Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 15

Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 15
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 15 1 4 4 4 Ertu að leita þér að nýjum skóm? 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Í HOLLANDI eru nú gerðar augn- skurðaðgerðir í fegrunarskyni með því að koma fyrir 3,5 mm glitsteini í hvítunni við hlið augasteinsins. Steinarnir eru úr platínu, eru hjarta- og stjörnulaga og glitra þegar ljós skín á þá. Aðgerðin tekur um tíu mínútur og fer þannig fram að sjúk- lingurinn fær deyfandi augndropa, svo er gerður lítill skurður í horn- himnuna og skartinu komið fyrir. Hollenskir augnlæknar fram- kvæmdu fyrstu aðgerðina af þessu tagi fyrir hálfu ári á 36 ára gamalli konu. „Margir vilja láta gera svona aðgerð á sér. Hugmyndin kom í kjöl- far rannsóknar sem við gerðum á þrýstingi á augað. Við uppgötvuðum að við gátum komið fyrir skarti inn- an við ytri himnu augans, og fannst það sniðug hugmynd,“ segir Dr. Gerritt Mellis, annar augnlæknanna. Reuters  TÍSKA Ígrætt augnskart FÓLK sem fætt er að sumri heldur að það sé lánsamara en fólk sem fætt er í kaldari mánuðum. Þetta eru nið- urstöður breskrar könnunar sem 40 þúsund manns tóku þátt í á Netinu undir stjórn Richard Wiseman pró- fessors og greint er frá á vefútgáfu Aftenposten. Fólk sem fætt er í maí telur sig frekar heppið en fólk sem fætt er í október hefur minnsta trú á eigin heppni, skv. könnuninni sem er ætl- að að leiða í ljós hvort fæðing- ardagur sé meðal þess sem ákvarði lánsemi fólks. Næsta verkefni vísindamannanna verður að finna útskýringuna á af hverju sumarbörn eru þeirrar skoð- unar að lánið leiki fremur við þau en vetrarbörnin. Wiseman prófessor telur að möguleg ástæða geti verið að þau sem fædd eru í maí upplifi sumar fyrsta hálfa ár ævi sinnar en þeir sem fæddir eru í október upplifi vetur fyrstu ævimánuðina. Morgunblaðið/RAX Ungviði: Sumarbörn lánsamari en vetrarbörn?  LÍFSHAMINGJA Sumarbörn telja sig lán- samari alltaf á laugardögumLESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.