Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 45
DAGBÓK
VOR
Blessað veri grasið
sem grær kringum húsin
bóndans og les mér
ljóð hans,
þrá og sigur
hins þögula manns.
blessað veri grasið
sem grær yfir leiðin,
felur hina dánu
friði og von.
Blessað veri grasið
sem blíðkar reiði sandsins,
grasið
sem græðir jarðar mein.
Blessað veri grasið,
blessað vor landsins.
Snorri Hjartarson
LJÓÐABROT
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert tilfinninganæm/ur og
sterk/ur leiðtogi og leggur
þig fram um að hjálpa þínum
nánustu og þeim sem minna
mega sín. Þú þarft að taka
mikilvægar ákvarðanir á
árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að gera það upp við þig
hvað skiptir þig mestu máli í líf-
inu. Fólk gerir sér allt of oft ekki
grein fyrir því hvað skiptir raun-
verulegu máli fyrr en það er orðið
of seint.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er komið að þér að end-
urhlaða batteríin fyrir næsta árið.
Sólin verður í merkinu þínu
næstu fjórar vikurnar og það ger-
ir þig kraftmeiri en venjulega. Þú
gætir líka fengið óvænt tækifæri
upp í hendurnar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vilt helst alltaf vera á fullri
ferð en það er þó mikilvægt að þú
gefir þér tíma til hvíldar og af-
slöppunar þannig að þú tapir ekki
einbeitingunni. Dragðu andann
djúpt og leyfðu þér að slaka á.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt njóta aukinna vinsælda
næstu sex vikurnar. Fólk langar
til að vera með þér og því áttu von
á þónokkrum heimboðum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt njóta óvenju mikillar at-
hygli næstu fjórar vikurnar og
ættir því að huga að útliti þínu.
Þú þarft ekki að leggja mikið á
þig til að vekja hrifningu fólks.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gerðu eitthvað óvenjulegt í dag.
Þú hefur þörf fyrir að víkka sjón-
deildarhring þinn, annaðhvort
með ferðalögum eða framhalds-
námi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ástríða þín er vakin og því mun
annað fólk eiga óvenju auðvelt
með að hrífa þig með sér næstu
vikurnar. Reyndu að ganga frá
skuldum og reikningum og mál-
efnum sem tengjast sameig-
inlegum eignum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur lært margt af sam-
skiptum þínum við aðra þessa
dagana. Sólin verður beint á móti
merkinu þínu næstu fjórar vik-
urnar og því verða nánustu sam-
bönd þín í brennidepli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður tími til að koma
skipulagi á líf þitt. Byrjaðu á því
að rýma til í kringum þig með því
að henda því sem þú notar ekki
og þarft ekki á að halda.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gefðu sjálfri/sjálfum þér tæki-
færi til að njóta listviðburða og
skemmtana. Þér líður eins og þú
sért barn í annað sinn og því
þarftu að gefa þér tíma til að gera
það sem þér finnst skemmtilegt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fjölskyldan verður í brennidepli
hjá þér næsta mánuðinn og þú
munt sennilega eiga óvenjumikil
samskipti við foreldra þína.
Sýndu þínum nánustu þolinmæði
og hlýju.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er að færast meiri hraði í lífið
hjá þér. Þú munt hafa nóg að
gera við lestur og skriftir á næst-
unni auk þess sem þú verður í
miklum samskiptum við annað
fólk.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5
4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3
Bb4 7. cxd5 Rxd5 8. Dc2
Rc6 9. Be2 0-0 10. 0-0 Be7
11. Hd1 Bf6 12. Re4 Be7 13.
Bc4 Bd7 14. Reg5 Rf6
15. Re5 Rb4 16. De2
Hc8
Líf atvinnuskák-
mannsins er ekki allt-
af dans á rósum og
hefur hin síðari ár
jafnvel orðið erfiður
róður fyrir bestu
skákmenn heims að
finna mót við sitt
hæfi. Þetta hefur leitt
til þess að þeir leita æ
meir í liðakeppnir en
staðan kom upp í
frönsku deildakeppn-
inni sem lauk fyrir
skömmu. Enski ofur-
stórmeistarinn Michael
Adams (2.731) hafði hvítt
gegn Gabor Kallai (2.497).
17. Rexf7! og svartur gafst
upp enda staðan töpuð eftir
17. – Hxf7 18. Bxe6 Bxe6
(18. – Be8 19. Rxf7 Bxf7 20.
Bxc8 vinnur á hvítt líka.) 19.
Dxe6 De8 20. Rxf7.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
UNDIR venjulegum kring-
umstæðum væri vandalaust
að vinna sex spaða í spili
dagsins, enda eina hættan sú
að tromp mótherjanna skipt-
ist 4–0. En gerum ráð fyrir
því að kringumstæðurnar
séu óvenjulegar:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠10976
♥Á74
♦Á104
♣KD3
Suður
♠ÁK432
♥8
♦KD5
♣Á1076
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 3 lauf
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Eftir Standard-opnun á
laufi finna NS spaðann og
leita svo eftir slemmu. Þrjú
lauf suðurs er krafa og geim-
leit á því stigi, en síðan koma
fyrirstöðusagnir og lyk-
ilspilaspurning. Norður sýn-
ir tvo ása, en ekki drottn-
inguna í spaða. Útspil
vesturs er hjartakóngur.
Hvernig er best spila?
Allt snýst þetta um tromp-
ið. Það er taktísk byrjun að
spila (lymskulega) spaða-
sexu úr borði og láta hana
fara ef austur fylgir með
fimmu. Ef austur á öll
trompin þarf ekki að gefa
nema einn trompslag, en það
er þægilegra að „stela“ slag
strax og geta þá notað fjórða
tromp blinds til að stinga
lauf. En segjum að austur
fylgi ekki lit í spaðann. Þá
kemur upp þyngri staða:
Norður
♠10976
♥Á74
♦Á104
♣KD3
Vestur Austur
♠DG85 ♠–
♥KD9 ♥G106532
♦62 ♦G9873
♣9842 ♣G5
Suður
♠ÁK432
♥8
♦KD5
♣Á1076
Nú verður að byggja upp
þriggja spila endastöðu, þar
sem vestur á DG8 í trompi,
blindur 1097 og suður Á4 í
trompi og eitt spil í láglit.
Undirbúningurinn felst í því
að trompa hjörtu blinds,
taka svo fyrst þrjá efstu í
laufi, því vestur þarf alltaf að
eiga minnst þrjú lauf. Hér
kemur gosinn annar í austr-
inu, sem þýðir að hægt er að
henda tígli í lauftíu, taka tvo
efstu í tígli og spila hátígli að
heiman í lokastöðunni. Og þá
er vestur skák og mát.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STREITA www.heilsuvernd.is
KIRKJUSTARF
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bæna-
stund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl.
19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Brids aðstoð á föstudögum kl. 13.
Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Langholtskirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.
Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg.
Laugarneskirkja. Kl. 18 æfing fermingar-
barna vegna fermingar sumardagsins
fyrsta. Börn mæti með forráðamönnum
sínum. Fullorðinsfræðsla Laugarneskirkju
kl. 20. Bjarni Karlsson sóknarprestur tek-
ur upp þráðinn að nýju og kennir nú öll
þriðjudagskvöld fram á vor. Aðgangur
ókeypis og gengið inn um dyr á austurgafli
kirkjunnar, bakatil. Þriðjudagur með Þor-
valdi kl. 21. Þorvaldur Halldórsson leiðir
lofgjörðina ásamt kór Laugarneskirkju við
undirleik Gunnars Gunnarssonar á flygil-
inn og Hannesar Guðrúnarsonar sem leik-
ur á klassískan gítar. Gengið er inn um að-
aldyr kirkju eða komið beint inn úr
fullorðinsfræðslunni. Kl. 21.30 fyrirbæna-
þjónusta við altarið í umsjá bænahóps
kirkjunnar.
Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All-
ir velkomnir. Foreldramorgunn miðvikudag
kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16.00. Starf
fyrir 10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára
börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Fella- og Hólakirkja. Strákastarf 8–12 ára
kl. 17.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–16. Helgistund, söngur, spil
og spjall. Kaffi og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl.
20–22 fyrir unglinga í 8. bekk. Æskulýðs-
félag í Grafarvogskirkju kl. 20–22 fyrir ung-
linga í 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl.
9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam-
verustund kl. 14.30–16. Fræðandi inn-
legg í hverri samveru. lagið tekið undir
stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og
stutt helgistund. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Starf með 8–9 ára börnum í Borgum kl.
17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar.
Starf með 10–12 ára börnum á sama stað
kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og
Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í
Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA yngri deild kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12
ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar
stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðs-
félagið (Megas) heldur vikulegan fund kl.
19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi
þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdótt-
ir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er
opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spil-
að, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni
lýkur með helgistund kl. 16. Umsjónar-
maður Nanna Guðrún djákni. Þorlákur
sækir þá sem vilja og ekur þeim heim.
Sími 869–1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30– 19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 09.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15.00
Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16 og 17 frí hjá Litlum
lærisveinum. Næsta æfing er 27. apríl á
hefðbundnum tíma. Kl. 17.30 fermingar-
æfing fyrir þá sem fermast laugardaginn
24. apríl. Skyldumæting fyrir börn og for-
eldra. Kl. 18.15 fermingaræfing fyrir þá
sem fermast sunnudaginn 25. apríl kl. 11.
Skyldumæting fyrir börn og foreldra.
Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman
í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverður,
samfélag og fræðsla um kristna trú.Einnig
verður komið inn á stöðu atvinnulausra.
Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar
eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavík-
ur og nágrennis, Verslunarmannafélagið
og Iðnsveinafélagið ásamt Keflavíkur-
kirkju.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp-
lýsingar á www.kefas.is
AD KFUK, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl.
20. Lofgjörðar- og bænasamvera í umsjá
Þórdísar K. Ágústsdóttur, Hrannar Sigurð-
ardóttur og Kristínar Bjarnadóttur. Allar
konur velkomnar.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl.
18.10.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar eru
alla þriðjudagsmorgna kl. 10 í safnaðar-
heimili Hveragerðiskirkju. Herdís Storga-
ard verður gestur á foreldramorgni í dag,
20. apríl, og ræðir um slysavarnir og örygg-
ismál barna.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveragerðiskirkja.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Burt, strákur! Í dag steikjum við ekki pulsur!
Er þetta hjá lögreglunni? Ég hef áhyggjur af mann-
inum mínum. Blaðran hans var að koma alein heim …