Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 32
d
^^■eila er komin upp á miili
íþróttafréttaritara útvarps og yfir-
stjórnar RÚV vegna launagreiðslna
fyrir útsendingu útvarps og sjón-
varps af Ólympíuleikunum í Seoul.
Tveir fréttaritarar verða á leikunum
í Seoul, en þeir Bjarni Felixson, Jón
Oskar Sólnes og Ingólfur Hannes-
son sitja við nótt og dag og taka við
beinum útsendingum auk þess sem
þeim er uppálagt að „pródúsera"
efni fyrir endurútsendingar síðdeg-
is og á kvöldin. Yfirstjórn RÚV
mun hafa ákveðið að fyrir þetta fái
þeir tímakáup sem þeir eru engan
veginn sáttir við. Það mun fyrst og
fremst vera vinnan við endurút-
sendingarnar sem fréttamennirnir
segja að sé viðbót við vinnuskyldu
sína og launagreiðslur í engu sam-
rænii við vinnuálagið. Hafa allir
íþróttafréttamenn RÚV sent ráða-
mönnum stofnunarinnar samþykkt
þar sem þess er krafist að skýr svör
liggi fyrir um lausn málsins fyrir
þann 17., þ.e. þegar ólympíuveislan
fer í loftið. Enn hafa engin svör bor-
ist að ofan...
L
BHeyrst hefur að auglýsinga-
tími Stöðvar 2 fáist á útsöluverði
víðsvegar um bæinn. Munu þeir
Stöðvarmenn hafa verið duglegir í
uppbyggingu fyrirtækisins að
skipta á vörum og tækjum gegn
auglýsingatíma. Þetta fojm mun
vera komið meira inn í reksturinn
og mun knattspyrnufélagið Valur
eiga óseldar 25 mínútur af svoköll-
uðum a-tíina, sem er besti auglýs-
ingatíminn fyrir utan 19:19. Þenn-
an tíma fengu þeir í greiðslu fyrir
sýningarréttinn að Ieiknum við
frönsku meistarana Monaeo. Sá
böggull fylgir skammrifi, að tíminn
verður að notast fyrir 15. október
og fæst nú á verði sem er undir 50%
af því sem taxti Stöðvar 2 segir til
um. Munu menn í íþróttafélaginu
vera orðnir uggandi um að losna við
auglýsingatímann og þykjast orðið
sjá að þeir séu með verðlausa pen-
inga í höndunum.
^l^g meira af auglýsingatíma
Stöðvar 2. Auglýsingastofur í borg-
inni munu vera hættar að hringja á
Stöð 2 til að panta tíma, því hann
fæst mun ódýrar annars staðar,
enda liti það illa út fyrir stofurnar
að sýna kúnnum sínum reikninga
upp á mun hærri tölur en tíminn
gengur á. Það virkaði auðvitað eins
og þær væru að krækja í peninga
fyrir sig sjálfar. Og nú veit víst eng-
inn hvert rétt verð er á auglýsinga-
tínia Stöðvarinnar...
Fjörutíuogþrír
aígreiðslustaðir Landsbankans
selja og innleysa
Spariskírteini Ríkissjóðs.
Spariskírtdni Ríkissjóðs cru iinujg fjárfesting og bcrn 7-8% ársvcxti umfram verðtryggingu. Spariskírtcinin eru
að verðgildi kr. 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og l.OOO.OOO.
I
I Slarfsfólk Landsbankans veitir ennfrcmur upplýsingar um aðrar góðar ávöxtunarleiðir, svo sem
Kjörbók, Afmœlisreikning og Bankabrcf
Landsbanki
islands
Banki allra landsmanna
Í^jármálaráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, hefur þótt harður í
horn að taka þegar niðurskurður og
eftirlit eru annars vegar. Fjárlögin
munu nú senn sjá dagsins ljós en
eru enn í biðstöðu meðan samráð-
herrar Jóns Baldvins eru að lesa
niðurskurðartillögur í ráðuneytum
sínum, sem fjármálaráðherra hefur
lagt til. Niðurskurðarhugmyndir
Jóns Baldvins munu vera það
miklar að ráðherrarnir eru orðnir
örvæntingarfullir og hafa nú alls
kyns sögur komist á kreik um
óvönduð fjárlög, seinagang fjár-
málaráðherra og vitlausa útreikn-
inga, sem greinilega eru settar af
stað sem ófrægingarherferð gegn
hugmyndum fjármálaráðherra um
niðurskurð. Þá munu samráðherrar
Jóns Baldvins vera mjög pirraðir út
í hagdeild fjármálaráðuneytisins
sem hefur eflst í tíð Jóns Baldvins
og miðar ráðuneytið alla útreikn-
inga við hagdeild sína en ekki við
Þjóðhagsstofnun...
L
HHilmar Oddsson vinnur á
fullu að undirbúningi að nýjustu
kvikmynd sinni, Meffí. Við höfum
frétt að nú hafi Hilmar fengið
heirhsfrægan bandarískan leikara
til að taka að sér hlutverk í kvik-
myndinni, nefnilega Eric Roberts,
sem menn kannski muna eftir í
kvikmyndum .eins og Coca Cola
Kid, Star 80 og Runaway Train...
f
■ orstjóraráðningin hjá Utgeró-
artelagi Akureyringa þykir orðin
allsherjar skrípaleikur fyrir norð-
an. Fulltrúi Alþýðuflokksins, Pétur
Bjarnason, getur ráðið úrslitum
með oddaatkvæði sínu og er reikn-
að nreð því að meirihlutasamstarf
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
verði áé'ndanum til þess að Gunnar
Ragnars verði fyrir valinu. Full-
trúar þessara flokka hafa hins vegar
verið flokkum sínum erfiðir; Pétur
er ekki flokksvanur i röðum krata
og er umkringdur framsóknar-
mönnum í íste^ss og Halldór Jóns-
son, annar fulltrúi sjálfstæðis-
manna, er undirmaður framsókn-
armannanna sem stýra sjúkrahús-
inu. En því er spáð að Gunnar verði
ofan á, enda hafa framsóknarmenn
ekki sameinast um ákveðinn
kandídat. Þeir geta líka nagað á sér
handarbökin: Fyrir tyeimur árum
neitaði Gísli Konráðsson að hætta
sem forstjóri fyrir aldurs sakir en
hefði hann gert það er líklegt að
framsóknarmaðurinn Helgi Bergs,
fv. bæjarstjóri, hefði orðið fyrir
valinu...
s
^^ögur um endurreisn Helgar-
póstsins hafa komist á kreik eftir að-
auglýst var eftir hluthöfum í
Morgunblaðinu um stofnun nýs
Helgarpósts. Auglýsingin var nafn-
laus en símanúmerið sem nýir hlut-
hafar gátu hringt í tilheyrir lög-
mannastofu Róberts Árna Hreið-
arssonar, Guðmundar Óla Guð-
niundssonar og Ólafs Sigurgeirs-
sonar, sem allir sátu í stjórn útgáfu-
lélags Helgarpóstsins sáluga og til-
heyrðu meirihlutanum sem náði
völdum í fáar vikur áður en blaðið
fór,á hausinn. Við heyrum nú að
Halldór Halldórsson, fyrrum rit-
stjóri Helgarpóstsins, hafi fengið
atvinnutilboð um ritstjórastöðu hjá
nýjum Helgarpósti en vitum ekki
hvort hann sagði já eða nei...
v
ið sögðum frá því í síðustu
viku að staða Lárusar Guðjónsson-
ar hjá Verkamannasambandinu
væri laus frá 1. október. Ekki hefur
enn verið ráðiö í stöðuna, en heyrst
hefur að Guðmundur ,1. Guð-
mundsson hafi augastað á Jóni
Kjartanssyni í hana. Jón er formað-
ur Verkalýðsfélags' - Vestmanna-
eyja...