Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 1
3. tbl. 1. árg. 16. sept. 1988. Verð kr. 100.
Um tvö þúsund íslendingar hafa fengið orður. Öruggasta leiðin til
þess virðist vera sú að sökkva sér í félagsstörf af einhverju tagi. Það
skiptir líka miklu máli í hvaða starfsstétt menn eru, því fólk í sumum
atvinnugreinum er líklegra til að fá orður en aðrir.
Einnig virðast ákveðin embætti nánast trygging fyrir því að einstakl-
ingarnir, sem þeim gegna, fái orðu á brjóstið. Karlar hafa nær ein-
göngu setið í þessum embættum en þeir eru í miklum meirihluta
meðal orðuhafa. Á síðustu tuttugu árum hafa 649 karlar orðið
þessa heiðurs aðnjótandi, en einungis 130 konur. Undanfarin ár
hafa á þriðja tug karla fengið orður á ári hverju, en fjöldi kvenna
nær ekki tveggja
stafa tölu. Þær,
sem eiga mesta
möguleika á orðu,
eru konur sem
starfa að líknar-,
félags- eða upp-
eldismálum —
eða eru giftar
„réttum“ mönn-
um.
Grein á bls. 16
0G FYRIR HVAÐ?
SORGLEGASTA TÍMABIUÐ
Á STJÓRNMÁLAFEBLINUM
segir Steingrímur Hermannsson um ástandið á stjórnarheimilinu. Sjá bls. 9.
ÓSKADRAUMUR MINN
RÆTTIST ALDREI
Séra Árelíus Níelsson, fyrrum
sóknarprestur í Langholtskirkju,
ber Morgunblaðið út í býtið á
morgnana og ver síðan deginum
við lestur góðra bóka. í ítarlegu
viðtali lítur hann yfir farinn veg og
ræðir m.a. um refsingu kynferðis-
afbrotamanna, sértrúarflokka og
spurninguna um það hvort Jesús
hafi verið lausaleiksbarn.
Sjá viðtal á bls. 5
ÞEIR EIGA
GRAA
Sjá bls. 12
MARKADINN!
G
ulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns.
Það fer ekki miili mála hver þú ert.
Sérprentun án aukakostnaðar!
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
1