Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 8

Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 16. september 1988 VIKUBLAÐ Á FOSTUDOGUM Útgefandi Blað hf. — Alþýðublaðið Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson Ritstjóri Jónína Leósdóttir Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu- blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 100 kr. eintakið. Barnfj andsamlegt þjóðfélag Skólar landsins eru að hefja starfsemi um þessar mundir. Krakkar fylla skólavöru- og ritfangaverslanir og tína saman hitt og þetta eftir listum, sem þeir hafa fengið frá kennurum sínum. Þeir þurfa að kaupa náms- bækur, stílabækur, alls kyns skriffæri, strokleður, ydd- ara, reglustikur, leikfimiföt og ótalmargt fleira. Og allt kostar þetta sitt. En þar með er sagan þó ekki öll. Margir þurfa líka að festa kaup á nýrri skólatösku og svo eru það skólafötin — þessi fasti liður á innkaupalista haustsins. Peysur og buxur, skór með grófum botni og vetrarúlpa. Fyrir utan vettlinga og húfur, sem samkvæmt gömlu náttúrulög- máli munu hafa týnt allverulega tölunni þegar kemur fram á vor. Það þarf ófáa þúsundkalla til að kaupa allar þær nauðsynjar, sem eitt barn þarf við upphaf skólagöngu að hausti. Bara ein skólataska úr plasti kostar 2.500— 3.000 krónur og vetrarföt og kuldaskór fást heldur ekki gefins. Og öll þessi útgjöld margfaldast að sjálfsögðu með fjölda barnanna á heimilinu, svo það er einfaldlega óskiljanlegt hvernig barnmargt lágtekjufóik fer að því að kljúfa þetta á hverju ári. Oft heyrist sagt að Islendingum fjölgi ekki nóg. Fólk þyrfti að eignast fleiri börn. Eflaust gætu líka margir vel hugsað sér stóran barnahóp. Það er hins vegar sorgleg staðreynd, að fólk hefur hreinlega ekki efni á því að láta þann draum rætast. Auðvitað er það ekki bara kostnað- ur við skólagöngu barnanna, sem því veldur. Vandinn hefst á meðan barnið er enn í vöggu. Flestar mæður verða að vinna úti, hvort sem þær hafa áhuga á því eða ekki. Ein laun duga engan veginn fyrir íbúðarkaupum og framfærslu fjölskyldu. Og þá kemur kostnaður við barnagæslu til sögunnar — fyrir utan erfiðleikana við að verða sér úti um slíka gæslu. Á tyllidögum má stundum heyra ráðamenn þjóðar- innar tala hástemmdum rómi um „æsku þessa lands“ og „börnin, sem eiga að erfa landið“. Það fer hins vegar minna fyrir raunhæfum aðgerðum til þess að gera fólki það auðveldara að eignast og ala upp þessi börn. Fjöl- skyldunefnd ríkisstjórnarinnar var að vísu að skila niðurstöðum sínum fyrir skemmstu og í þeim var margt jákvætt. En hverjar eru líkurnar á því að þetta plagg verði að veruleika í þjóðfélagi þar sem hringsólandi veit- ingastaðir, Viðeyjarstofur og ráðhúsbákn eru fremst í forgangsröðinni? Þjóðfélagi, sem þar að auki lætur það viðgangast að fóstrum og kennurum séu greidd mun lægri laun — stundum helmingi lægri — en þeim, sem vélrita verslunarbréf eða passa peningakassa. „ Vantar þig ekki vanan smið í Ráðhúsbygginguna eða skoppara- kringluna á Öskjuhlíð? Eftir að ég gerðist ellilífeyrisþegi þarf ég nefnilega að vinna fyrir mér! “ „En það slátra fleiri kjöti en slát- urfélagið." — Úrhádeglsfréttum Rikisútvarpsins sl. fimmtudag. „Það heyrist lika oft að við dðmar- ar höfum stór eyru, en lítil augu.“ — Guðmundur Haraldsson knatt- spyrnudómari í Morgunblaðinu. „Það er hins vegar spurning hver eigandi vatnsins er, Guö almátt- ugur, bændurnír eða almenning- ur.“ — Gunnar Hilmarsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn. „Hver vill fá greitt fyrir að losna við aukakilóin?“ — llr auglýsingu frá Pósti og sima. „Það er tilgangslaust að jarða sig fyrirfram.'1 — Vésteinn Hafsteinsson kringlu- kastari i samtali við Morgunblaðið. „...Ijóst er að einhverjum verður þaö um megn að hefja slátrun...“ — Ólafur Sveinsson kaupfélagsstjórl í samtali við Þjóðviljann. „Dallas er einhver vandaðasti og mest spennandi framhaldsþáttur sem gerður hefur verið á seinni timum...“ — Úr lesendabréfi I DV. „Innrömmun er stór hluti af lifs- stíl íslendinga." — Fyrirsögn ur DV. „Ég gæti hugsað mér mann á aldrinum 35 til 45 ára, sem þorir, getur og vill stjórna fyrirtækinu eins og þarf i dag.“ — Þóra Hjaitadóttir I Morgunblaó- inu um ráðningu framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Akureyringa. „Ekki laust við að maður þrosk- ist.“ — Jakob Sigurðsson handknatt- leiksmaður I Morgunblaðinu. „Þessir leikmenn hlupu undir pilsfaldinn hjá Júri og kann það að hafa haft einhver áhrif á ákvörðun i þessu efni.“ — Jóhann Þorvarðarson fyrrum knattspyrnumaður I Vlkingi. „Sjálfstœðisflokkur- inn vill gengislœkk- un nú, þótt gengis- breytingin í maí hafi verið einhver mis- heppnaðasta efna- hagsaðgerð síðari tíma. “ — Úr lelðara Morgunblaösins. „Gott væri að fá einhvern tima rikisstjórn, sem reyndi aö passa peningakassann sinn og færi að því hollráði vitringsins Lao Tse aö láta fólkiö i landinu i friði.“ — Jónas Kristjánsson i leiðara DV. „Ætli nokkur vildi ráða mig í vinnu.“ — Guðlaugur Pálsson 92 ára kaup- maður í DV. „Annaðhvort vill Frikirkjan mig ekki eða Þjóðkirkjan vill ekki sleppa mér.“ — Guðmundur J. Guðmundsson i DV. „Vikingaþjóðin i norðri lætur ekki vandamál upp á eitt kafffi- hús i hring stöðva sig neittt af.“ — Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðlngur i DV. Dagur í Davíðsborg hin pressan

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.