Tíminn - 03.12.1969, Síða 13
MroVIKUDAGUR 3. desember 1969.
íVr(S IHIRy
TÍMINN
13
HM-söfnun hafin
Starfsmenn Egils Vilhjálmssonar h.f. ríða á vaðið
ATf-Reykjavík, þribjudag.
„Vegna hins mikla kostn-
aðar leikmanna Handknatt-
leikssambands íslands vegna
þátttöku þeirra í HM í Frakk-
landi, viljum við undirritaðir
sýna hug okkár til leikmanna
landsliðsins með þessari fjár-
upphæð, 2.100,00 kr. og von-
um, að fleiri fylgi á eftir.
Starfsmenn hjá Agli
Vilhjálmssyni h.f."
Þeitta stutta og laggóða bréf
barst fþróttasíðunni í gær ásaimt
ofangreindri fj áruppihæð. Og
þetta verður upphafið að HM-
söfnun, sem íþróttasíða TÍMANS
gengst fyrir, til styrktar landsliðs
mönnum okikar. Á það hetfur ver-
ið bent, hve gífurlega kostnaðar-
samt það er fyrir íslenziku lands-
liðstnenninia að taka þátt í lands-
ieikjaferðum í HM, en sá kostn-
aður er uim 20—30 þúsund krón-
ur fyrir hvern liðstnann, og siík
upphæð er ekki gripin upp af göt-
unni. Hér er upplagt taekifæri fyr
ir hina mörgu handknattleiksunn-
endur að sýna huig sinn til leik-
manna landsiiðsins í verki, eins
og starfsmenn Bgils Vilhjálms-
sonar h.f. orðuðu það, og taka
þátt í fjársöfnun landsliðsmönn-
um til handa. Mangt smátt gerir
eitt stórt, 25 krónur, 50 krónur
eða 100 krónur. Okkur munar lít-
ið um það, en landsliðsmennina
mi'kið. Mun Timinn taka á móti
fram'lögum næstu vifcumar. Er
bæði hægt að snúa sér tii af-
greiðs'lu biaðsins í Bankastræti o<g
ÁGÚST VALINN
í LANDSLIÐIÐ
Ágúst Ögmundsson
ímyndaður
hefndarhugur
Birgir Lúðvíksson, fyrrv.
form. Handknattleiksdeildar
Fram, hefur beðið íþróttasíð-
una að birta eftirfarandi:
„Ég legg það ekki í vana
minn að svara blaðaskrifum,
en vegna þess, hve frjálslega
blaðamaður Þjóðviljans fer
með sannleikann í skrifum sín
um um keppnisför Fram til
Norðurlands, sé ég mig tilneydd
an að svara honum nokkrum
orðum.
Það var ekki vegna neins
hefndarhugs til Vals, að Fram
tilkynnti landsliðsnefnd, að
leikmenn félagsins gætu ekki
tekið þátt í umræddum æfinga
leik landsliðsins. Sannleikurinn
er sá, að þá hafði umrædd
keppnisför verið ákveðin viku
áður og m. a. óúið áð kaupa far
miða. Átti Fram afar erfitt
með að breyta áætlun sinni,
því að landsliðsnefnd talaði
fyrst um þennan leik við okkur
aðeins þremur dögum áður en
hann átti að fara fram. Hefði
Fram breytt áætlun sinni á
síðustu stundu, hefði félagið
brugðizt norðanmönnum, sem
voru búnir að skipuleggja
leiki og mót — með þátttöku
Fram — með löngum fyrirvara.
Stjórn Handknattleiksdeild-
ar Vals leitaði ekki til Fram
út af þessu máli, enda var
það í verkahring landsliðs-
nefndar, en það skal upplýst
hér, að hvorki fyrr né síðar
hefur Fram neitað að verða
við beiðni Vals um að leika,
enda hefur ávallt verið gott
samstarf á milli þessara félaga.
Ekki veit undirritaður hvað
an blaðamaður Þjóðviljans fékk
upplýsingar sínar, en honum
láðist algerlega að snúa sér til
þess aðila, sem hefði getað veitt
honum allar upplýsingar um
þetta, Handknattleiksdeildar
Fram, og verður að átelja slík
vinnubrögð harðlega-
Virðingarfyllst,
Birgir Lúðvíksson.
ritstjórnarinnar á Lindagötiu 9a.
íslenzkir handknattleiksmenn
hafa á undanförnum ánutn unnið
möng góð afrek og teljiast í dag
á meðal 16 beztu handknaittterks-
þjóða heims. Allar aðrar þjóðir
verðlauna slíka afreksmenn. Einu
verðlaunin, sem við getum veitt
þeiim, eru þau, að þeir beri ekki
fj'árhagslegan skaða af þátttöku
sinni í keppni beztu handknatt-
leiksþjóða heims.
Klp-Reykjavík.
Ein breyting verður á íslenzka
landsliðinu í handknattleik, sem
leikur við Noreg í Osló á morgun
Og við Austurríki á sunnudag og
nxánudag.
Ágúst ÖgmundssoK Val. var
valinn í stað Björgvins Björgvins
sonar, Fram, sem gat ekki farið
með liðinu vegna prófs, sem hann
á að taka í Lögregluskólanum, og
Auðun Óskarsson, FH, gaf ekki
kost á sér í þessa ferð af fjár
hagsástæðum og var því Ágúst,
valinn, en Ágúst var fast-
ur maður í landsliðinu þar til á
síðasta ári er hann fótbrotnaði í
Ieik við HG.
ÍBK sigraði
— Myndin er af íslandsmeist
urum ÍBK í knattspyrnu, sem
á mánudag sigruðu í innanhúss
knattspyxnumóti Þróttar.
í mótinu tóku þátt 6 lið, en
íslamdsmeistararnir í innan-
húss knattspyrnu, Akranes,
voru ekki meðcl þeirra. Úrslit
leikjanna uxðu þessi. Valur-
Þróttur 5:3, Fram—Áxmann 3:0
KR-Víkingur 3:2, ÍBK —
Breiðablik 3:0. í undanúrslit-
um léku fyrst Valur og Fram
og sigraði Valur eftir fram-
lengdan leik 4:2, ÍBK sigraði
KR 4:0. í keppninni um 3ja
sætið léku KR og Fram, og
sigraði KR 4:2.
Framhald á bls. 14.
rrcuit
til
orust
BÓKAÚTGÁFAN
ÖRN OG ÖRLYGUR
H.F.
BORGARTÚNI 21, SlMI 18660.
EFTIR FRfMANN HELGASON,
(ÞRÓTTAFRÉTTARITARA
Spennandi bók um mikil átök, mlkla sigra
og harða þjálfun. Þetta er bók um fjóra
bardagaglaða menn, skráð af manni, sem
öllum öðrum fremur skilur íþróttamenn,
vonir þeirra, veikleika og styrk og þrot-
lausa baráttu að settu marki.
Þetta er bók sem yljar öllum um hjarta-
ræturnar, strákum og stelpum, jafnt átta
ára sem áttræðum.
SPENNANDI BÓK UM SPENNANDI
AUGNABLIK