Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.2001, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. APRÍL 2001 9
hhhhhhhrezzzt fólk
& zmelllið & einga takk viðk
væmni tikk blezzaður takk
tu ðí ekki sona hátikklega (al
varan úr tikksku & gríni
ð alveg að gera innaf við mann)
: HEILAgur TIKKandi fer nú um zalinn
& z/kipt yfir til höfuðsins zjá yfir
gefin hjötru um næstu 20 aldir? z
uzz nú - ZUZZ :
með heilanum gerum við ha ha ha
með vörunum gerum við bla bla bla
einn 2 III ofurlítið zpor
einmitt er þannig veruleikur vor
LJÓÐRÝNI
ha/ha
ÍSAK HARÐARSON
h
a/ha birtist í veggfóðruðum óendanleika árið 1986 sem ásamt einskonar
höfuðlausn Gyrðis Elíassonar (1985) er eitthvert róttækasta dæmið um
konkretljóðagerð Íslandi. Áður en veggfóðraður óendanleiki er lesinn
er ágætt að hlusta á ,,hhhhhhhhrezzzt fólk & zmellið“ á FM 957 í heila
viku til að koma sér í stuð (með heilanum gerum við ha ha ha / með vör-
unum gerum við bla bla bla). Þá er auðveldara að setja sig í spor skálds-
ins og skilja brennandi óþolið sem er drifkraftur bókarinnar: ,,al varan
úr tikksku & grínið alveg að gera innaf við mann“. Ísak fer ómjúkum
höndum um móðurmálið í þessari bók, eða öllu heldur föðurmálið, stirðnað tungumál
yfirvalda og klisjur fjölmiðlanna sem hann togar og teygir og skrumskælir. Skáldið
ræðst á fastmótuð orðasambönd og snýr út úr þeim, afneitar röklegri setningaskipan,
víxlar orðum og breytir og ræðst þar með á veruleikann á bak við þau. Lesandinn leit-
ar að haldreipi, hann er neyddur til að nálgast orðin og ljóðin eins og lesblindur, hann
misskilur og oftúlkar og reynir að finna vit og merkingu í allri óreiðunni innan um
meinfyndnar orðsendingar frá ,,hræðsluskrifstofunni“, myndrænt orðaflæði og bull
sem getur verið margrætt, fyndið, snjallt eða einfaldlega merkingarlaust.
Veggfóðraður óendanleiki er eins og dystópía eða svört útópía, hún gerist í ,,arc-
tícu“, sem er einskonar ís-land þar sem tilfinningakuldinn nálgast alkul. Þarna býr
hann Óli (Ólinn sem sá sól í Gagni og gamani). Arctíca er land rökhyggju, tækni-
hyggju og skilgreiningaráráttu. Óli týnist í ,,mannbikinu“, verður ,,leikfangi tölvuspil-
anna“ í þessu yfirborðslega ,,masfélagi“. Óli glatar sakleysi bernskunnar. Hann sér
ekki lengur sól heldur ,,BRENNANDI ÓÐA SÓL Á HIMNI“.
Veggfóðraður óendanleiki kom út vorið 1986. Þá var enn sjónvarpslaust á fimmtu-
dögum, maður gat valið milli tveggja útvarpsstöðva en margir krakkar áttu Sinclair
Spectrum 48k leikjatölvur. Davíð var borgarstjóri, Jón Páll sterkasti maður heims,
Hófí fallegust í heimi og Vigdís var forseti. Margir hugsa eflaust til þessa tímabils með
nostalgískri eftirsjá. En veggfóðruðum óendanleika tekst að hefja sig yfir samtímann
sem hún deilir á með sinni ýktu og spámannlegu bölsýni og í rauninni á ádeila bók-
arinnar miklu betur við samtíma okkar en þann samtíma sem hún bregst við upp-
haflega.
A N D R I S N Æ R M A G N A S O N
Aftur og aftur
skal ég yrkja
sama ljóðið
uns það rís upp
og segir
nú get ég
Nú get ég
gefið þér líf.
PÁLMI ÖRN GUÐMUNDSSON
Ljóðin eru fengin úr ljóðabók Pálma Arnar (1949–1992), Á öðru plani, sem kemur
út á næstunni.
MÁTTUR LJÓÐSINS
Vinur minn kemur til mín
og segir
ég gleymi jafnóðum
því sem ég les
ég segi
hafðu ekki áhyggjur af því
þegar þú ferð á dansleik
manst þú ekki eftir öllu fólkinu
þegar heim er komið
en kannski sástu fallega stúlku
og manst eftir henni.
VINUR MINN
Á auðu malbiki
glampar
af ljósum
regn
logandi ljósastaurar
nótt
sofandi hús
á auðu malbiki
glampar
af ljósum
regn.
MALBIKUÐ NÓTT
Ég fæ mér viskí
í hátt glas
og heilmikið af vatni
það er þung sól
þunguð sól
og þegar nóttin kemur
hefur hún fætt son.
VISKÍ
Tónn sá
er ríkir í rökkrinu
er tónn
sem fjarlægist
hið liðna
til þess
að gefa straumi
byr,
hann er fullur efa
og lætur ekki sannfærast
þótt öldur hafsins
beri hann langan veg.
Í mörg ár
var ég á vitlausraspítala
barinn með svipu
og látinn skúra gólf
sagðist vera guð
og vildi láta krossfesta mig.
GUÐ