Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 35
EINTAK af þögulli kvikmynd frá
árinu 1922 með Rudolph Valentino
og Gloriu Swanson í aðal-
hlutverkum, fannst í Hollandi á
dögunum. Þar er um að ræða eina
eintakið sem vitað er um af mynd-
inni, sem nefnist Beyond the
Rocks.
Einnig er þetta eina myndin,
sem þau Valentino og Swanson,
tvær af skærustu kvikmynda-
stjörnunum á þessum tíma, léku
saman í, svo hér er um að ræða
gríðarlega merkilegan fund.
Að sögn Jan van den Brink,
sagnfræðings hjá kvikmyndasafn-
inu í Amsterdam var myndin í
eigu kvikmyndasafnara í Haarlem
en eftir dauða hans fékk safnið
eigur hans í hendur. Brink sagði
að safnarinn hefði óttast að mynd-
inni yrði stolið, og því hafi hann
komið spólunum fyrir á mismun-
andi stöðum. „Við þurftum bók-
staflega að opna um 2000 filmu-
hylki til að komast að raun um
hvað var í þeim.“
Beyond the Rocks var tutt-
ugasta og fjórða myndin, sem Val-
entino gerði en alls lék hann í
þrjátíu og tveimur kvikmyndum.
Hann lést árið 1926, aðeins þrjátíu
og eins árs að aldri. Hollenska
sjónvarpið sýndi í gær atriði úr
myndinni þar sem Valentino sést
bjarga Swanson frá drukknum.
Myndin fjallar um konu, sem neyð-
ist til að giftast sér eldri manni en
verður ástfangin af Bracondale lá-
varði, sem Valentino leikur. Mynd-
in endar með því að eiginmaðurinn
deyr og elskendurnir ná saman.
Verið er að gera við myndina og
er gert ráð fyrir að hún verði sýnd
í fullri lengd á næsta ári, en texti
hennar er á hollensku.
Rudolph Valentino þótti gríðarlega þokkafullur
ungur maður og olli dauði hans, fyrir aldur fram,
mörgum ungum aðdáendum miklum harmi.
Valentino
heillar á ný
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 35
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 6.Með íslensku tali
Fyndnasta mynd ársins!
2 vikur á toppnum í USA!
Upplifðu fyrsta
stefnumótið...endalaust!
Sýnd kl.8 og 10.15.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd
allra tíma
Vinsælasta
myndin
á Íslandi!
Til að tryggja réttan dóm
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman,
Dustin Hoffman og Rachel Weisz
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Kvikmyndir.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
3
8
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
„Frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Vinsælasta
myndin
á Íslandi!
GRAND Rokk minnti helst á
þungarokksklúbb í Prag á fimmtu-
dagskvöldið. Kolniðamyrkur inni og úr
hátölurum djöfullegur niður. Stemn-
ingin róleg og „karlmannleg“, um 90%
gesta síðhærðir og í svörtum hljóm-
sveitabolum, merktum hljómsveitum
eins og Darkthrone, Pain of Salvation,
Pig Destroyer, Hatebreed o.s.frv. (fyr-
ir utan einn blaðamann sem var í
bláum „Finding Nemo“ bol). Semsagt,
nær fullkomin umgjörð utan um það
sem koma skyldi.
Þetta var kvöld nettrar nostalgíu.
Fyrir marga ábyggilega kærkomið frí
frá harðkjarnarokkinu. Exhumed
standa nefnilega föstum fótum í sí-
gildu, hörðu þungarokki bæði að hætti
„thrash“ sveita eins og fyrri tíma
Testament og Exodus en einnig
„grindcore“-goða eins og Carcass og ...
já, eiginlega bara Carcass. Klæðaburð-
ur og fas meðlima laut svipuðum lög-
málum, forsöngvarinn hefði t.d. smell-
passað inn í Kreator, ca. árið 1987!
Einn af kostum Exhumed - og þeir
eru nokkrir - er að þeir taka sig ekki
of alvarlega. Það var hressandi gleði í
bandinu sem smitaði út frá sér. Sviðs-
framkoma mjög skemmtileg, sérstak-
lega átti gítarleikarinn með mottu-
hárið (sá sem var ber að ofan) litríka
spretti.Það var líka snilld ð heyra tón-
listina sem þeir félagar spiluðu í há-
tölurunum áður en þeir stigu á svið.
Hart rapp var það heillin og auðsætt
að Exhumed-liðar hugsa út fyrir
rammann, þrátt fyrir greinilega holl-
ustu þeirra við sígilt þungarokk.
Exhumed spila innyflarokk („gore-
metal“) þar sem textar snúast um inn-
yfli, blóð og viðlíka subbugang. Það
mætti líka kalla þetta „splatterrokk“
og við erum að tala um lagatitla eins
og „Dinnertime in the Morgue“, „Per-
verse Innard Infestiation“ og „In the
Name of Gore“. Já, og Exhumed þýð-
ir að grafa upp lík.
En höfum það á hreinu að þetta er
allt undir hatti grallaragrínsins. Eins
og svo oft með svona hluti þá voru
meðlimir einstaklega kurteisir og
buðu af sér góðan þokka. Það er
merkilegt að þeir sem stunda dauða-
rokk hvað harðast eru iðulega lág-
mæltir séntilmenn. Þannig að það var
ekkert verið að spýja blóði og enginn
djöfulgangur heldur (þeim þörfum er
hægt að fullnægja á kvikmyndinni
Píslarsaga Krists. Þar erum við að
tala um „gore“!).
Exhumed hafa þróast á skemmti-
legan hátt frá því að fyrsta platan,
Gore Metal, kom út árið 1998. Sveitin
hefur tekið stökk frá því að vera einnar
mínútu, hratt og hrátt „grindcore“
band yfir í öllu margbrotnari sveit en
lögin á nýjustu plötunni, Anatomy is
Destiny, sem út kom í fyrra, eru eins-
konar „mini-sinfóníur“ með miklum
skiptingum og jafnan frábæru „grúví“.
Áheyrendur fengu að kynnast báðum
þessum hliðum á tónleikunum.
Exhumed voru með „töltið“ á
hreinu, þegar þeir læstu sig í „grúvið“
var engu líkara en hópur stóðhesta
væri að brokka eftir skeiðvelli. Einnig
er sveitin farin að reyna sig við tvígít-
arleik að hætti Iron Maiden sem ein-
mitt Carcass - frummynd sveitarinnar
- tók traustatökum á síðustu tveimur
plötum sínum, Heartwork og Swan-
song.
Allt í allt voru þetta fínir tónleikar,
þó ekki stórkostlegir. Exhumed er
kannski ekki allra frumlegasta sveitin
í bransanum en er að gera sitt af heil-
indum og fagmennsku. Sveitin er
jafnframt vaxandi og það verður at-
hyglisvert að fylgjast með þeim
næstu misserin. „Gamli“ skólinn gat
alltént labbað sáttur út í næturrökkr-
ið að uppgreftri loknum.
Í blóði og í anda
Hljómleikar
GRAND ROKK
Exhumed
Tónleikar með bandarísku innyflarokk-
sveitinni Exhumed. Changer og For-
garður helvítis hituðu upp. Fimmtudags-
kvöldið 15. apríl 2004.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sviðsframkoma Exhumed var hressandi.
Tónlist
Ævintýri Mahownys
(Owning Mahowny)
Drama
Kanada 2003. Myndform VHS. Bönnuð
innan 16 ára. (104 mín.) Leikstjórn Rich-
ard Kwietniowski
Aðalhlutverk Phillip Seymour Hoffman,
Minnie Driver, John Hurt.
ÞESSI ágæta kanadíska mynd
byggist á sönnum atburðum og
segir frá stærsta bankafjárdrætti
sem einstaklingur
hefur framið í
kanadískri sögu.
Hinn oftast nær
magnaði Phillip
Seymour Hoffman
leikur bankastjór-
ann Dan Mahow-
ney sem sekkur
svo djúpt í sýki
spilafíknarinnar
að hann neyðist til að draga sér
svimandi háar fjárhæðir úr bank-
anum án þess að nokkur taki eftir.
Eins og staða hans í bankanum
gefur til kynna er þessi ólögulegi
ungi maður fluggáfaður og hefur
því sannfært sjálfan sig um að
hann geti sigrast á líkindafræð-
unum á bak við fjárhættuspilin. Og
framan af lítur líka út fyrir að
honum sé að takast þetta langsótta
ætlunarverk sitt.
Hún er sem fyrr segir áhuga-
verð þessi saga og Seymour Hoff-
man gerir hlutverki sínu fín skil,
enda sérfræðingur í að leika sér-
lundaða og einræna náunga. En
um leið er framvindan út og suður,
á að vera hröð og Scorsese-skotin
en er bara út og suður, alltof mik-
ill grautur, sem er vænn galli á
annars áhugaverðri mynd. Myndbönd
Leikur
með
líkur
Skarphéðinn Guðmundsson