Morgunblaðið - 20.04.2004, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 43
FIDE-MEISTARINN Róbert
Harðarson (2.307) náði áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli á First Sat-
urday móti í Ungverjalandi sem lauk
á föstudag. Hann hafnaði í 2.–3. sæti
á mótinu, fékk 9
vinninga í 13
skákum í AM-
flokki mótsins.
Fjórir aðrir ís-
lenskir skákmenn
tóku þátt í
mótinu. Páll Þór-
arinsson (2.278)
tefldi einnig í
AM-flokki, hlaut
5 vinninga og
hafnaði í 11. sæti. Tómas Björnsson
(2.256) náði góðum árangri í FM-
flokki A, fékk 6½ vinning í 11 skák-
um og deildi efsta sæti með fjórum
öðrum. Jón Árni Halldórsson (2.193)
sem tefldi í sama flokki fékk 4 vinn-
inga og lenti í 10.–12. sæti. Sigurður
Ingason (1.937) fékk 5 vinninga í 10
skákum í FM-flokki B og hafnaði í
þriðja sæti af sex keppendum.
Róbert fór taplaus í gegnum mót-
ið, vann fimm skákir og gerði átta
jafntefli. Hann hafði tryggt sér
áfangann eftir sigur í tíundu umferð
og slakaði lítið á eftir það. Fyrsti sig-
ur hans í mótinu kom í annarri um-
ferð þegar hann mætti Þjóðverjan-
um Basilius Gikas (2.271).
Hvítt: Róbert Harðarson
Svart: Basilius Gikas
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. d4 cxd4 3. Dxd4 –
Þetta sakleysislega afbrigði, sem
Róbert bregður stundum fyrir sig,
getur verið erfitt viðfangs fyrir
svart.
3. – Rc6 4. De3 Rf6 5. Rc3 e5
Varlegra er að leika 5. … e6.
6. Bc4 Rd4 7. Dd3!? –
Nýr leikur, en Róbert hefur áður
leikið 7. Bd3 með misjöfnun árangri,
t.d. 7. – d5 8. exd5 Rg4 9. Dg3 h5 10.
h4 Bc5 11. Rh3 f5 12. Bg5 Da5 13. 0–
0–0 0–0 14. f3 f4 15. Rxf4 exf4 16.
Bxf4 Rf2 17. Be5 Rxd3+ 18. Hxd3
Rf5 19. Dg6 Bd7 og svartur vann
(Róbert-Nybäck, Reykjavík 2001).
7. … Bb4 8. Bd2 Bxc3
Til greina kemur að leika 8. …d5!?
9. Bxd5 0–0, þótt svartur eigi í vök að
verjast, eftir 10. Bg5 Bxc3+ 11. bxc3
Re6 12. Bxf6 Dxf6 13. Re2 Rc7 14. c4
o.s.frv.
9. Bxc3 d5 10. Bxd5 Rxd5 11.
Bxd4 exd4 12. Db5+ Dd7 13. Dxd5
Dxd5 14. exd5 Bf5 15. Hd1 Bxc2 16.
Hxd4 Kd7 17. Kd2 Bg6 18. Re2 Kd6
19. Rc3 a6 20. h4 f6?
Eftir 20. … h5 er ekki verið eins
einfalt fyrir hvít að notfæra sér um-
frampeðið.
21. h5 Bf7 22. Re4+ Ke5
Engu betra er 22. … Ke7 23. h6
Kf8 (23. – gxh6 24. d6+ Ke6 25.
Hxh6 Bg6 26. Rc5+ Kf7 27. Hh3) 24.
Hc1 Hd8 25. Hc7 og hvítur að yf-
irburðatafl.
Eða 22. … Kd7 23. h6 Hhg8 24.
Rc5+ Kc8 25. Hc1 b6 26. Re6+ Kb8
27. Rxg7 Hd8 28. d6 Bxa2 29. Rh5
Ha7 30. Rxf6 Hf7 31. Re4 o.s.frv.
Stöðumynd 1
23. Ke3 Had8 24. f4+ Kf5 25. d6
b6 26. Kf3 Ke6 27. h6! g5
Eða 27. … gxh6, t.d. 28. Hxh6 Bg6
29. g4 Kf7 30. f5 Kg7 31. Hh1 Bf7 32.
Hc1 Hd7 33. Hc7 Hhd8 34. Hxd7
Hxd7 35. a4 a5 36. b4 axb4 37. Hxb4
Bd5 38. Hxb6 Ha7 39. Hb5 Ba8 40.
a5 Ha6 41. d7 Hd6 42. Hb8 Bxe4+
43. Kxe4 Hxd7 44. a6 Kh6 45. Hb4
Kg5 46. Ha4 Hd8 47. a7 Ha8 48. Kd5
og hvítur vinnur.
28. fxg5 f5
Eftir 28. … Ke5 29. Hhd1 Bxa2 30.
Rxf6 Kf5 31. Hf4+ Kxg5 32. Re4+
Kxh6 33. Hg4 Hhf8+ 34. Kg3 Hf5
35. Hh1+ Hh5 36. Hf1 á svartur
enga skynsamlega vörn við hótun-
inni 37. Hf6+.
29. Rf6 Ke5 30. Hd2 f4
Stöðumynd 2
31. g4 fxg3 32. Kg4 Be6+ 33. Kxg3
Kf5 34. Kh4 Hc8
Eða 34. … Kg6 35. He1! Kf7 (ef
biskupinn hreyfir sig, kemur 36. He7
með máthótun á g7) 36. Rg4! Hhe8
(36. … Bxg4 37. He7+ Kg8 38. Hf2
Hd7 (38. … Bd1 39. Hg7+ mát) 39.
He8+ mát) 37. Hf2+ Kg8 38. Rf6+
Kf7 (38. … Kh8 39. Rxe8 Hxe8 40.
Hxe6 Hxe6 41. Hf8+ mát) 39.
Rxe8+ Kxe8 40. Hxe6+ og hvítur
vinnur auðveldlega.
35. Hf1+ Kg6
Önnur leið er 35. … Ke5 36.
Rd7+! Bxd7 37. He1+ Kf5 38. Hf2+
Kg6 39. Hf6+ mát.
36. Rg4!
og svartur gafst upp. því að hann
verður mát: 36. … Bxg4 (36. … Bf5
37. Re5+ mát; 36. … Hhf8 37. Re5+
mát; 36. … Hc5 37. Hf6+ mát) 37.
Hf6+ mát.
Sýslumót Kjósarsýslu
Sýslumót Kjósarsýslu í skólaskák
verður haldið í Garðabergi, Garða-
torgi 7, í Garðabæ (félagsmiðstöð
aldraðra) kl. 18 þriðjudaginn, 20.
apríl. Þátttökurétt hafa 2 keppendur
frá hverjum skóla í yngri (1.–7. bekk)
og eldri aldursflokki (8.–10. bekk).
Þ.e. um er að ræða 2 keppendur í
hvorum flokki fyrir sig, fjóra alls.
Um er að ræða keppendur úr öll-
um skólum í Garðabæ, Bessastaða-
hreppi, Seltjarnarnesi og Mos-
fellsbæ auk Kjósar.
Mótið er undankeppni fyrir Kjör-
dæmismót Reykjaness og á kjör-
dæmismót fara svo tveir efstu kepp-
endur í hverjum flokki úr
sýslumótinu auk tveggja keppenda
úr Hafnarfirði og tveggja úr Kópa-
vogi sem keppa á innanbæjarmótum.
Einnig koma tveir keppendur úr
hvorum flokki frá Suðurnesjum. Það
mót verður haldið á sama stað kl. 13.
sumardaginn fyrsta, hinn 22. apríl.
Það mót er aftur undankeppni fyr-
ir Landsmót í skólaskák sem verður
haldið væntanlega á Norðaustur-
landi í ár. Reykjaneskjördæmi á einn
fulltrúa í eldri flokki en tvo í yngri
flokki á Landsmóti.
Skráning fer fram hjá Páli Sig-
urðssyni í síma 861 9656 eða í tölvu-
pósti (pall@vks.is).
Róbert náði AM-áfanga og öðru sæti
SKÁK
Búdapest
FIRST SATURDAY MÓTIN
3.–16. apríl 2004
Stöðumynd 1
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Róbert Harðarson
dadi@vks.is
Stöðumynd 2
www.thumalina.is
ÞAU mistök voru gerð við vinnslu
Morgunblaðsins í gær að síða með
minningargreinum var ranglega
auðkennd. Efst á síðunni átti vita-
skuld að standa Minningar. Að-
standendur og lesendur eru beðnir
velvirðingar á þessu.
Réttur aldur
Í frétt um 30 ára afmæli Grinda-
víkurkaupstaðar í gær misritaðist
aldur Kristlaugar Lilju Halldórs-
dóttur, sem settist í sæti forseta Ís-
lands. Kristlaug er 6 ára en ekki 5
ára eins og stóð í myndartexta.
LEIÐRÉTT
Fjallað um dönskukunnáttu ís-
lenskra námsmanna Auður
Hauksdóttir, dósent í dönsku við
Háskóla Íslands og forstöðumaður
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
í erlendum tungumálum, flytur fyr-
irlestur á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungu-
málum í dag, þriðjudaginn 20. apríl,
kl. 16 í stofu 101 í Lögbergi. Í fyr-
irlestrinum verður fjallað um nið-
urstöður þríþættrar megindlegrar
og eigindlegrar rannsóknar meðal
íslenskra námsmanna í framhalds-
námi í Danmörku, sem unnin var á
árunum 1999–2003 o.fl.
Aðalfundur Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar verður haldinn í dag,
þriðjudaginn 20. apríl kl. 20, í Hásöl-
um, safnaðarheimili Hafnarfjarð-
arkirkju við Strandgötu. Gestir
fundarins verða: Helgi Benedikts-
son hjúkrunarfræðingur hjá Heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins,
Rósa Kristjánsdóttir, djákni á Land-
spítalanum, og Valgerður Sigurð-
ardóttir, yfirlæknir líknardeildar
Landspítalans.
Námskeið hjá Karuna-búddamið-
stöðinni Námskeiðið „Hugleiðsla
og daglegt líf“ verður haldið í dag,
þriðjudaginn 20., og þriðjudaginn
27. apríl og 4. maí kl. 20–21.30, hjá
Karuna-búddamiðstöðin, Ljós-
vallagötu 10. Búddanunnan, Ani-la
Nyingpo skýrir og veitir hagnýtar
leiðbeiningar um hugleiðslu.
Þá verður einnig haldið námskeið
hjá Karuna er nefnist „Glaður hug-
ur“ þriðjudagana 11. og 18. maí kl.
20.–21.30.
Ráðstefna um friðargæslu Íslend-
inga verður í dag, miðvikudaginn 20.
apríl kl. 17, í Skála á Hótel Sögu.
Af hverju friðargæsla? heitir ráð-
stefnan sem Samtök um vestræna
samvinnu (SVS) og Varðberg standa
að í samvinnu við utanríkisþjón-
ustuna.
Á ráðstefnunni verður fjallað um til-
gang og gildi friðargæslu Íslend-
inga. Hvað erum við að gera á er-
lendri grundu? Hvaða þýðingu hefur
framlag okkar til friðargæslumála
fyrir Ísland? Hvað segja þeir sem
þegar hafa þjónað á hættusvæðum
undir merkjum Íslands?
Á ráðstefnunni flytja eftirtaldir
framsöguerindi: Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra, setur ráð-
stefnuna, Sólveig Pétursdóttir, al-
þingismaður og formaður
utanríkismálanefndar Alþingis, Arn-
ór Sigurjónsson, yfirmaður íslensku
friðargæslunnar, Hallgrímur Sig-
urðsson flugumferðarstjóri, Nína
Björk Jónsdóttir, blaðamaður Morg-
unblaðinu, og Þórunn Hreggviðs-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
Í DAG
Fyrirlestur um viðhorf nem-
endahópa í leikskólakenn-
aranámi Jóhanna Einarsdóttir dós-
ent við KHÍ og Sif Einarsdóttir
dósent við KHÍ halda opinn fyr-
irlestur á morgun, miðvikudaginn 21.
apríl, kl. 16.15 í salnum Skriðu í
Kennaraháskóla Íslands v/
Stakkahlíð. Yfirskrift fyrirlestrarins
er: „Þær eiga börn á okkar aldri“ –
Reynsla og viðhorf eldri og yngri
leikskólakennaranema.
Í fyrirlestrinum greina Jóhanna og
Sif frá rannsókn á reynslu og viðhorfi
ólíkra nemendahópa í leikskólakenn-
aranámi. Þær könnuðu hvernig nem-
endum líkaði kennslufyrirkomulagið
og tengsl þeirra við aðra nemendur
o.fl.
Fyrirlesturinn er á vegum Rann-
sóknarstofnunar Kennaraháskóla Ís-
lands.
Lögrétta, félag laganema við Há-
skólann í Reykjavík heldur lög-
fræðiþing á morgun, miðvikudaginn
21. apríl kl. 13, í þingsal 101 í Háskól-
anum í Reykjavík. Jón Steinar Gunn-
laugsson prófessor heldur erindi um
nýfallinn dóm Hæstaréttar í máli nr.
344/2002, íslenska ríkið gegn Söndru
Lind Eggertsdóttur. Málið snýst um
skaðabótaábyrgð ríkisins vegna
meintra læknamistaka sem urðu við
fæðingu Söndru Lindar.
„Markaðssetning gagnvart börn-
um og unglingum, hvenær er of
langt gengið?“ er yfirskrift hádeg-
isverðarfundar ÍMARK, félags ís-
lensks markaðsfólks, sem haldinn
verður á morgun, miðvikudaginn 21.
apríl, í Ársal Radisson SAS Hótels
Sögu kl. 12–13.30. Fundarstjóri er
Guðrún Ögmundsdóttir alþing-
ismaður. Framsögu hafa: Anna
María Proppé, framkvæmdastjóri
Heimilis og skóla, Halla Helgadóttir,
grafískur hönnuður á Fíton, Ketill B.
Magnússon, stundakennari í við-
skiptasiðfræði við Háskólann í
Reykjavík, og María Dungal, sér-
fræðingur á markaðssviði Lands-
bankans.
Á MORGUN
Á MORGUN, miðvikudaginn 21.
apríl, eru síðustu forvöð á að skrá sig
hjá Vinnumiðlun ungs fólks fyrir
sumarið 2004. Þeir sem eru fæddir
1987 eða fyrr og með lögheimili í
Reykjavík geta sótt um hjá Vinnu-
miðlun ungs fólks. Í boði eru sum-
arstörf hjá stofnunum Reykjavíkur-
borgar og eru störfin mjög
fjölbreytt.
Einungis er hægt að sækja um á
netinu á heimasíðu Vinnumiðlunar-
innar www.vuf.is Ef umsækjendur
hafa ekki aðgang að netinu geta þeir
komið í Vinnumiðlunina og nýtt sér
þær tölvur sem þar eru. Starfsfólk
Vinnumiðlunar er einnig boðið og
búið til að aðstoða þá umsækjendur
sem ekki eru netvanir. Vinnumiðlun-
in er opin til kl. 21 annað kvöld.
Lokadagur
Vinnumiðlunar
ungs fólks
„SAMTÖKIN Lífsvog lýsa furðu
sinni á umkvörtunum fulltrúa Land-
spítala – háskólasjúkrahúss, um
meint læknamistök í fjölmiðlum,
varðandi atgervisflótta úr lækna-
stétt vegna þessa,“ segir í ályktun
samtakanna.
„Samtökin telja nærtækari skýr-
inga að leita í skipulagsmálum
sjúkrahússins og að virðist skorti á
fjármagni til þess að reka nauðsyn-
legar bráðadeildir sbr. uppsagnir
hjúkrunarfræðinga á skurðdeildum
sem að öllum líkindum ógna öryggi
sjúklinga.
Fulltrúi frá Lífsvog átti fund með
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
nú í janúar sl. þar sem mistök í heil-
brigðisþjónustunni voru til umræðu
við hringborð.
Á fundi þessum var viðhorf al-
mennt uppi að bæta þyrfti skráningu
og gæðaferli allt innan sjúkrahúsa
sem utan, hins vegar væri stóraukið
álag starfa sívaxandi áhættuþáttur.
Þar kom fram að stofnaður hefði ver-
ið rannsóknarhópur á vegum emb-
ættis Landlæknis, til þess að skoða
alvarleg tilvik sem upp koma.
Oftar en ekki er umfjöllun um
meint læknamistök í fjölmiðlum
gagnrýni á málsmeðferð í kerfinu
sem enn þann dag í dag er þung-
lamaleg og því miður á stundum ekki
í þeim faglega farvegi sem vera
skyldi,“ segir í ályktuninni.
Lífsvog undrandi
á umkvörtunum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi við
gatnamót Hringbrautar og Njarðar-
götu föstudaginn 16. apríl kl. 14.13.
Þá rákust saman tvær fólksbifreiðir,
Saab 90 og Toyota Yaris, sem báðum
var ekið vestur Hringbraut. Vitni að
óhappinu eru beðin um að hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavík í
síma 569 9014 eða 569 9050.
Lýst
eftir vitnum
„Á SÍÐASTA stjórnarfundi LIST-
EN, samráðsfundi stjórna norrænna
kennaranema, í Stokkhólmi 27. mars
sl. var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„Norrænir kennaranemar mót-
mæla harðlega áætlunum um að inn-
heimta skólagjöld við Háskóla Ís-
lands. Þessar áætlanir grafa undan
megingildi norrænnar menningar um
gjaldfrjálsa almenningsmenntun og
þar með velferðarkerfinu öllu. Nor-
rænir kennaranemar hvetja íslenska
stjórnmálamenn og háskólafólk til að
hugleiða niðurrifsáhrif slíkrar stefnu-
breytingar til langframa.“
Undir þetta skrifa fulltrúar stjórna
allra kennaranemasamtaka á Norð-
urlöndum sem alls hafa um 49.500 fé-
lagsmenn á sínum snærum.
LISTEN leggst
gegn skóla-
gjöldum í HÍ