Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 12

Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 12
MINNSTAÐUR | VESTURLAND 12 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Akranes | Alls bárust ellefu um- sóknir um styrk úr Húsvernd- unarsjóði Akraneskaupstaðar en umsóknirnar voru lagðar fram á fundi byggingarnefndar Akraness hinn 6. apríl sl. Byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að styrk- urinn verði veittur eigendum Suð- urgötu 88, eigandi Gísli Breiðfjörð Árnason og eigendum Suðurgötu 25, Ágústu Friðfinnsdóttur og Runólfi Bjarnasyni. Í fundargerð byggingarnefndar segir að húseignin Suðurgata 88, Norðtunga, sem byggð var af Ingv- ari Eggertssyni árið 1929, sé mjög reisulegt og áberandi og standi við eina af fjölfarnari götum bæjarins, miðsvæðis og af því leiðandi andlit út á við. Húsið er steinsteypt, jarð- hæð, hæð og ris. Nefndin leggur til að styrkurinn verði 600.000 kr. og framkvæmdum verði lokið innan 30 mánaða. Ásmundarhús, sem byggt var af Ásmundi Bjarnasyni árið 1930, stendur við Suðurgötu 25. Húsið er timburhús, kjallari, hæð og ris og hafa núverandi eigendur lagt í mikinn kostnað og framkvæmdir við að endurgera húsið að innan þó svo þeim sé ekki lokið. Upprunaleg mynd hússins er enn til staðar og virðast eigendur hússins vera mjög meðvitaðir um varðveisluþátt húss- ins. Húsið er staðsett í gamla bæj- arhlutanum á Neðri-Skaga og er við eina af aðalgötum bæjarins og er þar af leiðandi eitt af andlitum bæjarins þegar farið er um Akra- nes. Byggðasafn Akraness og nær- sveita mælir með umsókn. Nefndin leggur til að styrkurinn verði 400.000 kr. og framkvæmdum verði lokið innan 18 mánaða. Ásmundarhús stendur við Suðurgötu 25. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Norðurtunga stendur við Suðurgötu 88. Fengu styrk úr Húsverndunarsjóði Hellnar | Þrátt fyrir rysjótta tíð og kulda eru alltaf einhverjir ferða- menn á ferð um Snæ- fellsnes að vetrarlagi. Flestir eru kappklæddir og dúðaðir til að verjast kulda og trekki. Því vakti það athygli að rek- ast á konu klædda sari að indverskum sið á ferðalagi sínu. Þarna voru á ferð efnafræðing- urinn og jógameistarinn Shanti Desai og kona hans Nayana. Þótt þau hafi búið lengi í Banda- ríkjunum hefur Nayana ekki fallið fyrir vestræn- um klæðaburði og klæð- ist sínum sari hvar sem hún er á ferð. Reyndar klæddist hún úlpu ut- anyfir sari-inn til að halda á sér hita á ferð sinni um Snæfellsnesið. Þau hjónin áttu varla orð til að lýsa undrun sinni yfir töfrum Snæ- fellsness og fangaði margt huga þeirra. Stórkostlegt brimið við Djúpalónssand og snert- ing við snjó við rætur Snæfellsjökuls var þó sennilega það sem stóð uppúr. Lánið lék við þau hvað veðrið snerti og yf- irleitt var þurrt og bjart á öllum áningarstöðum. Heilluðust af Snæ- fellsnesi Skorradalur | Ársfundur Veiði- málastofnunar var haldinn á Hvanneyri nýlega. Framkvæmda- stjóri Veiðimálastofnunar, Sigurður Guðjónsson, flutti yfirlit um starf- semi stofnunarinnar á síðasta ári og Guðni Guðbergsson flutti erindi um veiðina 2003 og veiðihorfur 2004. Á árinu 2003 veiddust nærri 34.000 laxar á stöng á móti 33.767 löxum 2002. Stangaveiðin 2003 var því um 2% undir meðalveiði áranna 1974-2002. Benóný Jónsson flutti erindi um útvarpsmerkingar laxa í vatnakerfi Ölfusár og Þjórsár. Síðastur á mæl- endaskrá var Þorkell Fjeldsted, Ferjukoti, sem fylgdi úr hlaði til- lögu um að hefja nú þegar skipulega söfnun veiðiminja og setja á stofn safn til að varðveita muni, myndir og minningar sem tilheyra neta- og stangaveiði úr ám og vötnum lands- ins. Þorkell taldi að söfnunin tæki til eftirtalina flokka: Sagan, veiðifæri, veiðibækur, en þær eru til frá 1860, bátar og búnaður, veiðihús, fiski- rækt, verkun og vinnsla, myndir og munir og rannsóknir. Ný húsakynni Vesturlands- deildar Eftir að fundi var slitið var gest- um boðið að skoða ný húsakynni Vesturlandsdeildar Veiðimálastofn- unarinnar á Hvanneyri. Við það tækifæri undirrituðu Magnús B. Jónsson, rektor Land- búnaðarháskólans og Sigurður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri Veiðimálastofnunarinn- ar, samkomulag um samstarf á sviði kennslu, rannsókna og þróunar, endurmenntunar og ráðgjafar. Í samningn- um segir meðal annars: „Við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri verði kennsla á sviði ferksvatnsnýtingar og vatnalíffræði efld og aukin og munu sérfræð- ingar Veiðimálastofnun- ar vera skólanum til ráðuneytis um uppbygg- ingu slíks náms.“ Morgunblaðið/Pétur Davíðsson Magnús B. Jónsson, rektor Landbúnaðarháskólans, afhenti Sigurði Guð- jónssyni, framkvæmdastjóra Veiðimálastofnunar, til varðveislu málverk sem forveri LBH, Bændaskólinn á Hvanneyri, fékk að gjöf frá útskrifuðum nemendum í kringum 1970. Frá undirritun samstarfssamnings LBH og Veiðimálastofnunar: Sigurður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri Veiðimálastofnunar, Magn- ús B. Jónsson, rektor LBH, og Sigurður Már Einarsson, forstöðumaður Vesturlandsdeildar Veiðimálastofnunar. Hafin verði skipuleg söfnun veiðiminja Hellnar | Hjónin Guðný Jakobsdóttir og Guðjón Jóhannesson, bændur á Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík, hafa í vetur unnið að því að stækka og breyta fjósinu hjá sér. Fram- kvæmdir hófust 1. september sl. og fyrir réttri viku voru fyrstu kýrnar fluttar í nýja fjósið. Við stækkunina fjölgar básum úr tuttugu og átta í aðstöðu fyrir fimmtíu og þrjár kýr. Breyttu hlöðunni „Við breyttum gömlu hlöðunni og byggðum við hana þannig að við fengjum heppilega stærð af lausa- göngufjósi,“ segir Guðjón. „Húsin voru orðin léleg og þörfnuðust mik- ils viðhalds og við vorum með drauma um að stækka. Okkur fannst því heppilegra að fara bara út í þær breytingar sem nýtt fjós krafðist.“ Fjósið er nú um 480 fer- metrar, búið tölvustýrðum kjarnfóð- urbásum, hreinsibúnaði o.fl. sem svona framtíðarfjós prýðir. Hver kýr er með tölvukubb um hálsinn og þegar hún kemur að kjarnfóð- urbásnum skammtar tölvubúnaður henni fyrirfram ákveðinn skammt. Guðjón segir að með þessu fyr- irkomulagi sé neyslan jafnari yfir sólarhringinn. Hann hlær við þegar fréttamaður spyr hvernig kúnum gangi að rata að fóðurbásunum og segir það ekki hafa verið vandamál. „Þeir voru það fyrsta sem þær kom- ust upp á lag með að nota í nýju að- stöðunni.“ Guðjón segir að ekki sé enn kom- in reynsla á það hvort nytin hafi aukist í kúnum við þessar breyt- ingar þar sem svo stutt sé síðan ný- byggingin var tekin í notkun. Hins vegar sé þetta gerbreytt aðstaða, bæði fyrir menn og skepnur, og eigi örugglega eftir að skila sér á fleiri en einn máta í framtíðinni. Vilja búa í sveit Með stærri og betri aðstöðu hyggjast þau hjónin fjölga gripum hjá sér og kaupa sér meirri mjólk- urkvóta. „Við komum til með að breyta aðstöðunni í gamla fjósinu, sem verður uppeldisstöð fyrir kálfa,“ segir Guðjón. „Kvótinn er svo keyptur á mark- aði og fer eftir framboði og eft- irspurn hverju sinni.“ Hvernig ber jörðin svo stækk- unina á bústofninum? Guðjón svarar því til að þau eigi enn land sem þau geti brotið undir frekari tún. Hins vegar hafi orðið þær breytingar á í kringum þau hjón að margar bú- jarðir séu án bústofns. Nýti þau því tún nágrannanna og hafi það gefist vel fyrir alla aðila. Undanfarin ár hafa þau jafnframt stundað bygg- rækt til fóðurgjafar með góðum ár- angri. Guðjón segir að kýrnar séu alveg vitlausar í byggið og að gaman sé að geta gefið þeim heimaræktaða afurð sem fóðurbæti. Þau komi því til með að sá fyrir byggi í vor eins og fyrri sumur. En hafa breyttir búshættir ná- grannanna ekki áhrif á þau? „Nei,“ svarar Guðjón. „Okkur líkar vel hérna og viljum búa áfram í sveit. Við erum því samkvæm okkur sjálfum í þessari stækkun á búinu, sem verður bara öflugra atvinnufyr- irtæki fyrir vikið.“ Stórhuga bændur Feðgarnir Brynjar Gauti og Guðjón undirbúa mjaltir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.