Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 10
20. apríl þriðjudagur
TUTTUGASTI OG ÞRIÐJI APRÍL
Bókaverslanir
Bókin Tuttugasti og þriðji apríl kemur út í
tilefni Viku bókarinnar 2004. Í þessari bók,
sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur
út, birtast 11 nýjar sögur eftir jafnmarga
íslenska höfunda. Það sem sögurnar eiga
sammerkt er dagsetningin 23. apríl, auk
þess sem höfundum var úthlutað ártali
með það fyrir augum að bókin spannaði
heila öld. Þannig hefst fyrsta sagan árið
1904 og sú síðasta tekur mið af árinu
2004. Lesendum er látið eftir að greina
fleiri þræði sem geta legið á milli þessara
ólíku sagna.
Bókin kemur í bókaverslanir í dag og
verður gefin viðskiptavinum sem kaupa
bækur fyrir 1500 krónur eða meira þessa
viku.
SMÁSAGNAVEISLA
Jón forseti
Kl. 20.00
Í tilefni Viku bókarinnar efnir Skáldaspíran
til sannkallaðrar smásagnaveislu á
Jóni forseta í Aðalstræti. Höfundar
smásagnasafnsins Tuttugasti og þriðji
apríl lesa úr verkum sínum.
UPPLESTUR - ÓTUKTIN
Sólon
Kl. 20.00
Bókaútgáfan Salka stendur fyrir
útgáfugleði í tilefni af því að í dag kemur
út bókin Ótuktin eftir Önnu Pálínu
Árnadóttur. Anna Pálína les úr bókinni og
spjallar við áheyrendur.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
EDDA ÚTGÁFA
Vefsíðan www.gagnasafn.is opnuð.
Menningararfur Íslendinga á Netinu.
21. apríl miðvikudagur
FUGLAVERKEFNI
Borgarbókasafn, Kringlusafn
Kl. 10.00
Svipast um í hverfinu. Fuglaverkefni frá
leikskólanum Hamraborg verður til sýnis
og börn þaðan, sem eru fastagestir á
safninu, koma í heimsókn og skemmta
gestum með fuglasöngvum. Farfuglar
í formi bóka verða til sýnis, þ.e. brot úr
þýddum skáldsögum tveggja rithöfunda
úr hverfinu, þeirra Einars Kárasonar og
Vigdísar Grímsdóttur.
BARNABÓKAVERÐLAUN
Höfði
Kl. 17.00
Fræðsluráð Reykjavíkur afhendir í Höfða
barnabókaverðlaun sín og er þetta í 32.
skipti sem verðlaunin eru afhent. Veitt
verða tvenn verðlaun, annars vegar fyrir
frumsamda barnabók og hins vegar fyrir
þýðingu á barnabók.
22. apríl fimmtudagur
– sumardagurinn fyrsti
BORGARBÓKASAFN - LJÓÐAGANGA
Aðalsafni, Tryggvagötu 15
Kl. 13.00
Borgarbókasafn býður borgarbúum og
öðrum gestum í ljóðagöngu í miðbænum
til að fagna sumarkomu. Dagskráin er
hluti af Ferðalangi 2004 sem er verkefni á
vegum Höfuðborgarstofu. Einar Ólafsson,
ljóðskáld og bókavörður, leiðir gönguna.
Staldrað verður við á völdum stöðum og
sviðið teiknað upp. Ljóðin verða af ýmsu
tagi en tengjast öll Reykjavíkurborg og
þema Ferðalangs, þ.e. að fara í ferðalag
um borgina og sjá hana með nýjum
augum. Lagt verður upp frá aðalsafni við
Tryggvagötu 15. Gangan tekur 1 – 2 klst.
Aðgangur ókeypis.
EDDA ÚTGÁFA
Norræna húsinu
Kl. 14.00
Sigrún Eldjárn í Norræna húsinu. Opnun
sýningar á teikningum úr Kuggsbókum
Sigrúnar sem koma út í Viku bókarinnar.
BÓKASAFN GRINDAVÍKUR
Kvenfélagshúsinu Grindavík
Kl. 14.00.
Bókasafnið býður, ásamt bókasafns- og
menningarnefnd Grindavíkur, börnum
á leiksýningu í Kvenfélagshúsinu að
Víkurbraut 21. Þar sýnir Möguleikhúsið
Hatt og Fatt.
BORGARBÓKASAFN –
BÓKAVERÐLAUN BARNANNA
Aðalsafni, Tryggvagötu 15.
Kl. 14.30
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Líkt og
tvö undanfarin ár hefur Borgarbókasafn
staðið fyrir vali á barnabók ársins meðal
6 – 12 ára barna. Skari skrípó afhendir
verðlaunin og hristir töfrabrögð fram úr
erminni. Eþos, tónlistarhópur Reykavíkur,
leiðir gesti inn í sumarið með léttri og
skemmtilegri tónlist. Í hópnum eru þau
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Greta
Guðnadóttir fiðluleikari, Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari og Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
BÓKMENNTAKVÖLD BJARTS
Súfistanum, Laugavegi 18
Kl. 20.30
Kynnt verða verkin Ég er ekki hræddur
eftir Niccolò Ammaniti og Fimm mílur frá
Ytri-Von eftir Nicolu Barker. Sérstakur
gestur kvöldsins er ítalski rithöfundurinn
Niccolò Ammaniti sem mun ræða um bók
sína og árita hana að dagskrá lokinni.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
EDDA ÚTGÁFA
Bókagjöf Eddu og Hróksins - Skák og mát
- í Grímsey, eyju Willards Fiske.
23. apríl föstudagur.
Alþjóðadagur bókarinnar
Alþjóðadagur bókarinnar
og höfundarréttar, 23. apríl,
er haldinn hátíðlegur víða
umheim að frumkvæði
UNESCO, Menningarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna. Dagurinn er
helgaður bókinni og þeim sem vinna við
bækur með einum eða öðrum hætti. Hér á
landi hefur Félag íslenskra bókaútgefenda
staðið að hátíðahöldum og margvíslegri
dagskrá á Degi bókarinnar og í Viku
bókarinnar 20. - 26. apríl eins og fram
kemur í dagskránni.
ÁVARP DAGSINS
Linda Vilhjálmsdóttir rithöfundur
Flutt og birt í fjölmiðlum.
EDDA ÚTGÁFA
Sigurskáldið í ljóðakeppni Eddu og
Fréttablaðsins kynnt.
TUTTUGASTI
OG ÞRIÐJI APRÍL
Bókaverslanir
Bókin Tuttugasti og þriðji apríl kemur út í tilefni Viku bókarinnar 2004. Í þessari
bók, sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur út , birtast 11 nýjar sögur eftir
jafnmarga íslenska höfunda. Það sem sögurnar eiga sammerkt er dagsetningin
23. apríl, auk þess sem höfundum var úthlutað ártali með það fyrir augum að
bókin spannaði heila öld. Þannig hefst fyrsta sagan árið 1904 og sú síðasta tekur
mið af árinu 2004. Lesendum er látið eftir að greina fleiri þræði sem geta legið á
milli þessara ólíku sagna. Sögurnar eru:
Kristín Helga Gunnarsdóttir: Ljós leikur við myrkur (1904)
Rúnar Helgi Vignisson: Ættartalan (1914)
Gerður Kristný: Lagkaka (1924)
Stefán Máni: Mein Kampf (1934)
Auður Jónsdóttir: Heillaráð Ófeigs (1944)
Ágúst Borgþór Sverrisson: Afmælisgjöfin (1954)
Hlín Agnarsdóttir: Aprílbirta (1964)
Einar Örn Gunnarsson: Dýrmætasta leyndarmálið (1974)
Kristín Marja Baldursdóttir: Ásókn (1984)
Sigurbjörg Þrastardóttir: Hvar, ef ekki hér? (1994)
Bjarni Bjarnason: Hönnunarstofan (2004)
Vika
bókarinnar
Íslenska skáldsagan
Börn og bækur