Morgunblaðið - 19.04.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.04.2004, Qupperneq 18
UMRÆÐAN 18 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÚ var tíðin, að aðeins einn há- skóli var í landinu. Nú eru þeir nokkrir og þar á meðal eru nú einka- skólar á háskólastigi. Einkaskól- arnir innheimta skóla- gjöld en fá einnig há framlög frá ríkinu. Segja má því, að einka- skólarnir séu hálf- opinberir enda þótt oft sé látið í veðri vaka, að þeir standi á eigin fót- um. Háskóli Íslands hefur algera sérstöðu meðal háskólanna: Hann er sá eini sem hefur rannsókn- arhlutverk og er því sá eini, sem er sambæri- legur við háskóla er- lendis. Auk þess er Háskóli Íslands eini háskólinn hér á landi sem býður upp á nám í nær öllum greinum. Nýju einkaháskólarnir bjóða aðeins nám í fáum greinum, þ.e. þeim sem mikil eftirspurn er eftir. Þeir fleyta rjómann ofan af í greininni, ef svo má segja. Metingur á milli háskóla Frá því einkaskólarnir risu upp hef- ur verið talsverður metingur á milli háskólanna. Einnig hefur það tíðk- ast talsvert að undanförnu, að vissir blaðamenn og aðrir hafi verið að reka hornin í Háskóla Íslands og segja, að sá skóli væri ekki eins „góður“ og einkaskólarnir. Háskóli Íslands væri ekki eins framsækinn og einkaskólarnir, ekki eins metn- aðarfullur. Þetta er ósanngjörn gagnrýni. Háskólarnir eru ekki sam- bærilegir. Háskóli Íslands hefur al- gera sérstöðu meðal háskólanna. Áður er vikið að rannsókn- arhlutverki Háskóla Íslands. En auk þess er rétt að ítreka það, að Háskóli Íslands verður að halda uppi kennslu í nær öllum háskólagrein- um, hvort sem eftirspurn eftir þeim er mikil eða ekki. Einkaháskólarnir líkj- ast í þessum efnum fremur háskóladeildum en fullkomnum háskól- um eins og þeir gerast erlendis. Hugmyndir um skólagjöld Undanfarið hafa lög- gjafinn og ríkisvaldið skorið niður framlög til Háskóla Íslands. Ligg- ur við, að Háskólinn búi nú við fjársvelti. Hefur þessi staða leitt til þess að há- værar raddir eru nú um það innan Háskólans, að hann fái að leggja á skólagjöld. Forráðamenn Háskóla Íslands líta til einkaskólanna í þessu efni og sjá, að þeir fá að innheimta skólagjöld enda þótt þeir njóti einn- ig opinberra framlaga. Það er engu líkara en stjórnarflokkarnir hafi ver- ið að halda niðri framlögum til Há- skólans til þess að geta komið á skólagjöldum. Fram til þessa hefur Háskóli Íslands verið opinn öllum, án tillits til efnahags. Jafnt háir sem lágir, ríkir sem fátækir hafa getað stundað nám við Háskóla Íslands. Má segja, að þetta hafi verið að- alsmerki Háskólans ásamt því að takmarka ekki fjölda þeirra sem fá aðgang að skólanum. En að vísu hef- ur örlítið verið látið undan í því efni. Áríðandi er að halda Háskóla Ís- lands opnum fyrir alla. Háskólinn verður að vera opinn öllum án tillits til efnahags. Það hefur alltaf verið stefna jafnaðarmanna, að Háskólinn væri opinn öllum. Jafnaðarmenn vilja, að efnaminni stúdentar eigi sömu möguleika til háskólanáms og þeir efnameiri. Ekki dugar að benda á Lána- sjóðinn Þeir sem berjast fyrir skólagjöldum hafa m.a. bent á það, að stúdentar muni geta fengið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna fyrir skóla- gjöldum. Því muni efnaminni stúd- entar eiga sömu möguleika til náms eftir sem áður. En þetta eru falsrök. Lán þarf að greiða. Og ekki vilja all- ir taka mikil lán. Nauðsynlegt er að berjast hat- rammlega gegn skólagjöldunum. Löggjafi og ríkisvald verða að tryggja Háskóla Íslands nægilegt fjármagn. Öflugur og framsækinn ríkisháskóli er aðalsmerki hverrar sjálfstæðrar þjóðar. Það gengur ekki að ætla að velta kostnaði Há- skólans yfir á nemendur. Margir telja einnig, að ef skólagjöld væru tekin upp mundi ríkið draga úr fjár- framlögum til Háskólans, þannig að skólinn stæði í sömu sporum eftir sem áður. Vissulega er hætta á því. Krafan er: Engin skólagjöld við Há- skóla Íslands. Jafnaðarmenn á móti skólagjöldum Björgvin Guðmundsson skrifar um skólamál ’Löggjafi og ríkisvaldverða að tryggja Há- skóla Íslands nægilegt fjármagn.‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Í UMRÆÐUNNI um upptöku skólagjalda Háskóla Íslands hefur borið á góma að þau séu vel til þess fallin að auka kostnaðarvitund há- skólanema á sama tíma og þau bæti að- stöðu til náms. Hafa þeir sem hallir eru á þessar hugmyndir tal- að um að best sé að hver og einn kosti sitt nám. Undirritaðir gera sér grein fyrir að ein- vörðungu stendur til að biðja um heimild fyrir skólagjöldum. Þegar heimildin er komin í gegn mun rík- isstjórnin minnka framlagið til Háskóla Íslands, eins og raunin hefur verið í erlendis, og er Háskólaráð þá í þeirri aðstöðu að skólagjöld eru eina lausnin. Er rík- isstjórnin að varpa ábyrgðinni á Há- skólaráð þegar til kastanna kemur? Kostnaðarvitund námsmanna Í umræðunni um kostnaðarvitund er stúdentum stillt upp sem þjóðfélagshópi sem sólundar pen- ingum skattborgara, hópur sem er byrði á samfélaginu. Það er út í hött. Stúdentar gera sér fyllilega ljóst að námið er ekki gefins. Lánakerfi LÍN er þannig sniðið að ekki er hægt að fá greitt út lán nema ákveðnar kröfur um námsárangur séu uppfylltar. Þeir námsmenn sem ekki uppfylla þær kröfur og hafa lifað önnina á yf- irdráttarheimild frá bankanum þurfa einfaldlega að greiða hana eins og hvert annað lán. Einnig gerir Fé- lagsstofnun stúdenta, sem rekur stúdentagarða, kröfur um lágmarks- námsárangur. Þetta fyrirkomulag er nægur hvati til þess að fólk sinni náminu. Reynslan innanlands Listaháskóli Íslands fékk heimild til þess að rukka inn skólagjöld árið 1999–2000 og var árgjaldið í upphafi 36.000 kr. Þróun mála hefur verið hröð á þeim bæ og ekki sér fyrir end- ann á henni. Meðfylgjandi tafla talar sínu máli. Kennsluár Upphæð 1999–2000 36.000 kr. 2000–2001 72.000 kr. 2001–2002 84.000 kr. 2002–2003 96.000 kr. 2003-2004 120.000 kr. 2004–2005 165.000 kr. Sömu sögu er að segja af Háskól- anum í Reykjavík, þar hafa skóla- gjöldin hækkað úr 55.000 kr. frá vor- önn 2000 upp í 99.000 kr. á næstkomandi önn, vorið 2004. Er þetta sú þróun sem stúdentar við Háskóla Íslands mega búast við? Ef svo er þá er það ógnvænlegt, sér- staklega í ljósi þess að ekki hefur ver- ið rætt um neina hámarksupphæð. Reynslan að utan Í Englandi hafa skólagjöld mælst illa fyrir og námsmenn yfirleitt verið mjög ósáttir. Skólarnir hafa ekki leyst fjárhagsvanda sinn heldur yf- irfært hann að hluta til á breska námsmenn. Í skýrslu eftir hagfræð- ingana David Greenaway og Michelle Haynes, sem út kom í tengslum við umræðuna um skólagjöld í Englandi, fékk enska skólakerfið falleinkunn fyrir félagslega jöfnun, skuldasöfnun stúdenta hefur stóraukist og náms- sókn fátækari nemenda hefur minnk- að. Það hefur sýnt sig í Englandi og Kanada að samhliða auknum skóla- gjöldum við háskóla hafa framlög frá ríkinu lækkað, skólarnir virðast ekki hafa leyst fjárhagsvanda sinn með slíku fyrirkomulagi. Er þetta kannski raunin í dæm- unum hér að ofan frá Listaháskól- anum og HR? Eru stjórnvöld að firra sig ábyrgð og velta þung- anum yfir á námsmenn? Hagsmunir hvers? Ljóst er að háskólapróf úr hinum ýmsu deildum eru misarðbær fjárfest- ing fyrir þá einstaklinga sem námið stunda. Tök- um hjúkrunarfræði sem dæmi um nám sem sam- félagið nýtur góðs af en fjárhagslega lítill hvati er til að læra. Sá hvati væri enn minni ef skóla- gjöld væru til staðar. Er hjúkrunarfræði þá nám sem samfélagið kemst af án? Íslenskudeild Há- skóla Íslands býður ekki upp á sérlega góðar fjár- festingar til skamms tíma en ljóst er að að hún er ein af styrkustu stoðum íslensks menn- ingararfs. Það sama á við um fjöldamörg fög t.d. heimspeki, mann- fræði, uppeldisfræði og guðfræði. Háskóli Íslands er öflugasta fræðasetur landsins og sennilega sá skóli sem fellur best undir skilgreininguna rannsóknaháskóli. Með skólagjöldum er hætt við að doktors- og mast- ers-nemar leiti í aukn- um mæli til erlendra há- skóla. Með því myndi staða HÍ sem rannsóknaháskóla veikjast og um leið verðmæti prófgráða þeirra sem þaðan útskrifast. Mun upptaka skóla- gjalda fæla íslenskt fræðafólk til út- landa? Ísland best í heimi? Ísland er gjarnan nefnt í sömu andrá og hin Norðurlöndin sem þekkt eru fyrir mikið og metnaðarfullt mennta- starf. Munurinn á okkur og frændum vorum er sá að þar er 1,2–1,7% af landsframleiðslu veitt til menntamála meðan Íslendingar sætta sig við 0,8%. Með þessar upplýsingar í huga kemur ekki á óvart að hlutfall þeirra sem lokið hafa háskólanámi þar er töluvert hærra en hérlendis og það sama má segja um menntun á fram- haldsskólastigi. Gæti verið að fjárskort Háskólans megi rekja til þessarar metn- aðarlausu stefnu stjórnvalda? Er rót vandans fólgin í röngum áherslum? Hafa stjórnvöld hugleitt samband hagvaxtar og menntastigs? Þorvald- ur Gylfason, prófessor í hagfræði, hefur leitt líkur að því að aukning framhaldsskólasóknar hafi jákvæð áhrif á hagvöxt. Gera má ráð fyrir að hið sama gildi um aðsókn í háskóla. Er menntamálaráðherra ósam- mála Þorvaldi? Að endingu Með ofantalin atriði í huga sjáum við ekki að HÍ muni verða neinu bættari með tilkomu skólagjalda. Við skorum því á menntamálaráðherra að svara spurningum okkar hið fyrsta. Klausa til háskólaráðs Okkur þykir ákvörðun um tímasetn- ingu lokafundarins, þar sem Há- skólaráð sker úr um skólagjalda- málið, einkennast af gunguskap. Það að fresta ákvörðuninni fram í prófa- tíð háskólasamfélagsins gerir stjórn- völdum kleift að lauma málinu í gegn án þess að stúdentar fái rönd við reist. Þetta er eins og að sparka í liggjandi mann. Bréf til mennta- málaráðherra Baldur Jóhannesson og Freyr Björnsson skrifa um skólagjöld Baldur Jóhannesson ’Lánakerfi LÍNer þannig sniðið að ekki er hægt að fá greitt út lán nema ákveðnar kröfur um náms- árangur séu uppfylltar. ‘ Greinarhöfundar eru báðir nemendur við Háskóla Íslands. Freyr Björnsson ÞRIÐJUDAGINN 13. apríl skrifar formaður Útivistar Árni Jó- hannsson grein í Mbl. og svarar þar grein Árna Alfreðssonar frá 7. apríl um hraðbraut inn á Þórsmörk. Hvor tveggja ágætis grein. Hraðbraut í Þórsmörk er nefnilega óskiljanleg með öllu og lítt skilj- anlegur vilji manna að sjá þangað streyma bíla með farþega inn- anborðs sem eru bara á rúntinum og hafa e.t.v. engan sérstakan áhuga á svæðinu. Það mun draga úr þeirri stemningu sem ríkir í Þórsmörk. Mér verður hugsað til ferðar minnar s.l. sumar að Kárahnjúkum. Þangað liggur nú heilsársvegur sem er vel fær öllum bílum. Þegar ég stóð á útsýnispalli sem þar er og virti fyrir mér framkvæmda- svæðið og náttúrfarið í kring renndu þar að bílar í gríð og erg, út ultu börn og fullorðnir með ís og pylsur og ég fékk þá tilfinningu eitt augnablik að ég væri staddur í Disney-landi Íslands, Kárahnjúka- landi sem allir verða skoða áður en það fer á kaf. Látum þá vegargerð þó eiga sig þar sem vegurinn þang- að er nýttur vegna þeirra fram- kvæmda sem þar eiga sér stað. En megi Guð hjálpa okkur frá því að gera Þórsmörk að þess háttar traff- íkstað og sýning- argrip. Það sem vakti hinsvegar furðu mína við lestur grein- arinnar eftir nafna minn Jóhannsson er að svo virðist sem að enginn kannist við krógann – Þórsmerk- urrúntinn. Enginn þingmaður, starfs- menn Vegagerð- arinnar eða aðrir ráðamenn kannast við að hafa út- hlutað 50 milljónum í veg sem eng- inn kærir sig um. Því lýsi ég því hér með yfir að þessar 50 milljónir eru hjartanlega velkomnar í vega- gerð á Norðausturlandi, n.t.t. í Öx- arfjörð í Norður-Þingeyjarsýslu. Þar er mikil þörf á nútíma vegum með bundnu slitlagi og velkomið sé ferðafólkið að skoða og kaupa sér ís og pylsur. Í dag er dræmt útlit fyrir að þorpið Kópasker komist í gott vegasamband við umheiminn og öðlist sömu möguleika og marg- ir aðrir þéttbýlisstaðir á landinu að bjóða ferðamönnum heim án þess um slæman malarveg þurfi að fara. Okkur vantar 230 milljónir til að hægt sé að ljúka lagningu bundins slitlags á Kópasker frá viðmið- unarpunktinum Reykjavík, en að- eins eru um 11,6 km eftir mal- arvegi af þeim 579 km sem þangað eru. Ekki má samt skilja þetta svo að aðrir vegir hér séu lagðir bundnu slitlagi. Því fer fjarri, en hinsvegar vantar ekki mikið upp á að koma Kópaskeri í viðunandi vegsamband. Heldur má ekki skilja orð mín sem svo að ég telji þessum 50 milljónum ofaukið á Suðurlandi. Alls ekki. Ef þær eru hinsvegar „munaðarlausar“ er ég viss um að gott „heimili“ býðst á Norðaust- urlandi. Til að „útúrstaðir“ – (miðað við Pósthússtræti 101 Reykjavík) eigi að hafa möguleika á upbyggingu í ferðaþjónustu verður af hafa að- alvegi í lagi því að í augum margra er slæmur vegur næg ástæða til að ekki sé lögð leið á fallegan stað og um margt merkilegan. Staðreyndin er nefnilega sú að nýir og fallegir bílar eiga fátt sameiginlegt með forugum malarvegum sem eru far- artálmar þótt leiðin sé stutt. Fyrst þegar almennir þjóðvegir eru komnir í samt lag er rétt að athuga með gerð hraðbrauta á heiðum og ferðamannavega utan byggðar. Hraðbraut á Kópasker Elvar Árni Lund fjallar um hraðbrautir á Íslandi ’Það vantar ekki mikiðupp á að koma Kópa- skeri í viðunandi vega- samband.‘ Elvar Árni Lund Höfundur er sveitarstjóri í Öxarfjarð- arhreppi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.