Morgunblaðið - 20.04.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Og ef um allt þrýtur, þá hefur Dóri lofað að herinn hans taki yfir þegar hann hefur lokið
hernaðarhlutverki sínu á Kabúl-flugvelli.
Ferðalangur 2004
Efling ásýndar
ferðaþjónustu
Nýr viðburður í bæj-arlífinu verðurkynntur af Höfuð-
borgarstofu á sumardaginn
fyrsta, nk. fimmtudag,
Ferðalangur 2004. Stefnt
er að því að halda viðburð-
inn árlega hér eftir. Morg-
unblaðið ræddi við Dóru
Magnúsdóttur verkefna-
stjóra ferða- og markaðs-
mála Höfuðborgarstofu.
– Hvað er Ferðalangur
2004?
„Ferðalangur 2004 á
sumardaginn fyrsta er nýr
viðburður sem ætlað er að
efla ásýnd ferðaþjónust-
unnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Höfuðborgarstofa vill
með deginum hvetja íbúa
höfuðborgarsvæðisins til að
sinna enn betur gestgjafa-
hlutverkinu gagnvart ferðamönn-
um, erlendum sem innlendum en
aðrir aðstandendur Ferðalangs
eru Ferðamálaráð Íslands, Ferða-
málasamtök höfuðborgarsvæðisins
og Samtök ferðaþjónustunnar. Ein
leiðin að því markmiði er að fá
ferðaþjónustuaðila til að opna dyr
sínar upp á gátt og bjóða fólk vel-
komið að taka þátt í öllu því
skemmtilega sem í boði er – á sér-
stökum kostakjörum.“
– Tilgangurinn með deginum?
„Tilgangurinn er að opna augu
fólks á höfuðborgarsvæðinu fyrir
þeim óendanlegu möguleikum sem
ferðaþjónustan á svæðinu býður
upp á. Það er einfaldlega mjög
skemmtilegt að vera ferðalangur á
heimaslóð og prófa eitthvað af
þeirri ferðaþjónustu eða afþrey-
ingu sem erlendir ferðamenn koma
um langan veg til að prófa hér á
landi. Með því að fá fólk til að ger-
ast ferðalangar á sumardaginn
fyrsta kynnist fólk betur því sem í
boði er, það áttar sig á töfrum
svæðisins og verður betur í stakk
búið að miðla reynslu sinni til
ferðamanna sem hingað koma.“
– Nefndu dæmi um það sem
boðið verður uppá þennan dag.
„Dagskráin er afskaplega fjöl-
breytt og skiptist í fjóra flokka; 1.
Skemmtiferðir á heimaslóð, 2. Af-
þreying fyrir alla, 3. Menningar-
tengd ferðaþjónusta og 4. Gakktu í
bæinn. Skemmtiferðirnar saman-
standa af sérstaklega samansett-
um ferðum í tilefni Ferðalangs
2004. Sex hópbílafyrirtæki sjá um
að skipuleggja ferðirnar og skipta
höfuðborgarsvæðinu bróðurlega á
milli sín. Farið verður um nýja og
gamla borgarhluta, græn svæði á
höfuðborgarsvæðinu auk þess sem
allar ferðirnar innifela afþreyingu
og/eða safnastopp, hestaferð,
gönguferð, siglingu, kajakróður og
svo mætti áfram telja. Í tilefni
Ferðalangs 2004 bjóða söfn upp á
áhugaverða dagskrá, nokkur hótel
bjóða fólk sérstaklega velkomið
með því að hafa herbergi til sýnis
og tilboð á veitingum, fjallatrukkur
fer í nokkrar ferðir upp á Úlfars-
fell, bílaleigur bjóða upp á ratleik
og ökuleikni með rafmagnsbílum,
borgargöngur eru í boði
í Reykjavík og Hafnar-
firði, hægt er að fara í
útsýnisflug yfir Reykja-
vík fyrir brot af raun-
kostnaði og þannig
mætti áfram telja. Fólk verður
bara að kíkja sjálft á dagskrána,
sem liggur frammi á Select-stöðv-
um Shell, í Upplýsingamiðstöð
ferðamanna í Aðalstræti og á vefn-
um reykjavik.is og velja hvernig
það ætlar að eyða deginum. Við
verðum einnig með forsölu miða í
skipulögðu skemmtiferðirnar í
Upplýsingamiðstöðinni í Aðal-
stræti og Flugfélag Íslands sér um
forsölu í útsýnisflugið.“
– Eru allir í þessum greinum
sammála um ágæti þessa?
„Já, hugmyndin hefur fengið
einróma lof og allir sem við höfum
heyrt í eru sammála um ágæti
þessarar nálgunar. Margir ferða-
þjónustuaðilarnir bjuggu til sér-
staka dagskrá í tilefni dagsins en
aðrir létu duga að veita veglegan
afslátt og bjóða fólk þannig vel-
komið með áberandi hætti. Það eru
ekki síst ferðaþjónustufyrirtækin
sem átta sig á mikilvægi þess að
íbúar höfuðborgarsvæðisins séu
meðvitaðir um mikilvægi ferða-
þjónustunnar og þá gífurlegu
möguleika sem hún veitir. Á sjötta
tug ferðaþjónustufyrirtækja taka
þátt í að skipuleggja dagskrá
Ferðalangs 2004.“
– Vantar talsvert uppá að þínu
mati að borgarbúar nýti sér það
sem ferðamenn sækja til borgar-
innar?
„Já, ég held mér sé óhætt að full-
yrða það. Það hafa til dæmis ekki
margir farið með stálpuð börn sín í
hvalaskoðun eða sjóstangaveiði þó
svo að þessi þjónusta bjóðist hér
nánast handan við hornið og sé
jafnframt stórbrotin náttúruskoð-
un og frábær leið til að gera eitt-
hvað skemmtilegt með börnunum
sínum. Hið sama má segja um ann-
ars konar afþreyingu víðs vegar
við höfuðborgarsvæðið
sem mest er nýtt af er-
lendum ferðamönnum
en er, þegar betur er að
gáð, allt eins skemmti-
leg og fróðleg fyrir
landann.“
– Geturðu nefnt eða mælt sér-
staklega með einhverju?
„Nei, ég get það ekki þó ég viti
sjálf hvað ég myndi gera með
minni fjölskyldu sem almennur
ferðalangur á sumardaginn fyrsta!
Málið er einfaldlega að smekkur
manna er svo ólíkur að það sem
höfðar til mín höfðar ef til vill ekki
til annarra.“
Dóra Magnúsdóttir
Dóra Magnúsdóttir er fædd í
Reykjavík 1965. B.Sc.-próf í
landfræði við HÍ 1992 og loka-
próf í hagnýtri fjölmiðlun 1995.
2000 lauk hún prófi í markaðs-
og margmiðlunarfræðum frá Int-
eractive Marketing and Media
Academy í Danmörku. Starfaði
um árabil við leiðsögn erlendra
ferðamanna og blaðamennsku og
sem deildarstjóri í upplýs-
ingadeild Flugleiða ’95–’98 og
markaðs- og kynningarstjóri Ís-
lenskra ævintýraferða ’01–’03.
Er nú verkefnisstjóri markaðs-
og ferðamála hjá Höfuðborg-
arstofu. Maki er Guðmundur J.
Guðjónsson margmiðlunarhönn-
uður og eiga þau tvö börn, Kára,
11 ára, og Lilju, 6 ára.
Á sjötta tug
fyrirtækja
tekur þátt
MJÖG rammt kvað að sinubrunum
í gær og var Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins kallað út ítrekað
vegna þeirra, einkum í Hafnar-
firði. Ekki hlutust skemmdir af á
híbýlum eða öðrum mannvirkjum,
en slökkviliðsmenn voru meira eða
minna uppteknir af sinubrunum
sem voru orðnir 15 síðdegis í gær.
Það sem af er vori hafa brennu-
vargar oft sætt færis þegar veður
er bjart og þurrt og kveikt í sinu.
Sinubrunar taka drjúgan tíma frá
slökkviliðinu og vill vaktstjóri
slökkviliðsins brýna fyrir foreldr-
um og kennurum að vara börn við
þeim hættulega leik að kveikja í
sinu. Afleiðingarnar geti orðið
mjög alvarlegar með því að eldur
berist í annan gróður og/eða
mannvirki.
Mörg útköll vegna sinubruna