Morgunblaðið - 20.04.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.04.2004, Qupperneq 14
FRÉTTIR 14 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Frummælendur: Dögg Pálsdóttir, hrl., Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor, Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, laganemi. Fundarstjóri: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, námssálfræðingur. Vörður-fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Allir velkomnir! Jafnrétti í fókus - markmið, leiðir, árangur Umræðufundur Varðar miðvikudaginn 21. apríl kl. 17.00 í Valhöll ÚR VERINU KÁRI Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Gunnar Hersveinn, blaðamaður og heimspekingur, Sig- mar Vilhjálms- son, sjónvarps- maður, og Sæunn Stefáns- dóttir, viðskipta- fræðingur og að- stoðarmaður heilbrigðisráð- herra, verða frummælendur á opnu málþingi um skóla fram- tíðarinnar sem Framsóknarflokk- urinn efnir til á Grand Hóteli í Reykjavík í kvöld klukkan 20. Aðgangur er ókeypis en mál- þingið er liður í starfi starfshóps sem miðstjórn Framsóknarflokks- ins fól sl. haust að fara yfir og undirbúa þá endurskoðun á stefnu flokksins í menntamálum, sem ráð- gert er að fram fari á flokksþingi snemma á árinu 2005. Viljum almenna umræðu Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir frum- mælendurna ætla að velta fyrir sér draumaskóla framtíðarinnar. „Okkur langaði til að fá almenna og dálítið markvissa þjóðfélagsum- ræðu um þessi mál en ekki að festa okkur í einhverri pólitík. Okkur finnst mikilvægt að hafa umræðuna á því plani. Fólki finnst það dálítið fráhrindandi ef umræðan er fast- mótuð í pólitískar skoðanir. Þannig að það verður gaman að heyra í og sjá áherslur frummælendanna sem hver hefur sína reynslu af skóla- kerfinu,“ segir Dagný. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, setur fund- inn með ávarpi. Jónína Bjartmarz alþingismaður verður fundarstjóri. Málþing um skóla fram- tíðarinnar Dagný Jónsdóttir ÍSLENZKU kolmunnaskipin héldu mörg til veiða eftir páskana, ýmist eftir stopp yfir hátíðarnar, eða voru að hefja veiðar á þessari ver- tíð. Um páskana lönduðu þrjú fær- eysk skip kolmunna hjá Síldar- vinnslunni. Högaberg landaði í Neskaupstað og Trondur í Götu og Norðborg á Seyðisfirði. Hákon EA, sem var á kolmunnaveiðum yfir páskana, fór til Seyðisfjarðar með 1200 tonn og Börkur NK sömuleiðis með ríflega 800 tonn. Í gær hafði verið landað um tæplega 38.000 tonnum af kolmunna hér á landi í ár. Þar af höfðu erlend skip, að- allega færeysk, landað tæplega 31.000 tonnum, en þau íslenzku að- eins 7.100. Langmestu hefur verið landað á Fáskrúðsfirði, 14.000 tonnum, öllu af erlendum skipum. Til Grindavíkur hafa borizt 6.300 tonn, til Eskifjarðar 5.000 tonn og 7.100 tonn til Seyðisfjarðar. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Jón Kjartansson og Ingunn á Eskifirði taka kolmunnatrollin um borð. Íslenzku skipin á kolmunna á ný ÁFORM um mesta samruna sög- unnar í nýsjálenzkum sjávarútvegi hafa runnið út í sandinn. Ef þau á hinn bóginn hefðu orðið að veruleika hefði árlega velta hins sameinaða fé- lags orðið um 47 milljarðar íslenzkra króna. Það voru fyrirtækin Sanford og Sealord, sem til stóð að sameina, en hið síðarnefnda er nú í eigu Maora, frumbyggja landsins og Japana. Framkvæmdastjóri Sanford, Eric Barrat, sem sleit sameiningarvið- ræðunum, segir að þess í stað muni fyrirtækið leita út fyrir landsteinana til að auka umsvif sín. Sanford hefur verið í samvinnu við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og stóð félögun meðal annars að yfir- töku Fishery Products á Nýfundna- landi fyrir nokkrum misserum ásamt kanadíska fyrirtækinu Clearwater. Eins og áður sagði hefði velta sameinaðs félags orðið um 47 millj- arðar króna, en það var að mati stjórnenda þeirra nægilegur styrkur til að verða gjaldgengur í hinni miklu samkeppni með sjávarafurðir í heim- inum. Leita út fyrir landsteinana Saman hefðu félögin verið með 45% allra veiðiheimilda á Nýja-Sjá- landi eða um 650.000 tonn. Barrat hefur ekki vilja segja það hafi valdið viðræðuslitunum, en segir að um ákveðin atriði hafi ekki náðst sam- komulag innan stjórna félaganna beggja. „Við gerðum það ljóst að nokkur ljón væru í veginum fyrir sameiningu. Það er leitt að ekkert skyldi verða af henni, en við verðum nú að snúa okkur að öðrum tækifær- um. Sanford hefur þegar nokkurra hagsmuna að gæta í öðrum löndum og þar eru ótvíræður möguleikar til vaxtar,“ segir Barrat. Markaðsskýrendur hafa sagt að líklega næðist ekki samkomulag um það að færa yfirráð aflaheimilda til Sanford og það gæti orðið ásteyting- arsteinn. Þá var einnig talið að eign- araðildin að Sealord gæti orðið til trafala. Loks var bent á að erfitt yfði að hafa áhrif á rekstrarumhverfið, eins og minnkandi kvóta á hokinhala, hátt gengi nýsjálenzka dollarsins, hátt olíuverð og þrengingar á mörk- uðum fyrir krækling frá Nýja-Sjá- landi. Hátt gengi til baga Hátt gengi nýsjálenzka dollarsins gagnvart hinum ameríska hefur dregið úr útflutningstekjum um 20%, en þær hafa fallið úr 70 millj- örðum króna í 65,4 milljarða. Haldist gengið áfram svona hátt munu verð- mætin lækka um önnur 20% á þessu ári og falla niður í 47 milljarða króna. Þetta hefur þegar leitt til verulegs samdráttar og meðal annars hefur skipum verið lagt eða þau seld og mikið af störfum í sjávarútveginum hefur tapazt. Fallið frá sam- einingu Sanford og Sealords LÖGGÆSLUMENN frá varð- skipinu Ægi fóru um borð í skip út af Austurlandi fyrir helgina til reglubundins eftirlits og komust að raun um að skipið var vanmannað og um borð í því voru ómerktir netadrekar. Skipstjóra var gert að sigla til Hafnar í Hornafirði þar sem lögreglan á staðnum hélt rann- sókn áfram. Sýslumaðurinn á Höfn, Páll Björnsson, er með málið til meðferðar. Hann segir að skipstjóri skipsins hafi enn ekki gefið skýrslu vegna þess að hann hafi ekki náð sambandi við lögfræðing útgerðarinnar til að fá ráðleggingar um það hvernig hann beri sig að við skýrslugjöfina. Báturinn sem heitir Sindri er því í farbanni þar til skýrsla liggur fyrir að minnsta kosti. Skip fært til hafnar KUNNÁTTA íslenskra náms- manna í dönsku sem fara í fram- haldsnám til Danmerkur er misjöfn og eru margir nemendur þeirrar skoðunar að þeir hefðu átt að leggja sig harðar fram við dönsku- námið í íslenskum grunn- og fram- haldsskólum. Sumir þeirra eiga erf- itt með að fóta sig í dönsku í upphafi náms, einkum vegna erf- iðleika við að skilja talað mál og tala dönsku. Þeir eiga hins vegar almennt auðvelt með að lesa og skrifa dönsku. Þetta er meðal niðurstaðna í rannsókn Auðar Hauksdóttur, dós- ents í dönsku við Háskóla Íslands, sem hún gerði meðal íslenskra námsmanna í framhaldsnámi í Dan- mörku árin 1999, 2002 og 2003. Auður kynnir rannsóknina í fyrir- lestri sem fer fram í Lögbergi, stofu 101, klukkan 16 í dag og ber yfirskriftina „Ég hefði átt að leggja harðar að mér við dönskunámið.“ Um 1.500 námsmenn í Danmörku Rannsóknin var þríþætt og fór fyrst fram vorið og sumarið 1999 þegar spurningalistar voru lagðir fyrir íslenska námsmenn í Dan- mörku, alls ríflega 200 talsins. Svörun í það skiptið var um 63%. Sömu spurningalistar voru aftur lagðir fyrir nemendur þremur ár- um síðar, alls 232 sem náðist til. Svörunin þá var rúm 68%. Alls fengust svör frá um 300 nemendum og loks tók Auður ítarleg viðtöl við 15 nemendur vorið 2003. Þess má geta að sam- kvæmt upplýs- ingum frá LÍN hafa um 1.500 ís- lenskir náms- menn sótt um lán eða styrki í ár til að stunda fram- haldsnám í Dan- mörku. Auður segir við Morgunblaðið að yfirskrift fyrirlestrarins endur- spegli vel viðhorf margra nemenda í rannsókninni. Þeir hafi ekki áttað sig nógu vel á mikilvægi dönsku- námsins á yngri árum og þegar til Danmerkur sé komið skynji þeir einkum vankunnáttu í að tala dönsku og skilja talað mál. Auður segir að tilgangur rann- sóknarinnar hafi verið að átta sig á hvað betur megi gera í dönsku- kennslu og hvað sé vel gert. Eigi árangur að nást verði að vanda til kennslunnar og nemendur verði að nýta námstímann vel, það geti skipt miklu máli síðar í námi og starfi. Mikilvæg sérstaða sem má ekki glatast Hún segir einnig mikilvægt að hafa jákvæða umræðu um það sem sé verið að kenna í skólunum. Nám- ið verði að vera skilvirkt og í þessu sambandi bendir Auður á að ís- lenskir námsmenn hafi til fjölda ára haft þá sérstöðu að þurfa ekki að þreyta próf til að sýna fram á kunn- áttu sína í dönsku, en slíkt próf sé almenn forsenda inntöku útlend- inga í danska háskóla. Íslenska stúdentsprófið í dönsku hafi verið talið fullgilt. Auður leggur áherslu á að hér sé um afar mikilvæga sérstöðu að ræða. Hún bendir á að hin seinni ár sé vaxandi ásókn erlendra ríkis- borgara í danska háskóla. „Ef íslenskir nemendur geta ekki staðið undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar hvað tungu- málakunnáttu varðar geta þeir átt á hættu að tapa þessari sérstöðu. Ég held að Íslendingar átti sig al- mennt ekki á þessu. Þarna eru hagsmunir í húfi sem við verðum að standa vörð um,“ segir Auður. Hún segir rannsóknina sýna að sumir nemendur eigi í erfiðleikum í upphafi námstímans með talmálið. Það hafi tekið nokkra mánuði að skilja talaða dönsku vel, allt að hálft ár að gera sig vel skiljanlega á málinu. Almennt gangi nemendum vel að lesa, þeir hafi almennan orðaforða og eigi almennt ekki í miklum vandræðum með að tjá sig í rituðu máli. Hún segir þetta skiljanlegt í ljósi svara við spurningum um hvaða vægi einstakir þættir fengu í dönskunámi í framhaldsskóla hér á landi. Flestir nemendur svari því til að hlustunar- og talþjálfun hefðu haft lítið vægi, meiri áhersla hafi verið lögð á lestrar- og ritþjálfun. Auður segir þarna vera mikilvæg skilaboð til skólakerfisins. Rannsókn meðal íslenskra námsmanna í námi í Danmörku Hefðu átt að leggja harðar að sér við dönskunámið Auður Hauksdóttir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 17 ára pilt til að greiða á þriðja hundrað þúsund krónur í sekt, bætur og málskostnað fyrir lík- amsárás í miðbæ Reykjavíkur í maí 2003. Ákærði var sakfelldur fyrir að kýla mann í andlit í Lækjargötu með þeim afleiðingum að brotaþoli skarst í andliti og gleraugu hans brotnuðu. Honum voru dæmdar 86 þúsund krónur í bætur og ákærði jafnframt dæmdur til að greiða 70 þúsund krónur í sekt og 60 þúsund krónur í málsvarnarlaun. Símon Sigvaldason héraðsdómari dæmdi málið. Verjandi ákærða var Jón Höskuldsson hdl. og sækjandi Daði Kristjánsson, fulltrúi lögreglu- stjórans í Reykjavík. Dæmdur fyrir árás

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.