Morgunblaðið - 20.04.2004, Síða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 19
Velkomin í Stykkishólm!
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Eyjar og lífríki Breiðafjarðar - Snæfellsnesið magnað og söguríkt
Hafnarfjörður | Fimm aðilar fengu í
fyrradag styrki frá Húsverndarsjóði
Hafnarfjarðarbæjar við hátíðlega at-
höfn, sem fram fór í Góðtemplara-
húsinu við Suðurgötu 7. Þetta er í
þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðn-
um, en styrkirnir eru ætlaðir til end-
urgerðar eða viðgerða á ytra borði
húsa sem sérstakt varðveislugildi
hafa af listrænum eða menningar-
legum ástæðum.
Styrkir voru veittir vegna viðgerða á
eftirfarandi húsum:
Merkurgata 7, byggt 1909. Styrk-
ur veittur vegna glugga.
Norðurbraut 25b, byggt 1910.
Styrkur veittur vegna glugga.
Hverfisgata 49, byggt 1925.
Styrkur veittur vegna glugga.
Hverfisgata 11, byggt 1929.
Styrkur veittur vegna glugga.
Skúlaskeið 8, byggt 1929. Styrkur
veittur vegna viðgerðar á varð-
veisluverðum þakkanti.
Góðtemplarahúsið er sögufrægt
hús, það var vígt við hátíðlega athöfn
17. desember árið 1886. Gúttó, eins
og húsið er jafnan nefnt í Hafnar-
firði, var fyrsta húsið sem Góðtempl-
arar reistu hér á landi fyrir starf-
semi sína og jafnframt fyrsta
eiginlega samkomuhús Hafnfirð-
inga. Var húsið lengi miðstöð allrar
menningarstarfsemi í bænum.
Sérstök viðurkenning var veitt
fyrir vel heppnaða endurgerð á ytra
borði hússins við Smyrlahraun 4, en
miklar endurbætur hafa verið gerð-
ar á því húsi.
Enn á eftir að laga kjallaraglugga
og handrið ofan á bíslagi auk þess
sem handrið á tröppum hússins
verður fært til upprunalegs horfs.
Karl Rúnar Þórsson, sagnfræðingur
hjá Byggðasafni Hafnarfjarðar, seg-
ir húseigendur hafa unnið að við-
gerðunum í mjög náinni samvinnu
við Húsafriðunarnefnd ríkisins.
„Þessi aðferðafræði sem við erum að
ganga út frá er aðferðafræði Húsa-
friðunarnefndar, en samkvæmt
henni eru gluggarnir andlit hússins
og mikil áhersla lögð á ytra byrði
þess, þar sem ytra byrðið er það sem
almenningur sér frá götunni,“ segir
Karl.
Húsaverndarsjóður veitir styrki og viðurkenningar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugafólk um viðhald húsa fylgdist með afhendingu styrkja og viðurkenninga fyrir húsaviðhald í Hafnarfirði.
Megináhersla lögð
á ytra byrði húsa
Morgunblaðið/Kristinn
Upprunalegt útlit hússins við
Smyrlahraun 4.
Morgunblaðið/Kristinn
Húsið þykir til mestu prýði eftir
nýjustu viðgerðir.
Mosfellsbær | Ársreikningur
Mosfellsbæjar fyrir árið 2003 var
lagður fram til seinni umræðu á
fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæj-
ar, þ. 14. apríl sl.
Að mati endurskoðenda bæjar-
félagsins hefur verulegur árangur
náðst á árinu, bæði miðað við nið-
urstöður ársins 2002 og upphaf-
lega rekstraráætlun, en hún tók
einungis lítils háttar breytingum
innan ársins frá upphaflegri áætl-
un.
Rekstrargjöld A-hluta bæjar-
samstæðunnar voru 0,2% hærri
en rekstrartekjur, veltufé frá
rekstri var jákvætt um 8,7% og
fjárfestingarhreyfingar námu
5,1% af rekstrartekjum.
Fulltrúar minnihluta framsókn-
arflokks, samfylkingar og Vinstri-
grænna benda þó á hallarekstur
og skuldasöfnun bæjarins og
nefna þar helst til að skatttekjur
séu 47 milljónum króna lægri en
fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir.
Þá nemi halli á rekstri bæjarins
um 56 milljónum króna. Fjárfest-
ingar í A-hluta séu 34 milljónum
króna lægri en áætlun gerði ráð
fyrir og skuldir bæjarins hafi auk-
ist um 266 milljónir króna.
Í fréttatilkyningu minnihlutans
segir m.a. að ljóst sé að það sé
ekki „aðhald í rekstri, hagræðing
eða töfralausnir sjálfstæðismanna
sem skilar breyttri afkomu frá
árinu 2002 heldur stórlega auknar
álögur á bæjarbúa sem rýrir lífs-
kjör þeirra.“
Bættur árangur í
rekstri bæjarins
Garðabær | Bæjaryfirvöld í Garða-
bæ skrifuðu undir samning við Nýsi
hf. um um byggingu og rekstur nýs
leikskóla á Sjálandi á dögunum. Um
er að ræða einkaframkvæmd og er
þetta í fyrsta sinn sem íslenskt sveit-
arfélag hefur farið þá leið að bjóða
út í einu lagi byggingu skóla-
húsnæðis, rekstur þess og innra
starf skólans. Ásdís Halla Braga-
dóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, seg-
ist bjartsýn á verkefnið. Þar sé um
að ræða enn eina viðbótina við fjöl-
breytt úrval leikskóla í Garðabæ.
Leikskólinn tekur til starfa í ágúst
2005, en þá tekur einnig til starfa
nýr grunnskóli í Sjálandi, sem er
nýtt hverfi í uppbyggingu í Garða-
bæ. Í leikskólanum verða 120 heils-
dagsrými fyrir börn frá 18 mánaða
aldri til skólaskyldualdurs. Leik-
skólagjöld verða í samræmi við
gjaldskrá leikskóla Garðabæjar á
hverjum tíma.
Verkefnið sem samið var um felst
í að Nýsir hf. hanni, byggi, fjár-
magni, eigi og reki leikskóla, ásamt
öllum búnaði og frágenginni lóð í 25
ár. Nýsir hefur stofnað tvö dótt-
urfélög um verkið, Sjáland, sem sjá
mun um rekstur leikskólans og sér-
stakt fasteignafélag, Hafnarslóð
ehf., sem mun eiga leikskólann, sjá
um hönnun hans og byggingu og
leigja Garðabæ húsnæðið allan
samningstímann.
Ásdís Halla Bragadóttir, bæj-
arstjóri Garðabæjar, hefur mikla trú
á verkefninu. „Við buðum út rekstur
á leikskóla og þrír aðilar buðu í verk-
ið. Tilboðið frá Nýsi fékk mjög háa
einkunn, bæði faglegi þátturinn,
rekstrarlegi þátturinn og húsnæð-
isþátturinn. Á grundvelli þess var
ákveðið að fara til viðræðna við þá,“
segir Ásdís Halla.
Mjög fjölbreytileg rekstrarform
eru á leikskólum í Garðabæ. „Við er-
um með húsnæði sem Garðabær á
og leigir út, svo eigum við húsnæði
og rekum skóla sjálf. Síðan eru
einkareknir leikskólar sem eru í eig-
in húsnæði og við borgum með
hverju barni sem er þar. Síðan erum
við með leikskóladeild í barnaskóla.
Þetta er í fyrsta skipti sem við
bjóðum út bæði rekstur og húsnæði
og erum spennt að sjá hvaða reynslu
við fáum af því. Við erum bjartsýn á
að það geti gengið vel. Þarna er um
að ræða reynda aðila á þessu sviði
sem hafa getið sér gott orð fyrir
rekstur leikskóla,“ segir Ásdís
Halla.
Nýsir byggir og
rekur leikskóla
Við undirskrift samningsins við Nýsi: Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri,
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf., Ída Jensdóttir, væntanlegur
leikskólastjóri, og Guðbjörg H. Gylfadóttir, skrifstofustjóri Nýsis.
Samið um leikskóla á Sjálandi