Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LOFTLEIÐIR TIL ÍSRAEL
Loftleiðir Icelandic hefur gengið
frá nokkrum nýjum samningum
um flug á þessu ári og er velta
þeirra nærri þrír milljarðar króna.
Félagið á m.a. í viðræðum við ísr-
aelska flugfélagið Israir um leigu
á þotu til farþegaflugs milli Tel
Aviv og New York.
Árás á gæslul iðsmenn SÞ
Tveir bandarískir lögregluþjón-
ar og einn jórdanskur létu lífið í
skotbardaga í Kosovo á laugardag.
Talið var að árás Jórdanans á
bandaríska liðsmenn gæsluliðsins
hafi hrundið skotbardaganum af
stað.
Bjargað úr s jónum
Þremur sjómönnum af Snorra
Sturlusyni VE var bjargað úr
sjónum við innsiglinguna í Vest-
mannaeyjum síðdegis í gær. Höfðu
mennirnir verið í gúmmíbáti sem
hvolfdi þegar verið var að hífa
hann frá borði. Þrátt fyrir að hafa
verið um 15 mínútur í sjónum sak-
aði þá ekki alvarlega.
Spænskir kal laðir heim
Nýr forsætisráðherra Spánar,
Jose Luis Rodriguez, hefur fyr-
irskipað spænskum hermönnum í
Írak að búa sig til heimferðar eins
fljótt og auðið verður.
Eitrun af túnfiski
Staðfest hefur verið af Mat-
vælaeftirlitinu að fjórir menn sem
veiktust eftir að hafa borðað tún-
fisksamloku á veitingastað í
Reykjavík fengu svonefnda hista-
míneitrun af fiskinum. Ekki er vit-
að til þess að slík matareitrun hafi
áður komið upp hér á landi.
Hóta hefndum
Talsmenn Hamas og fleiri sam-
taka Palestínumanna hóta „eldgosi
hefnda“ gegn Ísraelsmönnum eftir
að Hamas-leiðtoginn Abdel Aziz
Rantisis lést á laugardag eftir eld-
flaugaárás frá ísraelskum herþyrl-
um.
Baldvin að koma
Fjölveiðiskip Samherja, Baldvin
Þorsteinsson EA, kemur til Ak-
ureyrar á miðnætti í kvöld eftir að
hafa verið í viðgerð í Noregi.
Rúmur mánuður er nú liðinn frá
strandi skipsins á Meðallandssandi
og giftusamlegri björgun þess.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Róm
57.855 kr.
Netver› á mann
Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur á Hótel Albani
18. nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði,
flugvallarskattar og ísl. fararstjórn.
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
Í dag
Sigmund 8 Bréf 30
Viðskipti 11 Þjónusta 31
Erlent 13 Dagbók 32/31
Listir 16/17 Leikhús 34
Umræðan 18/19 Fólk 34/37
Forystugrein 20 Bíó 35/37
Minningar 22/27 Ljósvakar 38
Hestar 28 Veður 39
* * *
JÓN Garðar Ögmundsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Pizza Hut
og Hard Rock Café, hefur gert kaup-
tilboð í Lyst ehf. sem rekur McDon-
alds á Íslandi. Jón Garðar kveðst
vilja kaupa öll hlutabréfin í Lyst ehf.
og er tilboð hans háð samþykki
McDonalds í Bandaríkjunum.
Tilboðið var gert fyrir fáeinum
vikum, að hans sögn, og er kaupverð-
ið ekki gefið upp. McDonalds hyggur
á herferð gegn offitu, sívaxandi
vandamáli í hinum vestræna heimi
sem kunnugt er, og segir Jón Garðar
að nýr matseðill verði kynntur hjá
McDonalds á Íslandi eftir mánuð.
„Á nýja matseðlinum verður með-
al annars meira úrval af salötum og
ný lína fyrir börn,“ segir hann.
Hefur verið unnið að því að búa til
nýjan valkost við djúpsteiktu
frönsku kartöflurnar, sem fylgja
máltíðum fyrirtækisins, í því augna-
miði. Jón Garðar er staddur í Banda-
ríkjunum til að kynna sér breyting-
arnar og nefnir að hægt verði að fá
gulrætur og ávexti í poka fyrir smá-
fólkið, til að mynda.
Velta McDonalds dróst saman á
heimsvísu á tímabili og segir Jón
Garðar, er hann er spurður hvers
vegna honum þyki fjárfestingin góð-
ur kostur, að „orðið hafi viðsnúning-
ur“ í rekstri fyrirtækisins í fyrra
þegar heilsusamlegri valkostir voru
settir á matseðilinn.
„Gengi fyrirtækisins er nú mjög
gott og í næsta mánuði munum við
kynna nýjan heilsusamlegan mat-
seðil hér á landi,“ segir Jón Garðar
Ögmundsson, væntanlegur eigandi
Lystar ehf., að síðustu.
Nýir eigendur taka væntanlega brátt við Lyst ehf.
Kynna heilsumatseðil hjá
McDonalds innan tíðar
LEIÐNI í ánni Múlakvísl, sem renn-
ur úr Mýrdalsjökli vestast á Mýr-
dalssandi, mældist mest 365 míkró-
símens á metra við mælingar í gær.
Leiðnin sýnir hve vel vatnið ber raf-
straum og er þetta hæsta mæling í
ánni frá upphafi þar árið 1999 á veg-
um Orkustofnunar. Vatnsmagnið
var einnig töluvert í gær og megn
brennisteinsfýla.
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir að frá miðju ári
2001 hafi jarðhiti verið að aukast í
Mýrdalsjökli. Aukningin sé samfara
stöðugu landrisi og aukinni skjálfta-
virkni. Kvika sé að safnast fyrir und-
ir jöklinum og jarðhitavatn að losna í
meira mæli. Magnús Tumi segir að
atburðirnir í gær séu afleiðing auk-
ins jarðhita og því lengur sem sú
þróun haldi áfram sé líklegra að það
styttist í Kötlugos.
Sverrir Elefsen vatnamæl-
ingamaður telur að vatn sem hafi
safnast fyrir undir Mýrdalsjökli eða
í jaðri hans sé að tæmast úr ein-
hverjum sigkötlum. Skjálftavirkni
var lítil sem engin á svæðinu um
helgina en almannavarnanefndin í
Vík í Mýrdal var upplýst um stöðu
mála. Ekki var talin ástæða til að
kalla nefndina saman.
Algengt er að leiðnin í Múlakvísl
mælist í kringum 200 míkrósímens
og að sögn Sverris hefur almennt
verið talið að allar mælingar yfir 250
míkrósímens séu staðfesting um
leka á jarðhitavatni frá jöklinum.
Sverrir telur aukinni leiðni og
vatnsmagni svipa til hlaupsins í Jök-
ulsá á Sólheimasandi síðsumars
1999. Sjálfvirk mæling sýndi jafna
hækkun á leiðninni í Múlakvísl í gær
og sömuleiðis handvirkar mælingar
Reynis Ragnarssonar, vaktmanns í
Vík, sem hann framkvæmdi þrisvar
sinnum í gær við ána. Síðast í gær-
kvöldi mældist leiðnin 365 míkrósím-
ens hjá Reyni en sjálfvirkar mæl-
ingar sýndu mest 346 ms/m.
Hæsta leiðni í Múlakvísl frá upphafi mældist í gær
Kvika að safnast fyrir
undir Mýrdalsjökli
Reynir Ragnarsson spýtir
jökulvatninu út úr sér.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Leiðnin í Múlakvísl var mæld þrisvar í gær, auk sjálfvirkra mælinga.
ÞINGVALLANEFND kom saman
til fundar á laugardag til að ræða
stefnumótun til næstu 20 ára fyrir
þjóðgarðinn. Nefndin ræddi einnig
um legu nýs Gjábakkavegar milli
Laugarvatns og Þingvalla. Það var
samhljóða niðurstaða nefndarinnar
að vegurinn skyldi vera utan þjóð-
garðsins.
Sveitarfélögin Bláskógabyggð og
Grímsnes- og Grafningshreppur
hafa viljað fara svonefnda leið 12 í
matsáætlun Vegagerðarinnar, með
tengingu við núverandi Þingvallaveg
við Gjábakka. Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra og formaður
Þingvallanefndar, segir við Morgun-
blaðið að leið 12 skeri Gjábakkaland-
ið og þar með þjóðgarðinn. Nefndin
samþykki ekki þessa leið og því sé
líklegt að farin verði leið 7 í tillögum
Vegagerðarinnar að matsáætlun. Er
hún um 2 km lengri en leið 12 og
kemur að Þingvallavegi við Miðfell.
Björn segir að Þingvallanefnd sé
einhuga í afstöðu sinni og byggist
hún á því að ekkert sé gert sem spilli
fyrir því að Þingvellir komist inn á
heimsminjaskrá. Umræður um það
mál séu á viðkvæmu stigi á vettvangi
UNESCO og hafi nefndin ráðgast
við Margréti Hallgrímsdóttur, þjóð-
minjavörð og formann þeirrar
nefndar, sem stýrir umsóknarferlinu
af Íslands hálfu, auk þess sem al-
þjóðlegir ráðgjafar hafi komið að
málinu.
Viðunandi fyrir alla aðila
Björn segir að leið 7 ætti að vera
vel viðunandi fyrir alla aðila. Raunar
megi líta á hana sem málamiðlun
miðað við þær umræður sem hafi
staðið undanfarnar vikur um málið.
„Við höfum ekki viljað stofna þess-
ari umsókn hjá UNESCO í hættu og
teljum enga ástæðu til þess fyrir tvo
kílómetra af vegi sem er greiðfærari
og fljótfærari en ef hann færi um
þjóðgarðinn,“ segir Björn en Vega-
gerðinni verður tilkynnt þessi niður-
staða nefndarinnar formlega í dag.
„Með þessari niðurstöðu teljum
við okkur hafa gengið eins langt til
móts við sjónarmið heimamanna og
við getum. Við vonum svo sannar-
lega að deilum um þetta mál sé lokið,
það er ekki síður mikið í húfi fyrir
heimamenn en aðra að þetta sé allt
gert á réttum og skynsamlegum for-
sendum,“ segir Björn ennfremur.
Að sögn Björns tók nefndin enga
afstöðu til boðs Bláskógabyggðar og
Grímsnes- og Grafningshrepps til
ríkisins um makaskipti á Skjaldbreið
og Kaldárhöfða. Það mál væri allt
annars eðlis og nefndin teldi það ekki
tengjast legu Gjábakkavegar.
Þingvalla-
nefnd með
málamiðlun
um Gjá-
bakkaveg
BRAGÐIÐ af jökulvatninu er svolít-
ið sérstakt. Eftir því sem leiðnin
hefur hækkað hef ég verið að bera
þetta saman. Þegar leiðnin er þetta
mikil finnur maður hverabragð af
vatninu. Annars er venjulega fúlt
bragð af því og jafnast ekkert á við
gott rauðvín,“ segir Reynir Ragn-
arsson, vaktmaður við Múlakvísl,
sem bragðaði á vatninu úr ánni í
gær, velti því í munni sér og spýtti
líkt og þaulvanur vínsmakkari, þótt
bindindismaður sé.
„Jafnast
ekkert á
við rauðvín“
FULLTRÚAR leitar- og björgun-
arsveitar á Norður-Englandi eru
nýkomnir heim úr kynningarferð
hingað til lands, samkvæmt frétta-
vef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Þar segir að formenn úr leitar- og
björgunarsveit sem kennd er við
Teesdale og Weardale hafi dvalið í
viku á Íslandi og kynnt sér ung-
lingadeildir björgunarsveita hér á
landi.
Leitar- og björgunarsveit Tees-
dale og Weardale er sú eina á Eng-
landi sem starfrækir sveit unglinga,
samkvæmt BBC, og fékk hún ný-
lega jafnvirði rúmlega 3,2 milljóna
króna frá hinu opinbera til þess að
renna frekari stoðum undir ung-
lingastarf.
Haft er eftir Chris Roberts, ein-
um forsvarsmanna unglingasveitar-
innar, að ferðin til Íslands hafi ver-
ið lærdómsrík.
„Formenn íslenskra leitar- og
björgunarsveita hafa lengi gert sér
grein fyrir því, að ungt fólk er lífæð
sveitanna. Ferðin til Íslands var
fyrsta skref okkar í þá átt að stofna
unglingadeild,“ segir hann á vef
BBC.
Unglingastarf að ís-
lenskri fyrirmynd