Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 2

Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 2
Föstudagur 16. september 1988 2 PRESSU íslenskra bókaútgefenda hélt mikinn hitafund sl. þriðjudag. Tilefni fundarins var sölukerfi bóka, en útgefendur voru æfir út í Mál (>k menningu, sem hafði að dómi margra útgefenda f'arið langt út fyrir ramma núgildandi sölu- kerfissamninga. Mál og menning mun hafa virt að vettugi samstarfs- reglur bókaútgelenda og boðið nýjar bækur í bókaklúbbum sínum á niðursettu verði, eða allt að 30% lægra verði en í bókaverslunum. Þá fór það mjög í taugar forleggjara að Mál og menning mun hafa liaft í hyggju að bjóða öllum klúbbfé- lögum sínum 15% afslátt af jóla- bókunum í verslunum M&M. Úr- slitin urðu þau að samþykktar voru nýjar tillögur sem miða að því að opna sölukerfið, og mun breskt bóksölukerfi vera tekið til fyrir- myndar þar sem útgelendur geta ákveðið hvort bækur hlíta ákveðn- um sölusamningum eða hvort þeir taka einstakar bækur úl úr sölu- kerfinu og selja þær eltir öðrum reglunr. Bóksalar munu vera að kanna hinn nýja samning þessa dagana áður en hann verður gerður opinber... Fimmtudaginn 8. september sl. tók íslenska auglýsinga- stofan hf. formlega til starfa. Islenska auglýsingastofan er samruni tveggja aug- lýsingastofa, Octavo hf. og Svona gerum við. Félagar í Sniglun- um stóðu vörð og tóku við yfirhöfnum gesta og þegar inn var komið tóku við Ijúfir tónar frá hljóð- fœraleikurum er stað- settir voru á skrif- stofum víðsvegar um auglýsingastofuna. o o o o Eitthvað krass- andi hefur þarna flogið á milli þeirra Ástu H. Maack og Heimis Pálssonar. „Topparnir“ á íslensku auglýsingastofunni hf: Jón Karlsson, Jónas Ólafsson, Friðrik Friðriks- son og Kristján Friðriksson. Hér ræðast fagmenn við. (Frá vinstri) Hrefna frá aug- lýsingastofunni ESSEM, Brynja Baldursdóttir frá tslensku auglýsingastofunni og Sigríður Líba frá NÆST. Kristján Hall frá Akra og Magnús Bjarnfreðsson frá Kynningarþjónustunni. Sniglarnir stóðu vörð og tóku við yfirhöfnum. velkomin i heiminn! Þau Ólöf Halldórsdóttir og Sveinn Guðnason eru foreldrar þessarar myndartelpu, sem fyrst leit dagsins Ijós þann 13. sept- ember. Hún mældist 15 merkur og 51 sm við fæðingu, en verður það eflaust ekki lengi ef hún er dugleg að drekka. Særós Guðnadóttir og Baldur Hannesson eignuðust strák þann 11. september. Sá litli hefur fengið nafnið Hannes og vó hann tæpar 16 merkur og var 51 sm langur. Hannes litli var svolitið feiminn við Ijósmyndarann okkar, enda ekki vanur því að sitja fyrir. Skyldi hann hafa boxíþróttina í sér, þessi? Þessi ungi maður virðist ekki ýkja hrifinn af myndatökum. Hann er sonur þeirra Guðriðar Oagnýjar Erlingsdóttur og Ágústs Jónasar Guðmundssonar og kom i heim- inn 13. september. Þá reyndist pilturinn 50 sm langur og 12,5 merkur að þyngd. Þeim Erlu S. Kristjánsdóttur og Grétari Guðmundssyni fæddist dóttir 7. september. Hún vó 16 merkur og var 53 sm löng. Þessi stelpa, sem er með mikið og dökkt hár, verður ekki eina heima- sætan í fjölskyldunni því hún á þrjár eldri systur. Sú elsta er 6 ára og þvínæst koma 3ja ára tviburar. Þórdis Skúladóttir og Guð- laugur Ragnar Emilsson eignuð- ust stúlku 9. september. Hún vó 16 merkur og var 54 sm löng. Þessi litla dama hélt sér vel vakandi, því hún vildi ekki missa af neinu. Okkur smáfólkinu finnst gaman að vera til, það er svo margt skrýtið og skemmtilegt i þessum stóra heimi. Þeim Hjördísi Sigurbjörnsdótt- ur og Kolbeini Árnasyni fæddist sonur 9. september. Hann var 14 merkur og 51 sm langur. Hann var afskaplega þreyttur þegar við á Pressunni litum inn og rumskaði ekki. Maður fær nú líka nóg af ys og þys þegar maður er orðinn ör- litlu stærri. Kolbrún Hannesdóttir og Tryggvi Eyþórsson eiga þennan pattaralega strák, sem lét sem hann vissi ekki af myndavélinni. Pilturinn er 53 sm og heilar 16,5 merkur. Þóra Helga Jónsdóttir og Ingvi Jón Rafnsson eignuðust stúlku- krili 10. september. Hún vó 11 merkur og var 48 sm löng. Á þess- ari mynd sefur hún vært, þessi lika hárprúða stelpa, og lætur sér ekki bregða þó hún sé mynduð í bak og fyrir. BLÖM FYRIR BARNASÖGU Eftirfarandi sögu heyrdi ég danska vinkonu mína segja af sjálfri sér, þegar hún var lítil: „Ég hafði þann leiða sið, þegar ég var um 5 ára gömul, að benda á fólk úti á götu og ræða um útlit þess við mömmu. Þetta varð víst oft af- skaplega neyðarlegt fyrir hana og reyndi hún því að fá mig til að hætta þessu. Það gekk eitthvað illa, svo mamma greip til þess ráðs að segja mér að geyma þessi ummæli mín með sjálfri mér. Við gætum síðan rætt um viðkomandi persónur, þegar við værum komnar heim. Næst þegar við mamma fórum saman í strætó sá ég afskaplega ófríða gamla konu. Þá sneri ég mér að móður minni og sagði svo hátt að glumdi í strætisvagninum: „Mamma, þessa konu skulum við sko tala um, þegar við komum heim!“ Þessa barnasögu sendi Friöa B. Lofts- dóttir, Neshaga 15, og fær hún sendan blómvönd frá BLÓMÁVALI i þakklætis- skyni. PRESSAN hvetur alla, sem luma á skemmtilegri barnasögu, til aó hripa hana á blað og senda okkur. Heimilis- fangiö er: PRESSAN — barnasaga, Ármúla 38, 108 Reykjavlk.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.