Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 23

Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 23
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 23 Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is október 1972, ferðuðumst við Sigríð- ur í fyrsta sinn saman til Austfjarða, en þangað áttum við eftir að fara aft- ur og hún að fræða mig um æskuslóð- ir sínar og feðra okkar. Ofarlega í minningunni er einnig ferð sem við fórum saman til Danmerkur til að hitta ættingja þar, svo og heimsókn Sigríðar til mín og fjölskyldunnar um páska 1983, en þá vorum við búsett í London, og þá ferðuðumst við tölu- vert um Suður-England. Þessi ferð var henni kærkomin hvíld og tilbreyt- ing því Karl hafði látist í desember ár- ið áður, eftir meira en 10 ára heilsu- leysi og hafði hún annast hann heima allan þann tíma, með smá hléum vegna svokallaðra hvíldarinnlagna. Benedikt, manni mínum, var mjög vel tekið á heimili þeirra hjóna og dætur okkar eiga af þeim og heimili þeirra góðar minningar, sérstaklega í tengslum við upphaf jólahalds, þar sem við höfðum þann sið að heim- sækja þau á Þorláksmessu ár hvert og fengum þá sérstakar móttökur. Við þökkum góðar minningar og öll sendum við afkomendum samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Sigríðar Vil- hjálmsdóttur. Edda Hermannsdóttir. Kveðja frá Thorvaldsensfélaginu Traust og góð félagskona er nú kvödd. Sigríður gekk í Thorvaldsens- félagið árið 1961 og vann félaginu sínu vel. Hún var gjöful á tíma sinn og átti alltaf lausa stund er bregðast þurfti við. Um tíma hafði hún umsjón með rekstri Thorvaldsensbasarsins og átti í fjölmörg ár sína föstu starfsdaga þar. Sigríður var glaðsinna og ljúf í viðmóti og félagskonur nutu þess að vinna með henni. Margt annað starf- aði hún fyrir félagið er laut að fjár- öflun og félagsmálum. Nú seinni árin spurði hún alltaf frétta af starfsemi félagsins og bað fyrir kveðjur og núna í byrjun aprílmánaðar bað hún síðast fyrir kveðju til félagskvenna. Thorvaldsensfélagið á Sigríði mikið að þakka, góð störf, tryggð og hlýhug í yfir 40 ár og við félagskonur minn- umst hennar með þakklæti og virð- ingu. ✝ Svavar Kristins-son fæddist á Siglufirði 28. mars 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 8. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristinn Björnsson, gull- og silfursmið- ur, f. 19. apríl 1879, d. 6. desember 1952, og Ragnheiður Jó- hanna Jónsdóttir bú- stýra, f. 17. desem- ber 1884, d. 17. janúar 1969. Systkini Svavars voru: Guðrún Jónína Ólöf Kristinsdóttir, verkakona á Siglufirði, f. 5. maí 1909, d. 8. desember 1992, og Jón Sveinsson Kristinsson, gullsmið- ur á Siglufirði, f. 31. desember 1924, d. 5. apríl 1955. Guðrún var ógift. Jón var kvæntur Guð- mundu Júlíusdóttur, f. 12. mars 1922, d. 7. september 1995, börn þeirra: Júlíus, f. 3. febrúar 1951, Jóhann, f. 1. júní 1952, Jónína Kristín, f. 12. nóvember 1955. Fyrir átti Guðmunda Hafdísi Ólafsson, f. 13. mars 1942. Svavar var ókvæntur og barn- laus. Hann lærði úr- smíði hjá Bjarna Jónssyni úrsmið á Akureyri og lauk prófi frá Iðnskólan- um á Akureyri 1946. Fyrsta árið starfaði hann hjá læriföður sínum og einnig á Siglufirði þar sem hann hafði verk- stæði ásamt föður sínum og bróður en þeir voru báðir gullsmiðir. Eftir það var hann á Siglufirði þar sem þeir ráku úra- og gullsmíðaverk- stæði ásamt verslun. Eftir fráfall þeirra, eða frá 1955, var Svavar einn með úrsmíðaverkstæði og verslun til ársins 1998. Svavar var til heimilis á Hvanneyrarbraut 50 á Siglufirði, en síðustu árin dvaldi hann á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Útför Svavars verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Látinn er á Siglufirði frændi minn Svavar Kristinsson úrsmiður. Við andlát hans leitar hugurinn aftur og rifjast þá upp veiði- og berjaferðir inn í Fljót og fram í fjörð eins og það er kallað á Siglu- firði. En á göngu frammi í firði átti Svavar margar sínar bestu stundir og ef hann varð þreyttur lagði hann sig bara í grasið og dottaði smá stund og safnaði kröftum, kom svo eins og nýr maður til baka eftir góð- an dag. Hann átti VW Bjöllu og fékk ég ungur að sitja undir stýri fram á gamla flugvelli en lögð var áhersla á að fara gætilega svo ekkert kæmi nú fyrir. Það var gaman að fara til hans niður á verkstæði og fylgjast með og jafnvel að taka þátt í viðgerðum á úrum, skipta um rafhlöður og ólar, gera box og kassa undir úr og skart- gripi eða sendast eitthvað fyrir hann. Þegar maður fór frá honum var maður oft með pening eða nammi í vasanum að launum. Nú árin liðu og ég fluttist frá Siglufirði, stofnaði fjölskyldu og eignaðist tvær dætur. Þær áttu margar góðar stundir með honum því hann var alltaf til í að spila og leika við þær og ekki skemmdi nú að hann átti alltaf gos, kex og nammi. Þetta eru mjög eftirminnilegar stundir fyrir þær því ekki vantaði hann þolinmæðina. Þegar við fjölskyldan komum til Siglufjarðar var yfirleitt farinn bíl- túr fram í fjörð og út í gat. Ég man eftir ferðum yfir Skarðið og rifjaði hann upp ýmsar sögur frá því hann var ungur. Áður en bíltúrnum lauk var oft keyptur ís en það var í miklu uppáhaldi hjá honum. Það er svo gott að fá sér bíltúr og ís sagði hann þegar við fórum nú síðasta haust í bíltúr og áttum góða kvöldstund saman. Nú seinni árin talaði hann mjög mikið um fyrirhuguð jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Sá hann þar mikla möguleika og ég held að ein af hans heitari óskum hafi verið að upplifa að byrjað yrði á þeim áður en dagar hans yrðu tald- ir, að ég tali nú ekki um að hann næði að fara í gegnum göngin. Það var honum mikið kappsmál að þetta verkefni yrði að veruleika. Það var mjög gaman að vera í kringum Svavar því hann var mikill húmoristi, það var sjálfsagt eigin- leiki sem margir urðu ekki vitni að, því hann virtist mörgum örugglega dulur en í samvistum við okkur sem þekktum hann lék hann á als oddi. Það háði honum mikið í mörg ár hve lélega sjón hann hafði og oft þekkti hann fólk ekki á götu fyrr en hann var kominn alveg upp að því. Sjálf- sagt hefur hann gengið fram hjá fólki án þess að heilsa en það var örugglega ekki af því að hann vildi ekki tala við það heldur sá hann það einfaldlega ekki. Margar ferðir voru farnar til Akureyrar til augn- læknis og var þá alltaf farið í heim- sókn til úrsmiðanna hér í bæ, því hann hafði gaman af því að skoða úrvalið hjá þeim og spjalla við þá. En fyrir um það bil tveimur árum kom hann hingað til Akureyrar og fór í augnaðgerð sem breytti miklu fyrir hann. Þá var hann hjá okkur í nokkra daga á eftir meðan hann var að jafna sig. Það var mjög gaman að upplifa það með honum að geta fylgst með sjónvarpi og séð um- hverfið í nýju ljósi. Hann var mjög ánægður með árangurinn og sagði að þetta væri sér mikils virði. Um daginn sagði hann við móður mína að nú væri hann orðinn þreytt- ur og virtist vera tilbúinn að kveðja þetta líf. Hans síðustu orð um há- degisbil daginn sem hann lést: „Takk, þetta er orðið gott,“ eru að mörgu leyti einkennandi fyrir hann. Hann hlaut hægt andlát seinna um daginn haldandi í hönd móður minn- ar. En hann hélt oft í hönd hennar þegar hún var að hefja sitt líf, það var þeim báðum mikils virði. Góða ferð, kæri frændi, og takk fyrir mig, Jón Kristinn Sigurðsson. Svavar var frændi okkar sem bjó á Siglufirði, hann var alltaf svo góð- ur við okkur og bara yndislegur maður. Á hverjum degi þegar við fórum til Siglufjarðar þegar hann var ekki á sjúkrahúsinu fórum við í heimsókn til Svavars að spila ólsen ólsen eða löngu vitleysu. Honum fannst það mjög gaman. Á meðan önnur okkar var að spila var hin að lita í litabók eða púsla. Það var allt- af gaman að vera hjá Svavari, við fengum alltaf gos og kex hjá honum. Það er erfitt fyrir okkur að taka því að hann Svavar gamli sé dáinn, því það var svona fastur liður þegar maður fór á Sigló að fara í heimsókn til hans en núna verður það ekki oft- ar. Núna líður honum mjög vel á himnum hjá öllum góðu englunum og er ekkert veikur lengur. Guð tek- ur eflaust vel á móti honum vegna þess að hann var svo góður maður. Okkur þótti mjög vænt um hann og munum aldrei gleyma honum. Hér eru tvær bænir til hans: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Vertu, Guð faðir, faðir minn Í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Kveðja. Karen Sif og Guðrún Jónína Jónsdætur. Kveðja frá Úrsmiðafélagi Íslands Hógvær og tryggur félagi okkar í Úrsmiðafélagi Íslands, Svavar Kristinsson, er nú fallinn frá eftir farsælan starfsferil á æskustöðvum sínum á Siglufirði. Svavar var fædd- ur á fyrri hluta síðustu aldar sem ól af sér fagrar hugsjónir sem blönd- uðust síðan draumum nýrrar aldar um öflugar framfarir í atvinnu- menningu þjóðarinnar. Trú á fram- tíðina og hugdirfska nýrrar aldar veittu lífi og þjóðmenningu svipmót sitt og ólu af sér hræringar og vöxt. Úti í hinum stóra heimi er iðnsagan löng og stórbrotin. Hér á Íslandi fékk sú saga þó vart byr undir vængi sína fyrr en með þeim fram- förum sem urðu við dagsbrún síð- ustu aldar. Af þessari kynslóð var Svavar Kristinsson. Hann fæddist á fyrri hluta aldar og kveður nú heiminn þegar röðull nýrrar aldar er að rísa, sem enn sem fyrr ber með sér nýja drauma og vonir þjóð og menningu til heilla og farsældar. Svavar mundi því tímana tvenna og upplifði í reynd eitt mesta framfara- og um- rótsskeið í sögu lands og þjóðar á hraðfleygri öld. Grunnlögmál iðn- greinar okkar hafa staðið óhögguð mjög lengi, en samt hafa átt sér stað svo umfangsmiklar breytingar og framfarir innan greinarinnar um daga Svavars að jafnvel afrakstur aldanna mörgu á undan eru aðeins sem daggardropi. Dagur er að kvöldi kominn. Við kveðjum mann sem var sannur fag- maður og stétt okkar til sóma. Hon- um var mikið í mun að viðskiptavin- ir hans færu sáttir á braut af hans fundi og að hann gæti sjálfur haft góða samvisku gagnvart þeim verk- efnum sem honum var trúað fyrir. Lífið er reynsluganga og sáning- artími. Það varðar miklu að stefnan á lífsleiðinni sé heilsteypt og að sá akur, sem sáð er í sé frjór og gefi af sér þroskaðan ávöxt. Til að svo megi verða varðar miklu að búa yfir hóg- værð og vera heilsteyptur og um- hyggjusamur fyrir því sem manni hefur verið trúað fyrir, en yfir þeim kostum bjó Svavar alla tíð í ríkum mæli. Nú þegar komið er að skilnaðar- stundu þökkum við fyrir líf og sam- fylgd í trausti þess að ljóðhending Einars Benediktssonar reynist sönn og rætist á Svavari: Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. Í æðri stjórnar hendi er það, sem heitt í hug þú barst. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) F.h. Úrsmiðafélags Íslands Bogi Karlsson. SVAVAR KRISTINSSON hún og afi yrðu saman á ný. Þín verð- ur sárlega saknað. Jóna Kristín, Hilda Elisabeth, Rósa Matthildur. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til Jónu ömmu á Hrafnistu. Amma var svo góð og vorum við dug- leg að faðma hana, því henni fannst það svo gott. Amma átti alltaf nammi í skápnum handa okkur. Núna er amma orðin engill og komin til himna- ríkis til Gunnars afa. Guttormur og Helga Rós. Kveðja frá Inner Wheel klúbbi Hafnarfjarðar Látin er á Hrafnistu í Hafnarfirði Jóna Kristín Ámundadóttir, ekkja Gunnars Á. Hjaltasonar, Rotary- manns til margra ára. Var Gunnar einnig landskunnur listamaður. Hún var ein af stofnfélögum Inner Wheel klúbbs Hafnarfjarðar sem er sjálfstæður félagsskapur eiginkvenna Rotarymanna. Það þarf bæði áhuga og dugnað til að koma slíkum félagsskap af stað, en margar hendur vinna gott verk og það gekk vel. Jóna tók þátt í því af áhuga og ræktarsemi allan þann tíma sem hún hafði heilsu og tækifæri til. Höfum við Inner Wheel konur not- ið ýmissar fræðslu og ómældrar ánægju á vegum klúbbsins okkar í næstum þrjá áratugi. Jóna var kjörin heiðursfélagi hjá Inner Wheel árið 2001. Við félagar hennar þökkum af al- hug störf hennar, fyrir að hafa notið vináttu hennar á liðnum árum og fyrir að hafa getað átt með henni góðar stundir þó heilsa hennar væri farin að bila. Fjölskyldu hennar biðjum við blessunar og minnumst þess að góðar minningar eru fjársjóður til framtíð- ar. Blessuð sé minning hennar. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Patreksfirði, sem lést á heimili sínu, Grundarhúsum 1, Reykjavík, 11. apríl s.l., verður jarðsungin frá Grensáskirkju miðvikudaginn 21. apríl kl. 15. Ingibjörg Guðrúnardóttir, Gunnlaugur Jónsson, Páll Ingibergsson, börn og barnabörn. Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR Dúa, Sörlaskjóli 60, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 17. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðbjörn Guðjónsson, Margrét Valdimarsdóttir, Sigurjón Yngvason, Steinunn Valdimarsdóttir, Steingrímur Dagbjartsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Unnur Valdimarsdóttir, Eyþór Benediktsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.