Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 36

Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 36
MERKILEGUM hluta sögu sjónvarps á Íslandi lýkur í kvöld þegar síðasti þátturinn úr röðinni „Nýj- asta tækni og vísindi“ verður sendur út. Þátturinn hefur nú verið sýndur í Sjónvarpinu frá árinu 1967, en það var Örnólfur Thorlacius sem sá einn um hann fyrstu sjö árin. Örnólfur hafði verið áður með þátt í Útvarpinu sem fjallaði um tækni og vísindi. Á öðru ári Sjón- varpsins var hann síðan beðinn um að taka að sér þátt sem hét Nýjasta tækni og vísindi. Árið 1974 kom Sigurður H. Richter til liðs við hann og sáu þeir saman um þáttinn næstu sex árin, eða til 1980, en þá var Örnólfur skipaður rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð. Hefur Sigurður séð um þáttinn síðan, eða í tuttugu og fjögur ár. Ljóst er að „Nýjasta tækni og vísindi“ er elsti dagskrárliður Sjón- varpsins, fyrir utan fréttir. Fræðsluefni víða að „Mér fannst að nú í vor væru heppileg tímamót, þar sem ég væri búinn að sjá um þáttinn í þrjátíu ár,“ segir Sigurður H. Richter dýrafræðingur sem undanfarna áratugi hefur miðlað rannsóknum og uppfinningum vísinda- manna við háskóla og aðr- ar vísindastofnanir víða um heim, inn í stofur lands- manna. Á þessum þrjátíu og sjö árum sem þættirnir hafa verið í sýningum hafa margir spennandi hlutir birst á skjánum í boði þeirra Sigurðar og Örnólfs. „Þar má nefna tölvubylt- inguna sem dæmi, en fyrir þrjátíu og sjö árum voru engar borð- og heimilis- tölvur til. Það er spenn- andi að fylgjast með þessu öllu, til dæmis eins og geimferðum og geimvísind- um og hinu og þessu sem hefur komið fram í gegn- um árin. Svo er fullt af öðrum smærri uppfinning- um og tækniframförum sem eru mjög spennandi,“ segir Sigurður, sem segir ekki einungis uppfinningar hafa komið í þáttunum, heldur einnig fræðslu- myndir almennt um hin ýmsu fræðasvið, allt frá fornleifauppgröftum upp í stjarnfræði og hitt og þetta sem hefur verið fjallað um í gegnum tíðina. „Við höfum fengið myndir víða að úr heiminum um fjölbreytilegustu viðfangs- efni.“ Íslendingar hafa í gegn- um tíðina þust að skjánum þegar lag þáttarins hljóm- ar. Nokkrum sinnum hefur þó verið skipt um lag þátt- arins. Undanfarin ár hefur lag þáttarins verið eftir ís- lensku sveitina TWorld, en það var samið sérstaklega fyrir þáttinn. Undanfarin ár hefur þátturinn, og Sigurður sjálfur, verið reglulegur skotspónn æringjanna á Stöðinni og segist Sigurður hafa haft gaman að því í gegnum árin. „Það má eig- inlega segja það að ég muni sakna þess, þetta hefur verið græskulaust gaman og ég hef haft mjög gaman að því,“ segir Sig- urður að lokum. Nýjasta tækni og vísindi rennur sitt skeið á enda Elsti þáttur Sjónvarpsins kveður Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurður H. Richter kveður nú sjónvarpsáhorf- endur eftir þrjátíu ára samveru. Hann kveðst munu sakna gríns Spaugstofumanna. 36 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára AKUREYRI kl. 8. B.i.12 ára EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 og 10. Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og seiðandi ferðalag. Viggo Mortenson í magnaðri ævintýramynd byggð á sannri sögu! KRINGLAN Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“ eins og allir aðrir. Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um forsetadóttur í ævintýraleit!  Kvikmyndir.is Hann mun gera allt til að verða þú! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Kl. 5.40 og 8. Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og seiðandi ferðalag. Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd byggð á sannri sögu! Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10. B.i. 12 ára. „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL  SV. MBL Sýnd kl. 6. Með ísl taliSýnd kl. 10.Sýnd kl. 6 og 8. VG. DV  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 6 og 8.  Kvikmyndir.is FRANSKA kvikmyndastjarnan Cather- ine Deneuve hefur gefið út bók um ævi sína en bókin, sem heitir „Í eigin skugga,“ byggist á dagbókum sem hún skrifaði á meðan á gerð nokkurra kvik- mynda hennar stóð. Deneuve birtir m.a. minnispunkta sem hún skrifaði meðan á gerð Myrkradansarans stóð, og segir að hegðun Bjarkar Guðmundsdóttur hafi verið óskynsamleg og stjórnlaus. Bókin hefur fengið slaka dóma í Frakklandi og segir blaðið Le Figaro m.a. að hún sé fyrsta feilspor leikkonunnar. „Strax á fyrstu blaðsíðunum er goð- sögnin afhjúpuð. Kona, sem við höfum talið vera gáfaða, fágaða, með afburða dómgreind og mótaðar skoðanir birtist sem blaðrandi afgreiðslustúlka sem virð- ist telja að heimurinn og kvikmyndirnar snúist um hana,“ segir François Lelord, gagnrýnandi blaðsins um bók Deneuve, sem hefur lifað nokkuð leyndu lífi og haldið persónulegu lífi sínu utan sviðs- ljóss fjölmiðlanna. „Við hliðina á henni er Marilyn Monroe raunverulegur hugs- uður.“ Bók Denevue fjallar um sex kvikmynd- ir. Sú fyrsta er Belle de Jour, sem var gerð árið 1966 og skaut Denevue upp á stjörnuhimininn og sú síðasta er Myrkra- dansarinn. Allar voru myndirnar gerðar utan Frakklands og varð það til þess að Deneuve hélt dagbók meðan á gerð myndanna stóð. Í myndinni Belle de Jour segist De- neuve hafa verið misnotuð og beruð, sér- staklega líkamlega. „Ég þjáðist hræði- lega. Það voru tímabil sem ég fékk þá tilfinningu að ég væri algjörlega misnot- uð,“ segir Denevue, sem var tuttugu og þriggja ára þegar hún lék í myndinni. Hún segist þó hafa horft á myndina ný- lega og fundist hún „afar falleg.“ Deneuve bað leikstjórann Lars von Trier um að fá að vera með í Myrkra- dansaranum en hún dáðist mjög að mynd hans, Breaking The Waves. Deneuve segir að Björk hafi krafist þess að fara yfir öll tónlistaratriði myndarinnar áður en þau voru tekin, og þannig hafi hún sýnt framleiðendunum og dönsurum til- litsleysi. „Loks tókst að ná samkomulagi við þessa óskynsömu og stjórnlausu konu. Í mínum huga var hún búin að vera. Ekkert mun nokkurn tímann bæta þessi sambandsslit.“ Að sögn Deneuve stöðvaði Björk tökur myndarinnar í marga daga og hótaði jafnvel að borga fyrir að hætt yrði við allt verkið. Eftir það „kom hún aftur eins og ekkert hefði ískorist, hvorki orð til að útskýra nokk- urn skapaðan hlut, né afsökunarbeiðni til mín eða nokkurs annars. [...] Það er ekki til neins að búast við rökréttri hegðun. Það verður að taka henni eins og hún er, villt og einstök.“ Deneuve hefur fram að þessu talað hlýlega um Björk. Á blaðamannafundi í Cannes í maí árið 2000, eftir frumsýningu Myrkradansarans, sagði Deneuve m.a. að Björk væri dásamleg manneskja: „Hún getur ekki leikið, hún getur bara verið, og hún þjáðist svo að hún gat ekki jafnað sig [...] stundum hljóp hún í burtu. En það var vegna þess hve góð frammistaða hennar var. Þessir hlutir eru ekki neitt neitt [...] Andinn við tökurnar var dásam- legur,“ sagði Deneuve þá meðal annars. Sú persóna sem kemur þó hvað oftast fram í bók Deneuve er eldri systir henn- ar, leikkonan Francoise Dorléac, sem lést í bílslysi, 25 ára að aldri. Reuters Björk Guðmundsdóttir kvaðst sjálf ekki par hrifin af samstarf- inu við Lars von Trier. Reuters Franska leikkonan Catherine De- neuve segist ekki hress með fram- komu Bjarkar Guðmundsdóttur. Frönsk kvikmyndastjarna talar illa um Björk Óskynsamleg og stjórnlaus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.