Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 46

Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ HINN litríki forseti ítalska knatt- spyrnuliðsins Perugia, Luciano Gauccis, var aðalumræðuefnið í ítölskum fjölmiðlum í gær er hann hótaði því að liðið myndi ekki mæta til leiks í síðustu fjórum umferðum 1. deildarkeppninnar. Að mati Gauccis hafa dómarar ítrekað horft fram hjá augljósum vítaspyrnu- dómum í leikjum liðsins í vetur og gegn Sampdoria um helgina tapaði liðið 3:2og segir Gauccis að dómari leiksins hafi sleppt því að dæma vítaspyrnu. Sjónvarpsmyndir frá leiknum voru endursýndar í gær þar sem Gauccis virðist hafa rétt fyrir sér og verði honum að ósk sinni mun liðið ekki leika gegn Brescia, Juventus, Róma og Ancona. „Í þessum leik gegn Sampdoria var dómarinn hlutdrægur. Við átt- um að fá tvær vítaspyrnur og að auki áttu tveir leikmenn Sampdoria að fá rautt spjald,“ sagði Gauccis og bætti því við að honum væri al- veg saman ef honum yrði stungið í fangelsi fyrir ummæli sín. Vildi konur í liðið Perugia er sem stendur í næst- neðsta sæti ítölsku 1. deildarinnar en á undanförnum misserum hefur liðið verið í fréttum þar sem Gaucc- is hefur sagt að hann vilji semja við konur um þær leiki með liðinu. Saadi Khadafi er samningsbundinn liðinu en hann er sonur einræðis- herrrans Moamars sem ræður ríkj- um í Líbýu. Forseti Perugia hótar að draga liðið úr keppni AGANEFND enska knatt- spyrnusambandsins hefur úr- skurðað miðvallarleikmann- inn Paul Scholes í leikbann og mun hann missa af næstu þremur leikjum Manchester United. Scholes ýtti við Doriva, leik- manni Middlesbrough, í leik liðanna 11. febrúar sl. og er það mat aganefndar að brotið sé það alvarlegt að Scholes hljóti þriggja leikja bann. Hinn 29 ára gamli enski landsliðsmaður mun missa af deildarleikjum gegn Charlton, Liverpool og Blackburn en verður klár í slaginn gegn Chelsea 8. maí og að auki verður hann til reiðu í úrslita- leik ensku bikarkeppninnar gegn Millwall á Þúsaldarleik- vanginum í Cardiff. Paul Durkin, dómari í leik Manchester United gegn Middlesbrough, sá ekkert at- hugavert þegar atvikið átti sér stað en aganefndin tók málið fyrir eftir að hafa séð sjónvarpsupptöku frá leikn- um. Scholes í þriggja leikja bann  ÓSKAR Kemp og Jakob Hrafns- son urðu um helgina Íslandsmeist- arar í tvímenningi í snóker. Þeir unnu Jóhannes B. Jóhannesson og Jóhannes R. Jóhannesson í úrslitum. Kristján Helgason og Konráð Ómarsson höfnuðu í þriðja sæti.  HEIMILDIR fréttavefjar CBS sjónvarpsstöðvarinnar herma að Le- Bron James leikmaður Cleveland hafi sigrað í kjöri um nýliða ársins í NBA-deildinni í körfuknattleik en aðalkeppinautur hans var Carmelo Anthony hjá Denver. Úrslitin í kjör- inu verða birt á fimmtudag. James skoraði 20,9 stig að meðaltali, gaf 5,9 stoðsendingar, og tók 5,5 fráköst í leik. Það var uppselt á 16 heimaleiki Cleveland í vetur og keppnistreyja hans seldist mest allra í NBA. Í fyrra vann liðið aðeins 17 leiki en 35 í vet- ur, en komst ekki í úrslitakeppnina.  ANTHONY er enn að leika þar sem Nuggets leikur gegn Minnesota í úrslitakeppninni. Hann skoraði 21 stig að meðaltali í vetur, tók 6,1 frá- köst í leik og gaf 2,8 stoðsendingar. James varð aðeins þriðji nýliðinn í sögu NBA-deildarinnar sem nær því að skora yfir 20 stig í leik, taka 5 frá- köst og gefa 5 stoðsendingar í leik. Hinir tveir eru Michael Jordan og Oscar Robertsson.  FORSVARSMENN NBA-liðsins Boston Celtic og fyrrverandi leik- maður liðsins, Vin Baker, hafa kom- ist að samkomulagi um starfsloka- samning en félagið rifti samningi leikmannsins sem hefur átt við áfengisvandamál að stríða undanfar- in misseri. Baker er nú í herbúðum New York og hefur staðið sig vel að mati þjálfara liðsins, Lenny Wilkens. Ekki var gefið upp hve mikið Baker fékk í sinn hlut frá Celtic.  EIGENDUR NBA-liðsins Toronto frá Kanada hafa rift samningi sínum við þjálfarann, Kevin O’Neill, einum degi eftir að hann sagðist í blaða- viðtali efast um að eigendur félags- ins hefðu metnað til þess að fara með liðið alla leið í NBA í nánustu fram- tíð. O’Neill sagði að í Toronto væri eina markmiðið að vera með í NBA- deildinni og allir væru sáttir þrátt fyrir að gengi liðsins væri ekki til að hreykja sér af, en liðið vann 39 leiki af alls 82 og komst ekki í úrslita- keppnina annað árið í röð.  HÓPUR fjárfesta hefur boðið nú- verandi eigendum NBA-liðsins Phoenix Suns um 30 milljarða ísl. kr. fyrir liðið. Charles Barkley og Sean Elliott fyrrum NBA-leikmenn eru á meðal þeirra sem standa að tilboðinu en Suns skuldar um 15 milljarða vegna framkvæmda á heimavelli fé- lagsins undanfarin ár. Jerry Colang- elo mun starfa áfram sem stjórnar- formaður félagsins verði af kaup- unum en hann mun samt sem áður selja 20% hlut sinn í félaginu. FÓLK þekki alla leikmenn þess, en í Món- akó töluðum við um að leikmennirnir þekktu stuðningsmennina,“ segir Petit um Mónakó. „Það kom stundum fyrir, þegar maður var meiddur, að maður ræddi við áhorfendur og ákvað að hitta þá eftir leikinn. Þó svo að völlurinn taki aðeins 20.000 áhorfendur þá skapast oft gríðarlega góð stemning á honum og það hefur reynst mörgum aðkomuliðum erfitt að sækja stig þangað,“ segir Petit. Hann lék lengi með Didier Deschamps, þjálfara liðsins sem lék 41 leik með Chelsea 1999-2000, og þekkir hann vel. „Hann er að gera góða hluti þarna, eins og góður þjálf- ari gerir hann góða leikmenn að mjög góðum og mjög góða leikmenn Leikmenn Chelsea héldu til Món-akó í gær og þá varð ljóst að þeir Damien Duff og William Gallas yrðu eftir heima, en þeir eru báðir veikir. Eiður Smári Guðjohnsen og John Terry eru hins vegar búnir að ná sér af flensunni sem þeir voru með og voru með í för. Þeir æfðu báðir á sunnudagskvöldið og eftir æfinguna ákvað Claudio Ranieri að taka þá með. Petit var einnig með í för, en hann verður samt ekki í leikmannahópn- um. Engu að síður hefur hann hjálp- að til við að skipuleggja leik liðsins enda lék hann í tólf ár með Mónakó. „Það búa aðeins um 40.000 manns í Mónakó og stór hluti íbúanna hefur mikinn áhuga á fótbolta. Það er oft talað um að stuðningsmenn liðanna að frábærum leikmönnum. Hann er með mjög gott og ungt lið sem á eftir að ná langt í framtíðinni,“ segir Petit. Deschamps þekkir vel til hjá Chelsea, þar sem hann lék með liðinu áður en hann fór til Mónakó. „Megum ekki ofmetnast“ Eftir að mörg þeirra liða sem spáð var velgengni í Meistaradeildinni duttu út er Chelsea nú talið einna líklagast til sigurs. Real Madrid, AC Milan, Manchester United og Arsen- al höfðu verið talin líkleg til afreka en nú er Chelsea talið líklegt. „Það er ekki gott að vera talinn sigur- stranglegur. Mér líkar betur að vera minnimáttar eins og við höfum löngum verið,“ segir Frank Lamp- ard, leikmaður Chelsea, og varar menn við að ofmetnast ekki við að vera taldir líklegir til sigurs. „Það er alltaf hætt við að menn líti of stórt á sig þegar þeir eru taldir sigurstrang- legri. Við verðum að passa okkur á að það gerist ekki hjá okkur. Við höf- um leikið vel að undanförnu og erum fullir sjálfstrausts, en við megum ekki gleyma því að Mónakó lagði Real Madrid og skoraði átta mörk hjá Deportivo La Coruna. „Ef við höldum áfram að leika eins og við höfum gert að undanförnu gætum við þurft að venjast því að vera taldir sigurstranglegra liðið. Þetta verður erfiður leikur en hann ætti að geta orðið skemmtilegur því við höfum leikið vel á útivöllum og erum með 1.500 stuðningsmenn með okkur þannig að það verður gaman í Mónakó,“ sagði Lampard. Chelsea náði ekki að skora gegn Everton í úrvalsdeildinni á laugar- dag og því er sennilegt að Eiður Smári Guðjohnsen og Hernan Crespo komi inn í framlínuna á ný. Líklegt lið Chelsea: Marco Ambrosio, Mario Melchiot, Marcel Desailly, John Terry, Wayne Bridge, Jesper Grönkjær, Frank Lampard, Claude Makelele, Scott Parker, Eið- ur Smári Guðjohnsen, Hernan Crespo. Reuters Fernando Morientes, leikmaður Mónakó, og Didier Deschamps, þjálfari liðsins, fagna eftir að Mónakó lagði Real Madrid að velli á Stade Louis II í Mónakó, 3:1. Chelsea varað við of mikilli bjartsýni EMMANUEL Petit, leikmaður Chelsea, varar félaga sína við of mik- illi bjartsýni fyrir leik liðsins í kvöld við Mónakó. Hann segir að þó svo að fáir búi í Mónakó þá sé áhuginn á knattspyrnu mikill og Louis II leikvangurinn geti reynst mörgum aðkomuliðum erfiður. Þetta er fyrri leikur liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en í hin- um leiknum mætast Porto og Deportivo La Coruna á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.