Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 22
AUSTURLAND
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Egilsstaðir | Í kvöld verður frum-
flutt tónverkið „Hver tók ostinn
minn?“ eftir Báru Sigurjónsdóttur.
Tónleikarnir verða í Borgarleik-
húsinu og hefjast kl. 20.30.
Í samtali við
Morgunblaðið
sagði Bára að
„Hver tók ostinn
minn?“ sé fyrsta
frumsamda tón-
verk hennar.
„Það er samið
fyrir blás-
arasveit, en í
slíkri sveit eru öll
helstu blást-
urshljóðfærin,
auk slagverks,“ segir Bára. „Þetta
eru rétt tæplega þrjátíu raddir, en
flytjendur verða á milli fimmtíu og
sextíu talsins, þar sem sumar radd-
irnar eru spilaðar af fleiri en einum
hljóðfæraleikara.“
Einfalt
og lagrænt
Bára segir hugmyndina að tón-
verkinu komna úr „Í bókinni segir
frá tveimur músum og tveimur
litlum köllum í leit að osti. Kaflar
tónverksins heita eftir persónum
bókarinnar og er hverjum kafla
ætlað að lýsa persónueinkennum
sinnar persónu í tónum.
Hver kafli er u.þ.b. 2,5 mínútur,
þannig að verkið í heild er um 10
mínútna langt.
Upphaflega var hugmyndin að
semja einfalt og lagrænt tónverk
sem höfðað gæti til sem flestra og
ég vona að það hafi tekist.
Ég hafði ákaflega gaman af því
að setja saman þessa tónsmíð og
það er aldrei að vita nema þær
verði fleiri, en það fer auðvitað dá-
lítið eftir viðbrögðum fólks við
þessari frumraun minni á þessu
sviði.“
Bára er að útskrifast úr blás-
arakennaradeild Tónlistarskólans í
Reykjavík og hefur starfað sem
tónlistarkennari undanfarin ár,
samhliða náminu.
Nýtt tónverk eftir Báru Sigurjónsdóttur
frumflutt í Borgarleikhúsinu í kvöld
Hver tók ostinn minn?
Bára
Sigurjónsdóttir
Djúpivogur | Sveitarstjórn Djúpa-
vogshrepps hefur ákveðið að
byggja nýjan leikskóla á Djúpa-
vogi. Leikskólinn verður allt að tvö
hundruð og sextíu fermetrar að
grunnfleti og staðsettur sunnan við
Helgafell, dvalarheimili aldraðra.
Hanna þarf nýjan veg frá Ham-
mersminni að leikskólanum og
mun Verkfræðistofan Hönnun, í
samráði við Guðrúnu Jónsdóttur,
arkitekt FAÍ, sjá um það.
Endanleg ákvörðun um hver á
að teikna leikskólann hefur ekki
verið tekin en tveir arkitektar eru
að vinna tillögur sem þeir eiga að
skila af sér fyrir þriðja maí nk.
Áætlaður kostnaður er fjörutíu til
fjörutíu og fimm milljónir og
styrkir Jöfnunarsjóður sveitarfé-
laga sveitarfélagið um rúmar
fimmtán milljónir.
Stefnt er að því að leikskólinn
verði tilbúinn um næstu áramót.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Það vantar orðið leikskólarými fyrir börnin á Djúpavogi en þau láta það ekki á sig fá þessi: Sighvatur, Erla, Birta
Hrönn og Karl Jakob dunda sér í vorblíðunni.
Nýr leikskóli á teikniborði
Djúpavogshrepps
Egilsstaðir | Austurlamb gengst
nú fyrir skoðanakönnun þar sem
neytendur eru beðnir um álit sitt
og óskir. Fer könnunin fram á
vefnum www.austurlamb.is.
Sigurjón Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Sláturfélags Austur-
lands, segir að niðurstöður könn-
unarinnar verði lagðar til
grundvallar við stefnumótun Aust-
urlambs í framtíðinni. „Heimasíð-
ugestum er boðið að meta vægi
nokkurra valkosta,“ segir Sigur-
jón. „Má þar nefna sölu einstakra
lambahluta í stað hálfra skrokka,
lambahangikjöts verkaðs að óskum
kaupanda, hangikjöts af fullorðnu
verkaðs að óskum kaupanda og
kjöts af fullorðnu, veturgömlu eða
sauðum.
Þá biðjum við fólk að meta val-
kost á fersku kjöti í sláturtíð,
lengri verkunartíma í kæli fyrir
frystingu, sem gefur bragðmeira
kjöt, hvort menn hefðu áhuga á
öðru kjöti, s.s. nauti eða svíni, að-
gengi að pantanaþjónustu eða sýn-
ishornum, sölu í gegnum verslanir
eða stórmarkaði og hugmynd um
að stækka upprunasvæðið út fyrir
Austurland.“
Sigurjón segir söluna gegnum
vefinn hafa gengið vel undanfarið
og mun nú aðeins óselt kjöt frá
fjórum bæjum; Hákonarstöðum,
Hjartarstöðum, Kirkjubóli og
Núpi.
Alls er búið er að selja um sjö
tonn af kjöti frá því að vefurinn
hóf göngu sína í september í fyrra.
„Hafin er birting uppskrifta af
ýmsum réttum úr lambakjöti.
Hér er um mikilvæga þjónustu
að ræða og verður væntanlega að
finna þokkalegt safn uppskrifta
hjá Austurlambi í framtíðinni, svo
að kaupendur geti valið sér.“
Um næstu helgi verður haldinn
fundur í starfshópi verkefnisins,
þar sem metinn verður árangur
vetrarins og lögð drög að næstu
sláturtíð.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Neytendur
spurðir álits á
Austurlambi
Skaðabætur | Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt Bæjarsjóð
Fjarðabyggðar og Arnarfell ehf. til að greiða tveimur húseigendum í Nes-
kaupstað rúmar 1,7 milljónir í skaðabætur vegna skemmda sem urðu á hús-
um þeirra þegar unnið var að snjóflóðavarnargörðum ofan við bæinn. Húsin
standa við Víðimýri og Blómsturvelli og skemmdust þegar sprengt var í
fjallinu ofan við göturnar. Þá voru stefndu dæmdir til að greiða málskostnað
húseigendanna, 1,7 milljónir. Þorgerður Erlendsdóttir dómstjóri dæmdi í
málinu ásamt tveimur prófessorum frá verkfræðiskor Háskóla Íslands.
w
w
w. l e t t o g l a ggo t t . i s
w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w
ww. l e
t tog
l a g
got
t . i s
ww
w.
l e t
t o
g l
a g
go
t t
. i s
ww
w.
le
tt
o g
la
gg
ot
t.
is
ww
w.
let
tog
lagg
ott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
VILTU
VINNA FERÐ
TIL ÍTALÍU?
Styrkjum börn frá efnalitlum heimilum á Íslandi óháð búsetu til dvalar í sumarbúðum
eða til þátttöku í leikjanámskeiðum. Fjárgæsluaðili er Íslandsbanki Garðabæ og
liggja gíróseðlar frammi í öllum útibúum bankans. Söfnunarsíminn er 901 5050,
með innhringingu gjaldfærast 500 krónur á reikning þess sem hringir.
Bankareikningur verkefnisins er 0546-26-6609 kt: 660903-2590
Verndari söfnunarinnar er Árni Johnsen fyrrv. alþingismaður.
Með kveðju, Árni Johnsen og Fjölskylduhjálp Íslands
Hlúum að íslenskum börnum - Söfnunarsíminn er 901 5050
S
kr
ým
ir
h
ö
n
n
u
n
2
0
0
4
Bankareikningur verkefnisins er 0546-26-6609