Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 6

Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ icelandair.is/vildarklubbur Tvöfaldir Vildarpunktar til 1. maí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 24 12 5 0 4/ 20 04 Til viðbótar koma veltutengdir Vildarpunktar kortsins EGILL Jónsson, tannlæknir á Ak- ureyri, boraði á laugardag í fyrsta skipti staðlaða holu í tönn á manni með nýstárlegum bor sem stýrt er utan munns sjúklingsins, og setti í hann staðlaða fyllingu. Borinn er uppfinning Egils en hann er tæki sem á að gera það jafn einfalt og fljótlegt fyrir tannlækni að nota staðlaða postulínsfyllingu eins og amalgam- (silfur) eða plastfyllingar. Fyrsti sjúklingurinn sem borað var í er Geir Guðmundsson, verk- efnisstjóri á Iðntæknistofnun, sem unnið hefur með Globodent allar götur síðan Egill kom hugmyndinni fyrst á framfæri. „Þetta er frá- brugðið venjulegri borun að því leyti að ég er með stykkið uppi í mér, en ég varð mun minna var við borunina sjálfa en venjulega; varð satt að segja ekkert var við það þeg- ar Egill boraði. Þetta var því miklu þægilegra en ég átti von á – og átti ég þó alls ekki von á því að þetta yrði slæmt,“ sagði Geir í samtali við Morgunblaðið eftir að Egill „prufu- keyrði“ borinn. Það var langþráð stund fyrir marga þegar Geir settist í stólinn hjá Agli og það var engin tilviljun að hann var fyrsta tilraunadýrið. „Það er langt síðan ég pantaði að verða sá fyrsti sem tækið yrði reynt á,“ sagði hann. Það segir ef til vill meira en margt annað, hve fagmönnum fannst stundin stór á laugardag þegar einn þeirra sagði: „Þetta er lítið skref fyrir mann, en risastórt skref fyrir mannkynið,“ og gerði að sínum orð bandaríska geimfarans Neils Armstrongs þegar hann steig fyrstur manna á tunglið. „Egill kom til okkar í Iðn- tæknistofnun haustið 1999 og ég fékk það verkefni að skoða þetta með honum. Mikið hefur breyst síð- an og margir komið að með nýjar hugmyndir enda eru engin fordæmi fyrir þessu,“ sagði Geir. Hugmyndin hefur víða verið sýnd, tannlæknar hafa margir hverjir efast um hana að sögn Geirs en þegar þeir hlusti á rökin fyrir breytingunni lítist mönnum yfirleitt vel á – en nú vilji þeir eðlilega bíða eftir „klínískum“ prófunum. „Aðferðin gengur upp. Ekki þarf að hafa fleiri orð um það. Svo er spurning hvort markaðurinn tekur við þessu,“ sagði Þorsteinn Schev- ing Thorsteinsson við Morg- unblaðið, en hann er einn þriggja tannlækna sem verið hafa í svoköll- uðum rýnihópi vegna verkefnisins og gefið hafa fagleg ráð. Allt eru það starfandi tannlæknar sem einn- ig kenna eða hafa kennt við tann- læknaháskóla, en auk Þorsteins eru það Páll Ævar Pálsson og Inga B. Árnadóttir. Þau þrjú voru viðstödd stundina sögulega á laugardag ásamt fleirum. Þar var meðal ann- ars Páll Magnússon, aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en hún er stödd erlendis. „Þetta er mjög spennandi verk- efni og það er mikill áfangi að sjá þetta í raunveruleikanum. Egill kynnti verkefnið fyrir ráðherra árið 2000 og við höfum fylgst vel með því. Það hefur í raun gengið vel og hann hefur notið stuðnings kerf- isins, nú síðast gaf Byggðastofnun hlutafjárloforð upp á 20 milljónir,“ sagði Páll við Morgunblaðið. Auk Iðntæknistofnunar, sem hef- ur bæði komið að hönnun tækisins og fyllinganna, hafa unnið að verk- efninu fyrirtæki í Danmörku, á Ítal- íu og í Bandaríkjunum. Framundan eru víðtækar próf- anir á tækinu, með tannlæknum. Notast verður við dúkkur fyrst í stað en „klínískar“ prófanir – á fólki – hefjast væntanlega næsta vetur. Samið var við danska fyrirtækið Pinol A/S um smíði á tækinu og stendur það algjörlega straum af eigin kostnaði við þátttöku í verk- efninu, þar á meðal kostnaði við smíði frumgerða tækisins. Postu- línsfyllingarnar verða hins vegar væntanlega framleiddar á Akureyri og þar verður einnig aðsetur Globo- dent; þekkingarfyrirtækis þar sem fram fari hönnun á frekari tækjum á þessu sviði. Kostnaður orðinn 150 milljónir Globodent stefnir að því að verða þekkingarfyrirtæki á sviði tann- lækninga. Fyrirtækið telur að tann- læknamarkaðurinn sé að fara í gegnum miklar tæknibreytingar og vill verða þátttakandi í þeim. Tækið og sá eiginleiki þess að geta skorið fyrirfram ákveðið form á holu í tönn sjúklings með mikilli nákvæmni er forsenda þess að nota fjölda- framleiddar tannfyllingar úr postu- líni til tannviðgerða. Tækið er lyk- ilatriði í öllum áætlunum fyrirtækisins og þar með lykilatriði í að láta þá framtíðarsýn rætast að Globodent bætist í flóru þeirra fyr- irtækja sem byggja upp öflugan heilbrigðistækniiðnað á Íslandi. Um 150 milljónir króna hafa verið settar í þróun þessarar tækni frá árinu 2000, og hafa þrjár mismun- andi frumgerðir af tæki til nákvæms tannskurðar þegar verið smíðaðar. Samhliða þróun tækisins er unnið að þróun fjöldaframleiddra tannfyll- inga. Árið 2000 og 2002 setti Globodent umsóknir vegna tækisins í svokallað PCT-ferli; þar er um að ræða ferli á vegum alþjóða hugverkarétt- indastofnunarinnar, auðveldustu leið til þess að geta sótt um einka- leyfi í mörgum löndum. Evrópska einkaleyfastofan (EPO) hefur þegar staðfest nýnæmi upp- finningarinnar í rannsóknarferli PCT-umsóknarinnar. Globodent lagði inn umsókn um einkaleyfi vegna fyllinganna í apríl 2003 og ís- lensk einkaleyfisyfirvöld hafa sam- þykkt umsóknina fyrir sitt leyti og gefið út einkaleyfi á Íslandi – einka- leyfi númer 1920 – en umsóknin hef- ur einnig verið sett í PCT-ferlið. Áfram verður unnið að þróun tækisins í samstarfi við Pinol og aðra þátttakendur í verkefninu. Stefnt er að því að hefja prófanir með aðstoð íslenskra tannlækna í haust. Gert er ráð fyrir að tækið og fyllingarnar verði hæf til markaðs- setningar á árinu 2005. Unnið er að frekari fjármögnun verkefnisins, sem ætlað er að gera fyrirtækinu kleift að ljúka allri þró- unarvinnu og að koma vörum þess á markað. Stefnt er að því að safna 130 milljónum króna í hlutafé, lánsfé og styrki og liggja þegar fyrir loforð sem nema um 50 milljónum. Borað í fyrsta skipti í tönn með tæki sem Egill Jónsson tannlæknir fann upp „Lítið skref fyrir mann …“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Egill Jónsson tannlæknir og uppfinningamaður á Akureyri borar í fyrsta skipti með nýstárlegum bor – uppfinningu sinni – í tönn á manneskju. Í stólnum er Geir Guðmundsson, verkefnisstjóri á Iðntæknistofnun. Stór stund var í sögu Globodent þegar borað var í fyrsta skipti í tönn á manni með bor sem stýrt er utan munns. Skapti Hallgrímsson fylgdist með. skapti@mbl.is „ÞAÐ var mikill léttir fyrir mig að finna hvað það var raunverulega auðvelt að bora með tækinu í mann- eskju. Það er aldrei eins að bora í gervihaus þótt reynt sé að líkja eft- ir raunverulegum kringumstæð- um,“ sagði Egill Jónsson, tann- læknir og uppfinningamaður, í samtali við Morgunblaðið. Egill sagði að stundin hefði verið stór þegar hann boraði „því ekki er vitað um svona tæki neins staðar í heiminum“. Hann sagði ákveðna fordóma hafa verið gagnvart hugmynd hans í tannlæknastétt „en nú hefur verið sannreynt að það sem ég hef verið að segja er rétt. Það er hægt að gera þetta svona“. Egill sagði, á meðan hann var að bora, að hann fyndi ekkert til í öxl- unum, og það væri einmitt eitt aðal- málið varðandi uppfinninguna. „Vinnuaðstaða tannlæknisins breytist mjög til batnaðar við þetta. Vinnuvistfræðilega verður þetta miklu þægilegra fyrir tannlækninn. Allir tannlæknar kannast við það hve auðvelt er að laga skemmdir í bitflötum jaxla og tækið breytir allri vinnu þeirra, þannig að allar viðgerðir verða eins og verið sé að gera við skemmd í bitfleti í jaxli.“ Egill segir þetta tæki aðeins fyrsta skrefið í þeirri þróun að gera umhverfi tannlæknisins tölvuvætt. Egill bendir á að þessi aðferð nýt- ist sjúklingum einnig mjög vel því þarna geti þeir fengið postulínsfyll- ingar á sama verði og greitt er fyrir venjulegar fyllingar í dag – en postulínsfyllingarnar endist lengur. Egill sagði ljóst að hugmynd hans hefði aldrei orðið að veruleika hefði hann ekki notið stuðnings og vel- vilja starfsbræðra og „meðal ann- ars hjá bæjarstjórn Akureyrar og ef ekki hefði verið fyrir framsýni fyrirtækja eins og Sjóvár-Almennra og velvildar í iðnaðarráðuneytinu.“ Fyrsta skrefið í tölvu- væðingu tannlækna Egill Jónsson tannlæknir borar í fyrsta skipti með uppfinningu sinni í tönn Geirs Guðmundssonar, verk- efnisstjóra á Iðntæknistofnun. ÚTBOÐ vegna tvöföldunar Vesturlandsvegar frá Víkur- vegi í Reykjavík að Skarhóla- braut í Mosfellsbæ verður að líkindum haldið í maí, segir Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra. Segir hann að ekki verði aftur snúið með verkefn- ið, þótt fjármagn sé ekki tryggt ennþá. Fram kom í svari við fyrir- spurn á Alþingi í síðustu viku, að ný kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdina hljóðaði upp á að minnsta kosti 900 milljónir króna. Í gildandi vegaáætlun er miðað við 520 milljóna framlag til verkefnisins. „Ég er að vinna í því að leysa úr þessum fjárskorti. Annars vegar verður farið yfir og kann- að hvort hægt sé að finna ódýr- ari lausnir, hins vegar verður unnið að því að færa til fjár- muni innan samgönguáætlun- arinnar. Það er mikil áhersla á framkvæmdina í samgöngu- áætlun og yfir 500 milljónir settar í verkefnið. Það verður ekki aftur snúið með það,“ segir Sturla. Ráðherra kveðst ennfremur hafa viljað gera Alþingi grein fyrir því, að frumkostnaðar- áætlun væri mun hærri en gert hafi verið ráð fyrir í upphafi. „Sú áætlun getur auðvitað breyst eftir útboð. Ef til vill munu einfaldari og ódýrari leið- ir felast í þeim tilboðum sem við fáum. Einnig þarf að skoða hvort einhverjar lausnir geti orðið ódýrari. Það er ekki búið að tímasetja útboðið og verið að vinna í málinu, en ég geri ráð fyrir því að verkið verði boðið út í maí, svo hægt sé að nýta sumarið,“ segir samgönguráð- herra. Vestur- landsveg- ur líklega boðinn út í maí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.