Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 20
Föstudagur 16. september 1988
20
OKKAR VERÐ
pressupennar
/ægra en hjá öðrum
Ný lambalaeri
559.- kr. kg.
Lambahryggur
549.- kr. kg.
Lambasúpukjöt
380,- kr. kg.
Lambakótilettur
559> ■ kr. kg.
Lambalærissneiðar
679.- kr. kg.
Lambagrillsneiðar
445,- kr. kg.
Lambasaltkjöt
438.- kr. kg.
Lambaskrokkar 1. flokkur
334.- kr. kg.
, '
I
I Ma,i"eZTTttsm
Marme,a)a,ae„ur
.. . 579 -kr.l(g
Marmeraóarlserissneiðar
599- kr. kg.
Marineruö rif
J99.-kr.kg.
^gikjótslæri
Han9ikjöts'framPartur úrb.
u 658.-kr.kq
^mslæ,i úrbeinað
238. ■ kr. kg.
Hi 92LötsJramPartar
I- m. J51,- kr. kg.
London/amb
743■■ kr. kg.
b,
líta á lífið
sem leik.
Ábyrgðin er okkar -
fullorðna fólksins.
yUMFERÐAR
RAD
Lengi lifi rigningin
Mér hefur stundum þótt vestur-
þýskur almenningur hræðast rign-
inguna. Sérstaklega á sumrin, en á
þeim árstíma má víst aldrei rigna og
vei þeim veðurfræðingi, sem ekki
kveður sjónvarpsáhorfendur á fal-
legri hessísku nteð loforði um sól og
hita á morgun. Menn hér álita það
því ekkert tiltökumál, þó«,al-
mættið bíði með að hella niður öllu
þessu vatni fram yfir allar helstu
bjór- og vínuppskeruhátíðir.
Ég er hins vegar svo skynugur að
sjá, að ef vatnið yrði „fryst“ uppi í
háloftunum væri ekki bruggaður
bæverskur hveitibjór.
Og ég væri ekki til.
Stundum gefst almættið upp á að
halda í sér á heitum sumardegi. Þá
ríkir einskonar upplausnarástand.
Sértu t.a.m. staddur í þýskri göngu-
götu þegar tekur að rigna má sjá
velflest skósólamunstur veraldar, er
múgurinn æðir undir þök og tjöld,
æpandi og kveinandi.
Ég leyfi mér að efast um að göt-
urnar myndu tæmast á svo skjótum
tíma, þólt Helmut Kohl fyrirskip-
aði lúðrablástur um allt land og
auglýsti kjarnorkustríð.
En þú ert íslendingur og lætur
ekkert á þig lá.
Opnar kannski regnhlíf, en
aðeins i stuttan tima. Þú ert nefni-
lega minnugur þess að annar eins
hégómi og sú regnfæla hefur ekki
borist að íslands ströndum.
Þú gengur því áfram í rigning-
unni, léttur í spori, og glottir
framan í aumingja Þjóðverjana. Þú
hraðar máske göngunni lítið eitt,
sem táknar þó ekki annað en það,
að þú mátt ekkert vera að því að
hanga í einhverjum húsum og bíða
cltir uppstyttu.
En þeir sem selja fáránleika
heimsins og eiga undir hann skjól-
góðar hallir á fimm lueðum núa
saman höndum í gleði sinni og
bjóða upp á emaleraða potta og
talandi brúður handa regnhrjáðunt
borgarbúanum.
Eða skipulagðar sundferðir í
karabíska hafinu.
Ég stend sjálfan mig að því sí og
æ, að verða að viðurkenna eitt og
annað.
Til dæmis á maður það til að
blotna ansi mikið í bæversku rign-
ingunni.
Ég man hins vegar, að þegar
maður var lítill og hafði ekki upp-
götvað öll þægindi lífsins færði það
sálinni sólskin að mega una sér í
kvótalausri tréskipaútgerð við ein-
hvern forarpollinn í grenjandi rign-
ingu.
Slíkar tregablandnar minningar
voru kallaðar fram sunnudaginn
þegar við Heiða tókum að okkur að
f
„gæta“ fjögurra þýskra unglinga
undir bióaldri.
Foreldrarnir komust óséðir inn í
miðborg að sjá Carmen.
Þennan sunnudag var (eins og
alltaf) rigning.
A heimilinu voru nú fjórir púkar
á hlaupum og höfðu ekki enn upp-
götvað þægindi eins og sófalegu,
bjórsötur, bóklestur og þögn. Og
þessi barnahjörð fór smátt og smátt
að fara í annars harðgerar taugar
gæslumannanna. Hún virtist nefni-
lega ráfa um húsið líkt og höfuð-
laus her og gaf ekki önnur hljóð frá
sér en öskur og grátur, eða kvein á
mat og drykk.
Þessi börn máttu ekki fara út í
rigninguna. Þau gátu víst orðið vot.
I stað þess að eiga tækifæri á að
vera heilbrigð börn urðu þessir
aumingjar að eigra um heimili sitt
sem fangar... vegna veðurs.
Börn eiga víst að vera svo sak-
laus. það var hins vegar ekki hægt
að segja um eldri drenginn þennan
umrædda sunnudag. Hann bar
lymskulega fram þá ósk, að mega
leika sér úti.
Barnagæslumennirnir tóku ákaf-
lega vel í þessa ósk.
Viðbrögð þeirra komu drengnum
nánast í opna skjöldu. Það mátti
sjá að hann hafði ætlað sér að sífra
og henda sér síðan æpandi á gólfið.
Hópnum var smalað saman,
hann settur í sjógalla og ýtt út í úr-
hellið, sem að okkar mati gat ekki
gert lýðnum annað en gott.
Inni fyrirskáluðum við í þægind-
um lífsins.
Foreldrarnir komu því miður
heim á undan börnunum og teljast
slíkir viðburðir barnlóstrunum
ekki til tekna — enda höfum við
ekki verið beðin að gæta þessara
barna siðan Carmen var sýnd.
En börnunum fannst gantan og
þá var tilgangi okkar náð.
Lengi lifi rigningin!
Það er líka eins gott...
Bjarni Jónsson,
Múnchen.
Það nýjasta frá
er komið
UTSÖLUSTAÐIR
Fókus
Lækjargötu 6b, Rvk
Beco
Barónstíg 18, Rvk
Týli
Austurstræti 6, Rvk
Canon
E708 *kr. 115.880.-
Canon
*miðað við staðgreiðslu
kynningarverð
Ljósmyndabúdin
v/Rauðarárstíg, Rvk
Leó litmyndir
ísafirði
Nýja filmuhúsið
Akureyri
TÝLI = ÞJÓNUSTA
CANON = GÆÐI
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
H________________________
F
Sérverzlun með Ijósmvndavörur
Austurstræti 6, s: 10966
Sendum í póstkröfu