Vísir - 16.09.1981, Blaðsíða 28
Miðvikudagur 16. september 1981
síminn eröóóll
veöurspá
Skammt ilti af Reykjanesi
er nærri kyrrstæð 1000 mb
lægð sem grynnist, en vaxandi
983 mb lægð 900 km suðvestur i
hafi, þokast norðaustur. Hlýtt
verður áfram.
Suðurland:
Austan gola, skýjað og sums
staðar þokuloft á miðum i
fyrstu, en vaxandi austanátt
siðdegis. Allhvass og sums
staðar hvass austan og rign-
ing i kvöld og nótt.
Faxaflói og Breiðafjörður:
Austan gola eða hægviðri,
skýjað með köflum, en þykkn-
ar upp með vaxandi austanátt
siðdegis. Viða stinningskaldi
og fer að rigna i kvöld.
Vestfiröir:
Austan gola eða kaldi og (
skýjað i dag, en sums staðar
stinningskaldi og dálitil rign-
ing i nótt.
Strandir og Noröurland vestr-
a:
Austan kaldi á miöum, en
hægari til landsins. Þokuloft
við sjóinn, bjart með köflum i
innsveitum i dag, en dálitil
rigning I nótt.
Noröurland eystra og Austur-
land að Glettingi:
Austan og suðaustan gola,
þokuloft á miðum og við
ströndina, enskýjað með köfl-
um til landsins. Heldur vax-
andi suöaustanátt i kvöld
Austfiröir:
Hægviöri og þokuloft eða
súld, en suöaustan kaldi með
kvöldinu. Rigning i nótt.
Suö-Austurland:
Sunnan gola eða breytileg
átt og þokuloft eða súld með
vaxandi suðaustan og austan-
átt siðdegis. Allhvass austan
og rigning i kvöld og nótt.
Veðrið hér
09 bar
Kl. 6 i morgun:
Akureyri skýjað 9, Bergen
skýjað 10, Helsinki skýjað 7,
Kaupmannahöfn alskýjað 12,
Oslórigningog súld 7, Reykja-
viksúld 10, Stokkhólmurskýj-
aö 5, Þórshöfn alskýjað 10.
Kl. 18 I gær:
Berlinléttskýjað 14, Feneyjar
léttskyjaö 19, Frankfurt súld
14, Nuukléttskýjað 9, Luxem-
burg þoka 14 Maliorka hálf-
skýjað 15, Paris skýjað 19,
Róm heiðskirt 24, Malaga
skýjaö 24, Vln skúr 13.
Loki
segir
Forráöamenn Hótel Borgar
sjá nú fram á bjartari daga —
ef stúdentar fá heimavist viö
Lækjargötu.
Milljón í húsnæöi Borgarskipulags - áætlað 50 hús.
„Borgarstjðrn blekkt
með airðngum tðlum”
- segir Davíð Oddsson, horgarráösmaður
,,Það hefur verið tekin ákvörð-
un um að innrétta húsnæðið i
Borgartúni 1 fyrir Borgarskipu-
lagið. Það eru tvær hæðir, og siö-
ustu tölur eru ein milljón, 800 þús-
und til einnar milljónar, sagði
Kristján Benediktsson, borgar-
ráðsmaður Framsóknarflokks-
ins, I samtali við Visi. „A fjár-
hagsáætlun fyrir 1981 var gert ráð
fyrir 50þúsund króna fjárveitingu
til þessa verks og þaö var ekkert
annaö gefiö til kynna en að það
nægði”, sagði Davíð Oddsson,
borgarráðsmaður Sjálfstæðis-
flokksins, „borgarstjórn var
blekkt með alröngum tölum og
þetta er ekkert annað en hneyksli,
reginhneyksli.” .
Nú mun vera um ár siðan borg-
in tók á leigu efri hæðina i
Borgartúni 1, af Pétri Péturssyni,
stórkaupmanni, en borgin á neöri
hæðina. Ráðgert var aö Borgar-
skipulagið flyttist þangað, en
Ráðningarstofan, sem veriö hefur
á neðri hæðinni undanfarið, færð-
ist I Þverholt, I núverandi hús-
næði Borgarskipulagsins.
„Sparnaðarnefnd borgarinnar,
skoöaöi húsnæðið og taldi, að unnt
væri að nota það, eftir að þaö
hefði verið hreinsað og málað, og
samþykkt var, að tillögu hennar,
að verja 50 þúsund krónum til
verksins”, sagöi Björn Friðfinns-
son, fjármálastjóri borgarinnar.
Samkvæmt heimildum Visis,
þótti ýmsum öörum ótækt að nota
gamlar innréttingar og húsgögn
Borgarskipulagsins, þann
„sökkvandi ruslahaug”, og var
þvi gerð áætlun upp á tæpar 500
þúsund krónur um gagngera „ný-
sköpun” á aðbúð skipulagsins i
Borgartúni 1. Nú er sem sagt gert
ráð fyrir milljón eða fast að þvi,
samkvæmt upplýsingum
Kristjáns Benediktssonar. „Þetta
er spurning um standard”, sagði
einn viðmælenda VIsis um eöli
málsins. HKRB
„Hér eru lyklarnir Ragnhildur og til hamingju”, sagöi Helgi. Höröur Einarsson og Valdimar Jóhannes-
son frá VIsi fylgjast meö. Ljósm. EÞS
„Ekki hrautaiaust aö
taka viö nýjum bíl”
Vísis-Datsuninn afhentur i gær
Nú hefur Ragnhildur ólafsdótt-
ir verslunarmaöur hjá verslun-
inni Vogur I Kópavogi. í gær tók
hún við seinni vinningnum i sum-
argetraun VIsis, Datsun Cherry,
frá Helga Ingvarssyni hjá Heild-
verslun Ingvars Helgasonar, um-
boösmanns Datsun á íslandi.
Ragnhildur gaf sér tima til þess
i amstri dagsins aö snarast við
hjá Datsun-umboðinu aö taka við
gripnum. Helgi Ingvarsson af-
henti henni blóm um leið og hann
afhenti Ragnhildi lyklana aö viö-
stöddum Visismönnum og ljós-
myndara. „Það er ekki þrauta-
laust að taka við svona bil”, sagði
Ragnhildur og hló, þegar ljós-
myndarinn var ekki ánægður meö
fyrstu myndina og vildi endur-
tekningu.
Þær þrautir vilja þeir þó eflaust
leggja á sig flestir Visis-áskrif-
endurnir. Nú er spurningin hvaða
áskrifendur blaðsins þurfa að
ganga i gegnum þær raunir að
taka við nýju bilunum þremur,
sem i boði eru i nýju Visisget-
rauninni, sem er að hefjast.
Isuzu, Suzuki-jeppi og Opel Kad-
ett verða dregnir út i nevember,
febrúar og mai n.k. eins og áður
hefur verið skýrt frá. Þátttöku-
rétt i getrauninni hafa allir
áskrifendur Visis.
„Gefum
með
pessum
lánum”
„tlt frá þeirri viðmiðun að
bestu kjara vextir á dollurum séu
um 20% má þvertá móti segja, aö
viö gefum stórlega með þessum
lánsviðskiptum en þau eru doll-
aratengd með 3 eða 4% vöxtum”,
sagði Bjarni Bragi Jónsson hjá
hagdeild Seðlabankans, i samtali
viö VIsi vegna þeirrar fullyrðing-
ar Péturs Eirikssonar, forstjóra
Alafoss, um að Seðlabankinn
heföi hagnast á afuröarlánum til
ullariðnaðarins.
Bjarni Bragi benti á, að þessi
lánskjör væru ósköp svipuð og al-
mennt gerist á innlendum lána-
markaði. Það væri fyrst og
fremst kaupandinn, sem græddi á
gengisviðmiðuninni I sölunni sem
væri úr samhengi við fram-
leiðslukostnað og gengi dollars.
„Þar með er ekki sagt, aö
Seðlabankinn sé ekki tilbúinn til
að skoða með velvilja, hvað rétt-
lætanlegt sé aö gera I þessu
máli”, sagði Bjarni Bragi Jóns-
son.
—KS
Jfikull h.l.:
VIII erlent lán
Ekki er enn vitað, hvernig
vandi Jökuls h.f. á Raufarhöfn
verður leystur. Engin formleg
beiðni um lán hefur borist til
Framkvæmdastofnunar, að sögn
Sverris Hermannssonar.
Taliö er, aö fyrirtækiö sækist
eftir að fá heimild til að taka
fimm milljón króna erlent lán.
—SV
sýkurbust
®
minnaen
einkabrla
íflösku