker beið þó, unz hann
hafði misst alla von um að sjá
Mary Standish við borðið. Iíann
reis á fætur og gekk fram að dyr-
unum, en þar stanzaði hann. og
Alan sá, að svipur hans breyttist
snöggiega. Skýringarinnar var
ekki langt að bíða. Mary Standish
gekk í sama bili inn i salinn.
Hún gekk fram hjá Tucker án
þess að líta á hann og kinkaði
kuldaiega kolli til Aians um leið
og hún settist í sæti sitt. Hún
var mjög föl. Roðinn, sem bloss-
að hafði í kinnum hennar í gær-
kvöldi, var með öllu horfinn. Lít-
ili sólargeisli dansaði um hár
hennar um leið og hún beygði
höfuð sitt yfir diskinn, og Alan
horfði á hann, og í sama bili ieit
hún upp og augu þeirra mættust.
Augu hennar voru skær og hvöss
og laus við feimni. Það virtist ó-
hugsandi, að slík augu byggju yf-
ir blekkingum og undirferli. Ef
þau hefðu dregizt saman andar-
tak, eða brugðið fyrir í þeim
skugga, mundi hann hafa tekið
það sem sektarmerki. En hún
horfði biátt áfram á hann. Hann
kreisti iitla vasaklútinn í vasa sín-
uim.
— Sváfuö þér vei, ungfrú Stand
ish? spurði hann rólega.
— Nei, ekki rétt vel, svaraði
hún svo hreinskilnislega, að hon-
um hálfhnykkti við. — Ég reyndi
að púðra yfir dökku baugana und-
ir augunum, en mér vefur víst
ekki tekizt það nógu vel. Er það
þess vegna, sem þér spyrjið?
Hann hélt nú á vasaklútnum í
hendinni. — Þetta er fyrsti morg-
uninn, sem ég sé yður við morg-
unverðarborðið. Þess vegna bjóst
ég við, að þér hefðuð sofið vel
í nótt. Eigið þér þetta. ungfrú
Standish?
Hann horfði fast framan í hana
um leið og hann rétti að henni
litla vasaklútinn. Húr- brosti
snöggt, en það var engin giedi
í brosinu. Það var aðeins 'venju-
legt þakkarbros frá konu, og
hann varð fyrir ofurlitium von-
brigðum að finna ekki í því nokk-
urn snefila f undirferli eða biyg'ð-
un.
— Já, þetta er vasaklúturinn
minn. Hvar funduð j>ér hann?
— Framan við dyrnar hjá mér
stuttu eftir miðnætti.
Hann var dálítið önugur í ináli.
Hann hafði búizt við að komast
að einhverri niðurstöðu um Mary
Standish, en hún var hortum enn
þá sama gátan. Þó var eins og
brosið væri ekki með öllu dautt.
á vörum hennar, og það var eins
og blikaði á eitfchvað dúipt í aug-
um hennar. O bes.i bjarmi í aug-
unura var eins og hjá sakiausu
barni. og þegar h ann horfði á
hana, minnti hún hann á barn —
ákaflega fallegt barn. Hann fann
að hann hafði beðið fullkominn ó-
sigur í þessari sálkönnun sinni.
Ég þakka yður u rlega fyrir,
herra Holt, sagði hún. — Þér get-
ið ímyndað yður þakklieti mitt,
þegar ég segi vður, að ég lief
aðeins fjóra vasak'lúta með fnér
hérna, og þetta er sá bezti.
Hún fór að afchuga matseðilinn,
og um leið og Alan gekk út úr
salnum, heyrði hann, að hún bað
þjóninn um ávexti og grænmeti.
Blóðið sauð í æðum hans, en eng-
in merki þess sáust í andliti hans.
Hann fann, að hún fylgdi honum
með augunum, og það olli hon-
um óþæginda. En hann leit samt
ekki við. Það var eitthvað bogið
við hann, og hann fann það. Hann
var heimskingi. Hann kveikti sér
í vindli og bölvaði heimsku sinni
í hljóði.
Eitthvað sti'aukst við handlegg
hans og hristi hönd hans, sem
er miðvikudagur 3. desember
— Sveinn
Tungl í hásu'ðri kl. 8.18
Árdegisháflæði í Rvík kl. 1.02
IIEIL:SUGÆZlA
HITAVEITUBILANIR Hlkynntet
slma 15359
BILANASlMI Ratmagnsveito Reyk|a
vlkur S skrifstofutima er 18222
Nœtur og helgidagavanla 18230.
Skolphrelnsun allan sóljirhrlnglnn
Svara® i slma 81617 og 33744
SLÖKKVILIÐIÐ og siúkrabifrelSlr -
Slml 11100
SJÚKRABIFRE1Ð • HafnarflrBI
slma 51336
SLVSAVARÐSTOFAN i Borgarspltai
anuiri er opin allan sólarhrlnglnn
ASelns múttaka slasaðra Slmi
81212
NÆTURVARZLAN i Storholtl er ot>
In frð ménudegi tll fðstudags
kl 21 S kvólöln fli kl 9 S morgn
ana. Laugardaga og helgldaga tr»
kl 16 a daglnn tH kl 10 » morgn
ana
KVÖLD og nelgldagavarzla iskna
hetsl hvem vlrkan dag kl 17 og
stendur tll kt 8 að morgni um
heigar tré ki. 13 é laugardögum.
I neyðartlfellum (ef ekkl nsst til
heimiltslsknis) er tektð é mðtl
vitjanabetSnvm i skrifstofu Iskna
félaganna I sfma 11510 fri kl.
8—17 alla virka daga, nema laug
ardaga.
LÆKNAVAKT I HAFNARFIRÐI og
GarSahreppl. Upplýslnger I lög-
regluvarðsfofunnl, sfml 50131 og
sfökkvlstöðinnl, sfml 51100,
KÓPAVOGSAPÓTEK opiB virka daga
frá kl. 9—19, laugard. frá kl. 9—14
helga daga frá kl. 13—15.
BLÓÐBANKINN tekur á mótl bfóS
gjöfitm daglega kt. 2—4.
Næfcur- og helgidagavörzlu apó-
teka vikuna 29.11. — 5. 12 1969,
Borgar-Apótek og Rcyk.iavíkur-
Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 3. des.
annast Guðjón Klemensson.
FÉLAGSLÍP
Sáiarrannsóknarfélagið í Hafnarf.
heldur fund i kvöld kl. 8,30 í Al-
þýðuhúsinu. Guðmundur Gíslason
Hagalín rithöfundur og Hafsteinn
Björnsson rithöfuivdur annast
fundarstjórn.
/
Jólafundur kveimadeildar slysa-
varnafélagsins í Rcykjavík
verður 4. des. kl. 8,30. Til skeniml-
unar: Sýnikennsla á jólamat, upp-
lestur Birgir Kjartansson alþm.
Ýmislegt fleira.
Austfi rðingafélagið í Reykjavík
heldur spila og skemmtikvöld í
Miðbæ við I-Iáaleitisbraut föstu-
daginn 5. des. kl. 8,30. Stjórnin.
Kvenfélag Áspreslakalls.
Jólafundurinn verður n. k. fimmtu-
dag kl. 8 e. h. í Asheimilinu Hóls-
vegi 17. Dregiö verður i happ-
drætlinu og sýndar litmyndir írá
Aðalvík. Kafíidrykkja.
Borgfirðingafélagi'ö
mynnir á spilakvöld 6. des. að
Skipholti 70, kl. 8,30. Takið með
ykkur gesti.
Kvenfélagið Ðylgjan.
Munið fundinn fimmtudagínn 4.
des. kl. 8,30 að Bárugötu 11. Spil-
að bingo.
Innanlaiidsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir) til Vestmanna-
eyja, Isafjarðar, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar og Egilsstaöa.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir) til Vest-
mannaeyja, Patreksfjarðar, ísa-
fjarðar, Egilsstaða og Sauðár-
króks.
Sólheimum 27. Mánud. — Föstud.
kl. 14.00 — 21.00.
Bókabíll.
Mánudagar
Arbæjarkjör, Arbæjarhverfi kl.
L30 — 2,30 (Börn) Austurver,
Háaleitisbraut 68 kl. 3.00 — 4,00.
Miðbær, Háaleitisbr. kl. 4,45 —
6,15. BireiSholtskjör. Breiðliolts-
hverfi kl. 7,15 — 9,00.
GENGISSKRÁNING
Nr. 161 — 1. desember 1969
1 Bandar. dollar 87,90 88,10
1 Sterlingspund 210,60 211,10
1 Kanadadollar 81,70 81,90
100 Danskar kr. 1.172,64 1.175,30
100 Norskar kr. 1.229.80 1.232,60
100 Sænskar kr. 1.700,14 1.704,00
100 Finnsk mörk 2.092,87 2.097,65
100 Franskir fr. 1.576,70 1.580,30
100 Belg. fr. 176,90 177,30
100 Svissn fr. 2.034,14 2.038,80
100 Gyllini 2.436,20 2.441,70
100 Tékkn.kr. 1.220,70 1.223,70
100 V.-Þýzk in. 2.382,60 2.388,02
100 Lírur 14,03 14,07
100 Austurr.sch. 339,42 340,20
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikningskrónur- ,
Vöruskiptal. 99.86 100,14
1 Reikningsdollar-
Vöruskiptal. 87,90 88,10
1 Reikningspund-
Vöruskiptal. 210,95 211,45
ELUGÁÆTLANIR
Flugfélag íslands h.f,; Milli-
landaflug: Gullfaxi fór til Glasgow
og Kaupmannahafnar kl. 09:00 í
morgun. Vélin er væntanleg aftur
til Keflavíkur kl. 18:40 í kvöld.
Fokker friendship flugvél félags-
ins fer til Kaupmannahafnar um
Vaga og Bergen kl. 12:00 í dag.
Gullfaxi fer tii Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 09:00 á föstudag.
SÖFN OG SYNINGAR
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍKUR
Aðalsafn, Þin.ghollsstræti 29 A.
MánU'd. — Föstud. kl. 9.00 — 22.00
Laugard. kl. 9,00 — 19,00. Sunnud.
kl. 14,00 — 19,00.
Hólmgarði 34. Mánud. kl. 16,00 —
21,00. Þriðjud. — Föstud. kl. 16,00
— 19,00.
HofsvaUagötu 16. Mánud. —
Föstud. kl. 16.00 — 19,00.
Miðvikudagar
Álftamýrarskóli kl. 13,30 — 15,30.
Verzlunin Herjólfur kl. 16,15 —
17,45. Kron við Stakkahlíð kl.
18.30 — 20,30.
Fimmtudagar
Laugalækur/Hrísateigur kl. 13,30
— 15.00. Laugarás kl. 16,30 —
18,00. Dalbraut/KIeppsvegur W.
19,00 — 21,00.
Föstudagar
Breiðholtskjör, BreiÖholtshv. kl.
13.30 — 15,30. Skildinganesbúðin,
Skerjaf. kl. 16,30 — 17,15. Hjarð-
arhagi 47 kl. 17,30 — 19,00.
Lárétt: 1 Loka 5 ílát 7 Þegar 9
Lokka 11 Vond 13 Þak 14 Tæp
16 Tveir eins 17 Aldraða 19 DýT.
Krossgáta
Nr. 441
Lóðrétt: 1 Samkoma 2 Tónn
3 í uppnámi 4 Bjartur 6
Skrár 8 Fiska 10 Smáu 12
Skrökvuðu 15 Ambátt 18
1500.
Ráðning á gátu nr. 440.
Lárétt: 1 Úthafi 5 Agn 7
Vá 9 Nasl 11 Eta 13 Sto 14
Gufu 16 Ös 17 Alins 19
Ærlega.
Lóðrétt: 1 Útvcga 2 Ha 3
Agn 4 Fnas 6 Klossa 8 Atn
10 Stöng 12 Afar 15 UU 18
IE.