Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 37

Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 37
GLÆPAVERK, sýning á glæpasafni Arn- aldar Indriðasonar var opnuð í Gerðu- bergi á laugardag og gat þar að líta marga forvitnilega sjón. Vettvangur ým- issa glæpa var þar endurskapaður auk þess sem ýmis glæpatól og -tæki voru til sýnis. Sýningin var opnuð samhliða dag- skrá, þar sem fjallað var um verk Arn- aldar og þá glæpi sem þau taka fyrir. Fjöldi manns sótti glæpasýninguna og mæltist hún vel fyrir og þótti gefa góða mynd af ýmsum hliðum undirheimanna, enda er hún gerð í góðu samstarfi við lögregluna, sem tók virkan þátt í henni. Meðal sýningargripa var morðvett- vangurinn í bókinni Mýrinni auk þess sem farið var í gegnum starfsaðferðir tæknideildar lögreglunnar eins og um raunverulegan viðburð væri að ræða. M.a. var sýnt hvernig finna á fingraför, taka á sýni og allt sem fylgir rannsókn á morðmáli. Sýningin stendur til níunda maí og er opin alla daga. Aðgangur er ókeypis. Arnaldur ræðir við gesti sem voru að sögn afar ánæg ðir með sýninguna . Marga áhugaverðamuni ber fyrir augusýningargesta. Glæpasýning Arnalds Indriðasonar opnar í Gerðubergi Skyggnst í undirheimana Morgunblaðið/Júlíus Glæpasöguþing í Gerðu- bergi. Lögreglan í Reykja- vík setti glæpavettvang úr bókinni Mýrin eftir Arnald Indriðason á svið. Morgunblaðið/Árn i Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 37 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.15. Ekki eiga við hattinn hans AKUREYRI Kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með ísl tali Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið ÁLFABAKKI Sýnd kl.4. Ísl texti AKUREYRI Kl. 6. Með ísl tali ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8, og 10.45 KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára Rafmagnaður erótískur tryllir KEFLAVÍK kl. 8 og 10. B.i.16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 10.10. B.i.16 ára KRINGLAN Sýnd kl. 6 og 8. Með ensku tali / Sýnd kl. 6. Með ísl tali Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. Hann mun gera allt til að verða þú! Kötturinn með hattinn  SV. MBL Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“ eins og allir aðrir. Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um forsetadóttur í ævintýraleit! AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára Án efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur í bíó. „The Dawn of the Dead“ er hressandi hryllingur, sannkölluð himnasending. Þá er húmorinn aldrei langt undan. Semsagt, eðalstöff. ” Þ.Þ. Fréttablaðið. Stranglega bönnuð innan 16 ára.  SV. MBL  VE. DV JOSS STONE / The Soul Sessions Auðvitað er eitthvað bogið við augljósan tilgang með þessari plötu því hann er náttúrlega í aðra röndina sýndarmennska, að segja ligga – ligga – lái – sjáiði hvað við erum búnir að uppgötva mikið undrabarn – sextán ára breska stelpu, hvíta á hörund sem syngur eins og full- þroskuð kolsvört sálarsöngkona frá Detroit. Málið er nefnilega það að þessi plata átti aldrei að verða til, hugmyndin að henni kviknaði þegar verið var að leggja drögin að hefðbundinni poppplötu. En eitt leiddi af öðru og allt í einu voru tilbúnir tíu sígildir sálarstandardar, hljóðritaðir á gamla lífræna mátann með aðstoð sénía á borð við Questlove úr The Roots. Og hvernig er hægt að láta aðra eins rödd og heyra má í upp- hafslaginu dásamlega „The Chokin’ Kind“ angra sig? Útkoman er því frábær frumraun stórefnilegrar söngkonu. En ansi er maður hræddur um að erfitt verði að fylgja henni eftir með góðu móti. DIVINE COMEDY / Absent Friends Það skiptir einu hversu voðalega vonsvikinn hin sér- lundaði Neil Hannon var með Regeneration og þær dræmu viðtökur sem hún fékk. Sú plata er og verður ein sú besta sem gerð hefur verið síðustu árin. Þær eru því ávallt miklar kröfurnar sem maður gerir til mannsins og því miður nær hann ekki alveg að standa undir þeim að þessu sinni. Absent Friends markar að mörgu leyti afturhvarf til fyrstu platnanna, að því leitinu til að nú er Hannon aftur farin að gera allt, semja, leika og hljóðfæri og stjórna upptökum. Og enn er hann með Scott Wal- ker og Michael Nyman á heilanum. Sem er gott og blessað ef lögin standa undir því, en það gerir bara ekki nema rétt rúmlega helmingur þessarar 11 laga plötu, en þau eru reyndar alveg mögnuð, Hannon í hörku ham.  ILYA / They Died For Beauty Margt af því sem þessi San Diego-sveit er að gera á þessari annarri plötu sinni virkar mjög vel. Tónlistin er alveg ógurlega dramatísk. Svona gáfulegt kaffihúsa-tripp-hopp með djössuðu bíótónlistarívafi í anda sjö- unda áratugarins. Einhvers konar Vaya Con Dios nýrrar aldar. En um leið virkar þetta full mikið of eitt- hvað – of gáfulegt, of svalt. Fyrir vikið verður platan á köflum hreinlega hálf leiðinleg og halló.  THE CORAL / Nightfreak and the Sons of Becker Jafnvel þótt þessi plata eigi ekkert að vera alvöru stór plata heldur bara stuttskífa gefin út í takmörk- uðu upplagi – svona til að sópa úr hornunum síðustu lögunum sem urðu útundan á síðustu plötum, þá er samt alveg hægt að líta á hans sem góða og holla lexíu um að jafn- vel hljómsveitir sem eiga eina af betri plötum síðasta árs, stíga líka feilspor ef þær vanda sig ekki og sýna ekki fyllsta vandlæti. Sem mikill Coral-unnandi þá verður þessi ellefu laga leyfaplata að teljast viss vonbrigði því alltaf er maður jú að bíða eftir næstu Smiths-urum, sem geta bara dælt og dælt út plötum án þess að stíga feilspor. Erlendar plötur Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.