Morgunblaðið - 20.04.2004, Síða 1
Radd-
styrkur
María Jónsdóttir hlýtur kon-
unglegan söngstyrk Listir
Sjúkraliði
gerist málari
María Bára Hilmarsdóttir ákvað að láta
gamlan draum rætast Daglegt líf
Sækja í sig
veðrið
Umsögn um Úrkomu í grennd,
nýja plötu múm Fólk í fréttum
STOFNAÐ 1913 107. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BANDARÍKJAMENN tilkynntu í
gær að náðst hefði samkomulag við
leiðtoga íbúa í Fallujah í Írak sem
vonast er til að geti dregið úr
spennu í borginni en hörð átök geis-
uðu þar í síðustu viku. Samkomu-
lagið felur í sér að sveitir heima-
manna sinni öryggiseftirliti á götum
borgarinnar ásamt bandarískum
hermönnum, að þeim verði veitt
sakaruppgjöf sem afhenda Banda-
ríkjamönnum vopn sín og loks að
gildandi útgöngubann verði stytt
um tvær klukkustundir.
Dan Senor, talsmaður banda-
rísku landstjórnarinnar í Írak, sagði
á fréttamannafundi í Bagdad, þegar
hann tilkynnti um samkomulagið í
gær, að báðir aðilar hefðu heitið því
að reyna að tryggja að algert vopna-
hlé yrði haldið í Fallujah. Ekki er þó
í reynd vitað, að sögn BBC, hvort
leiðtogar íbúa í Fallujah hafa
nokkra stjórn á írösku andspyrnu-
mönnunum sem þar hafast við.
Negroponte fer til Bagdad
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur tilkynnt að John Negro-
ponte, fastafulltrúi Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum, verði
sendiherra Bandaríkjanna í Írak
þegar búið er að framselja völdin í
landinu í hendur heimamönnum 30.
júní nk. Þá er Bush sagður hafa sett
ofan í við Jose Zapatero, forsætis-
ráðherra Spánar, í gær en Zapatero
hefur ákveðið að kalla spænska her-
menn í Írak heim. Greindi Jose
Bono, varnarmálaráðherra Spánar,
frá því að hermennirnir yrðu komn-
ir heim innan sex vikna.
Bandaríkjamenn aflétta
umsátri um Fallujah
Bagdad, Washington, Madríd. AFP, AP.
Bush harmar/16
AÐDÁENDUR Diegos Maradona
söfnuðust í gær saman fyrir fram-
an sjúkrahúsið sem knattspyrnu-
kappinn fyrrverandi liggur nú á í
Buenos Aires í Argentínu og ósk-
uðu honum bata en Maradona
fékk alvarlegt hjartaáfall í gær-
morgun. Líðan Maradona, sem á
sínum tíma þótti allra hæfi-
leikaríkasti knattspyrnumaður í
veröldinni, var í gærkvöldi sögð
betri en hann var þó enn í önd-
unarvél. Maradona er aðeins 43
ára en hann hefur um árabil átt
við eiturlyfjavanda að stríða. /48
Reuters
Maradona óskað bata
SILVAN Shalom, utan-
ríkisráðherra Ísraels,
lýsti sig í gær fylgjandi
áætlun forsætisráð-
herrans, Ariels Sharons,
um að draga ísraelskt
herlið frá Gaza og hluta
Vesturbakkans. Þar
með þykir nokkuð ljóst
að umdeild áætlun
Sharons, sem George
W. Bush Bandaríkjaforseti lagði blessun
sína yfir í síðustu viku, mun verða sam-
þykkt í ríkisstjórn hans.
Shalom utanríkisráðherra hefur áður
lýst efasemdum um einhliða aðgerðir eins
og þá að leggja niður landnemabyggðir á
Gaza, án þess að Palestínumenn gerðu
eitthvað á móti. Hann sagðist hins vegar í
gær hafa ákveðið að styðja áætlun Shar-
ons, m.a. vegna þess að hann teldi að full
samstaða yrði að ríkja í Ísrael um þessi
mál.
Áður hefur Benjamin Netanyahu, fjár-
málaráðherra og fyrrverandi forsætisráð-
herra, lýst yfir stuðningi við áætlun Shar-
ons. Þykir ljóst að yfirlýsingar
Netanyahus og Shaloms þýða að áætlun
Sharons mun hljóta samþykki meirihluta
flokksmanna í Likud-flokknum í sérstakri
atkvæðagreiðslu 2. maí næstkomandi.
Ísraelskir andstæðingar áætlunar Shar-
ons telja að brotthvarfið frá Gaza styrki
öfgamenn í röðum Palestínumanna. Hjá
Palestínumönnum er hins vegar megn
óánægja með þann hluta áætlunar Sharons
sem kveður á um að Ísraelar haldi byggð-
um landtökumanna á Vesturbakkanum. Þá
halda Palestínumenn fast við þá kröfu að
palestínskt flóttafólk geti snúið aftur til
upprunalegra heimkynna sinna í Ísrael.
Áætlun
Sharons
líklega
samþykkt
Jerúsalem. AFP.
Ariel Sharon
FORMAÐUR Samfylkingarinnar,
Össur Skarphéðinsson, sem er fyrsti
flutningsmaður þingsályktunartillögu
um erlendar starfsmannaleigur, segir
að umsögn sem Impregilo sendi við
þingsályktunina til efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis sé fáheyrð.
Umsögnin komi frá fyrirtæki sem
„sannarlega hefur orðið sér til skamm-
ar“ hér á landi með því að nota „ósvífn-
ar starfsmannaleigur sem beinlínis
hafa notfært sér neyð fátæks verka-
fólks“, eins og Össur orðar það í
blaðinu í dag.
Impregilo fagnar því að skýra eigi
lagaumhverfi fyrir erlendar starfs-
mannaleigur en gerir alvarlegar at-
hugasemdir við greinargerð sem fylgir
þingsályktunartillögunni frá tíu þing-
mönnum Samfylkingarinnar.
„Hefur
orðið sér til
skammar“
Fáheyrt frá/6
Leiðari/28
FRÁ og með næsta skólaári
verður kennurum í Túrkmen-
istan bannað að klæðast vest-
rænum fatnaði í skólastofunni.
Skólastúlkur og kvenkyns
kennarar verða framvegis að
ganga um í síðklæðnaði og
bera höfuðklúta og allir kenn-
arar, af hvoru kyni sem þeir
eru, þurfa að ganga um með
barmmerki sem geymir mynd
af Saparmurat Niyazov, for-
seta Túrkmenistans.
„Kennurum og skólastúlk-
um verður stranglega bannað
að mæta í skólann í gallabux-
um, stuttpilsum, klaufháum
kjólum og flegnum bolum,“
sagði háttsettur embættis-
maður. „Hvernig væri nú að
borga okkur fyrst laun á rétt-
um tíma?“ spyr hins vegar
Svetlana, sem er kennslukona
í Ashgabat. „Kennarar hafa
ekki fengið greidd laun síðan í
janúar – það kostar peninga að
kaupa kjóla og höfuðklúta.“
Bera merki
með andliti
forsetans
Ashgabat. AFP.
SKRIFAÐ verður undir samninga í dag milli
flutningssviðs Landsvirkjunar annars vegar og
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Hitaveitu Suð-
urnesja (HS) hins vegar um flutning á rafmagni
til stækkunar Norðuráls á Grundartanga. Sam-
ið er til 20 ára og er þetta fyrsti samningurinn
sem flutningssviðið gerir um raforkuflutning í
nýju lagaumhverfi.
Samningurinn er undirritaður í kjölfar samn-
ings OR og HS um orkusölu til Norðuráls, sem
skrifað var undir sl. laugardag í Svartsengi.
Til að flytja raforkuna þarf flutningssviðið að
fjárfesta í mannvirkjum fyrir 6,6 milljarða
króna. Stærsta fjárfestingin er vegna Sultar-
tangalínu 3, sem mun liggja frá tengivirki á
Sandafelli við Sultartanga að Brennimel í Hval-
firði, skammt frá Grundartanga. Alls er þetta
um 120 km leið með 345 möstrum. Reiknað er
með að línan verði komin í notkun áður en upp-
keyrsla Norðuráls hefst í febrúar árið 2006.
Línulögn hefst í sumar og munu 270 ársverk
skapast á verktímanum.
Þórður Guðmundsson, framkvæmdastjóri
flutningssviðs LV, segir við Morgunblaðið að
líkt og á laugardaginn sé nú verið að skrifa und-
ir tímamótasamning, þann fyrsta frá því að
flutningssviðið var stofnað í júlí í fyrra vegna
nýrra raforkulaga. Samningurinn byggist á sér-
stakri flutningsgjaldskrá fyrir stórnotendur
raforku og greiðslur frá OR og HS eigi að
standa undir þeim fjárfestingum. Í raun megi
segja að Landsvirkjun útvegi raforkuna til
Norðuráls eftir allt saman, frá 100–150 MW frá
Þjórsársvæðinu, en á móti muni Orkuveitan og
Hitaveita Suðurnesja leggja til sama afl inn á
dreifingarkerfi Landsvirkjunar á suðvestur-
horninu. Því verða engar línur lagðar sérstak-
lega frá HS og OR upp á Grundartanga. HS
muni leggja línu frá sínu orkuveri á Reykjanesi
að flutningsvirki Landsvirkjunar við Hamranes
sunnan Hafnarfjarðar og orkan frá OR á Hellis-
heiði verði tengd við Búrfellslínu 1.
Þórður segir að með Sultartangalínu 3 sé
stigið stórt skref til framtíðar sem tryggi
Brennimel og Grundartanga í sessi sem afhend-
ingarstað raforku til stórnotenda. Einnig sé af-
hendingaröryggi rafmagns aukið til allra not-
enda á suðvesturhorni landsins.
Skrifað undir samninga í dag um orkuflutning vegna stækkunar Norðuráls
Fjárfest í flutningskerfi
fyrir 6,6 milljarða króna