Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Jónsson, frkvstj. Samtaka verslunar og þjónustu, Ingimundur Sigurpálsson, form. Samtaka atvinnulífsins,
Sveinn Hannesson, frkvstj. Samtaka iðnaðarins, og Andrés Magnússon, frkvstj. Félags íslenskra stórkaupmanna,
telja rangt að ríkið stundi neyslustýringu með því að leggja vörugjald á matvæli og vilja eitt þrep virðisaukaskatts.
FIMM samtök í atvinnulífinu skora
á ríkisstjórnina að draga úr skatt-
heimtu á matvælum. Samtökin telja
að öll matvæli eigi að vera í sama
þrepi virðisaukaskatts og að vöru-
gjöld verði felld niður.
Á fundi sem Samtök iðnaðarins,
Samtök verslunar og þjónustu, Sam-
tök ferðaþjónustunnar, Félag ís-
lenskra stórkaupmanna og Samtök
atvinnulífins héldu í gær voru stjórn-
völd hvött til að grípa tækifærið og
hverfa frá „tvöföldu kerfi neyslu-
skatta á matvæli,“ eins og það er orð-
að í áskorun samtakanna.
Tillögur þessara fimm samtaka,
sem eru samtök þeirra sem fram-
leiða, flytja inn, dreifa og selja mat-
væli, snúast um tvennt. Annars veg-
ar að svokallað vörugjald verði
afnumið, en samtökin segja heildar-
vörugjöld af matvælum nema um 1,5
milljörðum króna árlega. Gjaldflokk-
ar eru 12, frá 8 krónum upp í 400
krónur á hvert kíló eða lítra af til-
teknum matvælum sem teljast óholl
eða til sætinda. Hins vegar telja
samtökin að virðisaukaskattþrepum
beri að fækka úr tveimur í eitt. Nú-
verandi fyrirkomulag er þannig að
24,5% skattur er greiddur af sumum
matvælum en 14% af öðrum. Fleiri
matvæli falla í síðari flokkinn.
Hærri skattur á
kakómalt en kókómjólk
Að mati Andrésar Magnússonar,
framkvæmdastjóra Félags íslenskra
stórkaupmanna, er ástæða til að
ætla að áætlun ríkisstjórnarinnar
geri ráð fyrir að neðra þrep virðis-
aukaskattsins verði lækkað úr 14% í
7%. „Við leggjumst algerlega gegn
slíkri breytingu og þeirri neyslustýr-
ingu sem í þessu kerfi felst. Við erum
eindregið þeirra skoðunar, sem tals-
menn frjálsrar verslunar í landinu,
að afnema eigi allt sem heitir neyslu-
stýring. Þetta tveggja þrepa virðis-
aukaskattskerfi hefur þróast í hróp-
legri andstöðu við annars mjög
jákvæðar breytingar sem hafa orðið
á síðustu 10–15 árum á skattaum-
hverfi fyrirtækja,“ sagði Andrés.
Hann nefndi sem dæmi að kakó-
malt sem flutt er inn til íblöndunar í
mjólk ber vörugjald upp á 50 krónur
á hvert kíló og er í efra þrepi virð-
isaukaskatts. Kókómjólk, sem er
innlend framleiðsla en samskonar
vara, sé hins vegar í neðra þrepi
virðisaukaskattsins eins og aðrar
innlendar mjólkurvörur. „Ég held að
þetta sé klassískasta dæmið um
þann fáránleika sem þetta kerfi get-
ur tekið á sig,“ sagði Andrés.
Svíar með 12% virðisaukaskatt
á öllum matvælum
„Þjóðirnar í kringum okkur hafa
verið að hverfa frá þessu kerfi og við
teljum tímabært að við hverfum frá
þessu líka. Svíar til dæmis tóku þetta
skref núna fyrir örfáum árum að
setja öll matvæli í eitt 12% virðis-
aukaskattsþrep. Þeir, eins og ég held
bara allar Vestur-Evrópuþjóðir, eru
með öll matvæli í sama þrepinu. Við
höfum ekki getað fundið nein dæmi
um það að flokka matvæli í mismun-
andi virðisaukaskattsþrep. Við telj-
um að það sé orðið tímabært að
hætta þessu.
Ástæðan fyrir því að við erum að
tala um þetta núna er að það er ekki
á hverjum degi sem er verið að
hrófla við virðisaukaskattskerfinu.
Það er búið að opna á þá umræðu og
við viljum benda á þá leið sem við
teljum skynsamlegasta ef á að fara
að draga úr skattlagningu á matvæl-
um. Við erum að reyna að koma á
framfæri góðri leið í þessum efnum,“
sagði Sveinn Hannesson fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins á
fundinum í gær.
Spurður hvort neytendur hafi
vissu fyrir að sú lækkun sem hlýst af
afnámi vörugjalds og lækkun virð-
isaukaskatts skili sér í lækkun vöru-
verðs sagði Sveinn að samkeppni á
matvælamarkaði tryggði það.
Fræðslu frekar en stýringu
Samtökin telja það í andstöðu við
alþjóðlega þróun að nota ekki tæki-
færið við fyrirhugaða breytingu á
virðisaukaskattkerfi og samræma
álagningu og afnema vörugjöld. Sig-
urður Jónsson framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu
sagðist setja spurningarmerki við
hvort stjórnvöld eigi að stýra neyslu
eins og gert er með t.d. vörugjaldi á
sætindi. Hann sagði dæmin sanna að
fræðsla um holla lífshætti gæfist bet-
ur en stýring.
„Það er margbúið að sýna fram á
að opinber neyslustýring með skatt-
heimtu virkar ekki. Við höfum verið
með þennan sérstaka skatt á vörur
sem eru taldar til óhollustu og sæt-
inda. Benda má á að Danir hafa til
dæmis sérstakan súkkulaði- og syk-
urskatt sem leggst á vörur hjá þeim.
Hins vegar borða fáar þjóðir meiri
sykur en Danir og Íslendingar þrátt
fyrir þessa skattheimtu,“ sagði Sig-
urður á fundinum.
Fundur samtaka í atvinnulífinu um skattlagningu á matvæli
Vilja að horfið verði
frá neyslustýringu
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Einnig kynnum við heilsárs sumarhús frá Kanada
Micasa lagersala
Allt að 40% afsláttur
Síðumúla 35, sími 588 5108
www.Bonalba.com
www.micasa.is
Kynnum frábært íbúðahverfi á Spáni, Bonalba
www.Bonalba.com, sími 662 5941
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að um-
sögn Impregilo um þingsályktun-
artillögu tíu þingmanna flokksins
um erlendar starfsmannaleigur sé
fáheyrð frá fyrirtæki sem „sann-
arlega hefur orðið sér til skammar
hér á Íslandi með því að nota
ósvífnar starfsmannaleigur sem
beinlínis hafa notfært sér neyð fá-
tæks verkafólks“.
Impregilo sendi fjölmiðlum í gær
umsögn til efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis við þingsályktun-
artillögunni. Fyrirtækið segist
fagna innihaldi ályktunarinnar, og
þeim áformum að skýra lagalegt
umhverfi fyrir starfsmannaleigur,
en gerir alvarlegar athugasemdir
við greinargerð sem fylgir þings-
ályktuninni.
Impregilo segir það undrunar-
efni að á þjóðþingi Íslendinga skuli
vera dreift þingskjali með „marg-
háttuðum, alvarlegum og röngum
ásökunum“ í garð fyrirtækisins.
„Rógburðurinn er einsdæmi og
slíkur að tæpast er tilefni til sér-
stakra andsvara,“ segir í umsögn-
inni.
Ómar R. Valdimarsson, talsmað-
ur Impregilo, segir að í greinar-
gerðinni sé m.a. vitnað nær orðrétt
í fylgiskjal með ferðasögu fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar á vinnu-
svæði Kárahnjúkavirkjunar. Í
greinargerðinni sé því haldið fram
að Impregilo hafi þverbrotið allar
hefðbundnar reglur á íslenskum
vinnumarkaði af starfsmannaleig-
um og Impregilo. Margsinnis sé
það gefið í skyn í skjalinu að fyr-
irtækið hafi brotið lög hér á landi
frá því að það hóf starfsemi. Þessu
vísi Impregilo alfarið á bug.
Össur segir það liggja fyrir
skjalfest í gögnum, sem hann hafi
séð, að erlend starfsmannaleiga
hafi látið verkafólk skrifa undir
ódagsett uppsagnarbréf fram í tím-
ann, til að hægara yrði um vik að
losa sig viðkomandi starfsmenn.
Þetta sé ekkert annað en brot á öll-
um viðteknum hefðum og almennu
siðgæði. Með því að notfæra sér
þjónustu leigunnar sé Impregilo
jafnsekt og hún sjálf. Hér á landi
hafi þessi háttsemi mætt sameig-
inlegri andstöðu samfélagsins alls.
Harkaleg viðbrögð verkalýðshreyf-
ingarinnar hafi komið í veg fyrir að
Impregilo héldi áfram „svívirðileg-
um verknaði“ sem fyrirtækið hafi
tekið þátt í gegnum starfsmanna-
leigurnar.
Átti að vera þingmönnum ljóst
Ómar segir skamman tíma hafa
verið til undirbúnings framkvæmda
og þetta hafi þingmönnum, m.a.
innan Samfylkingarinnar, átt að
vera ljóst sem greiddu því atkvæði
að virkjunarframkvæmdirnar urðu
að veruleika. Ómar bendir á að
samkomulag hafi náðst við verka-
lýðsfélögin í október á síðasta ári
um launauppgjör við starfsmenn.
Fyrirtækið hafi alltaf greitt laun
samkvæmt gildandi launatöxtum í
virkjunarsamningi.
Össur segir að þótt þingmenn
hafi lagt blessun sína yfir fram-
kvæmdirnar hafi þeir ekki verið að
fallast á að verktakinn myndi
fremja mannréttindabrot.
Formaður Samfylkingarinnar um
umsögn Impregilo um þingsályktun
Fáheyrt frá
fyrirtæki sem
hefur orðið sér
til skammar
LEIÐNI í Múlakvísl minnkaði
jafnt og stöðugt í gær, eftir að
hún náði sögulegu hámarki á
sunnudag frá því að skipulegar
mælingar hófust fyrir fimm ár-
um.
Mest fór leiðni í 365 svonefnd
míkrósímens á metra en var
komin niður í 233 míkrósímens í
mælingu Reynis Ragnarssonar
vaktmanns í gærkvöldi. Reynir
sagði vatnið í ánni einnig hafa
minnkað en brennisteinsfýlan
enn verið til staðar.
Nokkrir smáskjálftar, allir
undir tveimur stigum á Richter,
komu fram á mælum Veðurstof-
unnar í fyrrinótt í megin Kötlu-
öskjunni en síðan stöðvaðist sú
virkni í gærmorgun.
Nokkrir skjálftar komu svo
fram á mælum í gærkvöldi.
Matthew J. Roberts, jöklafræð-
ingur hjá jarðeðlissviði Veður-
stofunnar, segir að skjálftahrinur
af svipuðu tagi, þar sem all-
nokkrir skjálftar verða á stuttum
tíma, eigi sér fordæmi og verði
alltaf öðru hverju.
Jarðhitavatn gæti hafa
orsakað skjálftahrinu
Hann segir að jarðskjálfta-
virknin hafi stöðvast í gærmorg-
un og um líkt leyti hafi leiðni í
Múlakvísl minnkað snarlega. Því
sé óhætt að segja að jarðskjálfta-
hrina hafi getað stafað af jarð-
hitavatni frá Kötlu sem svo hafi
runnið í Múlakvísl. Ljóst sé að
ekki hafi verið um jökulhlaup að
ræða.
Skjálftar í Kötlu en
leiðnin minnkaði
DÓMS- og kirkjumálaráðherra
skipaði 16. apríl sl. Valtý Sig-
urðsson hér-
aðsdómara
forstjóra
Fangelsis-
málastofnun-
ar. Valtýr tek-
ur formlega
við starfinu 1.
maí næstkom-
andi. Áður
gegndi starf-
inu Þorsteinn
A. Jónsson, en hann var skip-
aður skrifstofustjóri Hæsta-
réttar 1. apríl sl.
Auk Valtýs sóttu um emb-
ættið Guðgeir Eyjólfsson sýslu-
maður, Sigríður Friðjónsdóttir
saksóknari og Sigurður Gísli
Gíslason yfirlögfræðingur.
Valtýr yfir
Fangelsis-
málastofnun
Valtýr
Sigurðsson