Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.45 og 10.40.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd
allra tíma
Vinsælasta
myndin
á Íslandi!
Til að tryggja réttan dóm
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman,
Dustin Hoffman og Rachel Weisz
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!Kvikmyndir.is
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
„Frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Vinsælasta
myndin
á Íslandi!
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Vorútsala
40%
afsláttur
af öllum vörum
ÞRIÐJA stóra plata múmliða er
komin út eftir að fólk hefur fengið
að melta hina stórgóðu síðustu
skífu, Loksins erum við engin sem
kom út fyrir
tveimur árum.
Gyða Valtýsdóttir
hefur sótt á önnur
mið og múm er í
dag tríó, ásamt
góðum aðstoðar-
kokkum. Hljóð-
heimur þeirra er auðþekkjanlegur;
taktgrunnaskrúfur, umhverfisbank
og brak í bland við hlýjar gítarlínur
og hljómborðsglefsur, að ógleymdri
viðkvæmnislegri rödd – og í fyrstu
heyrist manni vera það „sama
gamla“ á ferðinni.
En þetta er plata sem verður að
fá að rúlla í dálítinn tíma á fóninum
og vinna á, hún er ekki eins að-
gengileg og melódísk og sú síðasta.
Huggulegur heimilisiðnaður er orð-
inn ákveðnari, grófari, hryssings-
legri, það er meira óþol og myrkur
hér en áður. Kannski má tengja
þetta við óblítt umhverfið við Garð-
skagavita og Galtarvita þar sem
platan var tekin upp en múmliðar
hafa svo sem áður tekið upp í vita,
Loksins erum við engin var tekin
upp í Galtarvita, en á meðan sú
plata lét hugann reika út á tún, með
smáblómum og háu grasi, er á
þessari plötu gengið niður í fjöru og
það er vont í sjóinn, vaxandi norð-
austan og örugglega úrkoma í
grennd.
Hafsþemað er gegnumgangandi –
lögin heita nöfnum eins og „hú
hviss – a ship“, „abandoned ship
bells“, „oh, how the boat drifts“, og
þessu er m.a. náð fram með ýmsum
sjávarhljóðum, braki í rá og reiða
og blásturshljóðfærum, t.d. í „weep-
ing rock, rock“ þar sem blásturinn
er mjög vandlega útsettur og lagið
byggt upp smátt og smátt eins og í
takt við vaxandi óveður sem svo
gengur niður – eitt besta lagið á
diskinum. Væntanleg smáskífa af
plötunni er lagið „nightly cares“,
rólegt og ljúft lag þar sem gítarinn
fær að vefa laglínuna saman með
lágværum trompet og þar ber líka
mikið á rödd Kristínar. Sumum
þykir örugglega rödd hennar yf-
irgengilega smábarnaleg, hún hvísl-
ar og raular eins og feimið barn og
stundum heyrast varla orðaskil, en
í rauninni myndi engin önnur rödd
passa hér inn, tæknilega skýr og
skörp rödd myndi breyta algerlega
andrúmsloftinu og kremja lögin,
það er einmitt þessi smábarnalega
viðkvæmni sem leyfir öðrum hljóð-
um og hljóðfærum hér að anda og
hafa sín áhrif. Fyrrnefnt lag,
„nightly cares“, er einna skýrast af-
markaða lagið, ásamt „weeping
rock, rock“ en þegar á heildina er
litið er lögin á skífunni öll samofin
og standa best hlið við hlið; um leið
og þau eru tekin úr samhengi tap-
ast töluvert af seiðandi andrúms-
loftinu, platan er flétta af stemn-
ingum og smámyndum, ekki stakir
smellir eða hvert lag með sínu
sniði.
Með því áhugaverðara á disk-
inum eru smálögin, stuttar ósungn-
ar hljóðmyndir eins og t.d. öldu-
gangurinn og ýmsar bjaganir í
„away“ og smávegis „hillbilly“
banjóútúrdúr og greiðuspil í
skemmtilegu örlagi sem ber hinn
minnisverða titil „small deaths are
the saddest“. Platan dettur aðeins
niður í seinni hlutanum, „oh, how
the boat drifts“ er byggt upp á end-
urteknu viðlagi sem laglínan er
ekki nógu áhugaverð til að bera, og
„will the summer make good“ er
fremur langdreginn harmónikku-
tregi. En lokalagið snýr þessu við,
„abandoned ship bells“, eins konar
tregasöngur draugaskipsins, sem
sýnir sérlega vel hvað múm er leik-
in í að framkalla lifandi hljóðmyndir
með örfáum efnisþáttum, nokkrum
orgelnótum, raddhvísli og undiröldu
hafsins.
Múm grefur dýpra á þessari
plötu og sækir í sig grátt veðrið –
og kemur sterk út fyrir vikið.
Tónlist
Úrkoma í
grennd
múm
Summer make good
Fatcat Records
MÚM skipa þau Örvar Þóreyjarson
Smárason, Kristín Valtýsdóttir og Gunnar
Tynes. Einnig koma við sögu Eiríkur
Ólafsson, Ólöf Arnalds og Samuli Kosm-
inen, sem hafa leikið með múm á tón-
leikum undanfarið. Upptökur í höndum
Orra Jónssonar og múm.
Steinunn Haraldsdóttir
Ljósmynd/Orri Jónsson
Múm-liðar sækja enn í sig veðrið á nýju plötunni og grafa enn dýpra.
LENNY KRAVITZ
kveðst enn leiður
yfir því að sam-
bandi hans og leik-
konunnar Nicole
Kidman sé lokið.
Hann hefur látið í
veðri vaka að lagið
„Lady“, sem hann
samdi, fjalli um
Kidman. „Ég nefni engin nöfn, en
lagið fjallar um ákveðna persónu,
konu sem ég var með á ákveðnu tíma-
bili. Því miður fylgdust fjölmiðlar
grannt með þessu sambandi mínu og
þessarar konu og sagan fékk ekki far-
sælan endi…“ Aðspurður segist hann
leiður yfir því að sambandi hans og
þessarar konu sé lokið, að því er fram
kemur í tímaritinu Gala. „Það er
synd, en lífið heldur áfram…“ Hinn
39 ára gamli söngvari viðurkennir að
hann sé erfiður í sambúð og kveðst
vera hálfgerð „prímadonna“ í sam-
skiptum við fólk. „Ég er heillandi per-
sóna sem get gefið mikið af mér, en
jafnframt er ég flókin tæfa“ …
LEIKARINN og óskarsverðlaunahaf-
inn Kevin Spacey, hefur séð ástæðu
til þess að draga til baka fregnir þess
efnis að veist hefði verið að honum á
laugardags-
morgun þegar
hann var að viðra
hundinn sinn í al-
menningsgarði í
Lundúnum. Dag-
blöð í Bretlandi
skýra frá því í dag
að farsíma Spac-
eys hafi verið
rænt og að hann hafi hlotið minni-
háttar meiðsl á höfði.
Spacey sagði hins vegar í samtali við
breska útvarpsstöð að hann hafi verið
gabbaður af manni sem spurði Spac-
ey hvort hann gæti lánað honum far-
símann sinn. Maðurinn hafi svo
stungið af með símann.
Spacey sagði að hann hafi svo rekist í
hund sinn og hrasað með þeim afleið-
ingum að hann féll í gangstéttina.
„Þessu lauk með því að ég féll og rak
höfuðið í stéttina,“ sagði leikarinn.
„Nú blæðir töluvert úr mér, ég er í
miklu uppnámi og mér finnst ég vera
algjört fífl. Ég lét gabba mig og
skammaðist mín svo fyrir það að ég
fór til lögreglu og sagði að ég hefði
verið rændur,“ bætti leikarinn við.
„Það er munur á árás og þjófnaði og
best að ég játi hvað gerðist þótt ég
skammist mín fyrir það að hafa orðið
fórnarlamb elstu brellu þjófa sem
fyrirfinnst,“ sagði Spacey.
Hann sagðist biðja lögreglu, lesendur
og aðra sem hefðu trúað sögunni um
ránið afsökunar. Spacey tilkynnti um
glæpinn snemma á laugardags-
morgun og fór í kjölfarið á slysavarð-
stofu til þess að láta gera að sárum
sínum.
Þá fór hann aftur til lögreglu og sagð-
ist falla frá fyrri ásökunum …
FÓLK Ífréttum
MÁNAR frá Selfossi eru að koma
saman aftur en sveitin hefur þekkst
boð um að hita upp fyrir bresku
rokksveitina
Deep Purple á
tónleikum í Laug-
ardalshöll í júní.
Fram kemur í
Sunnlenska
fréttablaðinu að
Mánar hafi ekki
komið saman síðan árið 1985 þegar
efnt var til dagskrár á Selfossi með
lögum þeirra.
Haft er eftir Ólafi Þórarinssyni í
Sunnlenska fréttablaðinu að sú hug-
mynd að Mánar komi saman aftur
hafi á undanförnum árum verið
rædd margoft en aldrei orðið að
veruleika. Hins vegar hafi þeim
Mánum alltaf borið saman um að
rétta tilefnið væri ekki fundið en
þegar rætt var um að sveitin kæmi
saman sem upphitunarhljómsveit
fyrir Deep Purple hafi ekki verið
hægt að skerast úr leik.
Haft er eftir Einari Bárðarsyni, sem
skipuleggur tónleikana, að Mánar
hafi verið stórveldi hér á landi á sín-
um tíma og því hafi honum þótt eðli-
legt að gera tilraun til að fá hljóm-
sveitina til að hita upp fyrir Deep
Purple. Það sé mjög ánægjulegt að
þeir hafi nú þekkst það boð.
Mánar störfuðu á árunum 1965 til
1975 og gáfu út tvær plötur. Hljóm-
sveitina skipuðu Ólafur Þórarinsson,
Smári Haraldsson, Guðmundur
Benediktsson, Björn Stefán Þór-
arinsson og Ragnar Sigurjónsson.
Morgunblaðið hringdi í Einar Bárð-
arson til að fá staðfestingu á þessari
frétt. Sagði Einar að allar líkur væru
á ofangreindu en þó gæti hann ekki
staðfest það að fullu fyrr en eftir
nokkra daga …
POPPkorn