Morgunblaðið - 19.04.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w. l e t t o g l a ggo t t . i s
w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w
ww. l e
t tog
l a g
got
t . i s
ww
w.
l e t
t o
g l
a g
go
t t
. i s
ww
w.
le
tt
o g
la
gg
ot
t.
is
ww
w.
let
tog
lagg
ott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
VILTU
VINNA FERÐ
TIL ÍTALÍU?
ELDUR kviknaði í eyðibýlinu Tungu
í Hólmavíkurhreppi í Ísafjarðardjúpi
seinnipart dags á laugardag, og brann
húsið til kaldra kola. Húsið var notað
sem sumardvalarstaður og bjuggu
hjón í húsinu, en þau voru ekki inni.
Neyðarlínu barst tilkynning um
eldinn frá eigendum hússins um kl.
16.45, og var slökkvilið komið á stað-
inn um 40 mínútum seinna. Talsverð-
ur eldur var í húsinu, og var það rústir
einar um kl 20.30 þegar slökkvistarfi
lauk, að sögn lögreglunnar á Hólma-
vík, sem vaktaði húsið um nóttina.
Húsið var eyðibýli, en unnið hafði
verið að því að gera það upp og var
þar talsvert af innanstokksmunum
sem eru allir taldir ónýtir.
Eyðibýli brann til ösku
BJÖRGUNARMENNIRNIR úr
Grindavík sem forseti Íslands sæmdi
afreksmerki hins íslenska lýðveldis
sögðust ekki hafa átt von á að fá slíka
viðurkenningu. Þeir hefðu hingað til
ekki hugsað um þetta sem sérstakt
afrek. „Eftir að okkur var sagt að
þetta stæði til fór ég að hugsa meira
um þetta og sá að við lögðum okkur í
töluverða lífshættu,“ sagði Björn
Óskar Andrésson í samtali við blaða-
mann.
Þrír menn úr björgunarsveitinni
Þorbirni í Grindavík voru kallaðir út á
litlum slöngubáti sveitarinnar til
björgunar þegar vélbáturinn Sigur-
vin fórst við innsiglinguna til Grinda-
víkur 23. janúar 2004. Tókst þeim að
bjarga skipverjunum tveimur úr sjón-
um. Með Birni við björgunina voru
Hlynur Sæberg Helgason og Vil-
hjálmur Jóhann Lárusson.
Stofnað var til afreksmerkis hins
íslenska lýðveldis á árinu 1950. Til-
gangur þess er að heiðra menn, inn-
lenda og erlenda, sem leggja líf sitt í
hættu við björgunarstörf. Afreks-
merkið hafði aðeins verið veitt sex
sinnum áður en félagarnir úr Grinda-
vík voru sæmdir því síðastliðinn laug-
ardag. Í síðustu þrjú skiptin voru
þyrluáhafnir sæmdar merkinu.
Sýndu áræði og útsjónarsemi
Fram kom í ávarpi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, við þetta
tækifæri að sérstök nefnd gerði til-
lögu til forseta um að veita afreks-
merkið. Nefndarmenn hafa kynnt sér
atvik málsins, meðal annars með
skoðun á útkallsskýrslu björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns og skýrslu
lögreglunnar til sýslumanns. „Telur
nefndin að gögn beri greinilega með
sér að þeir Björn, Hlynur og Vil-
hjálmur hafi umrætt sinn sýnt mikið
snarræði og unnið frækilegt björgun-
arafrek við erfiðar aðstæður. Með því
að sæta lagi og skjótast inn í háa
brimskafla á litlum slöngubáti til að
bjarga skipverjum á Sigurvini lögðu
þeir sig í mikla hættu en með mikilli
útsjónarsemi, áræði og hæfni tókst
þeim ætlunarverk sitt,“ segir meðal
annars í áliti nefndarinnar.
Heiður fyrir sveitina
Auk afreksmerkisins heiðraði bæj-
arstjórn Grindavíkur þá félaga sér-
staklega af þessu tilefni og veitti
Björgunarsveitinni Þorbirni einnar
milljónar króna styrk til tækjakaupa.
Félagarnir þrír voru stjörnur dagsins
á laugardag. Í kaffisamsæti sem bæj-
arstjórn bauð til í félagsheimilinu
Festi áttu þeir Björn og Vilhjálmur,
sem þar voru staddir eftir athöfnina,
erfitt með að komast í veitingarnar
því allir þurftu að þakka þeim og óska
þeim til hamingju. Þeir sögðu að þetta
hefði verið svona frá því strax eftir
björgunina, margir hefðu komið að
máli við þá og hringt til að þakka þeim
fyrir. Þeir kváðust ánægðir með við-
urkenninguna. Í henni fælist mikill
heiður fyrir björgunarsveitina og þeir
vonuðust til að það myndi efla starfið.
Afreksmerki hins íslenska lýðveldis er aðeins
veitt þegar björgunarmenn leggja líf sitt í hættu
Sýndu snarræði við
frækilega björgun
Morgunblaðið/Sverrir
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmir Vilhjálm Jóhann Lárusson
afreksmerki hins íslenska lýðveldis. Félagar hans, Björn Óskar Andrésson
og Hlynur Sæberg Helgason hafa þegar fengið sín merki.
MJÖG góð þátttaka var í hátíða-
höldunum vegna þrjátíu ára kaup-
staðarafmælis Grindavíkur um
helgina. „Þetta tókst mjög vel að
mínu mati. Dagskráin var vel sótt
og ég er ánægður,“ sagði Hörður
Guðbrandsson, forseti bæj-
arstjórnar, í samtali í gær.
Hátíðardagskrá var í Íþrótta-
miðstöð Grindavíkur á laugardag
sem forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, og Dorrit Moussa-
ieff, eiginkona hans, voru við-
stödd.
Í ávarpi Harðar við athöfnina
kom fram að íbúum Grindavíkur
hefði fjölgað jafnt og þétt. Fyrir
þrjátíu árum bjuggu um 1.600
manns á staðnum en nú 2.421. At-
vinnulífið hefur byggst mikið á
saltfiskvinnslu og útgerð og gat
Hörður þess að um 40% af út-
fluttum saltfiski frá Íslandi hefðu
komið frá Grindavík. Hann gat
einnig um jarðhitanýtingu í
Svartsengi og aukna ferðaþjón-
ustu.
Hörður sagði í samtali við
Morgunblaðið að fjarlægðirnar
skiptu orðið minna máli en áður
og fólk sem áfram stundaði vinnu
á höfuðborgarsvæðinu væri farið
að flytja til Grindavíkur í stórum
stíl. Það skapaði möguleika og ryfi
þá einhæfni sem lengi hefði verið í
atvinnulífinu. „Ég get ekki annað
séð en bjart sé framundan og að
skilyrði séu til áframhaldandi upp-
byggingar og fjölgunar á næstu
árum,“ sagði Hörður.
Ólafur Ragnar sagði í ávarpi frá
kynnum sínum af Grindavík og
Grindvíkingum og velti því fyrir
sér hver væri galdurinn á bak við
þann árangur sem þar hefði náðst,
við uppbyggingu nútímabæjar sem
væri í fremstu röð á ýmsum svið-
um. Nefndi hann jákvæða sam-
kennd í því sambandi og sagði að
hún birtist alltaf þegar menn
kæmu saman á stórhátíðum og
hún kæmi fram í því að Grindvík-
ingar stæðu saman þegar stór-
verkefni væru á dagskrá.
Eftir hátíðardagskrána fóru for-
setahjónin í fylgd Ólafs Arnar
Ólafssonar bæjarstjóra, bæjarfull-
trúa og alþingismanna á nokkra
staði. Þau heimsóttu meðal annars
og kynntu sér starfsemi hafn-
arskrifstofunnar, Fiskmarkaðar
Suðurnesja og Martaks hf.
Bæjarstjórn bauð öllum Grind-
víkingum og gestum til kaffi-
samsætis í félagsheimilinu Festi.
Þar voru risastórar tertur á boð-
stólum. Hörður Guðbrandsson
sagði áætlað að hátt í 1.500 manns
hefðu komið þar við. Auk þess var
dagskrá á ýmsum öðrum stöðum í
bænum.
Þrjátíu ára kaupstaðarafmæli Grindavíkur haldið hátíðlegt
Skilyrði til áframhaldandi vaxtar
Köttur komst í ból bjarnar þegar forseti Íslands yfirgaf sæti sitt til að ávarpa hátíðarsamkom-
una. Fimm ára stúlka, Kristlaug Lilja Halldórsdóttir, vildi teljast meðal fyrirfólks og settist á
milli Ómars Jónssonar og Dorrit Moussaieff sem hafði mikla ánægju af tiltækinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Hátíðarhöldin voru vel sótt, meðal annars hátíð-
ardagskráin í Íþróttamiðstöð Grindavíkur.
GUÐBERGUR Bergsson rit-
höfundur vitnaði í eigin sögu í
ávarpi eftir að hann hafði verið
útnefndur heiðursborgari
Grindavíkur, með því að segja
að leiðin að heiman lægi heim.
Þetta væri að mörgu leyti rétt
– en líka að mörgu leyti rangt,
eins og hann tók til orða, vegna
þess að maður færi í raun og
veru aldrei algjörlega að heiman
og heimabyggðin fylgdi manni
alltaf. Þá sagði hann að heima-
byggðin yrði aldrei eins og hún
var þegar maður fór að heiman.
Þess vegna yrði Grindavík
aldrei sú dreifða byggð sem var
þegar hann ólst þar upp sem
barn. Rifjaði Guðbergur upp
minnisstæða einstaklinga frá
þeim tíma og sagði frá því
hvernig Grindavík hefði fylgt
sér, meðal annars til Spánar.
Hörður Guðbrandsson, for-
seti bæjarstjórnar, afhenti Guð-
bergi skjal til staðfestingar
heiðursborgaranafnbótinni við
hátíðardagskrá sem fram fór í
Íþróttamiðstöðinni. Þegar Guð-
bergur ávarpaði samkomuna
skömmu síðar tók hann fram að
hann vissi ekki hvað í því fælist
að vera heiðursborgari enda
ekki komin löng reynsla á það.
Guðbergur er aðeins annar
maðurinn sem útnefndur er
heiðursborgari Grindavíkur. Sá
fyrsti var kosinn fyrir tíu árum,
Svavar Árnason, en hann lést á
árinu 1995. Svavar var m.a. í
hreppsnefnd og síðar bæjar-
stjórn Grindavíkur í fjörutíu ár.
Leiðin að
heiman
liggur heim
Morgunblaðið/Sverrir
Guðbergur Bergsson með inn-
rammað heiðursskjalið.