Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 25

Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 25
Föstudagur 16. september 1988 25 ibróttir „Badminton er ómissandi, “ segir séra Ólafur Skúlason. sem sækja í mótin. Fullorðna fólk- ið lítur frekar á þetta sem trimm, og vill fyrst og fremst fá ánægju út úr tímunum. Það er auðvitað alltaf keppni í gangi inni á vellinum. ÖII- um finnst gaman að sigra mótspil- ara sinn en hreyfingin og ánægjan eru örugglega númer 1, 2 og 3.“ — Stundar þú badminton? „Já, það geri ég. Þetta er mikil og skemmtileg hreyfing sem ætti að duga hverjum manni sem stundar þetta reglulega." Séra Ólafur Skúlason hefur stundað badminton í 21 ár. Hvað var það sem ýtti honum af stað? „Ætli það hafi ekki verið auka- kíló sem höfðu safnast á ýmsa óæskilega staði líkamans. Við byrj- uðum árið 1961, þá nokkrir saman, en flestir hafa helst úr lestinni. Núna erum við 2 eftir af þessum upprunalega hópi. Það er Guðjón Eyjólfsson endurskoðandi sem hef- ur verið með mér í þessu alla tíð. Ég hef verið í þessu alveg síðan ’61, með smáhléunt þó. En nú síðustu árin fer ég alltaf 2svar í viku.“ — Finnst þér þetta erfitt? „Sjálfsagt er þetta erfitt fyrir þá sem huga að fullkonrnun í greininni og keppni. Við sem erum í þessu bara til þess að hreyfa okkur ráðunt hversu mikið við reynum á okkur í hverjum leik. Það er ekki aðeins þörfin á hreyfingunni senr heldur manni við efnið. Þetta er góður félagskapur og góð leið til að losna við streitu og stress hversdagsins. Það gleynrist allt þegar komið er inn á völlinn. Þetta er því bæði and- leg hvíld og líkamleg áreynsla. Badminton er með ódýrari íþróttagreinum, sundið er jú al- ódýrast enda stunda ég það af krafti líka. Ég hvilist á því og fæ um leið snerpu í Iíkamann." — Langaði þig aldrei í keppni á þinum yngri árum? „Nei, ég er klaufi, þannig að mér hefur ekki dottið það í hug. Við teljunr þó alltaf stigin, þetta er stanslaus keppni okkar á milli og alltaf jafngantan að bera sigurorð af hinum. Það er visst kapp í þessu.“ — Finnst þér þú hafa náð góð- um árangri? „Það er enginn vafi á því að mér hefur farið mikið fram, enda held ég að þrátt fyrir skemmtunina sem fylgir þessu hefði ég hætt ef fram- farirnar hefðu verið litlar. Að vísu held ég að ég hafi staðið í stað síð- ustu árin. Það er frekar að mér fari Þá er veturinn að nálgast. Sumarfríin eru búin og skólarnir byrjaðir. Flestir eru hættir öllu sprikli utan- dyra þetta árið og fara nú að færa sig inn í hús. Það væri jú synd að hætta öllum áhyggjum af línunum, sitja á rassinum í allan vetur og enda sem „frjálslega vaxinn í allar áttir“. Síður dagblaðanna eru uppfullar af auglýsingum um balletttíma, jazz-dans, þrektíma, frúarleikfimi, líkamsrækt og alls kyn's hopp og hí. Greinarhöfundur hefur ekki gaman af líkamsrækt eða ballettdansi og vissi hreinlega ekki hvað ætti til bragðs að taka. Sennilega eru margir í svipaðri aðstöðu. Því var hafin Ieit að skemmtilegu sporti. Einhverju sem er ekki endilega til þess að losa sig við spik, safna ofurkröftum eða svitna ógurlega. Einhver benti á badminton og Pressan fór og athugaði málið. „Það er þœgilegra að nota badminton- spaða og bolta, en snjóþrúgurnar og tennisboltinn gera nú alltaf sitt gagn. “ Garðar Ólafsson bregður á leik. aftur núna, ég er orðinn það full- orðinn. En ég hyggst halda þessu áfram á meðan heilsan endist. Ég vildi alls ekki sleppa þessu. Ég held að ég sé skárri manneskja bæði líkamlega og andlega við að synda og spila badminton," sagði séra Ólafur að lokum. Hér í Reykjavik er hægt að æfa badminton hjá 4 félögum. Það eru TBR, KR, Víkingur og Valur. Press- an hafði samband við Sigfús Ægi Árnason, framkvæmdastjóra TBR, og lagði fyrir liann nokkrar spurn- ingar. — Veistu hversu margir stunda badminton reglulega? „Hjá okkur eru það um 5.000 manns. Það er fullbókað í flesta tima. Það eina sem er laust núna eru unglingatímar, svo er laust í hádeginu, seint á kvöldin og um helgar.“ — Eru margir búnir að vera ár- um saman? „Já, já, Meira að segja áratugum saman. Sama fólkið kemur ár eftir ár, flestir eru hérna tvisvar í viku.“ — Er þetta dýrt sport? „Það getur verið það, en þarf það ekki. Spaðar kosta frá nokkur hundruð krónum upp í 10 þúsund, en flestir komast af með 1—2 þús- und króna spaða. Þeir sem vilja eyða miklu nota fjaðrabolta en hinir plastbolta. Plastboltarnir eru alveg jafngóðir, það er bara spurn- ing hvað menn venja sig á. Plast- boltinn dugir í nokkur skipti en hinsvegar er hægt að eyðileggja ANNA BJÖRK BIRGISDÓTTIR 2—3 fjaðrabolta í einum tima. Við erum með spaðaleigu hér hjá okkur og fólk notfærir sér hana gjarnan ef það er að prófa þetta, en allir þeir sem eru eitthvað í badminton að ráði eiga sína spaða." — Er mikiö um mót? „Fyrir fullorðna eru um 10 mót á ári en ívið fleiri fyrir unglinga, eða um 15. Enda eru það unglingarnir Garðar Ólafsson er einn fjöl- margra sem hafa fastan tíma í TBR- húsinu, Pressunni lék forvitni á að vita hvað hefði fengið hann til að byrja á þessu. „Félagi minn dró mig með sér i badminton í Melaskólann og þar með var ég smitaður. En þar sem íþróttahús Melaskólans er svo pínulítið gáfumst við fljótt upp á því og færðum okkur yfir í TBR- húsið.“ — Og hvaö ertu búinn aö vera lengi? „í 3 ár, þ.e.a.s. reglulega. í byrjun fórum við 4—5 sinnum í viku. Það var mjög gaman, en aðeins of mik- ið. Núna látum við okkur nægja að fara I sinni í viku.“ — Er þetta erfitt, líkamlega «g tæknilega? „Fyrst var það erfitt já. Maður fór að nota ýmsa vöðva sem höfðu verið í afslöppun í langan tíma, en eftir að stirðleikinn var horfinn var þetta í fínu lagi. Tæknilega hliðin var verri. Við fundum að framfar- irnar voru ekkert rosalegar og tók- um því einkatíma hjá kennara í TBR. Hann fór yfir undirstöðu- atriðin með okkur og það hjálpaði mikið.“ — Firtu sáttur viö útgjöldin sem fylgja þessu? „Já, mér finnst þetta ekki vera dýrt. Núna erum við 4 saman með einn völl sem kostar 20 þúsund. Það gera 5 þúsund á mann, í allan vetur. Við höfum völlinn fram í apríllok. Tíminn kostar þá 140 krónur og það þykir mér ekki rnikið. Það er hægt að fá ágætis spaða fyrir lítinn pening. Það er líka mjög mikilvægt að vera í góðum skóm, og þeir duga Badminton er mikil og skemmtileg hreyf- ing sem œtti að duga hverjum manni sem stundar það reglu- lega manni í mörg ár, þannig að ég sé ekki eftir þessum aurum. Þetta sport er alltaf jafn- skemmtilegt. Að vísu koma tímabil þar sem ekkert gengur hjá manni en þetta er skemmtun, við æfum ekki til að komast í keppnisflokka.“ — F>tu ánægður meö árangur þinn? „Já, já, þetta er fljótt að koma. Það tekur u.þ.b. 1—1 Vi mánuð að komast sæmilega af stað. Ég hvíli mig á þessu á sumrin og spila þá fótbolta í staðinn. En mað- ur þarf að halda sér vel við efnið ef maður ætlar að verða virkilega góður. -Það geta allir æft badmin- ton og náð því að verða nokkuð færir og nælt sér í góða hreyfingu um leið.“ Eftir þessar fögru lýsingar á badmintoníþróttinni voru striga- skórnir dregnir frarn og pússaðir, pantaður tími og AF STAÐ. Það er ekki að spyrja að því. Þetta var stór- skemmtilegt. Ekki var nú mikið reynt á sig svona í fyrsta tímanum, því handlama manneskjur skrifa nú ekki mikið. En vellíðanin eftir á lét ekki á sér standa og samviskunnar vegna var þetta mjög sniðugt!! ■

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.