Morgunblaðið - 20.04.2004, Qupperneq 44
DAGBÓK
44 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Jeanne D’arc, Georges
Leygues, og Helgafell
koma í dag. Jupiter og
Goðafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hermann Sibum kem-
ur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5.
Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18. S.
867 7251.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans, kl. 15 boccia.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, kl. 10
samverustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa 9–16.30, leikfimi
kl. 10–11, verslunarferð
í Bónus kl. 12.40, bóka-
bíllinn á staðnum kl.
14.15–15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna. Kl. 15
söng- og harmónikku-
stund í borðsal.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Hlað-
hömrum. Kl. 13–16
föndur, spil og bók-
bandsnámskeið, kl. 16–
17 leikfimi og jóga.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Tréskurður
kl. 13.30, Garðakórinn,
kór FEBG, æfing kl. 17.
Lokað í Garðabergi eft-
ir hádegi, kirkjan með
opið hús í Safnaðar-
heimilinu.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, frjáls prjónastund,
Morgungangan kl. 10,
leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11, brids og billjard
kl. 13, saumur og billj-
ard 13.30.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10 létt ganga,
kl. 13 boccia.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 10.50
róleg leikfimi, kl. 14
ganga, kl. 14.45 boccia,
kl. 19 brids. Kl. 9–17
myndlistasýning.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13, alkort kl.
13.30. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði kl. 10.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.05 og 9.55 leik-
fimi, kl. 9. 15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handavinnu-
stofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list, línudans, kl. 15
línudans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9. 30 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun, miðvikudag,
dansæfing í Fjölnissal
kl.13.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, kl.
13–16 spilað og búta-
saumur.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 13 hand-
mennt, og postulín, kl.
14 félagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
almennt föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 11.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði kl. 20.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12,
kl. 20 bingó.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík. Aðalfundur
í Húnabúð þriðjud. 4.
maí kl. 20. Lagabreyt-
ing.
Minningarkort
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og lang-
veika fást í s. 587 5566,
fyrir hádegi.
Í dag er þriðjudagur 20. apríl,
111. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Því að hér höfum vér
ekki borg er stendur, heldur leit-
um vér hinnar komandi.
(Hebr. 13, 14.)
Þorbjörg SigríðurGunnlaugsdóttir
gagnrýnir Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra í
grein á Deiglunni fyrir að
hafa borið það fyrir sig að
jafnréttislögin væru barn
síns tíma eftir að kæru-
nefnd jafnréttismála úr-
skurðaði að hann hefði
brotið lögin með því að
skipa karl í embætti
hæstaréttardómara sem
metinn var minna hæfur
en kvenkyns umsækjandi.
Dómsmálaráðherra hef-ur sumsé látið sér
nægja að bregðast þannig
við að engu máli skipti að
hann hafi brotið gegn
landslögum, því hann sé
ekki sammála þessum
lögum,“ segir Þorbjörg.
„Björn hefur reyndar líka
talið að það hljóti að vera
eitthvað bogið við jafn-
réttislöggjöf landsins og
kærunefndina sjálfa þar
sem úrskurði hennar hafi
verið snúið við af Hæsta-
rétti í tilteknu máli. Hér
gleymir hann að nefna að
héraðsdómur var sam-
mála kærunefndinni og
með sömu röksemda-
færslu væri því hægt að
segja að sitthvað væri
bogið við héraðsdóms-
stólastigið. Nú er það
þannig að sumum úr-
skurðum kærunefndar-
innar hefur verið hnekkt
af Hæstarétti en aðrir úr-
skurðir hafa verið stað-
festir. Þetta út af fyrir sig
segir vitaskuld lítið um
tilverurétt kærunefndar-
innar eða jafnréttislag-
anna.“
Þorbjörg bendir jafn-framt á að misskiln-
ings hafi gætt um efni
jafnréttislaganna í um-
ræðunni undanfarið.
„Birni Bjarnasyni bar
ekki að skipa Hjördísi af
því að hún er kona, ekki
af því Björn Bjarnason
átti að gjalda fyrir syndir
forvera sinna, heldur ein-
faldlega vegna þess að
Hjördís var hæfari en sá
dómari sem Björn skip-
aði. Í þessu máli eru ekki
áhöld um það hvor aðilinn
var hæfari.“
Þorbjörg segir dóms-málaráðherra hafa
sýnt með skipun sinni að
jafnréttislögin séu nauð-
synleg. „Allur sá farsi
sem fór af stað eftir úr-
skurð kærunefndar jafn-
réttismála sýnir því mið-
ur alltof vel hve nauðsyn-
leg lögin eru og jafnframt
vel nauðsyn þess að hafa
úrræði á borð við kæru-
nefnd jafnréttismála. Enn
er raunin sú að konur
standa ekki jafnfætis
karlmönnum á atvinnu-
markaði þrátt fyrir
menntun og reynslu.
Þessa staðreynd skynja
ekki allir, eða horfa vís-
vitandi framhjá, og því er
mikilvægt að jafnrétt-
islögin séu til staðar sem
og úrræði við brotum á
þeim.
Um mikilvægi þess aðdómsmálaráðherra
fari að landslögum ætti
ekki að þurfa að fjöl-
yrða,“ segir Þorbjörg að
lokum.
STAKSTEINAR
Dómsmálaráðherra
brýtur gegn landslögum
Víkverji skrifar...
Víkverji er enginn stóraðdáandieinkabílsins. Hann er hrifnari af
göngum og hjólreiðum sem ferða-
máta. Þó vill brenna við að stór-
innkaup í ódýrari verslunum og ým-
iss konar tilfærslur á þungum
hlutum milli landshluta geri kröfur
um millistaðagræju á fjórum hjól-
um, og helst til rúmgóða. Því fjár-
festi Víkverji í prýðilegum Saab
9000i frá árinu 1988. Frábær bíll í
alla staði, þótt hann sé nokkuð kom-
inn til ára sinna, mjúkur, lipur og
rúmgóður. En eins og fer oft með
gamla bíla eru nú ýmsir hlutir farnir
að gefa eftir og getur tekið dálítinn
tíma að láta laga græjuna, enda við-
gerðarmaðurinn náinn Víkverja og
gerir við bílinn fyrir hann af ein-
skærri greiðvikni og vináttu. Vík-
verja þykir það þó langtum betra
fyrirkomuleg en rándýr bíll og rán-
dýrar viðgerðir. Yfirleitt þarf bara
að setja hosu utan um eitthvert rör,
og þá er allt í lagi. Engar flóknar
tölvugræjur, bara bíll.
Um daginn fór vatnskassi sjálf-
rennireiðar fjölskyldunnar að leka
og bíllinn að hitna. Þetta var á
sunnudagskvöldi og fjölskyldan á
leið úr fermingarveislu. Víkverji
minntist þá tilburða föður síns í lík-
um aðstæðum, en faðirinn hafði í
líkum kringumstæðum (enda átti
hann líka alltaf gamla bíla) rúntað
inn á bensínstöðvar, skrúfað frá
krana og fyllt á vatnskassann með
tilheyrandi slöngu. Með þessa minn-
ingu lifandi í huga sínum ók Víkverji
beint inn á plan þjónustustöðvar
Skeljungs í Skógarhlíð. En viti
menn! Þar var engin slanga, búið að
skrúfa fyrir allt vatn og ekki einu
sinni kústar til að þrífa bílinn. Vík-
verji varð forviða! „Hvar hafa dagar
lífs míns lit sínum glatað?“ spurði
Víkverji frúna agndofa. Hún sagðist
hafa heyrt af því að bensínstöðvar
væru farnar að taka saman allar
þvottagræjur á kvöldin vegna þess
að unglingar væru að fíflast með
þær. Fyrr má nú aldeilis fíflast með
vatnsslöngu.
En Víkverji dó ekki ráðalaus og
rölti inn á skrifstofu leigubílastöðv-
arinnar BSR. Tóku starfsmenn hon-
um með virktum og buðu velkom-
inn. Fékk hann tveggja lítra flösku
og allt það vatn sem hann vildi og
þakkaði hann vel fyrir sig þegar
hann kvaddi.
x x x
Víkverji er afar þakklátur leigu-bílastöðinni fyrir að bjarga fjöl-
skyldunni í þessari neyð, en um leið
þykir honum fráleitt að þjón-
ustustöðvar bensínstöðvanna séu
hættar að útvega óhjákvæmilegum
kúnnum sínum grundvallarþjónustu
eins og vatn utan opnunartíma. Vík-
verji minnist þess einnig að slökkt
hafi verið á loftdælu við bensínstöð
á Háaleitisbraut þegar dekkið á
hjólinu hans var lúið. Þetta er skrýt-
ið ástand og ekki til að bæta ímynd
fyrirtækjanna sem klippa á þessa
verðmætu en ókeypis þjónustu.
Morgunblaðið/Ásdís
Er þessi iðja óþarfa lúxus utan af-
greiðslutíma þjónustustöðvanna?
Lögreglan og Jón
eða séra Jón
ER ekki lögreglan skyldug
að rannsaka kærur hvort
sem þær koma frá Jóni eða
séra Jóni, ég bara spyr ?
Ég fór til lögreglunnar í
Reykjavík og kærði mann
fyrir þjófnað og fjárdrátt.
Ég hafði undir höndum
sannanir fyrir hvoru
tveggja en af einhverjum
ástæðum taldist ekki
ástæða til ákæru.
Hvert á litli maðurinn að
snúa sér ef réttarkerfið
snýr við honum bakinu?
Arnheiður
Ragnarsdóttir.
„Er að fara
að ferma“
„SVEINBJÖRN féhirðir
kom heim til að ferma barn-
ið sitt og fékk ákæru.“ Þetta
stendur stórum stöfum á
forsíðu DV. Enn sér maður
svona rugl í dagblöðum.
Fólk fermir ekki börnin
sín sjálft. Það eru prestar í
kirkjum landsins sem
ferma börnin. Foreldrarnir
sjá um að börnin gangi til
prestsins og sjá um undir-
búning svo sem að kaupa
fermingarföt og sjá um
veisluhöld.
Ég heyri oft konur taka
svo til orða: Ég er að fara að
ferma eins og þær fermi
sjálfar. Fólk þarf að hugsa
um hvað það segir.
L.M.
Varaði við
VEGNA fréttar sem var í
Morgunblaðinu sl. fimmtu-
dag, um að Bush hefði látið
eftir Sharon það sem hann
vildi fá, þá hef ég varðveitt
grein úr Morgunblaðinu
síðan 1967. Ben Gurion var
þá að vara landsmenn sína
við.
Í blaðinu stóð: „Ben Gur-
ion varaði áheyrendur sína
við þeirri gleði sem farið
hefði um gyðingaheiminn í
kjölfar 6 daga stríðsins. Ben
Gurion krafðist þess að öll-
um svæðunum sem hefðu
náðst yrði skilað með hraði
vegna þess að halda þeim
mundi skrumskæla og gæti
að endingu eyðilagt ríki
gyðinganna.“
Lesandi.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
GLERAUGU með keðju og
í vínrauðu hulstri töpuðust
á Laugavegi 33 að 43. Finn-
andi góðfúslega hringi í
síma 588 7016.
Bakhlið af
gsm-síma týndist
BAKHLIÐ af Samsung
gsm-síma (með rafhlöðu)
datt af á Álfaskeiði fyrir
framan raftækjaverslunina
sl. fimmtudag. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
555 0802 eða 898 6548.
Fundarlaun.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
KETTLINGUR, svartur
og hvítur högni, fæst gefins.
Kassavanur. Upplýsingar í
síma 699 1866.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 kvenkyns folald, 8 frá,
9 róin, 10 ótta, 11 magrir,
13 hagnaður, 15 ís, 18
skrá, 21 svelgur, 22
hreysið, 23 ber, 24 órétt-
látir.
LÓÐRÉTT
2 deilur, 3 útlimir, 4 fisk-
ur, 5 landið, 6 reiðir, 7
kvenfugl, 12 reið, 14 sefi,
15 árás, 16 kirtla, 17 fim,
18 á, 19 poka, 20 kvendýr
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 nýtni, 4 húmar, 7 fólin, 8 lærin, 9 afl, 11 röng,
13 arga, 14 ættin, 15 fals, 17 nefs, 20 man, 22 lygna, 23
iðjan, 24 arnar, 25 týnir.
Lóðrétt: 1 næfur, 2 tólin, 3 iðna, 4 holl, 5 múrar, 6
renna, 10 fitla, 12 gæs, 13 ann, 15 fulla, 16 lygin, 18 elj-
an, 19 synir, 20 maur, 21 nift.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html