Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 17
og loðnar skulu þær vera.“
Wahhabisminn kom upp í Nejd-
héraði í miðri Arabíu og hafði það
að markmiði að berjast gegn
heiðnum siðum, sem aftur voru
farnir að láta á sér kræla, til
dæmis það að vitja grafa og bera
armbönd. Samningur, sem Mu-
hammad ibn Saud gerði við Ab-
del-Wahhab, leyfði Saud-ættinni
að færa út yfirráðasvæði sitt með
heilögu stríði og þegar hún hafði
lagt undir sig alla Arabíu
snemma á síðustu öld, gleymdist
þessi stuðningur ekki. Nú eru
trúmálaráðherrann og fleiri hátt-
settir embættismenn beinir af-
komendur Abdel-Wahhabs.
Flest bannað,
einkum konum
Klerkarnir hafa alla tíð reynt
að berjast gegn vestrænum nýj-
ungum, ritsímanum, útvarpinu,
sjónvarpinu og menntun kvenna.
Þeir reyndu meira að segja að
koma í veg fyrir kennslu í eðlis-
og efnafræði. Það tókst þeim ekki
en þótt þeir hafi orðið að láta í
minni pokann á sumum sviðum,
hafa völd þeirra verið aukin á
öðrum, ekki síst í samfélags-
málum.
Bannlisti trúmálaráðuneytisins
er langur og ekki síst þegar kem-
ur að konunum. Þeim er til dæm-
is bannað að „reyta augabrún-
irnar, klæðast óviðeigandi fatnaði,
nota snyrtivörur og ilmvötn, vera
með farsíma“ og þannig fram eft-
ir götunum.
„Ég fékk það á tilfinninguna
þegar ég skoðaði listann, að þetta
væri okkar útgáfa af Stóra bróð-
ur George Orwells,“ sagði Abeer
Mishkhas, sádi-arabísk kona, sem
skrifað hefur um þessi mál í Arab
News.
Umbótaáhugi að aukast
Í skoðanakönnunum kemur
fram, að þrátt fyrir afturhaldið sé
umbótaáhuginn vaxandi enda eru
blikur á lofti í sádi-arabískum
efnahagsmálum. Það er líka til
marks um nýja tíma, að al-
Sulhaimi, kennarinn fyrrnefndi,
er óhræddur við að segja frá sínu
máli og fjölmiðlar að birta það.
Al-Sulhaimi segir, að þegar
hann kom til Al-Abna-skólans
1999, hafi hann haft ýmis „ver-
aldleg plögg“ í farangrinum.
Hann hafi meðal annars verið bú-
inn að skrifa um egypska rithöf-
undinn Taha Hussein og verið
aðdáandi sýrlenska ljóðskáldsins
Nizars Qabbanis. Þeir eru báðir
látnir en wahhabistar líta á þá
sem villutrúarmenn. Segir al-
Sulhaimi, að ákærurnar séu upp-
lognar. Meðal annars séu ummæli
hans um ástina túlkuð þannig, að
með þeim hafi hann lagt blessun
sína yfir samkynhneigð og hór-
dóm.
„Þessir menn ljúga í nafni trú-
arinnar,“ segir al-Sulhaimi. „Þeir
líta á það sem guðsþakkarverk,
heilagt stríð, að ofsækja þá, sem
eru veraldlega þenkjandi eða vilja
breytingar.“
’Fékk á tilfinn-inguna að þetta
væri okkar útgáfa
af Stóra bróður.‘
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 17
FJÖLMENNUSTU kosningar í heimi hefjast á Indlandi í dag, en alls eru
rúmlega 670 milljónir manna á kjörskrá. Frambjóðendur þjóðernissinnaðra
hindúa vonast til að mikill efnahagsuppgangur undanfarið verði til þess að
kjósendur veiti þeim endurnýjað umboð til að stjórna landinu. Kjördagar
verða fimm, á tímabilinu fram til tíunda maí. Kjörstaðir eru rúmlega 700 þús-
und og kjördæmin 543.
AP
Kjörfundarstjórar á leið á kjörstaði í Luri á Indlandi í gær.
670 milljónir á kjörskrá
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sætir nú gagnrýni í
bandarísku stjórninni fyrir að greina
Bob Woodward frá efasemdum sín-
um um stríðið í Írak og heimila hon-
um að tíunda þær í nýrri bók, „Árás-
aráætlun“. Hefur þetta valdið
miklum titringi í Hvíta húsinu í
Washington, að sögn The New York
Times, og magnað spennuna milli
Powells og hörðustu stuðningsmanna
stríðsins í stjórn George W. Bush
Bandaríkjaforseta.
Nokkrir heimildarmanna blaðsins
segja að bókin hafi valdið Powell svo
miklum vandræðum í stjórninni að nú
sé öruggt að hann verði ekki utanrík-
isráðherra áfram verði Bush endur-
kjörinn í kosningunum í nóvember.
Powell hefur ekki viðurkennt að
hann hafi skýrt Woodward frá efa-
semdum sínum en þær eru tíundaðar
svo nákvæmlega í bókinni að talið er
öruggt að upplýsingarnar séu komn-
ar frá utanríkisráðherranum. Tals-
maður Powells sagði á sunnudag að
hann hygðist ekki ræða bókina.
Furðu lostnir
Powell og aðstoðarmenn hans hafa
gefið til kynna í rúmt ár að hann hafi
haft áhyggjur af því fyrir stríðið að
margt gæti farið úrskeiðis eftir að
innrásarliðið næði Írak á sitt vald.
Hörðustu stuðningsmenn stríðsins
í Bush-stjórninni segjast undrast
mjög þá ákvörðun Powells að ganga
til samstarfs við Woodward og hjálpa
honum að draga upp mynd sem væri
utanríkisráðherranum sjálfum mjög í
hag, ef til vill á kostnað forsetans, því
að Powell kæmi þar fram sem mjög
framsýnn sérfræðingur í utanrík-
ismálum.
Nokkrir heimildarmenn The New
York Times sögðust hafa talið líklegt
að Powell yrði ekki utanríkisráðherra
áfram næði Bush endurkjöri en bókin
tæki af öll tvímæli um að hann léti af
embætti eftir kosningarnar í nóv-
ember.
„Margir eru furðu lostnir yfir því
hvernig Powell utanríkisráðherra
notar þessa bók sem tækifæri – svo
þetta sé orðað á sanngjarnan hátt –
til að útskýra afstöðu sína í málinu,“
hafði The New York Times eftir emb-
ættismanni í Washington. „En bókin
veldur ýfingum í stjórninni, sem er
afar óheppilegt.“
Annar embættismaður sakaði
Powell um að hafa það fyrir vana að
firra sig ábyrgð á ákvörðunum
stjórnarinnar þegar eitthvað færi úr-
skeiðis. „Mikil sápuópera hefur
spunnist um hann.“
Ræðast enn við
Samstarfsmenn Powells sögðu að
hann myndi standa af sér gagnrýn-
ina, enda hefði lengi verið vitað um
efasemdir hans um stríðið. Menn
ættu ekki að álasa honum fyrir að
hafa á réttu að standa og það væru
frekar Donald Rumsfeld varn-
armálaráðherra og Dick Cheney
varaforseti sem væru í vandræðum.
Samstarfsmenn Powells segja að
samskipti hans við Rumsfeld og
Cheney hafi lengi verið stirð en það
sé samt ekki rétt að þeir ræðist varla
við, eins og fram kemur í bókinni.
Condoleezza Rice, þjóðarörygg-
isráðgjafi Bush, tók í sama streng í
sjónvarpsviðtali á sunnudag og sagði
að sambandið milli Powells og Chen-
eys væri „vinsamlegt“.
Los Angeles Times hafði eftir Rice
að það væri ekki heldur rétt hjá
Woodward að Bush hefði ákveðið inn-
rásina í Írak snemma í janúar 2003.
Ákvörðunin hefði verið tekin í mars
eftir að reynt hefði verið til þrautar
að komast hjá stríði.
Rice vísaði því einnig á bug að
sendiherra Sádi-Arabíu í Washington
hefði verið skýrt frá ákvörðuninni um
innrás tveimur dögum áður en Powell
hefði fengið að vita af henni, eins og
haldið er fram í bókinni.
Mikill kurr í stjórn Bush
vegna bókar Woodwards
Colin Powell
gagnrýndur
fyrir að leysa
frá skjóðunni
AP
Bob Woodward blaðamaður.
DÓMARAR í alþjóðasakamáladóm-
stólnum í Haag milduðu í gær dóm
yfir einum hershöfðingja Bosníu-
Serba en kváðu einnig upp úr með
það, að fjöldamorðin í Srebrenica
hefðu verið þjóðarmorð.
Dómnum yfir Radislav Krstic var
fyrir áfrýjunarrétti breytt í 35 ára
fangelsi en áður hafði hann verið
dæmdur í fangelsi í 46 ár. Tóku
dómararnir fram, að fjöldamorðin í
Srebrenica skuli kölluð sínu rétta
nafni, sem sé „þjóðarmorð“. Úr-
skurðurinn skiptir miklu máli í rétt-
arhöldunum yfir Slobodan Milosev-
ic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, en
hann er sakaður um að hafa átt að-
ild að áætlunum um þjóðarmorð á
múslímum í Bosníu. Dómurinn auð-
veldar einnig skilgreiningu á þjóð-
armorði, sem getur nú átt við um
fjöldamorð af fyrrnefndu tagi þótt
þau nái ekki til heillar þjóðar eða
þjóðarbrots.
Þjóðarmorð
Haag. AP.
KARL Gústaf Svíakonungur og Karl
Filippus prins, sonur hans, skemmtu
sér á sunnudagskvöld með kapp-
akstri þar sem ekið var á allt að 160
kílómetra hraða á klukkustund.
Kappaksturinn fór fram á hrað-
brautinni E 18 milli Stokkhólms og
Karlskoga vestur af höfuðborginni.
Sylvía drottning mun hafa setið við
hlið kóngsins.
Norrænir fjölmiðlar fjölluðu í gær
talsvert um þennan kappakstur
feðganna. Aftonbladet sænska birti
myndir af bílunum, ljósbláum
Porsche 911 Carrera Coupe, árgerð
’87, sem prinsinn ók, og gulum 381
hestafla Porsche Carrera kóngsins.
Mun mörgum ökumanninum á E 18
hafa brugðið í brún þegar kóngafólk-
ið þaut fram úr þeim á ofsahraða.
Þá sást til Magðalenu, yngri prins-
essu sænsku konungshjónanna, þar
sem hún rak lestina á Saab. Vitni
segja lögreglubíl hafa tekið þátt í
kappakstrinum en honum bar að
fylgja kóngafólkinu til verndar því.
Talsmaður sænsku hirðarinnar
neitaði að um kappakstur hefði verið
að ræða. Blaðafulltrúinn sagði með-
alhraðann hafa verið 120 km/klst. en
að sjálfsögðu hefði hraðinn verið
meiri þegar ekið var fram úr.
Hámarkshraði á löngum hluta
leiðarinnar, sem ekin var, er 110 km
/klst. en einnig eru kaflar þar sem
hámarkshraðinn er mun minni, að
sögn Aftonbladet.
Konung-
legur
kappakstur
EIN af hljóðfráu Concorde-þotunum sem þar til fyrir skemmstu flugu á
vegum British Airways var í gær flutt síðasta spölinn á flugminjasafnið í
East Fortue á Skotlandi, og lá leiðin um þessar grænu grundir. Bæði væng-
ir og stél voru tekin af vélinni til að hún væri þægilegri í meðförum, og var
af sem áður var, nú var einungis farið fetið.
AP
Concorde fer fetið