Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 33
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 og kl. 17.30 í neðri safnaðarsal. Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl. 20. Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafund- ur kl. 18 í safnaðarheimilinu. Bjarni Karlsson fjallar um 11. sporið. Allt fólk velkomið sem vill kynnast „Vinum í bata“. Umsjón hefur Arnheiður Magn- úsdóttir. Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur, söngur, leikir og föndur. Uppl. og skrán- ing í síma 511 1560. TTT-starf kl. 16.30. Starf fyrir 10–12 ára börn. Leik- ir, ferðir o.fl. Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN – starf með sjö til níu ára börnum í safn- aðarheimili kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Mánudaginn 19. apríl verður farin vorferð með eldri borg- ara til Skálholts og að Sólheimum. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 10 og komið til baka um kl. 17. Stúlknastarf fyrir 11– 12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk kl. 20–22. Umsjón Stefán Már Gunnlaugsson. Grafarvogskirkja. KFUK fyrir stúlkur á aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 17.30– 18.30 fyrir 7–9 ára. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16 ára og eldri kl. 20–22. Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf ætlað árg. 1990 og upp úr) á mánudög- um kl. 20–22. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Varmárskóla. Bæna- stund kl. 19.45. Al-anon fundur kl. 21. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30 æskulýðsstarf fatlaðra, eldri hópur. Helgistund og gott samfélag. Hulda Líney Magnúsdóttir æskulýðs- fulltrúi og sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 19.30 nærhópur. Lokaður hópur, auka- samvera og spjall í safnaðarheimili Landakirkju. Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30– 16.30. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heimilasamband. Allar konur velkomn- ar. Kl. 17 Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk. Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 20 bænastund. Beðið fyrir öllum innsend- um bænarefnum. Safnaðarstarf Suður spilar fjóra spaða og stendur frammi fyrir hittingi í öðrum slag. Settu þig í hans spor: Austur gefur; AV á hættu. Norður ♠Á965 ♥K752 ♦K4 ♣ÁD3 Suður ♠KDG10742 ♥4 ♦G105 ♣52 Vestur Norður Austur Suður -- -- Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil vesturs er hjarta- gosi. Sagnhafi dúkkar og vestur á slaginn. En hann spilar ekki hjarta áfram heldur litlum tígli. Hvað myndi lesandinn gera – hleypa á gosann eða stinga upp kóng? Vestur er góður spilari og gæti átt hvort heldur ás eða drottningu. Svo þetta er ágiskun. En ágiskun er af ýmsum toga. Stundum er hún blind og stundum má finna gild rök fyrir henni. Svo er til ágiskun þar sem maður vinnur þótt maður tapi! Þetta spil er af þeim toga. Suður á að fara upp með kónginn. Hann veit ekki hvorum megin ásinn er, en honum er rétt sama. Norður ♠Á965 ♥K752 ♦K4 ♣ÁD3 Vestur Austur ♠-- ♠83 ♥G1083 ♥ÁD95 ♦Á872 ♦D963 ♣G9874 ♣K106 Suður ♠KDG10742 ♥4 ♦G105 ♣52 Ef austur reynist eiga ásinn í tígli getur hann ekki verið með laufkóng- inn líka, því varla hefði hann passað í byrjun með ÁD í hjarta, tígulás og laufkóng. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Nýkomin sending af englamyndum á striga. Verð frá kr. 800 ENGLAMYNDIR Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ kl. 11-18 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ kl. 13-18. 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. g4 a6 7. g5 Rfd7 8. Be3 b5 9. a3 Rb6 10. Dg4 R8d7 11. f4 Bb7 12. 0-0-0 Hc8 13. g6 hxg6 Staðan kom upp á meist- aramóti Pétursborgar sem lauk fyrir skömmu. Sergey Solovjov (2.426) hafði hvítt gegn Maxim Matlakov (2.346). 14. Rxe6! fxe6 15. Dxg6+ Ke7 16. e5! De8 svartur hefði ekki heldur ráðið við hvítu sóknina eftir 16... d5 17. f5. 17. exd6+ Kd8 18. Dg5+ Rf6 19. Bxb6+ hvítur vinnur nú manninn til baka og held- ur sókn sinni áfram. 19... Kd7 20. Bg2 Bxg2 21. Dxg2 Hc6 22. Bd4 Dh5 23. Be5 Rg4 24. Dg1 Rxe5 25. Da7+ Kd8 26. Db8+ Kd7 27. Db7+ Kd8 28. fxe5 og svartur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.–2. Valery Loginov (2.516) og Valery Popov (2.580) 7 vinninga af 11 mögulegum. 3.4. Aleksei Lugovoi (2.554) og Vasily Yemelin (2.578) 6 v. 5.–7. Sergey Solovjov (2.426), Sergey Ionov (2.538) og Denis Yevseev (2.580) 5½ v. 8.–9. Sergey Klimov (2.520) og Maxim Matlakov (2.346) 4½ v. 10. Genrikh Chepuka- itis (2.413) 2½ v. 11. Denis Feofanov (2.281) 1 v. Tafl- félagið Hellir heldur eitt af sínum atkvöldum í dag og hefst það kl. 20. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 33 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefin/n og ábyrg/ ur og vilt hafa stjórn á hlut- unum í kringum þig. Þú hef- ur alla burði til að ná langt í lífinu en uppskerð oft árang- ur erfiðis þíns seint á lífsleið- inni. Nánustu sambönd þín verða í brennidepli á árinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að nota daginn til að huga að því hvernig þú getir bætt útlit þitt. Gerðu það að markmiði þínu að sýna öðrum þínar bestu hliðar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt þú sért ekki endilega trú- rækinn ertu trúuð/trúaður í hjarta þínu og kannt að meta fegurð lífsins. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft á mikilli tilbreytingu og örvun að halda. Til að eign- ast nýja vini þarftu fyrst og fremst að sýna öðrum vin- semd. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Notaðu daginn til að líta yfir farinn veg og spyrja sjálfa/n þig að því hvort þú viljir halda áfram á þeirri braut sem þú hefur verið á eða halda út á nýja braut í lífinu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert úrræðagóð/ur og átt auðvelt með að finna not fyrir hlutina. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er mikilvægt að nota þau tækifæri sem við fáum og þann auð sem við höfum aðgang að á sem skynsamlegstan hátt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur gott tækifæri til þess að skoða samskipti þín við aðra. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þú stofnir til deilna af litlu sem engu tilefni. Finn- urðu til samkenndar með fólk- inu í kringum þig? Reyndu að opna þig fyrir umhverfi þínu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Gefðu þér tíma til að bæta vinnuvenjur þínar. Ef þú hefur gaman af vinnunni þarftu aldr- ei að láta þig hafa það að fara í vinnuna heldur gerirðu það með glöðu geði. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú leggur hart að þér bæði í leik og starfi. Gleymdu ekki að gefa þér tíma til að njóta þess sem þú ert að gera. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það skiptir þig miklu máli að finna til öryggiskenndar. Leit- aðu leiða til að bæta líðan þína inni á heimilinu og til að ýta undir gleði og hamingju innan fjölskyldunnar Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú munt verða í óvenjumiklum samskiptum við aðra næstu sex vikurnar. Þér finnst þú hafa eitthvað að segja og þetta er rétti tíminn til þess. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft að vita hvað þú vilt áð- ur en þú reynir að höndla það. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þú vitir í raun hvað það er sem þú vilt. Hvað er það sem mun veita þér hamingju? Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FERÐBÚINN Ég kom í þetta hús á horfnum morgni, það hrynur senn. Ég tók mér sjálfur sæti út í horni, og sit þar enn. Hver amast við þó erindi ég fresti, það ei var brýnt? Og ef ég bar með eitthvert veganesti, þá er það týnt. Ég hefi verið hússins eini gestur í hálfa öld. Nú stend ég upp og staulast áfram vestur. Já, strax í kvöld. Kristján frá Djúpalæk LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 19. apr- íl, er sextug Finney Aníta Finnbogadóttir, Gnitaheiði 8a, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Ólafur Ágúst Theódórsson. Þau eru stödd erlendis. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík       Komdu bara, ég held að þau séu með gesti. Ég heyri að mamma er að hella sér yfir pabba. En þetta var ódýrasta burðardýrið á mark- aðnum! MEÐ MORGUNKAFFINU KIRKJUSTARF Kyrrðarstundir verða í Graf- arvogskirkju út maí alla miðviku- daga í hádeginu kl. 12. Fyrirbænir og altarisganga. Séra Vigfús Þór Árnason, séra Anna Sigríður Pálsdóttir, séra Bjarni Þór Bjarnason og séra Lena Rós Matthíasdóttir. Léttur hádegisverður á vægu verði að stund lokinni. Morgunblaðið/Sverrir Kyrrðarstundir í Grafarvogskirkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.